Helgarpósturinn - 28.11.1980, Blaðsíða 6
6
aðalhlaðtð
Föstudagur 28. nóvember 1980. l.tbl.
Geir vargunga
..en er nú haröur.
Geir harður af sér
„Ég er búinn að fá andskotans
nóg af þessu kjaftæbi um aó ég sé
gunga”, sagöiGeir Haligrimsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
þegar Aðalblaðiö spurði hann um
fyrirætlanir hans i sambandi við
landsþing flokksins næsta vor.
Geir sagöist ætla að „sýna þessu
pakki i eitt skipti fyrir öll, hver sé
hinn sterki maður I forystusveit
flokksins”, eins og hann orðaði
þaö.
Sem kunnugt er hafa staðið yfir '
fundir hinna ýmsu Sjálfstæðis-
Qokksfélaga á landinu, þar sem
kosið er um fulitrúa á flokksþing-
iö. Hafa þeir sigrað á vfxl Gunn-
arsmenn og Geirsmenn. „Þetta
ætla ég að stoppa”, sagöi Geir.
Hann mun ferðast um landið i
tengslum viö félagsfundina, og
freista þess að veröa viðstaddur
þá alla. „Ég vona bara að fólk
fatti að ég get verið reiður og
nasti á við hvern annan, áður en
það kýs Gunnar. Þvi ef það gerir
það, á það ekki von á góöu”, sagði
Geir.
Geir hefur i framhaldi af þessu
boðist til að slást við „hvern sem
er, hvenær sem er”, efist einhver
um harðneskju hans og ákveðni.
„Ég er sko ekki barnanna best-
ur”, sagöi hann að lokum.
Maður fundinn sem að-
hyllist efnahagsstefnu
ríkisstjórnarinnar
„Jú, það held ég nú”, sagði
bóndi nokkur I Hrunamanna-
hreppi, en hann er eini maðurinn
á landinu sem aöhyllist stefnu
rikisstjórnarinnar í efnahags-
málum. Til skamms tima var tal-
iö að enginn „væri svo vitlaus”,
eins og haft var eftir stjórnarand-
stæðingum, en á réttarballi fyrr i
haust „glopraði ég þessu útúr
mér i ölæði” sagði bóndinn.
Hann hefur siöan farið huldu
höfði, en á miðvikudaginn var gaf
hann sig fram .við fjölmiðla.
Bóndinn hefur ekki viljaö láta
nafns sins getiö, þar sem ekki
hefur enn náðst til allra aöstand-
enda hans. „Þaö minnsta sem
maður getur gert er að vara fólk
viö”, sagði hann.
Tómas Arnason, viðskiptaráð-
herra var að vonum glaöur viö
fréttirnar: „Það hlaut að koma
aöessu. Rikisstjórnin hefur unnið
mjög vel aö þessum málum á
undanförnum mánuðum, og nú
hefur komið i ljós að það starf er
aö skila árangri. Þess verður
vonandi ekki langt aö biöa aö
annar bætist i hópinn”.
Lúðvik finn-
ur Jesú
Lúövik Jósepsson, fyrrverandi
formaður Alþýðubandalagsins,
kom mjög á óvart þegar hann til-
kynnti á landsfundi flokksins um
siðustu helgi aö hann hefði „fund-
ið Jesúm”. Sló þögn á fundarsal-
inn þegar Lúðvik lýsti uppgötvun
sinni. Hann fór siöan mörgum
oröum um ágæti kristindóms, og
hrakti faglega kenningar sumra
kommúnistaleiötoga þess efnis að
trúin væri eiturlyf.
Þegar biskup var spuröur álits
á þessum ummælum Lúðviks,
vildi hann sem minnst um máliö
segja. „Ég vissiekki einu sinni aö
hann væri týndur”, sagöi hanh.
Lúövik hefur nú tekið saman
viö Einar J. Gislason hjá Fila-
delflunni, og hyggst predika
reglulega á Guðsþjðnustum þar.
„Nei, ég er ekki orðinn elliær”,
Hækkun hjá
lögfræðingum
Taxti lögfræðingafélags tslands
hækkar um 17% frá og með næstu
mánaöamótum. Þá kostar krónur
27 þúsund að hringja I lögfræðing,
32 þúsund ef spurt er til nafns, og
39 þúsund ef borið er upp erindi.
