Helgarpósturinn - 17.07.1981, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 17.07.1981, Blaðsíða 18
^}ýningarsalir Nýlistasafnið: Um helgina og i næstu viku veröa áframhaldandi gerningar, vídeo og installation. — Sjá umsögn i Listapósti. Sýna bæði hollenskir listamenn sem og íslenskir verk sin og vldeotape veröa sýnd eftir bandariska, kanadiska, suö- ur-amerlska og þýska listamenn. Dagskráin veröur sem hér segir: t kvöld kl. 9. Sound Performance ,,con tanto erotismo” Mario Fick og Marina Florijn. Laugardagur og sunnudagur kl. 15 - 22. Video-tape. Mánudagur 20. júli kl. 9 veröur Þór Elis Pálsson meö gerning. Þriöjudag 21. júlí kl. 8 veröur „leikhúsgerningur” sem nefnist ,,Ekki ég ... heldur...” en þaö er Viöar Eggertsson sem fram- kvæmir hann. Miövikudag 22. júli kl. 9 veröa þeir Helgi Ásmundsson og Rúnar Guöbrandsson meö leikgerninga. Fimmtudaginn 23. júii kl. Sveröa Elin Magnúsdóttir og Finnbogi Pétursson meö sitt hvorn gern- inginn og fóstudaginn 24. júli kl. 18.00 veröur G. Erla Geirsdóttir meö installation. Norræna húsið: Sýning á verkum Jóns Stefáns- sonar stendur yfir i allt sumar. „Hann hefur þróast frá hálf fi- gúratifum nátúralisma (sem ef til vill hefur átt best viB hann cins og marga islenska málara) yfir 1 hreint abstrakt þar sem form og litir eru ekki lengur tjáning á ákveönu myndefni heldur lúta eigin lögmáium og innblástri.” — HL. t anddyri er sumarsýning á is- ienskum steinum á vegum Nátt- úrufræBistofnunar. Djúpið: Jay W. Shoots sýnir ljósmyndir. Tema sýningarinnar er Götulif i Reykjavik 1980—1981 „SOworks in silver”. Jay þessi er fæddur I Winter Park, Florida U.S.A. og byrjaBi aB fást viB ljósmyndun 14 ára gamáll. Hann er fæddur 1951 og sl. fimm ár hefur hann ein- göngu unniB viB ijósmyndun. Sýningin stendur til 22. júli og er opin daglega frá kl. 11—23. Listasafn Einars Jónssonar: OpiB alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30—16.00. Nýja galleriið: Laugavegi 12 Magnús Þórarinsson sýnir verk sin. GalleriiB er opiB frá klukkan 14.00—18.00 alla virka daga. Árbæjarsafn: SafniB er opiB aila daga nema mánudaga frá ki. 13.30 til 18.00 tii 31. ágúst. Strætisvagn nr. 10 frá Hlemmi fer aó safninu. Epal> Siðumúla 20: t kvöld kl. 22.00 hættir sýning danska iistamannsins og arki- tektsins Ole Kortzau en sýndar hafa veriB vatnslitamyndir hans ásamt grafik og textflverkum. Torfan: Nú stendur yfir sýning á ljós- myndum frá sýningum AlþýBu- leikhússins sl. ár. Ásgrímssafn: SafniB er opiB alla daga nema laugardaga frá kl. 13.30—16.00. Kirkjumunir: Sigrún Jónsddttir er meB batik listaverk. Gallerí Langbrók: Sumarsýning á verkum Lang- bróka stendur yfir. GalleriiB er opiB frá 13—18. Kjarvalsstaðir: Sumarsýning i Kjarvalssal. Sýnd eru vcrk eftir meistara Kjarval, úr eigu Reykjavikurborgar. 1 vestursal og á göngum eru verk eftir 13 islenska listamenn sem ber yfirskriftina: Leirlist, gler, textill, silfur, guli. „...verBugt og timabært inn- legg i baráttuna gegn me&vit- undarleysi okkar I iistrænum efnum. Vonandi ýtir hún undir skilning á listhönnun og nauBsyn þess, a& hlúB sé sem mest og best a& öllum sviBum hennar”. — HBR. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: OpiB á þriBjudögum, fimmtudög- um og laugardögum frá klukkan 14 til 16. Bogasalur: Silfursýning Siguröar Þorsteins sonar verBur i allt sumar. SigurBur þessi var uppi á 18 öidinni. Listasafn islands ' Litil sýning á verkum Jóns Stef- ánssonar og einnig eru sýnd verk í eigu safnsins. 1 anddyri er sýn- ing á grafikgjöf frá dönskum málurum. SafniB er opiB daglega frá kl. 13.30—16.00 Akureyri Rauða húsiö: A sunnuda&inn lýkur sýningu á ljósmyndum og fótokópium GuB- rúnar Tryggvadóttur. A þriBju- daginn kl. 21.00 verBa Mario Fick vjiyuoyui IV*' i j itziLjaftJVKalurinn- LEIÐARVÍSIR HELGARINNAR Útvarp Föstudagur 17. júlí 9.05 Morgunstund barnanna. „Geröa” Guörún Birna Hannesdóttir les. Þaö er ágætt aö drekka kaffiö yfir lestrinum. 11.00 „Mér eru fornu minnin kær”.Einar frá Hermundar- felli er alveg ótæmandi. 11.30 Morguntónleikar. Peter Schreier syngur ljóöalög eins og hónum einum er lagiÖ. 13.00 A frivaktinni. Bæn sjó- mannsins. 15.10 „Praxis” eftir Fay Weldon. Dagný heldur áfram þessari góöu sögu. Sperriö eyrun. 17.20 Lagiö hennar Helgu. Börn er ogsaa folk. 20.05 Pelastikk. Og þaö er hinn vinsæli Guölaugur Arason sem les kafla úr samnefndri skáldsögu sinni. 20.30 Nýtt undir nálinni. Gunni þó! S Aö þú skulir . 21.00 Þaö held ég nú —sjá kynn- ingu. 21.45 Söngur djúpsins. Þriöji og siöasti þátturinn um flamenco tónlistina. Ég vona aö Gulli og Torfi nái sér fljótt. 22.00 Kariakórinn Heimirætlar aö syngja meö sinu nefi erlend lög. Mætti segja mér aö þeir væru meö skemmti- legan framburö. 23.00 Djass meö sjálfum djass- geggjaranum Jóni Múla Arnasyni. 23.45 Fréttir og dagskrárlok. og Marina Florijn meB perform- ance sem ber yfirskriftina „con tanto erotismo” Lisfsýningarsalur Mynd- listaskólans á Akureyri, Glerárgötu 34, 4. hæð: A sunnudaginn lýkur sýningu á verkum Hrings Jóhannessonar. En um heigina er opiB frá 18 - 22. 'lónlist Sumartónleikar i Skálholtskirkju Eins og undanfarin sex sumur veröur efnt til sumartónleika i Skálholtskirkju og veröa hinir fyrstu helgina 18. og 19. júli. Tón- ieikar þessir, sem standa yfir I um þaö bil klukkustund, eru á laugardögum og sunnudögum og hefjastkl. 15.00. Aögangur aö tón- leikunum er ókeypis en aö þeim loknum er hægt aö fá kaffiveit- ingar I mötuneyti Lýöháskólans. A sunnudögum er messaö i Skál- holtskirkju kl. 17.0 0.. Aö venju veröur efnisskrá sumartónleika mjög fjölbreytt. Flutt veröa verk frá 10., 17. og 18. öld en einnig ný verk eftir islensk tónskáld. Sumartónieikar hefjast aö þessu sinni meö samleik Mauelu Wiesler flautuleikara og Helgu Ingólfsdóttur semballeikara. Flytja þær þessa fyrstu tónleika- helgi eingöngu nú Islensk tónverk og veröa frumflutt þrjú verk: Aube et Serena eftir Jónas Tómasson, 10 músikmínútur eftir Atla Heimi Sveinsson og verkiö Brot eftir Jón Þórarinsson. Auk þess veröur flutt „Da” fantasia eftir Leif Þórarinsson en hana samdi hann áriö 1979. Norræna húsið: Fimmtudaginn 23. júll ieika þær Manuela Wiesler og Helga Ing- ólfsdóttir saman á flautu og sembai. A efnisskránni eru verk eftir Islensk tónskald. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20. 30. AB- gangur aB tónleikunum er ókeyp- is. Hljómleikaferð til London: A þessum siBustu og verstu timum þegar JJorgin hefur veriB lokuB fyrir lífandi tónlist og hálf- gerB ládeyBa rikir i Islensku tón- listarlifi hefur veriB ákveBiB aB efna til hópferBar til London þar sem allt úir og grúir af góBri tón- list. Lagt verBur af staB fimmtu- daginn 20. ágúst meB flugvél til Amsterdam þar sem gist ver&ur eina nótt. Daginn eftir verBur lagt af staB meB lest til Rotterdam þar sem hoppaB VerBur upp i ferju sem flytur farþega yfir til Lond- on. Þeir sem hafa hug á ab slást I för meb þvi skemmti- lega fólki sem þegar hefur látiB skrá sig i þessa ferB er bent á aB hafa samband viB Bjarna Sig- urBsson i Fálkanum á Su&ur- landsbraut 8 (hljómplötudeild) efia einhvern i Fálkanum á Laugavegi 24. Nau&synlegt er aB borga inná fargjaldiB 500.- kr. sem fyrst. ^Aðburðir Norræna húsiö: A6 loknum tónleikum þeirra Laugardagur 18. júli 7.00 Veöurfregnir 9.30 Óskalög sjúklinga. Asa Finnsdóttir kynnir. Og hún er svo sæt... 11.20 Nú er sumar. Einsog krakkarnir viti þaö ekki. 13.35 iþróttaþáttur. Hemmi Gunn segir fimmaurabrand- ara. 13.50 A ferö. Óli hjólar i veg- farendur. Blikk, blikk. 14.00 Laugardagssyrpa. Geiri elskan gráttu ei, þó Palli sé betri en þú, þú, þú.... 14.50 tslandsmótiö i knatt- spyrnu. Fylgist meö frá byrj- un. Hemmi Gunn i ham. 16.20 Flóamannarolla. Nei, þetta er ekki nýjasta nýtt frá Mjólkurbúinu, heldur aöeins stuttar feröamannasögur. 18.00 Söngvar i léttum dúr. MikiÖ er ég feginn aö þaö séu engir i moll. 19.35 „Hljóöiö” Smásaga eftir Halldór Stefánsson. Knútur M. Magnússon les. I wonder. Ætli þetta sé eitthvaö tengt hljóögerningum. 20.00 Grettir nikkar. 20.30 Gekk ég yfir sjó og land. Jónas Jónasson heldur áfram I jólasveinaleiknum. 21.10 Hlööuball. Eftir aö Jónatan Garöarsson kom fram á sjónarsviöiö tekur leikritiö aöra stefnu. Jónatan ernefnilega glæpon. Hann lit- ur i fyrstu sakleysislega út, en tælir siöan Siggu frá Stóra-Kroppi. Kári veröur af- brýöissamur, en Jónatan ger- ir sér litiö fyrir og kálar Kára. Kári er úr sögunni. En upp komast svik um síöir. 22.00 Hollyridge-strengjasveitin nauögar bitlalögunum. 22.35 Helgi Sæmundsson spjallar yfir kvöldkaffinu. 22.55 Danslög og alls ekki á Borgina. Sunnudagur 19. júli 8.00 Morgunandakt meö bisk- upnum. 10.25 <Jt og suöur.Mannshöfuö á skreiöinni. Ella Pálma segir frá ferö sinni til Nigeriu haustiö ’62. Hún Ella hefur ISLENSKIR NAMSMENN I FRAKKLANDI OG HORNFIRSKAR HRYSSUR A dagskrá útvarpsins i kvöld kl. 21.00 veröur Hjalti Jón Sveinsson meö þátt sem heitir „Þaö held ég nú”. „1 kvöld koma fram þrir islenskir námsmenn, sem stunda nám i París, en þaö eru þau Gunnar Haröarson, Halldór Stefánsson og Jó- hanna Sveinsdóttir. Fjallað veröur um kjör námsmanna i Paris og fleira”, sagöi Hjalti Jón, er ég sló á þráöinn hjá honum og innti hann eftir efni þáttarins aö þessu sinni. „Ég ætla aö nota þetta tækifæri og biöja hlustendur velvirðingar á