Helgarpósturinn - 18.06.1982, Síða 28

Helgarpósturinn - 18.06.1982, Síða 28
28 „Okkar menn” á HM Þó Hallur Simonarson.hinn gamalreyndi iþróttafréttamaður Dagblaðsins og Visis.hafi um daginnkaliað sjónvarpið aumkun- arveröa stofnun i blaði sinu, vegna þess hvernig það stendur aö útsendingum frá Heimsmeistarakeppninni, þá hlýtur að hlakka svolitið i fréttamanninum i honum. Vangeta sjónvarpsins til beinna útsendinga frá tittumræddri keppni gerir það nefnilega aö verkum að blöðin halda enn um sinn i það hlutverk sitt að vera aðalfréttamiðill þeirra sem áhuga hafa á þvi sem er að gerast á Spáni. Ennþá lesum viö fyrst um leikina i blöðunum og sjáum þá svo i sjónvarpinu. Blöðin eru áfram fyrst með frásagnir af leikjunum, ef hinir stuttu pistlar Hermanns Gunnarssonar i útvarpinueru undanskildir, og Hallur getur þvi varla yerið yfir sig sorgmæddur,hafi hann fréttanefið i lagi. Kollegar hans i Danmörku eiga t.d. mun erfiðari daga, þvi þar sýnir sjónvarpið þr já leiki á dag, alla daga, suma i heild i beinni útsendingu aðra örlitiö stytta (sem þeir þá geyma i nokkra Sk«ti& eftir klukkutima og sýna seint um kvöld) og mörkin úr nánast öllum þeim leikjum sem eftir eru. Danska sjónvarpiö skilur ekki mikið eftir handa Iþróttafréttamönnum blaðanna, ekki frekar en það sænska, þýska, holienska ogsvo framvegis. Bretarnir fara öðru- visi aö, þvieinu leikirnir sem sýndir verða beint i riölakeppninni eru leikir bresku landanna, Englands,Skotlands og Norður- írlands. Eneinnig þarersjónvarpið á undan, þvi I kvöldfréttum klukkan 22 er knattspyrnan sjaldan útundan, og alls ekki i heimsméislarakeppni. tþróttafréttaritarar islenskra blaöa eiga þvi góða daga um þessar mundir. Vinnubrögð þeirra eru þó i einu verulega frá- brugöin þeim sem kollegar þeirra erlendis stunda: lslensku blaðamennirnir sitja hér uppá Islandi, á meðan flest stærri blöð nágrannalandanna hafa mann eða menn suður á Spáni. Þrir islenskir blaðamenn sem viðloðandi hafa verið iþróttir eru að visu á Spáni, þeir „Sigarnir” — tryggur af Mogganum, - dór af Þjóðviljanum og -mundur af Dagblaðinu og Visi. Enginn þeirra fer á vegum blaös sins.þó þeir hringi eitthvaö skemmli' legt inn.ef þeir rekast á þai, heldur sem h /erjiraðrir áhorfendur. Sigmundur af DV og Sigurdór frá Þjóöviljanum eru á iþróttasið- um blaða sinna kallaðir „okkar maöur á HM” en það er Sig- tryggurekkieinu sinni kallaöurá Morgganum. Norðmaður, lik- lega kollegi Ingólfs Hannessonar, iþróttafréttamanns úr skóla i Noregi, er siðan fulltrúi Timans þar suðurfrá. Mörgum kann að finnast undarlegt að blöðin skuli ekki senda menn á heimsmeistarakeppnina þegar þau virðast ekki hika við senda menn meö islenska landsliðinuhvertsem þaöfer, og hvort sem um knattspyrnu eða handknattleik er að ræða. En þetta er i raunekkertskrýtiö. Löngum hefur almennum blaðamönnum þótt það skitt að i einu skiptin sem blöðin beinlinis senda menn erlendis vegna frétta þá séu það iþróttafréttamenn aö eltast við tuðru. Sem er auðvitað sjónarmið útaf fyrir sig. Astæöan er hinsvegar sú að þarna er um hálf „innlendan” viðburð að ræða, sem ekki kemur til iandsins eftir hinum venjulegu leiðum — fréttastofutelexun- um. Annaö gildir um heimsmeistarakeppnina á Spáni. Um hana gildir akkúrat það sama og aörar „heimsfréttir”. Allar stærstu fréttastofur heims hafa á Spáni ótal fulltrúa,sem hafa sambönd við rétta aöila og þekkja staðhætti. Islenskur iþróttafréttaritari, jafnvel þó hann sé kunnugur a Spáni,getur I rauninni ósköp litlu bætt við þaðsem stóru fréttastofurnar hafa að segja. Iþróttafréttaritarar Morgunblaðsins Þórarinn og Guömundur, hafa til