Skógræktarritið - 15.10.2005, Qupperneq 111
Ályktun 8
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli
dagana 27.-28. ágúst 2005, beinir
því til allra, sem stunda skógrækt
á íslandi að þeir vinni eftir skóg-
ræktaráætlun, þar sem fullt tillit
er tekið til allra umhverfisþátta
og þá sérstaklega til landslags-
hönnunar.
Ályktun 9
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands, haldinn á Lýsuhóli dag-
ana 27.-28. ágúst 2005, hveturtil
þess að Skógræktarfélag íslands
beiti sér fyrir því að stórbæta
aðgengi og umhirðu skógar-
svæða svo þau verði aðgengileg
til útivistar og afþreyingar.
Stjórnarkjör
Nú fór fram stjórnarkjör. Skv.
lögum félagsins áttu Þorvaldur S.
Þorvaldsson, Ólafía Jakobsdóttir
og Guðbrandur Brynjúlfsson að
ganga úr aðalstjórn. Þau gáfu
kost á sér áfram til þriggja ára og
voru kosin samhljóða. Vilhjálmur
Lúðvíksson, Hólmfríður Finn-
bogadóttir og Páll Ingþór
Kristinsson, sem setið hafa í
varastjórn, gáfu kost á sér áfram
og Sigurður Skúlason gaf einnig
kost á sér. Gengið var til kosn-
inga og varð niðurstaðan sú að
varastjórnin situr óbreytt áfram.
Birgir ísleifur Gunnarsson og
Halldór Halldórsson voru endur-
kjörnir skoðunarmenn reikninga.
Almennar umræður
Skúli Alexandersson kvaddi sér
hljóðs og stakk upp á þvf að
aðalfundurinn yrði haldinn í
byrjun september en ekki í lok
ágúst vegna ferðamanna-
tímabilsins. Samþykkt var að
vfsa uppástungu hans til stjórnar.
Fundarlok
Margrét steig í pontu og sagði að
margir undruðust hversu kraft-
mikil hún væri, kona á níræðis-
aldri. Margrét sagði lykilinn vera,
að lifa í núinu, að kvíða engu, að
hlakka ekki til neins heldur að
njóta hvers augnabliks. Margrét
Guðjónsdóttir þakkaði fundar-
gestum komuna, lýsti yfir mikilli
ánægju með fundinn og þakkaði
öllum sem lögðu hönd á plóg.
Jónatan Garðarsson, stjórnar-
maður f Skógræktarfélagi Hafnar-
fjarðar, bauð til næsta aðalfundar
í Hafnarfirði á 60 ára afmæli
Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.
Orri Hrafnkelsson tók til máls og
ræddi um nauðsyn þess að virða
skoðanir annarra. Þá sagði hann
að draga mætti lærdóma af
sögunni og margt mætti læra af
forystumönnum 19. og 20. aldar.
Magnús Jóhannesson þakkaði
fundarstjórum, embættismönnun
og formönnum nefnda, starfs-
mönnum Skógræktarfélags
fslands og sérstaklega Skóg-
ræktarfélagi Heiðsynninga fyrir
frábærar móttökur. Hann sagði
skógræktarfélögin vera á réttri
leið og hvatti þau til að vera sem
virkust og sýnilegust og að laða
til sín nýja félagsmenn. Hann
sagðist hlakka til þess að vinna
áfram innan skógræktar-
hreyfingarinnar. Síðan sagði
hann 70. aðalfundi Skógræktar-
félags íslands slitið.
ítarupplýsingar, er tengjast 70.
aðalfundi Skógræktarfélags
íslands, er að finna á heimasíðu
Skógræktarfélags íslands,
www.skog.is. Þar er m.a. birt
fundargerð, ávarp formanns,
ályktanir fundarins, starfsskýrsla
stjórnar og reikningar félagsins.
Samantekt:
jóhann Frímann Gunnarsson.
Á kvöldvöítunni voru heiðursfélagar þeír, sem staddir voru á fundinum, hylltir ásamt
Margréti. Frá vinstri Karl Eiríksson og Páll Samúelsson, sem höfðu verið kjörnir heiðurs-
félagar fyrr um kvöldið, Margrét Guðfo'nsdo'ttir frá Dalsmynni, Sveinbförn Dagfinnsson,
|ónas lónsson, Hulda Valtýsdðttir, Sigurður Blöndal og Guðrún kona hans. Mynd: JFG.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
109