þvi aö þegar þáturinn var tekinn upp var 7 mánaöa gömul dóttir Gunnars mætt i upptökusal og eins og gerist og gengur meö börn á þessum aldri þurfa þau pela og snuö og gefa frá sér hljóö, hvort sem upptökumaður hefur grænt ljós eöa rautt. Nú, til aö vega upp á móti frönskum áhrifum þáttarins veröa örstuttar hugleiöingar um hornfirskar hryssur. Tón- listin i þætti þessum veröur hins vegar eingöngu frönsk og veröa spiluð lög meö lista- mönnum á borö viö Edith Piaf og George Moustaki”. Ég vil benda útvarpshlust- endum aö vera tilbúin viö út- varpstækin sin á slaginu kl. 9 i kvöld. Þaö veröur eflaust gaman aö hlýöa á þáttinn. — JÞ. Manuelu og Helgu veröur sýnd kvikmynd Osvalds Knudsen, Sveitin milli sanda. Aögangur er ókeypis. Sumarhátíð U.i.A. á Eiö um Nú um helgina veröur sumar- hátiö U.Í.A. haldin I sjötta sinn. Aö venju veröur mikiö um aö vera á Sumarhátlð U.l.A. Dag- skráin hefst á föstudegi meö setn- ingu hátíöarinnar kl. 18.00 og strax á eftir hefst meistaramót Austurlands i frjálsum iþróttum 18 ára og yngri. Stendur það mót alveg fram á sunnudag. Leikhús Alþýðuleikhúsið: er nú i leikför meB Konu eftir Dario Fo. og Fröncu Rarae. „ÞaB ætti aB vera ljóst aB leik- stjórn GuBrúnar Asmundsdóttur hefur tekist mjög vel. Hún hefur , valiB þá vandasömu leiB aB láta leikendurna vera á mörkum þess a& springa i loft upp og sleppa sér. .. ÞaB er þvi full ástæfia aB óska AlþýBuleikhúsinu til ham- ingju...” Föstudagur: Raufarhöfn. Laugardagur: SkúlagarBur i Ox- ari irBi: Sunnudagur: Húsavik. Ferðaleikhúsið: The Summer Theatre: Sýningar á hinum sivinsælu Light Nights eru aB Fri- kirkjuvegi 11 á fimmtudags-, föstudags-, iaugardags- og sunnu- dagskvöldum og hefjast sýningar kl. 21.00. EfniB i Light Nights er allt islenskt, en flutt á ensku a& undanskildum þjóBlagatextum og kveBnum lausavisum. MeBal ann- ars má nefna: þjóBsögur af huldufólki, tröllum og draugum, gamlar gamanfrásagnir og einn- ig er lesiB úr Egilsögu. Allt talaB efni er flutt af Kristinu G. Magn- ús, leikkonu. Nánari upplýsingar um sýninguna fást I simsvara 29020 á ensku. Ferðafélag Islands: 1 kvöld kl. 20 verBur fariB i Þórs- mörk, á Hveravelli, Eirlksjökul og Surtshelli og sögustaBi i Húna- þingi. A sunnudagsmorgun kl. 9 verBur fariB á Þrihyrning og kl. 13 á Kambabrún og Núpafjall. Otivist: 1 kvöld ver&ur fariB I Þórsmörk og Hnappada! kl. 20.00. En á sunnudag kl. 8 verBur eins dags ferB i Þórsmörk. E^íóin ★ ★ ★ ★ frámúfkkárandf' ★ ★ ★ágæt * ★ göB ★ þolanleg Q afleit Háskólabió: ★ McVicar. — Sjá umsögn 1 Listapósti. Austurbæjarbíó: ★ Caddyshack. — Sjá umsögn i Listapósti. Gamla bió: ★ ★ ★ Skyggnar (Scanners) — Sjá um- sögn I Listapósti. Nýja bió: ★ ★ Lokaátökin. FyrirboÖinn III (The Final Conflict. Omen III) — Sjá umsögn i Listapósti. Tónabió: ★ ★ ★ Dómsdagur nú (Apocalypse Now.) Bandarisk, árgerö 1979. Handrit: Francis Ford Coppola, John Milius. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Aöalhlutverk: Martin Sheen, Marlon Brando, Robert Duvall. „Apocalypse Now er i grunninum episk ferðasaga úr jarönesku hel- vlti... Óþarft ætti aö vera aö taka fram aö myndrænt og hljóörænt er Apocalypse Now einhver allra stórbrotnasta kvikmyndaupplif- unin sem menn geta oröið fyrir. Francis Ford Coppola er i minum huga lang merkasti kvikmynda- geröarmaöurinn I hópi ungu am- erlsku sénianna... Þannig veröur til list, en ekki bara dollarar. Þaö er þess viröi aö blöa eftir mynd frá Coppola.” — AÞ. Laugarásbíó: ★ ★ Darraöardans. (Hopscotch). Bandarisk, árgerö 1980. Handrit: Brian Garfield, Brian Forbes. Leikstjóri: Ronald Neame. Aöal- hlutverk: Walter Matthau, Glenda Jackson, Sam Waterston og Ned Beatty. ,, ... þaö er ekki hægt aö láta sér Hka illa viö svona mynd. Maður gengur út léttar í lund en maöur kom inn. Þá er tilganginum náö. Hins vegar kemur fátt á óvart og herslumun vantar á aö handrit sé nægilega vei skrifaö og leikstjórn nægilega snaggaraleg.” — AÞ. Stjörnubíó: Bjarnarcy. (Bear Island) Banda- risk. eftir samnefndri bók Alistair McLeans. Leikstjóri: Don Sharp. Aöalhlutverk: Donald Suther- landyVanessa Iledgrave, Richard Widmark og Christopher Lee. Þessi mynd er i hörkuspennandi og viöburöarrikastflnum. Hafnarbió: Uppvakningin (The Awaken- ing) Bresk-bandarlsk. Byggö á sögu eftir Brian Stoker. Aöalhlut- verk: Charlton Heston og Sus- anne York. Þetta ku vera mögnuö hrollvekja. Regnboginn: Lili Marleen. Þýsk árgerö 1981. Handrit og leikstjórn: Rainer Werner Fassbinder. Aöalhlut- sko veriö allsstaöar. 11.00 Og messan er frá Skál- holtskirkju. 13.20 Trio I B-dúr opus 97 eftir Didda beibi. 14.00 Lif og saga. Nei, ekki tiskublaöiö og hóteliö, heldur kóngurinn i Paris. 14.45 Guðspjallasöngvar i léttuni dúr. Nei, hættiöi nú alveg. 15.00 Þorgeir rekur sögu drengjanna fjögurra frá Liverpool. 16.20 Þaö er bókasafniö okkar. Ef svo væri, þá mundi maöur kannski skrifa eitthvaö af viti. 17.25 öreigapassian undir stjórn Björns Karlssonar og Sól- veigar Hauksdóttur. Passian er i c-moll opus 3- Franski kommúnukórinn syngur. 19.25 Elisabet Erlingsdóttir syngureins og hún vill aö aör- irsyngi. Hún syngur aö þessu sinni iög eftir Markús Kristjánsson og Sigursvein D. Kristinsson. 20.00 Þar sem á hennar holu skurn, hlaöiö var Látra- bjargi. Og sjálfur Finnbogi Hermannsson rekur garn- irnar úr Asgeiri Erlendssyni, vitaveröi. 21.00 Þau stóöu I sviösljósinu. 12 þættir um 13 islenska leikara. 3. þáttur. Brynjólfur Jó- hannesson. En gaman! 22.00 14 fóstbræöur syngja meö Elly Vilhjálms, en Óli syngur meö. 22.35 Landafræöi og pólitlk. Þaö er Benni Grön, sem lætur þaö flakka. 23. — 23.45 Danslög og slöan dagskrárlok. verk: Hanna Schygulla, Gian- carlo Giannini, Mel Ferrer, og fleiri. „Lili Marleen er ...Fass- bindermynd fyrir alla þá sem myndu aldrei undir venjulegum kringumstæöum láta sér koma til hugar aö sjá mynd eftir Fass- binder. Fassbinder sýnir þó hér margar sinar bestu hliöar — þvl myndin er fallega gerö og vel tek- in... A hinn bóginn er efniö ein- ungis ósköp . hugljúf ástarsaga, alveg þolanlega skemmtileg og jafnvel spennandi'á köflum en alveg girt fyrir allar djúpar pæl- ingar og krufningar eins og maö- ur heföi átt von á frá Fassbinder. Þess vegna er