dæmis aðgang að tveimur „printerum” eða telex- maskinum, öðrum frá APfréttastofunni oghinum frá Reauter. A þessum printerum fá þeir nákvæma lýsingu á leikjunum, nán- astum leiö og þeir eru leiknir, auk viðlala við leikmenn og þjálf- ara, allskyns tölulegar upplýsingar — bókstaflega allt sem frétt- næmt getur talist. Þar að aukigetaþeir hlustaðá beinar útvarps- lýsingar af leikjumGg hverjuhefði svosem fréttamaður Mogg- ans, sem i mestalagi gæti séð einn leik á dag, við þetta að bæta? Engu, er greinilega skoðun islenskufjölmiðlanna. Þaö sama gildir um Dagblaðið og Visi og sjónvarpið og út- varpið: Þessir fjölmiðlar eru áskrifendur aö erlendri fréttaþjón- ustu. Þaðer þvi nokkuð ljóst að þessir „fulltrúar” islensku fjölmiðl- anna í Spáni eru meira uppá punt en hitt, aö þeir vinni mikib af I fréttum. Við erum jafn háöir erlendum fréttaskýrendum um fréttir af HM eins og i Falklandseyjadeilunni eða innrós tsraels- manna inni Libanon. Ofur eðlilegt. Föstudagur 18. júní 1982 JpSsturinrL LElDARYISIIt HliMIilRIKKAR Ásmundarsalur: Arkitektar standa fyrir þýskri sýningu, Náttúruformum, þar sem fjallað er um ýmis konar byggingarform, sem koma fyrir i náttúrunni, jafnt Hfræn sem ólif- ræn. Sýningunni lýkur á sunnu- dagskvöld. Gallerí Langbrók: Smámyndasýningin Smælki 82, þar sem Langbrækur sýna. Opin virka daga kl. 12—18 og 14—22 um helgar. Listmunahúsið: Félagar I Leirlistafélaginu sýna verk sin. Listasafn ASI: Yfirlitssýning á verkum Krist- jáns Péturssonar listmálara. Þar eru sýndar teikningar, vatnslita- myndir, pastel- og oliumyndir. Listasafn Islands: Kinverski listmálarinn Walasse Ting sýnir málverk á vegum Listahátiöar. Opiö daglega kl. 13.30—22. Árbæjarsafn: Safnið er opið daglega kl. 13.30 - 18, nema mánudaga. Aðkoma að safninu er um gamia rafstöðvar- veginn og meö leiö 10 frá Hlemmi. Mokka: Erla Olafsdóttir sýnir myndverk. Gallerí Niðri: 1 kjallaranum er samsýning nokkurra góðra listamanna og má þar nefna menn eins og Sigur- jón ólafsson, Guðberg Bergsson, Sigurð örn Brynjólfsson, Stein- unni Þórarinsdóttur, Helga Gisla- son, Kjartan Guðjónsson og Kol- bein Andrésson. Það sem sýnt er, er teikningar, skúlptúr, grafik, keramik, plaköt og strengbrúð- ur. Listasafn Einars Jónsson- ar: Safnið er opið á sunnudögum og miðvikudögum kl. 13.30 - 16 til mánaöamóta, en frá 1. júni er það opiö daglega, nema mánu- daga kl. 13.30 - 16. A efstu hæð safnsins er heimili Einars og önnu konu hans, og er það til sýn- is á sama tima yfir sumarmánuö- ina. Höggmyndasafn Ásmund- ar Sveinssonar: Safnið er opiö þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl.14-16. Bogasalurinn: 1 salnum stendur yfir sýning, sem heitir Myndasafn frá Teigar- horni, þar sem sýndar eru ljós- myndir eftir tvær konur, sem báðar voru lærðir ljósmyndarar, Nicoline Weyvadt og Hansinu Björnsdóttur, en myndir þeirra spanna timabilið frá um 1870 og fram yfir 1930. Sýningin er opin á sunnudögum, þriöjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13.30 — 16. Ásgrímssafn: Sumarsýning. Aðþessusinni eru flestar myndanna vatnslita- myndir og hafa margar þeirra sjaldan verið sýndar. Sýndar eru landslagsmyndir, blómamyndir og flokkar mynda úr þjóösögum. Safnið er opið sunnudag, þriðju- dag og fimmtudag kl. 13.30—16 i mai, en daglega, nema laugar- daga.frá og með 1. júnl, á sama tima. Aðgangur ókeypis. Nýja Galleríið: Magnús Þórarinsson sýnir nýjar oliu- og vatnslitamyndir. Opið kl. 14-18. Skruggubúð: 1 nýjum sýningarsal súrrealista aö Suðurgötu 3a stendur nú yfir sýning, þar sem Medúsa hópurinn og gestir, þau Alfreð Flóki og Ragna Björg sýna verk sin. Sýningin