Lúðvik prédikar i fyrsta skipti i
Ffladelfiuhúsinu.
svaraöi Lúðvik á blaöamanna-
fundi sem hann hélt. „Ég hef
einfaldlega frelsast. Ég sé ljósið.
Svo hjálpi mér Guö.”
TRÚNAÐARMÁL
Fréttabréf nr. 8
Mér finnst ég skulda ykkur svo-
litla skýringu á þvi hvernig á þvl
stendur aö sumir ná langt I póli-
tik, en aðrir ekki. Ég hef tekiö
saman nokkur atriöi sem að
gagni mega koma, og bið ykkur
aöhafa þau i huga þegar framml
sækir.
1 fyrsta lagi þurfiö þiö að taka
ykkur tak, setjast niðurog spyrja
sjálf ykkur hvort þið hafið þá
hæfileika sem til þarf. Góöur
stjórnmálamaður veröur að upp-
fylla viss skilyrði. Grundvallar-
skilyrði eru til dæmis:
Greind, sköpunarhæfileiki,
þjónustulund, staðfesta, heiðar-
leiki, og vera ekki skithæll og
kúkapakk.
Ég læt svo til að flest ykkar
komist að þeirri niðurstöðu að þiö
hafið enga þessara kosta. Það
geröiég. En þaö skiptir ekki máli.
Það sem máii skiptir er eftir-
farandi:
Peningar
Almennileg kosningabarátta
verður ekki rekin án peninga. Þá
er gott aö eiga góöa aö. Annars
verður að læra aö plokka. Það er
auðveldast með þvi að ná i stuön-
ing og trygga stuðningsmenn,
sem vilja vinna fyrir mann. Það
er hægt meö loforðum.
Makk
Lýðræði gengur útá málamiöl-
anir. Þannig má bjóða forystu-
mönnum ýmissa hópa þjóöfélags-
ins á fyllerl eða I mat eða eitt-
hvað, og lofa þeim einhverju.
Láta þá siðan lofa góðvild I stað-
inn. Svoleiðis er hægt aö ná i ótrú-
lega mörg atkvæði.
ÍJtlit
Nútimastjórnmálbyggjast ekki
sist á fjölmiðlum. Þvi er nauö-
synlegt að skapa sér fyrirfram
ákveðinn stæl. Maöur getur verið
harður, eða mjúkur, indæll eða
töff. Þetta er spurning um stæl.
Flökt
1 islenskum stjórnmálum gildir
lögmáliö aö hafa ekki hreina
stefnu. Mikilvægasti hæfileiki
stjórnmálamannsins hlýtur að
vera að svara úr og I, án þess að
eftir þvi sé tekið. Dæmi: Sp: Hver
er þln skoöun á þessu máli? Sv:
Þaðer .. er .. altsoskoðun min og
mins flokks .. að .. að það sé að ..
að .. nauðsynlegt altso aö ... að..
— og svo framvegis I nokkrar
minútur. Þá veit enginn lengur
um hvað er verið að tala.
Sannsögni
1 stjórnmálum er nauösynlegt
aö hafa sannleikann að leiðar-
ljósi. En það þarf dcki endilega að
vera allur sannleikurinn, né
ekkert nema s'annleikurinn.
Þannigeroft á tíöum nauösynlegt
aö bera út hitt og þetta um and-
stæðinginn. Stundum má þaö
vera lygi. Enginn er fullkominn.
Vilm undur Gylfason
ÞINGMENN GATA Á
LAUNAPRÓFINU
Kjaradómur vinnur nú af krafti
I þvl að ákvarða þingmönnum
kaup. Hefur dómurinn meöal
annars sent þingmönnum ýtar-
legan spurningalista um lif þeirra
og starf, svo betur megi átta sig á
hvar I launastigann þingmenn
eigi að koma. Hingaö til hefur
verið reiknað með að þingmenn
fái hliðstætt kaup við forstjóra
rikisstofnana, ráðuneytisstjóra
og flugmenn, en samkvæmt upp-
lýsingum eins kjaradómsmanna
eru horfur á að ef til vill veröi
ekki unnt að hækka þingmenn i
launum á við þessa aöila. Tuttugu
prósent launahækkunin sem
koma átti fyrir ári, gæti ailt eins
veriö frestað um ókomna framtlð.
