Helgarpósturinn - 16.07.1982, Side 3

Helgarpósturinn - 16.07.1982, Side 3
irinn Föstudagur 16. júlT 1982 3 LIFI LAXINN hlelgai--------------------- posturinn Blað um þjóðmál, listir og menningarmál. Ritstjórar: Arni Þórarinsson og Björn Vignir Sigurpálsson Ritstjórnarfulltrúi: Guðjón Arngrímsson Blaðamenn: Guðlaugur Bergmundsson, Gunnar Gunnarsson, ómar Valdimarsson, Þorgrímur Gestsson og Þröstur Haralds- son. Útlit: Kristinn G. Harðarson Ljósmyndir: Jim Smart Dálkahöfundar: Hringborð: Birgir Sigurðsson, Heimir Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Jónasson, Magnea J. Matthíasdóttir, Sigurður A. Magnússon. Listapóstur: Heimir Pálsson, Gunnlaugur Ástgeirsson, Jón Viðar Jóns- son, Sigurður Svavarsson (bókmenntir & leiklist), Arni Björnsson (tónlist), Sólrún B. Jensdóttir (bókmenntir & sagnfræði), Hallddr Björn Runólfsson (myndlist 8. klass- ískar hljómplötur), Gunnlaug- ur Sigfússon (popptónlist), Vernharður Linnet (jazz). Arni Þórarinsson, Björn Vign- ir Sigurpálsson, Guðjón Arn- grímsson, Guðlaugur Berg- mundsson, Jón Axel Egilsson (kvikmyndir), Þröstur Har- aldsson (f jölmiðlun). Erlend málefni: Magnús Torf i Olafsson Vísindi og tækni: Dr. Þór Jakobsson Skák: Guðmundur Arnlaugsson Spil: Friðrik Dungal Matargerðarlist: Jóhanna Sveinsdóttir Stuðarinn: Jóhanna Þórhallsdóttir Landspóstar: Finnbogi Hermannsson, isa- firði, Reynir Antonsson, Akur- eyri, Dagný Kristjánsdóttir, Egilsstöðum, Sigurgeir Jóns- son, Vestmannaeyjum. Utanlandspóstar: Erla Sigurðardóttir, Dan- mörku, Inga Dóra Björnsdótt- ir, Bandaríkjunum, Helgi Skúli Kjartansson, Bretlandi. útgefandi: Vitaðsgjafi hf. , Framkvæmdastjóri: Bjarni P. Magnússon. Auglýsingar: Inga Birna Gunnarsdóttir. Innheimta: Guðmundur Jó- hannesson Dreifing: Sigurður Steinars- son Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir Ritstjórn og auglýsingar eru aðSíðumúla 11, Reykjavík. Simi: 81866. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Hverfisgötu 8-10. Símar 81866, 81741 og 14906. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftarverð á mánuði er kr. 60- Lausasöluverð kr. 15- íslenski laxastofninn er í hættu. Þaö hlýtur að vera sú ályktun, sem liggur beinast viö að draga af þeim upplýsingum að laxveiðin i fyrra var langt undir meðaltali siðasta áratugar. Laxveiðin i sumar hefur verið treg það sem af er, hvað sem talið verður saman þegar veiðitimabilinu lýkur i haust. Menn hafa einkum nefnt tvær ástæður fyrir þeim mikla sam- drætti, sem orðið hefur i lax- veiðum hérlendis. t fyrsta lagi lita menn til stóraukinna laxveiða Færeyinga á úthafinu — veiða sem á örfáum árum hafa aukist úr 6,6 tonnum á árunum 1968-1972 og i liðlega 1000 tonn á siðasta ári. Lausafregnir herma að veiði Færeyinga verði enn meiri i ár þrátt fyrir heit þeirra um að draga úr laxveiðunum. 1 öðru lagi kenna menn um köldu vori og sumri 1979. Þá hafi seiði i ánum ekki náð nægilegum þroska áður en þau gengu til sjávar og þvi sé afraksturinn nú svo litill, sem raun ber vitni. Yfir- leitt eru bæði leikmenn og sér- fræðingar, sem Helgarpósturinn hefur rætt við, sammála um að kuldasumarið ’79 eigi sinn þátt i minnkandi veiði. En þeir benda á, að það skýri ekki til hlitar hvers vegna veiðin minnkaði mest i ám á norðan- og norðaustanverðu landinu — einmitt þar, sem ætla má að Færeyjalaxinn komi helst að á ný eftir