Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 90

Skógræktarritið - 15.10.2005, Page 90
Cape Spear - Vonarhöfði Við mynni St. iohn's flóa að sunnan er Vonarhöfði, austasti tangi Kanada (47°31.48'N, 52°37.12'W). Hann eroft ranglega kallaður austasti hluti Norður-Ameríku en þarsem Grænland telst land- fræðilega til Norður-Ameríku, stenst það ekki. Nafnið mun sprottið úr portúgölsku; "Cabo da Esperan^a" sem á frönsku er "Cap d'Espoir” og þá var ekki langt yfir í hina ágengu engilsaxnesku; Cape Spear skyldi höfðinn heita. Vonarhöfði er vinsæll útivistar- staður fyrir íbúa og gesti höfuðborgarinnar enda útsýni þaðan stórfenglegt. Þar vakir elsti uppistandandi viti Nýfundnalands yfir umhverfinu, byggður 1836. Hann er nú safn um líf og starf vita- varða, en sama vitavarðafjölskyldan var á höfðanum í 150 ár. Þá eru þarna vel varðveittar minjar frá seinni heimsstyrjöldinni, m.a. tvær stórar fallbyssur, en St. lohn's var viðkomustaður skipalesta milli stríðshrjáðrar Evrópu og Norður-Ameríku. Einnig eru þarna mikil neðanjarðarbyrgi, sem nú eru notuð í friðsamari tilgangi til list- sýninga og tónleikahalds og lítil kapella enda vinsælt að brúðhjón láti pússa sig saman á Vonarhöfða og þannig stóð einmitt á þann dag sem greinarhöfundar áttu leið um þennan heillandi stað. Brimið skellur á hörðu fornbergi við Cape Spear, en berg hér er að uppruna forn■ bergflís úr Evrópu. Mynd: E.G. þátta má svo finna tilkomumikið landslag, með flatlendi, fjallgörð- um, jökuldölum, hömrum, ám og vötnum. Þetta fjölbreytta lands- lag býður upp á vistsvæði fyrir fjölbreyttar tegundir plantna og dýra og býr þjóðgarðurinn yfir töluverðri líffræðilegri auðgi. Mjög fjölbreyttur gróður finnst því innan Gros Morne, þar á meðal um 700 tegundir blóm- plantna og um 400 tegundir bæði mosaplantna og fléttna og skófa, þótt að trjágróður sé kannski sú flóra sem mest ber á, en stórir hlutar þjóðgarðsins eru þaktir skógi. Þjóðgarðurinn er einnig heimili ýmissa dýrategunda, bæði spendýra og fugla. Meðal spendýra má nefna hreindýr (caribou), svartbirni, refi og elgi, en Gros Morne er með einhvern mesta þéttleika elgs í allri Norður-Ameríku. Um 240 fugla- tegundir hafa sést í garðinum, en til samanburðar má geta þess að það eru ívið fleiri tegundir en sjást árlega á íslandi öllu. Mannlíf á Gros Morne svæðinu Gros Morne snýst hins vegar ekki bara um náttúrufræði, en fólk hefur búið á svæðinu í yfir 5000 ár. Fyrir komu Evrópumanna bjuggu bæði forverar indíána og inúíta á svæðinu, upphaflega „for-indfánar" (Arcfiaic Indians), en seinna meir „forn-inúítar" (Paleo- Eskimos) á tímabili þegar veðurfar var kaldara. Evrópumenn komu fyrst á svæðið á 16. öld, en elsta kort af þjóðgarðssvæðinu er frá árinu 1534, úr könnunarleiðangri Jacques Cartier. Eins og Ný- fundnaland almennt var Gros Morne svæðið lengi bitbein Frakka og Breta. Bretar unnu yfirráðin, en Frakkar héldu lengi vel fiskveiðiréttindum á „Frönsku ströndinni” svokölluðu (fram til 1904) og er enn minnihluti frönskumælandi íbúa á svæðinu. Grundvöllur byggðar á svæðinu var fyrst og fremst fiskveiði, en ásamt henni voru stundaðar veiðar á landi og selveiðar á vetrum, einnig stunduðu flestir íbúar nokkra heimarækt. Gros Morne svæðið var hins vegar mjög fámennt og einangrað lengi vel, það var ekki fyrr en með mikilli uppsveiflu í sfldveiðum í kringum 1870 að fjöldi íbúa tók að aukast að ráði. Svæðið hélt hins vegar áfram að vera nokkuð einangrað innan Nýfundnalands. Póstur og birgðir komu með skipum á sumrin og hundasleð- um á vetrum fram undir 1950, þegar fyrstu almennilegu vegir til svæðisins voru lagðir. Þróunin á 20. öld hefur almennt verið sú að færa fólk á svæðinu frá smærri byggðum til stærri bæja, sem hefur breytt nokkuð hefðbundnu lffi fólks. Mannlíf í dag á Gros Morne svæðinu er því nokkuð blandað. Að hluta til er það enn sterklega mótað af sögunni, þar sem hluti íbúa heldur enn tölu- vert hefðbundinni verkaskiptingu 88 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.