Skógræktarritið - 15.10.2005, Síða 87
L’Anse aux Meadows. Horft af minfasvœðinu upp til upplýsingamiðstöðvarinnar. Mynd:
J.G.P.
stunduðu hjónin fornleifa-
uppgröft sem staðfesti að hér
væri að finna minjar um búsetu
norrænna manna í Vesturheimi.
Rannsóknir staðfestu einnig að
aldur rústanna kæmi vel heim og
saman við ritaðar heimildir, svo
sem Grænlendingasögu og Eiríks
sögu rauða, sem í Hauksbók er
nefnd Þorfinns saga karlsefnis.
Árin 1973-1976 tók kanadíska
þjóðgarðastjórnin (Parks Canada)
við uppgreftrinum. Árið 1977 var
svæðið svo gert að þjóðgarði og
ári sfðar voru minjarnar settar á
Heimsminjaskrá Menningar-
málastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, sem fyrstu (og enn einu
þekktu) minjar um dvöl nor-
rænna manna í Norður-Ameríku.
Þótt rústirnar hafi fljótlega fengið
nafnið Leifsbúðir, greinir menn á
um hvort Leifur Eiríksson eða
nokkur þeirra landkönnuða sem
greint er frá í íslendingasögunum
hafi stigið þar á land. Nýverið
hafa komið út tvær áhugaverðar
bækur um þetta efni: Vínlands-
gátan eftir Pál Bergþórsson
veðurfræðing og Landnámsmaður
Vesturheims - Vínlandsför Þorfinns
karlsefnis, eftir Jónas Kristjánsson,
handritafræðing og fyrrverandi
forstöðumann Árnastofnunar.
Minjarnar
Búðirnar samanstanda af átta
húsum með sama byggingalagi
og er á landnámsskálum á íslandi
og Grænlandi. Þar af eru þrfr
íbúðarskálar sem óvíst er að
staðið hafi á sama tíma þvf tveir
þeirra hafa brunnið. Rústirnar
hafa verið aldursákvarðaðar með
geislakolsaðferðinni og teljast
vera frá því um 1000. Smiðjuhús
var á svæðinu og fundist hafa
menjar eftir rauðablástur, naglar
til skipasmíða og fleiri hlutir sem
staðfesta að leiðangursmenn
gerðu að skipum sínum þar,
einnig eru menjar eftir tóvinnu
og klæðagerð. Þykkir veggir
húsanna staðfesta að leiðangurs-
menn voru búnir undir vetursetu
fþessu mikla vetrarrfki. Engar
menjar eftir búpening eða
gripahús hafa fundist á svæðinu
og þar með er nánast útilokað að
um Leifsbúðir sé að ræða því að
Grænlendingasögu og Eiríks
sögu rauða ber saman um að
Guðríður Þorbjarnardóttir og
Þorfinnur karlsefni hafi haft með
sér allskonar fénað. Sé það rétt
að allir sex leiðangrarnir, sem
Grænlendingasaga rekur, hafi
dvalist í Leifsbúðum virðist loku
fyrir það skotið að í L’Anse aux
Meadows séu hinar eiginlegu
Leifsbúðir.
Hitt er víst, og rannsóknir styrkja
þá kenningu, að íslenskir land-
könnuðir hafa notað staðinn sem
áfangastað á leið sinni milli
Grænlands og austurstrandar
Norstead er endurgerð skálanna sem fundist hafa. Innanhúss má einnig finna endurgerða
hluti sem ferðamönnum er frjálst að handfjatla og skoða nánar. Mynd: J.G.P.
'Leiðangrar í tímaröð sbr. Grænlendingasögu: Bjarni Herjólfsson, Leifur Eiríksson, Þorvaldur Eiríksson, Þorsteinn Eiríksson,
Þorfinnur karlsefni, og Freydís Eiríksdóttir. Samantekt Jónasar Kristjánssonar.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
85