Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 86
leiddi til algjörs þorskveiðibanns
kanadískra stjórnvalda árið 1992.
Bannið kippti stoðunum undan
efnahag stórs hluta sjávarþorpa
eyjunnar, en tilvist margra þeirra
er nær algjörlega undir fiskveið-
um komin. Hrun sjávarútvegsins
hefur svo aftur ýtt undir endur-
skoðunina á veru Nýfundnalands
innan Kanada og hafa Nýfund-
lendingar oft litið til fslands til
samanburðar í þeim efnum.
L'ANSE AUX MEADOWS -
LEIFSBÚÐIR
Nafnið L'Anse aux Meadows er
franskt að uppruna, afþökun á
L'Anse aux Méduses, sem þýðir
Marglyttuvík eða Stórhveljuvík og
á við svæði nálægt nyrsta odda
Nýfundnalands þar sem rústir
fundust árið 1960 er bent gætu til
búsetu norrænna manna þar.
Norski lögfræðingurinn og land-
könnuðurinn Helge lngstad og
kona hans Anne Stine Ingstad
fornleifafræðingur lögðu í mikla
leit að mögulegum viðkomustað
norrænna manna í Ameríku um
1960. Höfðu þau m.a. lesið rit
athafnamanns frá St. lohn's,
William Azariah Munn að nafni,
sem árið 1913 gaf út ritið
„VJineland Voyages, Location of
Helluland, Markland and Vinland",
þar sem hann skrifar um „Lancey
Meadows" sem líklegan við-
komustað víkinga. Nutu Ingstad-
hjónin aðstoðar heimamanna á
L’Anse aux Meadows við að finna
rústirnar. Árin 1961-1968
Sandy Robertson
Segja má að ein forsenda þess að geta skipulagt svona ferð til
Nýfundnalands hafi verið „íslandsvinurinn" Alexander (Sandy)
Robertson. Sandy er fæddur í Skotlandi, fjölmenntaður
náttúrufræðingur með háskólagráður í skógfræði og landafræði og
doktorspróf frá Oxford.
Tengsl Sandy við ísland ná langt aftur. Hann kom hingað fyrst á
eigin vegum 1962, en árið 1983 kom hann í boði Skógræktar ríkisins
og ferðaðist þá hringinn í kringum landið. Sfðan þá hefur hann
komið margoft til landsins og skapað góð tengsl við fjölmarga
íslendinga og þaulþekkir orðið landið og aðstæður. Of langt mál er
að rekja hér öll þau verkefni sem hann hefur tengsl við hérlendis, en
nefna má asparskóginn í Gunnarsholti, kennslu á Hvanneyri og
skipulag skjólbelta og skjólskóga.
Sandy er lfklega kunnastur fyrir rannsóknir sínar á samspili vinds
og skóga, en lesendur Skógræktarritsins ættu að rifja upp grein hans í
ritinu árið 1989 um það efni.
Því var það fyrsta skref í undirbúningi Nýfundnaiandsferðarinnar
að hafa samband við Sandy í St. iohn's. Hann tók þeirri umleitan
afskaplega vel og tók að sér að skipuleggja ferðina lið fyrir lið. Allur
sá góði viðurgjörningur sem okkur var sýndur var því afrakstur undir-
búnings hans. Einnig tengdi hann okkur vel við skógstjórn
(Department of Natural Resources, Forestry) fylkisins, þannig að
starfsmenn stofnunarinnar báru okkur á höndum sér allan tímann.
Það er upplifun að heimsækja Sandy og Geraldine konu hans í St.
John's þar sem þau hafa búið sér fallegt heimili. Garðurinn við húsið
er einstakur, vaxa þar um 600 tegundir plantna, einnig er hann
listilega hannaður. Á meðfylgjandi mynd af þeim hjónum sést gott
dæmi um það, en á grasflötina í bakgarðinum þar sem þau standa er
snjósköflum vetrarstormanna ætlað að leggjast í skjóli trjánna.
Sandy er margt til lista lagt. Hann hejur verið afkastamikill ísínu fagi, en einnig er
hann sekkjapípuleikari, tónlistarmaður sem auk þess sker út, teiknar og smíðar módel.
Hér þenur hann sekkjapípuna í Haukadalsskógi.
Hjónin Sandy og Geraldine Robertson
önnuðust undirbúning og sftipulagningu
ferðarinnar. Þau ferðuðust síðan með okkur
um eyna. Mynd: i.G.P.
84
SKÓGRÆKTARRITiÐ 2005