stendur til 25. júni og er opin kl. 17—22 virka daga og 14—22 um helgar. Rauða húsið, Akureyri: Listamaðurinn Oey Tjeng Sit opnar sýningu á laugardag og sýnir væntanlega verk, sem hann hefur unnið að hér á landi að undanförnu. Djúpið: Nonni sýnir verk og uppákomur. A föstudag, laugardag og sunnu- dag verða sjónleikir kl. 22. listsiliátíó Föstudagur: Gamla bíó: Breska kammersveitin The London Sinfonietta leikur kl. 20.30. Laugardagur: Leikfélag Reykjavikur: Skilnaður. Nýtt leikrit eftir Kjart- an Ragnarsson. Frumsýning kl. 20.30. Kjarvalsstaðir: Leikin veröa tónverk eftir Hafliöa Hallgrimsson og Guömund Haf- steinsson kl. 17. Sunnudagur: Laugardalshöll: Sinfóniuhljómsveit Islands leikur undir stjórn Gilberts Levine og einsöngvari er hinn stórkostlegi Boris Christoff. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Leikfélag Reykjavíkur Skilnaður eftir Kjartan Ragn- arsson kl. 20.30. Kjarvalsstaðir: Leikin verður tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson kl. 17. fÓlllÍKf Fyrir austan f jall: Landshornamenn fyrir austan fjall eru beðnir um aö hafa vak- andi auga, þvi stórhljómsveitin gamla og góða frá Englandi: The Troggs, er væntanleg á sveita- böllin nú alveg á næstunni. Félagsstofnun stúdenta: A fimmtudag i næstu viku veröur Jónsmessuvaka, sem ber yfir- skriftina Draumur að veruleika. Þar munu koma fram ýmsir listamenn, eins og Fan Houtens Kókó, Magnús I hvalnum, Von- brigöi og Sveinbjörn Beinteins- son. Komið öll og látið drauminn verða að veruleika. íitilíf Ferðafélag Islands: Föstudagur kl. 10.30: Helgarferð til Vestmannaeyja. Föstudagur kl. 20: Helgarferö i Þórsmörk. Laugardagur kl. 13: Gönguferð á Esjuna. Sunnudagur kl. 09: a) Skarðs- heiðarvegur, gömul þjóöleið. b) Hafnarfjall. Sunnudagur kl. 13: Þúfufjall, Kúhallardalur og Svinadalur. Otivist: Föstudagur kl. 20: a) Helgarferð i Þórsmörk, gist I skála. b) Eyja fjallajökull, gist i skála. Laugardagur kl. 09: Tveggja daga ferö um Reykjanesfólk- vang. Bakpokaferð og gist I göngutjöldum. Sunnudagur kl. 13: Selatangar og skoðaðar minjar um gamalt út- ræði. Ilíóill ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg Slmi 11475 Niðjar Atlantis (Beyond Atlantis). Bandarisk kvikmynd. Leikendur: Patrick Wayne, John Ashley, Leigh Christian. Leik- stjóri: Eddy Romero. Perluveiðarar rekast á þjóðflokk, sem lifir neðansjávar og er fólkið talið vera afkomendur ibúa týndu borgarinnar Atlantis. Amatörinn (The Amateur). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981, gerð eftir metsölubók Roberts Little. Leikendur: John Savage, Christopher Plummer, Marthe Keiler. Leikstjóri: Charles Jarrott. Cia og Kgb heita tvö góð liknar- félög, sem berjast innbyrðis um yfirráð yfir hólpnum sálum. Þessi mynd fjallar um þá baráttu og gerist hún að mestu leyti I Tékkó- slóvakiu. Þar þarf að bjarga mörgum. Bæjarbíó: Dóttir kolanámumannsins (Coaiminers Daugther). Banda- risk. Argerð 1980. Leikstjóri: Michael Apted. Aðalhlutverk: Sissi Spacek, Tommy Lee Jones. Prýðilega heppnuð dramatis- ering á lifi vestrasöngkonunnar Loretta Lynn. Hvort sem manni likar sú tegund tónlistar eða ekki þá tekst enska leikstjóranum Michael Apted að búa til næmlega skoðun á bandarlsku sveitalifi fyrr á öldinni og skemmtilega lýsingu á þvi þegar litil stúlka úr þessu umhverfi nær frægð og frama innan þeirrar alþýðutón- listar sem þar þrifst. Sissy Spacek er einkar náttúruleg sem Loretta Lynn og Tommy Lee Jones sem klettur i hlutverki eiginmanns og siðar umboðs- manns. — AÞ Huidumaðurinn — sjá umsögn i Listapósti. 'k 'k 'k

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.