Helgarpósturinn - 16.07.1982, Page 16

Helgarpósturinn - 16.07.1982, Page 16
M Föstudagur 16. júl? 1982 -JpiSsturinri Þótt leiði dauður dauðan i dauðann á þinum dögum og vonir skili engu á þinum dögum þá vektu þina rödd þótt góðar raddir þegi og löngum sértu sjálfur til liðs við ekki neitt þá vektu þina rödd til manns og lifs sem kvalið er og pint á þinum dögum Ljóð þetta er hluti af ljóðaflokknum A jörð ertu kominn, sem raunar er söngtexti viðsamnefnda djasskantötu eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Kantötu þessa átti að flytja á Listahátið 1972, en af þvi varð þó ekki, vegna krankleika eins flytjandans. Höfundur ljóðsins er Birgir Sigurösson leikskáld, sem nú situr að skriftum fyrir Þjóð- leikhúsið á launum. Hann var fyrst beðinn um að gera grein fyrir þyi. Og svar hans kom nokkuð á óvart. nauösynieq „Sannleikurinn er nú sá, að ég er búinn að skila verki til Þjóðleikhússins, eða er að þvi þessa dagana, en svo var reiknað meö, að ég ynni annað verk á þessum sex mán- uöum, sem ég er ráðinn. Og þaö er algert leyndarmál milli guðs og min hvernig þvi miöar.” — En geturðu sagt mér eitthvað um verk- iö, sem þú ert búinn að skila? „Helst ekki. En það verður sennilega tek- iö til sýningar á næsta leikári. Hvenær veit ég ekki.1' — Þú vilt ekkert segja um efnisinnihald? „Nei, ég nenni þvi ekki.” — Er það i ætt við önnur leikrit sem þú hefur skrifað? „Fjölskyldutengslin leyna sér sjálfsagt ekki, en þó býst ég við, að þaö sé svolitið harðara en önnur verk, sem ég hef skrif- að.” — Hvað áttu við með „haröara”, þjóðfé- lagsgagnrýni? „Nei, nei, nei, Verkið fjallar um einstak- linga og átök milli einstaklinga.En náttúr- lega er það svo, að við lifum ekki i einangr- uöu hylki, og þaö fer ekki hjá þvi, að ýmis- legt i þjóðfélaginu gripi inn i okkar lif og til- finningar. Ef fólkiö i þessu verki er lifandi, sem ég vona að þaö sé, þá hlýtur eitthvað I þjóðfélaginu sem (er i kringum það, að speglastiverkinu.'' llollusluliællir — Hvernig bar það að, að þú ert á launum hjá Þjóðleikhúsinu við að skrifa leikrit? „Þetta var auglýst. Ég sótti um það og fékk.” — Varstu þá kominn meö einhverja ákveðna hugmynd að verki? „Já, það er verk, sem ég hef lengi haft i huga að skrifa, en ekki haft manndóm I mér tilað vinda méri.” — Er það ekkert óhollt að vera á launum hjá ákveðinni stofnun viö að semja leikrit? „Það getur sjálfsagt verið óhollt fyrir einhverja, en það er ekkert óhollt fyrir mig. Þjóðleikhúsið er ekki með puttann i þvi, sem ég geri. Ef sá putti kæmi þar inn, myndi ég slá á hann. Ég hef enga tilfinn- ingu fýrir þvi, að ég þurfi aö gera eitthvað sérstakt fyrir þessa stofnun, ég er bara að gera þetta fyrir sjálfan mig. Ég held, aö höfundar séu almennt of hræddir við svona lagað. Ég man eftir þvi, að ég las i sænsku timariti fyrir nokkrum árum upplýsingar um það hve mörg af bestu vorljóöum Svia hefðu veriö ort eftir pöntun. Þau voru furðulega mörg. Það var timarit, sempant- aði vorljóð hjá nokkrum skáldum og af- raksturinn varð þannig, að einstaka ljóð voru meöal þeirra bestu, sem höfundar þeirra höfðu ort.” — Það er kannski bara þægilegast að fá tékkann bara inn um póstlúguna. „Það er óskaplega þægilegt að fá tékka inn um póstlúguna þaö er að minnsta kosti þægilegra en að fá rukkunarbréf.” — Verðuröu ekkert værukær við þetta, eða virkar samningurinn sem einhvers konar pressa á þig um að skila verkinu á tilteknum tima? „Nei, ég get ekki skilað þessu verki á sex mánuðum, það er alveg útilokað. Það gefur mér hins vegar möguleika á að vinna að þessu verki I sex mánuði, eða ætti að gera það. Sannleikurinn er sá, að á siöasta ári var ég aðeins fjóra mánuði á launum. Hina átta mánuðina var ég á framfæri konu minnar. Við erum meö nokkuð stórt heim- ili, þannig að allur fjárhagurinn hefur farið tíl fjandans. Það er ósköp gott að fá þennan mögu- leika. Þaö er engin pressa á mér. Ég hef engar sérstakar skyldur nema að vinna að þessu verki, og það geri ég, af þvi að ég hef tekið það að mér.” — Það eru þá engin ákveðin timamörk? „Nei, slikt er náttúrlega fáránlegt,og þeir eru það greindir niðri i Þjóðleikhúsi, aö þeir fara ekki að setja skáldí timamörk. Þar á ofan hafa þeir enga tryggingu fyrir þvi, að viðkomandi skáld skrifi verk, sem þeir vilja. £f ég,skila verki eftir ár, og það er ósýningarhæft, hvað eiga þeir þá að gera? Ég er búinn með verkiö, eiga þeir að sýna það, ef það er ósýningarhæft? Hvor aðilinn er óskuldbundinn, og þannig á það að vera. Þetta er ekki eins og að vinna i einhverri bónusvinnu.'1 Viðkvæmni — A siðustu mánuðum hafa verið miklar deilur um úthlutanir úr launasjóöi rithöf- unda, finnst þér rétt að þessum úthlutunum staðið? Og hvers vegna varst þú bara á launum i fjóra mánuði á siðasta ári? Sótt- irðu ekki um eða fékkstu ekki? „Ég sótti ekki um fyrir siöastliðið ár.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.