vetur i sjó. Það var að visu metveiði sumarið 1978, þá veiddust yfir 80 þúsund laxar á íslandi, en þess heldur ætti að vera ástæða til að hafa áhyggjur þegar upplýst er, að veiðin i fyrra var innan við 47 þúsund laxa. Þcgar við bætist, að útlendingar sækja i æ ríkari mæli i bestu laxveiðiár landsins á besta laxveiðitimanum, er ekki undarlegt þótt stangveiðimenn kvarti. t Helgarpóstinum i dag er gluggað i þessi mál. Þar kemur m.a. fram, að lax, sem veiðist við vesturströnd Grænlands, er ekki lengur að helmingi til evrópskur lax eins og var til skamms tima, heldur aðeins að þriöjungi. Kunnáttumenn telja þetta óyggjandi merki um að evrópski laxastofninn sé á undanhaldi og þá megum við fara að vara okkur. Það cr sannað mál, að islenskur lax veiðist bæði við Grænland og Færeyjar — en það er alveg ósannað að það sé i miklu magni. Stórauknar laxa- merkingar munu hafa farið fram hérlendis i vor og er það vel, ein- ungis með aukinni rannsóknar- starfsemi og stórlega bættu eftir- liti með úthafsveiðum getum við tslendingar gætt hagsmuna okkar á þessu sviði og verndað gæði landsins. Og á meðan sannanir liggja ekki fyrir eigum við tvi- mælalaust að beita þeim ráðum, sem tiltæk eru, m.a. að beita okkur mjög ákveöið gegn auknum veiðum Færcyinga og knýja þá frændur okkar og vini til að fara sér hægar, draga úr veiðunum eins og um var samið á Reykja- vikurráðstefnunni. En það er kannski alvarlegast af öllu i þessu máli, að menn skiptast nokkuð i tvö horn svo hvorugur hópurinn vill af hinum vita né á hlusta. Asakanir um rugl og vitleysu ganga á milli þessara hópa. Fyrsta skrefið i framfaraátt er að brúa biliö á milli þessara hópa — hér eru hagsmunir lands og þjóðar i veði. Fríður sé með yður! Mér þótti ákaflega leiðin- legt að komast ekki á frið- arfundinn um daginn, ekki sist þegar ég frétti að þar hefði veriö heldur fámennt og dauflegt. Ekki svo að skilja, að ég haldi að nær- vera mín hefði einhverju breytt þar um, þaö hefði þó að minnsta kosti verið ein- um fleira og eflaust hefði ég dregið með mér ná- komna ættingja lika, þvi friðarmál finnst mér öllum koma við. Við öll, sem höf- um alist upp i' skugga atómbombunnar og þeirri vitneskju að hvenær sem er gæti lifsleiður þjóðarleið- að þetta sé eina rétta leið- in? — Ég hef aö visu lesið ýmislegt þess háttar (gjarna i Morgunblaðinu) en aldrei séð neitt þar i sem minnti hið minnsta á heil- brigða skynsemi. Tökum dæmi: Þegar ég varkrakki voru strákaklíkur algengar IVesturbænum og efndu til slagsmála með tiltölulega reglulegu millibili. A vet- urna var gjarna slegist með snjóboltum og þegar bardagi var i aðsigi keppt- ust liðin um að koma sér upp góðum virkjum og miklum snjóboltabirgðum sem mikiö var vandað til: hrinoboróiö i dag skrifár Magnea J. Matthíasdóttir togi (eöa biluö tölva ef ekki vill betur) gereytt öllu þvi sem okkur þykir einhvers virði, gert jörðina óibúöar- hæfa og afskræmt það litla lif sem eftir verður með sterkri geislun, já, viö hljótum öll að hafa velt fyrir okkur hvað miklu dá- samlegra væriað vera til ef friður væri tryggöur. Ef- laust höfum við öll horft meira eða .minna vonleys- islega á vigbúnaðarkapp- hlaupið, keppni stórvelda um að koma sér upp sem hræðilegustum vopnum og vigvélum, hlustað á áróður þessara sömu stórvelda að þetta væri nauðsynlegt til að halda,,þeim hinum” á mottunni og að