Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 89
engum sögum fer af. L'Anse aux
Meadows geymir einu minjarnar
sem fundist hafa sem staðfesta
það að norrænir menn hafi tekið
land f Ameríku og er því stór-
merkur staður í sögu mannkyns.
Að sama skapi ber að lofa fram-
tak þeirra heiðursmanna, Páls og
lónasar, sem að framan er getið.
Gaman var að upplifa hve vel
hinir fslensku ferðalangar fundu
sig heima f Leifsbúðum og gátu
margir þeirra frætt hina ensku-
mælandi víkinga um húsagerð,
hannyrðir og skipasmiðar svo fátt
eitt sé nefnt. Það er því sannar-
lega þess virði fyrir íslendinga að
feta f fótspor forfeðra okkar sem
hafa dvalist á L'Anse aux Mead-
ows í könnunarleiðöngrum
sínum um Vínland.
GROS MORNE
bJÓÐGARÐURINN
Gros Morne þjóðgarðurinn liggur
a vesturströnd Nýfundnalands og
var stofnaður árið 1973. Hann er
um 1800 km2 að stærð og er eitt
af tveimur svæðum á Nýfundna-
landi sem eru á Heimsminjaskrá
Menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, en Gros
Morne var settur á listann árið
1987 (hinn staðurinn er L'anse
aux Meadows, eins og áður hefur
komið fram). Stofnun þjóð-
garðsins var nokkuð umdeild á
sínum tfma, þar sem hún kallaði
á að allri þjónustu yrði safnað á
nokkrar miðstöðvar, sem þýddi
að fbúar ýmissa smáþorpa við
ströndina urðu að flytja til stærri
bæja. Einnig leiddi stofnun þjóð-
garðsins til takmarka á fiskveið-
um og á veiðum og skógarnýt-
ingu innan þjóðgarðssvæðisins. f
dag er þjóðgarðurinn hins vegar
mikils metinn, vegna mikilvægis
ferðaþjónustu og annarrar þjón-
ustu sem tekjulindar fyrir samfé-
lagið á svæðinu, sérstaklega eftir
hrun fiskiðnaðarins upp úr 1990.
Rocky Harbour er einn þeirra bceja er stækkaði við stofnun þjóðgarðsins. Bærinn er nú
miðstöð fyrir rekstur þjóðgarðsins, en stór hluti íbúa bœjarins vinnur við ferðaþjónustu, a'samt
þvíað stunda hefðbundnar fiskveiðar. Mynd: R.F.
Náttúrufar Gros Morne
þjóðgarðsins
Þjóðgarðurinn var upprunalega
stofnaður vegna þess að landslag
og jarðfræði þar þykir skóla-
bókardæmi um landrekskenn-
inguna, sem snýst f mjög grófum
dráttum um þá hugmynd að
jarðskorpunni sé skipt í fleka,
sem fljóta á möttli jarðar og
hefur rekið, bæði sundur og
saman, fgegnum jarðsöguna. f
þjóðgarðinum má sjá berg sem
upprunalega var
hafsbotnsjarðskorpa og
möttulberg. löklar hafa líka
mótað landslag Gros Morne og
má skipta þvf í tvo meginþætti:
láglendi við ströndina og há-
fjallasiéttu. Innan þessara megin-
Elgir setja nokkuð svip sinn a Gros Morne þjóðgarðinn, þar sem þéttleiki þeirra þar er um 6
dýr á km1 og eru ferðamenn því mjög líklegir til að rekast d þá, bæði í óeiginlegri og eiginlegri
merkingu, en víða meðfram vegum innan Gros Morne eru skilti er tilgreina hversu margir
bílar hafa lent í árekstri við elg þetta árið. Mynd: E.G.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
87