Helgarpósturinn - 17.07.1981, Blaðsíða 17

Helgarpósturinn - 17.07.1981, Blaðsíða 17
17 Jielnarpósturinn Föstudagur 17. íúií 1931 Asgeir 10 Kamban 19 vetrar, aö stjórnin lagöi hart aö mer að halda áfram starfinu i eitt og hálft ár til viðbötar og ég féllst á þau tilmæli. Vildi ekki hlaupa á dyr. Ég held að hugmyndir stjórnarinnar hafi gengið Ut á það, að i'bigerð hafi verið tillaga til lagabreytingar, þar sem gert væri ráð fyrir aukinni hlutdeild fulltrúaráðsins við ráðningu for- stjóra. Þótti st jórninni þvi rétt að biða með ráðningu nýs forstjóra, þangað til þessar tillögur hefðu fengið umfjöllun og ef til vill sam- þykki”. — Kom þer þá á óvart að Svavar skyldi hlaupa til og ráða i embættið og i framhaldi, þér hefur þá ekki fundist, sem hann væri hálfvegis að reka þig á dyr? „Ráðherra kallaöi mig á sinn fund, áður en ráðningin var til- kynnt og sagði mér aö hann hygðist ráða I embættiö. Þessir hlutir gerðust allir á elleftu stundu og menn höfðu sótt em- bættið, svo það er að vissu leyti skiljanlegt að ráðherra ákvæði að ráða nýjan mann. Nei, það var langt frá þvi að ég liti svo á að mér hafi verið sparkað, þótt ég hefði ljáö máls á þvi, að halda áfram vegna eindreginna óska stjórnarinnar. Ég hafði áður ákveðið að hætta, svo Ut af fyrir sig, var ég ekkert ósáttur við þessi málalok: — Hvernig heldur þU að eftir- m aður þi nn — Ingi R. H d gason — komi til með aö standa sig i' starfi forstjóra? „Þaö tekur að sjálfsögðu tima fyrirhann eins og aðra aö komast inn i starfið, en ég reyndi að upp- lýsa hann um helstu atriðiáður en ég fór og aðstoðarforstjórarnir eru öllum hnUtum kunnugir og verða honum mikill styrkur. NU, Ingi er reyndur maður á margan hátt, en liklegt er að fyrstu mánuðirnir reynist honum erfiðir vegna reynsluleysis á þessu starfssviði”. — Hvernig tilfinning var það að hreinsa skrifborðið þitt eftir ára- tugasetu við það? „Það rifjaðist auðvitað margt upp, þegar ég var að taka saman mitt hafurtask. En það var mikill munur að fara af sjálfsdáðum, en ekki vegna þess að einhver vildi losna við mann. Það heföu eflaust verið sárar tilfinningar ef ég hefði verið að hrökklast þarna i burtu gegn vilja minum. En ég er ekki alveg kominn Ut úr tryggingastörfunum, þótt ég sé hættur hjá Brunabót, því ég er formaður stjórnar Viðlagatrygg- inga íslands og einnig formaður nefndar, sem nU endurskoðar lög Viðlagatrygginga. Og þar verður nóg að gera”. ,, Tryggin gaf él ög um kemur til með að fækka”. — Eru ekki alltof mörg trygg- ingafélög að bitast um sama litla markaðinn? Væri ekki hágkvæm- ast að eitt öflugt rikisrekið fyrir- tækið hefði tryggingamálin á sinni könnu? „Þetta hefur verið dálitiö við- kvæmt mál. Það er alveg rétt, að markaöurinn hér er litill og mikill fjöldi tryggingafél aga þýðir aukna dreifingu f jármagnsins. Þetta orsakar að minni trygg- ingafélögin eru i raun ekkert annað en umboðsaðilar stórra er- lendra tryggingafélaga, þvi þau verða aö endurtryggja geysimikiö erlendis. Þetta fyrir- komulag er þjóðhagslega óhag- kvæmt, þvi fjármunir streyma út úr landinu með þessum hætti. Ég er þó ekki viss um að rétt væri að steypa þessu öllu saman i eitt ri'kisrekiö fyrirtæki, en i ný- legum lögum um vátrygginga- félög er gert ráö fyrir ströngu eftirliti með fjárhag trygginga- félaga, þannig að félög séu ekki að taka aö sér verkefni, sem þau geta ekki annað vegna fjárskorts. Ég held að þróunin hljóti að verða sú, að tryggingafélögum fækki fremur en hitt og litil félög detti upp fyrir. Við hjá Brunabót höf- um verið langstærstir I bruna- tryggingunum og það hefur þýtt, að viö höfum litið þurft að endur- trjtggja erlendis á þeim vett- varigi. Af þessu má sjá, að færri og stærri félög myndu auka á hagkvæmnina og draga Ur þess- um endurtryggingum i Utlönd- um”. — Hvað hefur þú skrifað upp á háa vátryggingarupphæð i einu skirteini? „Ég held að stærsta trygginga- ski'rteini, sem ég hef skrifað upp á hafi verið verktakatryggingin (contractors a 11 risk) þegar Al- verið var i' byggingu. Upphæðin var upp á 36 milljónir dollara og þetta var 1967”. ..Greinilega svindl ....” — (Jr einu i annað. Hefur það gerst á þinni tið, að fyrirtæki eða einstaklingar hafi kveikt i eighum sinum og heimtað tryggingaféð frá Brunabót. „Ekki minni tið, slikt