e.t.v. rétt fyrir höröustu aödáendur Fassbinders aö búa sig undir vægt kúltúr- sjokk.” —BVS. * * Cruising. Bandarlsk árgerö 1980. Handrit: William Friedkin, eftir sögu Geralds Walker, Aöalhlut- verk: AI Pacino, Paul Sorvino, Karen Allen og Ricjiard, Cox. Leikstjóri: William T^riedkin. „William Friedkin hefur áöur gert mynd um kynvillinga — litla mynd sem hét „The Boys in the Band” eöa eitthvaö álika. Sú var fremur finleg og skilningsrik stúdia, en I Cruising er blaöinu heldur betur snúiö. Enda vakti hún öflug mótmæli hommasam- taka i Bandarikjunum og annars- staöar þar sem hún hefur veriö sýnd. I Cruisinger veröld homm- anna viöbjóösleg, full af ofbeldi og sóöaskap, ein allsherjar orgia... Allter heldur endasleppt. Rétt tæpt á hlutunum og svo fyll- ist tjaldiö af blóöi eöa kynsvalli — sem reyndar viröast nátengd fyr- irbæri I þessari mynd”. —GA. HúsiÖ sem draup blóöi. Aöalhlutverk: Christopher Lee og Peter Cushing. Spennandi hrollvekja. Jómfrú Pamela. (Mistress Pam- ela.) Aöalhlutverk: Julian Barns og Ann Michelle. Hæfilega djörf gamanmynd. S kemmtistaðir Hollywood: A föstudag og laugardag er Villti-Villi I diskótekinu og sér hann um a& stjórna tónlistinni af sinni alkunnu snilld. A sunnu- dagskvöldiB verBur ein allsherjar hjólahátifi en þá endar hjólrei&a- keppni Holly, Fálkans og Valhall- ar. Ekki versnar hátíBin þegar Módel '79 mæta á staBinn meB tiskusýningu og rúsfnan I pyslu- endanum er djassballet, en 5 manns leika og dansa af hjartans list... Og svo mega örugglega allir dansa sjálfir. Óðal: A föstudag og laugardag er Sigga slkáta 1 diskóinu. Sigga er ein hressasta hér um slóBir og ætlar bæBi aB spila karla-og kvenna- rokk. A sunnudaginn verBur svo hin spennandi úrslitakeppni um SUM ARSVEINA OÐALS OG HELGARPÓSTSINS: Og spurn- ing dagsins er þessi: Hver verBur sumarsveinninn? eBa réttara sagt: VerBur Siggi sumarsveinn- inn? Afram Siggi... Ég stend meB þér. Snekkjan: Dóri beibi (jú nó) verBur I diskó- inu og spilar létt og þungt rokk. Nú er a& hefjast megrunarkeppni i Snekkjunni og verBur djammaB i. m á fullu til aB ná af sér allri dullu um alla helgina. SIBan held ég aB Pólverjarnir sjái um dansinn á laugardag. A sunnudaginn er lok- aB og þá förum viB I sund til aB taka af okkur nokkur pund. Þórscafé: Og þaB er hinn vinsæli matur sem hefst klukkan átta og ffnerfiB hefst I leiBinni. HvaB er fineri? spyrjiB þiB kannski. En Þórscafé er meB þaB á hreinu. Allir meB bindi... ÞaB er hin frumlega og tryllta hljómsveit DansbandiB sem sér um aB halda taktinum. Einn, tveir, tveir, tveir. Lok, lok og læs á sunnudag. Allir út úr bænum, á eftir hundum og hæn- um. Hótel Saga: Sögunætur eru sögulegar skal ég segja ykkur, ef þiB hafiB ekki nú þegar kynnt ykkur þær. A föstu- daginn eru sumsé sögunætur en hva& meB laugardagana? Ég er ekki alveg viss en Biggi Gunn. sér um tónlistina bá&a dagana. A sunnudaginn er lokaB en þá fara allir út aB synda og láta sér þaB lynda. Glæsíbær: Hin fala og svala hljómsveit, Glæsir sér um f jöriB og Rokki er i diskóinu. EBa var þaB Rocky, (ég meina bittar ekki máli). Sigtún: A