Skógræktarritið - 15.10.2005, Qupperneq 82
Gunnarsson og Jón Geir Péturs-
son hjá Skógræktarfélagi fslands
og Aðalsteinn Sigurgeirsson,
forstöðumaður Rannsókna-
stöðvar Skógræktar á Mógilsá, en
hann sá einnig um túlkun. í ferð-
inni var gert víðreist um Ný-
fundnaland og margt áhugavert
skoðað. Ferðin byrjaði á austur-
strönd Nýfundnalands, en flogið
var beint til St. John's. Næstu tvo
daga var ekið til vesturs til Grand
Falls og Corner Brook og margt
áhugavert skoðað á leiðinni tengt
skógrækt og skógariðnaði og
sögu, laxveiði og almennri sögu.
Næst var stefnan tekin norður á
bóginn og næstu þrem dögum
varið til að skoða mannvistar-
leifar, bæði frumbyggja Ný-
fundnalands og norrænna
víkinga, skóga og skógrækt og
ýmis merkileg náttúrufyrirbrigði
innan og utan þjóðgarða. Því
næst var haldið nær sömu leið til
baka til St. John's, en á leiðinni
voru skoðaðir skógar, merkileg
jarðfræði og nokkrir hefð-
bundnari „túristastaðir", s.s.
fiðrildasafn og víngerð. Seinasti
dagurinn var svo frjáls og nýtti
fólk sér það vel til að skoða það
sem því fannst áhugaverðast í
nágrenni St. John's. Ferðin gekk í
alla staði vel. Veður lék við
ferðalangana, þar sem sólskin og
blíða var nær alla ferðina og alls
staðar var vel tekið á móti
gestunum, en Nýfundlendingar
reyndust vera einstaklega
gestrisið og rausnarlegt fólk og
kom fólk þvf brúnt og sællegt
heim. í þessari grein verður
fjallað um Nýfundnaland
almennt og þá staði og þætti
ferðarinnar sem mesta athygli
vöktu almennt. Nánar verður
fjallað um skóga á Nýfundna-
landi og nýtingu þeirra í næsta
hefti Skógræktarritsins.
NÝFUNDNALAND - LAND OG
ÞJÓÐ
Nýfundnaland er eyja undan
austurströnd Norður-Ameríku og
myndar ásamt Labrador austasta
fylki Kanada. Eyjan er rúmlega
111.000 km2 að stærð, með
tæplega hálfa milljón íbúa og er
þvf aðeins stærri en fsland og
svolítið fjölmennari. Um helm-
ingur núverandi íbúa býr í litlum
sjávarþorpum meðfram strönd-
inni, en aðrir búa f stærri bæjum
og borgum, stærst hverra er
borgin St. John's, sem er höfuð-
borg fylkisins. Efnahagur Ný-
fundnalands byggir mest á nýt-
ingu náttúruauðlinda, sérstak-
„Purpuragildrublöðungur" (Sarracenis purpurea) hefur verið einkennisblóm fylkisins
Nýfundnalands og Labrador síðan 1954. Plantan er kjötœtuplanta, finnst aðallega í votlendi
og dregur enskt nafn sitt (pitcher plant, pitcher=kanna) af könnulaga blöðum sínum, en pau
notar plantan til að veiða skordýrin, sem hún lifir d. Mynd: R.F.
80
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005