friður væri ekki tryggður nema með „valdajafnvægi”, ofboðs- legu morðtólasafni sem margfaldlega gætieytt öllu jarðnesku iifi og lifsvon — og þó viðar væri leitað. En af hverju lögðum við trún- að á þetta — og gerum sum enn? Hver eru rökin fyrir boltarnir hnoðaðir sem harðastir, látnir frjósa til að herða þá enn, sumir með steinum i til að þeir væru sem ægilegust vopn. Nú skyldi maður ætla, að þeg- ar tvö stórveldi, t.d. Kamp- arar og Skjólarar, voru bæði búin aö koma sér upp hliðstæðu safni skotfæra hefðu þa u látiö gott heita og sleppt öllum strfösrekstri. Þarna var komið „valda- jafnvægi” — strákarnir hefðu átt að láta sér „vig- búnaðar kapphlaupið’ ’ nægja og aldrei fariö i strið. En það var nú eitt- hvað annað! Hvað er ég að likja strákagengi úr Vest.urbæn- um viðábyrga stjórnmála- menn? Mér þykir þaö auð- sætt — ábyrgu stjórnmála- mennirnir haga sér einsog strákagengi og yfirleitt sýnast mér þeir flestir á- kaflega ábyrgðarlausir gagnvart mannkyni. Karl- menn eru almennt aldir upp i keppnismóral — þeir geta ekki sýnt færni sina og snilld nema með þvi aö sigrast á einhverjum. Þeir eru aldir upp við strið og mataðir á dýrð styrjalda, hetjuljóma, föðurlands- rembingi (dulce et decor- um est...) og öörum ámóta gervimat. Þeir hljóta þvi fullorðnir og „ábyrgir” leiðtogar að búa við svipað- ar freistingar og strákarnir með snjóboltana — til hvers að eiga öll þessi vopn ef það má ekki nota þau til að klekkja á „óvininum”? Og „óvinurinn” er aldrei mannlegur i þeirra augum, aldrei einstaklingurinn, aldrei faðir, móðir eða barn, heldur stór og hættu- legur þurs sem lifir ógeðs- lega og verður að brjóta á bak aftur sem fyrst. Dauði hundruða, þúsunda, mill- jóna snertir okkur ekki — það er dauði einstaklings- ins, litla mannsins, stráks- ins i næsta húsi, ættingja okkar. En einstaklingar eru auðvitað ekki til „hjá þeim”. I^onur hljóta aö lita á þessi mál öðrum augum, þvi þær standa á flestan hátt nær lifinu en karlar, þó ekki væri annað en uppeld- isáhrif. Þærvita þaö, hvaö sem allri föðurlandsást liö- ur, að allir tapa striði, eng- inn sigrar. Þær sjá það i hendi sér, að strið hlýtur að merkja dauöa, skort, ör- kuml, eyöingu, brunnar borgir, sviðna akra, ör- væntingu og vonleysi og margra ára erfiða upp- byggingu siðar, hver svo sem hefur hlotið titilinn „sigurvegari”. Hermenn- irnir, sem yfirvöld etja fram einsog peðum, eru eiginmenn, feður, synir, bræður þeirra eða annarra kvenna — þeir eru fyrst og fremst manneskjur. Ollum konum, hvar i flokki sem þær kunna að standa hlýtur að þykja strið andstyggi- legt og tilgangslaust. Hetjukórónu hermannsins hefur sem betur fer aldrei verið dinglað fyrir framan nefið á þeim einsog ein- hverju eftirsóknarverðu, einsog gulrót fyrir framan nefið á asna. Hvernig getur málmskjöldur komið i staðinn fyrir lif og starfs- getu? Honur viða um lönd hafa staðiðsaman um upp- byggingu friðarhreyfingar, hver svo sem stjórnmála- skoðun þeirra kann að vera að öðru leyti. Friöur er nokkuðsem er æðra og ofar öllum flokkakrytum, sama hvað stjórnmálaleiðtogar kunna aö segja. fslenskar konur ættu ekki siður en aðrar kynsystur þeirra að geta tekið þátt i' slikri hreyfingu og baráttu. Við þekkjum ef til vill ekki mikiö til striös — en viljum við kynnast því? Því skal ég aldrei trúa.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.