föstudagskvöld og laugardags- kvöld kemur hljómsveitin Póland (já meB einu elli) I heimsókn. Og muni&i eftir bingóinu á laugar- dag. Sjálfvirkar þvottavélar, sjálfvirkar kaffikönnur, sjálf- virkar ritvélar, allt þetta geturBu fengiB I bingóinu, ef þú ert hepp- in(n). Stúdentakjallarinn: ÞaB eru sjálfir Gvendarnir sem spila ásamt öBrum. Og þessir menn spila skal ég segja ykkur, djass. Djass, djass djass seint á kveldi, djass, djass, djass snemma á morgni, djass, djass, djass, dag og nótt. Djassin er nefnilega eins og hitasótt. Hótel Borg: Disa létta sérum aB unglingamir geti dillaö sér en Disa þessi er diskótek, SkritiB! Allir á borgina. A sunnudaginn er herra Jón Sig- ur&sson og hljómsveit hans sem leika fyrir dansi. PassiB ykkur á gólfinu þaB er sleipt. Klúbburinn: A föstudags- og laugardagskvöld er þaB hljómsveitin Hafrót sem leikur fyrir dansi. Ég var alveg ofsalega sár a& þeir skyldu ekki vera si&ast. Þá var ég nefnilega me& hafrótarbólgu. Diskótek á hinum hæBunum, þaB er aB segja þar sem hafrótin er ekki. Naustið: Jón Möller leikur fyrir matar- gesti á föstudags- og laugardags- kvöldiB. Barinn er opinn I hádeg- inu á laugardag og sunnudag. Oll kvöldin er opiö til klukkan hálf tólf. ÞaB er ljúft i Naustinu. Hótel Esja: Eins og venjulega er opiB i terl- unni til kl. 10 á kvöldin en I Skála- felli er opiB til 01.30 og þá flytja Gunnar Páll Ingólfsson og Jónas Þórir (frændi) dagskrána „Manstu gamla daga”. ÞaB er svo margt aB minnast á krakk- ar... ÞaB þarf varla aB taka fram aB þaB er opiB öll kvöld. Loftleiðir: Blómasalur býBur upp á hádegis- ver& i hádeginu og aftur kl. 19.00 til ki. 23.30. A sunnudagskvöldum eru hin svokölluBu Vlkingakvöld en þá er þa& vikingur sem server- ar til borBs. HaldiBiaBþaBsémun- ur! Nti, hinn rómaBi Vinlandsbar er opinn um helgar I hádeginu en annars eingöngu á kvöldin. Og svo er þaB fyrir þá sem fara seint i rtimiB, Kaffiterlan opnar klukk- an fimm á morgnana, og býBur upp á sérlega lipra þjónustu. Djúpið: ÞaB verBur djassaB á fimmtudag- inn, þaB er alltaf djass á hverjum fimmtudegi. Lengi lifi djassinn. Lindarbær: Þristar er hljómsveit i þróun. Þristar er tæknilega séB þrusu- grúppa og þaB sem meira er þá er Haukur trommari einn sá taktfastasti hér um slóBir. Og ekki má gleyma söngvurunum Mattý Jó og Gunnari Páli. Algjör negla. Akureyri: Sjallinn: Nú er hún SnorrabUB stekkur. Þegar fer&afólkifi leitar annaB, þá er þörf a&ger&a. Þó er þar athvarf þeirra, sem þola illa diskómenn- inguna og jafnan nokkrir matar- gestir á Iaugardögum. Hljóm- sveitir í aBalsal, diskótónlist uppi. Háið: „StaBurinn” á Akureyri og vax- andi breidd I aldurshópum. Or- tröB á föstudögum og vissara aB mæta i fyrra falli föstudaga og laugardaga. Kvöldstund jafnast á viB fjallgöngu, þvi staBurinn er á fjórum hæBum. Bestu skemmt- anakaupin sem þú gerir fyrir is- lenska ferBagjaldeyrinn I dag. Smiðjan: Hugguleg stemmning fyrir mat- argesti, dinncrmúslk og stundum taka gestir undir þegar IIBur á kvöldiB. Rétti staBurinn fyrir unga afa og ungar ömmur.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.