hefur a.m.k. dcki sannast á neinn. Svona sögur koma upp á stund- um, sérstaklega, þegar vitað er að ákveðin fyrirtæki, hafa staðið höllum fæti og svo skyndilega brennur allt. En þessi mál eru rannsökuðofanikjölinn og á min- um forstjóraárum ekkert svona misjafnt komið upp á. Ég man að visu eftir einu til- viki, tengdu þessum málum. Það kom maður inn á Brunabót og vildi tryggja vörulager og bil, sem hann kvaðst geyma i skúr einhvers staðar i borginni. Maðurinn vildi fá sérstaklega hraða afgreiöslu á málinu. Þegar komið var með skirteini inn á borð til min og ég beöinn að skrifa uppá það, þá sfcipaðiég svo fyrir, eftir að hafa skoðað mai.'ð. að maður frá okkur yrði sendur til aö skoða þennan umtalaða varning. En þegar þessi „varningur” var skoðaöur, þá kom i ljós, að um var að ræða öökuhæfa bildruslu og nokkra tóma kassa. Þaö var þvi greinilega svindl á ferðinni og maðurinn fékk ekki tryggingu. Siðan gerðist þaö hins vegar, að þessi sami maður fékk tryggingu annars staðar og stuttu siðar brann skúrinn og allt sem i hon- um var. Ekki fékk þó maðurinn bætur fyrir þennan „dýrmæta varning” þvi sannleikurinn um kassana og bildrusluna komst i hendur réttra aðila”. — Þið hafiö sem sagt látið keppinauta ykkar vita um hiö rétta i þessu máli. En er ekki bissnessinn miskunnarlitill i tryggingabransanum? „JU, ég held að miðað við við- skipti almennt, þá sé hvaö mest og hörðust samkeppnin á vett- vangi tryggingamálanna. Það eru miklarýfingar á milli féiaga. Samkeppnin er hörö og óvægin, þótt leikreglur séu virtar”. — Lokaspurningin. Þú sást á stóli forstjóra i Brunabótafélag- inu f 25 ár. Þú sérö ekki eftir stólnum, eða fékkstu kannski skrifborðsstólinn þinn með, þegar þU hættir? „Nei, ég skildihann eftir. Ennþá er ég ekki farinn að sjá eftir starfinu. Mér finnst eins og ég sé i sumarfrii nUna, en það getur vel verið að eftir nokkra mánuði fái ég bakþanka og vilji aftur i gamla góða forstjórastól- inn. Býst þó varla við þvi, enda hef ég nóg við timann að gera og kviði ekki framtiðinni”. — Fjármagnið þið leikhUsið á einhvern annan hátt en aö selja inn á sýningar? „Við erum svo heppin að fyrir utan styrkinn sem bærinn veitir okkur höfum við LeikhUsiö hérna alveg endurgjaldslaust og meg- um nota það að vild. Við leigjum sjálf Ut hUsiö, höfum til dæmis leigt þaðút til áhugamanna og get ég bent á að AlþýöuleikhUsið kemur bráðlega hingað til Akur- eyrar og fær aðstöðuna til syn- ingar hjá okkur. — Kennið þið leiklist? „Já við höfum verið með nám- skeið fyrirunglinga og komum til með að halda þvi áfram næsta vetur. Við höfum jafnvel hug á að setja upp verk með aðstoð ungl- inga. Við erum a.m.k. full af bjartsýni og áhuga og það skiptir mestu fyrir gott leikhUs”, sagöi Theódór að siðustu. ________eg THOMAS SUPER RYKSUGAN ER EKKI VENJULEG RYKSUGA HÚN SOGAR NÁNAST HVAÐ SEM ER Ryk—Vatn — Möl — Sand — Stiflur úr vöskum o.fl. o.fl. Hótel — Fyrirtæki — Stof nanir — Bændabýli, og allsstaðar þar sem Hentar fyrir heimili sogkrafts er þörf. - Skóla Akranes Málningarþjónustan Akureyri KEA Járn og gler Akureyri RAF Geislagötu Blönduós Kaupfélag Húnvetninga A-Hún. Borgarnes Kaupfélag Borgarness Búöardalur Kaupfélag Búóardals Egilsstaðir Kaupfélag Héraðsbúa r Eskifjörður Vérslun Elíasar Guðnasonar Á Fáskrúðsf jörður Kaupfélag Fáskrúðsf jarðar Hlb Flateyri Kaupfélág Onfirðinga Hella Kaupfélagið Þór Hvammstangi Kaupfélagi V Hún. Isafjörður Kaupfélag Isfirðinga Keflavik Stapafell Neskaupstaður Kaupfélagið Fram Patreksf jörður Verslun Baldvins og Kristjáns Raufarhöfn Kaupfélag N-Þing. Reyðarf jörður Kaupfélag Héraðsbúa Selfoss Kaupfélag Arnesinga Seyðisf jörður Kaupfélag Héraðsbúa Stykkishólmur Kaupfélag Stykkishólms THOMAS ER SVARIÐ VIÐ DÝRTÍÐINNI Biðjið um myndalista án skuldbindingar ábyrgð — Gerið verðsamanburð VERÐ FRÁ KR. 2.300 POSTSENDUM ASTRA Síðumúla 32 Sími 86544 SUZUKI LJ 80V jeppinn er lipur og sparneytinn torfærubíll, eins og sniðinn fyrir íslenskar aðstæður • Vél 4 strokka 41 hestafl «15" hjólbarðar •Eyösla 8,01 • Hátt og lágt drif • Þyngd 785 kg. — sportfelgur á 100 km. • Stórar afturdyr • Sjálfstæð grind • Verð kr. 85.000.- SUZUKI — sá sparneytnasti Sveinn Egilsson hf. Skeifan17. Sími 85100

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.