Allflestir þingmanna hafa nú
þegar skilað inn spurningalistan-
um, með svörum þar sem þeir
hafa getaö svaraö. Aö sögn
kjaradóms gefa svörin ekki tilefni
til mikillar launahækkunar, ef
nokkurrar. Reyndar gekk
þingmönnum misvel i prófinu,
enda spurningarnar marg-
brotnar. Meðal þess sem spurt
var um var til dæmis:
37. Ef stóri visirinn er beint upp,
og litli visirinn beint til hægri, er
þá komið kaffi?
45. Ef 60 þingmenn eru 3 minút-
ur að labba úti Þórshamar, hvaö
eru þá 20 þingmenn lengi aö labba
úti Þórshamar.
89. Hvað heitir samgöngu-
ráðherra?
100. Mundiröu að skrifa nafnið
þitt efst á blaðiö?
Ragnar Arnalds var fljótastur i
prófinu.
VIGDIS A
BATAVEGI
Frú Vigdis Finnbogadóttir er
nú á góöum batavegi eftir áfalliö
sem hún fekk á þriöjudaginn var.
Samkvæmt upplýsingum Borgar-
spltalans er hún úr allri hættu, en
samt enn mjög máttfarin.
Vigdis var sem kunnugt er ekið
úr forsætisráöuneytinu I sjúkrabil
um klukkan ellefu á þriðjudags-
morguninn. Hún haföi þá verið á
vikulegum fundi sinum meö
Gunnari Thoroddsen, þar sem
Gunnar skýröi henni frá stöðu
mála I stjórnmálunum. Sam-
kvæmt upplýsingum forsetarit-
ara, Birgis Möller, hafði Gunnar
verið að reyna aö skýra efna-
hagsstefnu rlkisstjórnarinnar og
framkvæmd stjórnarsáttmálans
fyrir forsetanum þegar hún hné i
gólfiö og „hló sig máttlausa”,
eins og ritarinn orðaði þaö.
Niðurtalningin hafin
Framkvæmd niöurtalningar-
leiöarinnar hófst loks i sölum
Alþingis á miövikudagskvöldiö.
Þá réðst Ólafur Ragnar
Grimsson snarlega að Tómasi
Arnasyni og greiddi honum
bylmingshögg undir bringspal-
irnar. „Hann kallaði mig Marliyn
Monroe helviskur”, útskýrði
Ólafur eftirá.
Tómas lá þegar samanskropp- stund.
inn á gólfinu, og aðeins sekúndu-
broti siöar var niðurtalningin
orðin að veruleika. Mikill hávaði
og spenningur var I þinginu þegar
þetta gerðist, þaö var hrópað og
kallað. En dauðaþögn féll á þegar
Gunnar Thoroddsen stóö upp og
taldi hæversklega: 10—9—8—7....
Þingheimur allur gerði sér grein
fyrir að þetta var söguleg
LAUS STAÐA
Frá og með 2. desember nk. óskast viðgerðarmaður til
starfa við glugga dómsmálaráðherra. Góð íslensku-
kunnátta áskilin. Upplýsingar um uppruna sendist
skrifstofunni.
Frá Dómsmálaráðuneytinu.
Sælkerakvöld
Enn gefst gestum Blóma-
salar að njóta sælkera-
máltíðar í góðu umhverf i.
Að þessu sinni velur mat-
seðilinn hinn þekkti út-
varpsmaður Humar B.
Lauksson, af sinni al-
kunnu kunnáttu og
smekkvfsi.
Njótið gómsætra rétta í fögru umhverfi
Matseðill Humars:
Isköld nýmjólk sælkerans
(Lait Gourmet freese)
Vatnssoönar vlnarpylsur I kryddsósum og brauöi
(Saucisses bouilles en croute, sauce épice, Hot dog)
Litlar súkkulaði kexkökur að hætti hússins
(prince polo)