Helgarpósturinn - 16.07.1982, Side 28

Helgarpósturinn - 16.07.1982, Side 28
28 Lifilatneski boltinn! Ég vissi að einhvern timann kæmi að þvi. Fyrr eöa siðar myndi ég bita á jaxlinn og láta mig hafa það að skrifa um iþrótt- ir. Éghugga mig við þaðað þetta erekki i fyrsta sinn sem blaða- maöur tekur aö sér aö skrifa um eitthvað sem hann er ekki sér- fræðingur i. Samanber hann Gunnar Stein. Hann var einu sinni ungur og upprennandi blaðamaður sem vildi allt til vinna að tryggja sér sess sem slikur. Hann fór að aðstoöa iþróttafréttamanninn og þar kom að hann var beðinn aö fylgjast með handboltaleik og skrifa um hann. Gunnar sagði já, þótt hann hefði aldrei séð i- þróttina leikna. Hann fór inn i Höli og kom sér fyrir i blaöamannastúkunni hjá kollegunum. Leikurinn hefst og Gunnar kemst brátt aö þvi út á hvaðhann gengur, enda bráðskýr. Hannfórmas.aðsjá að sumir þeirra sem voruað hnoða tuörunni á milli sin voru betri en aörir. Ekki þekkti hann neinn ieikmann með nafni. Þegar liöa tekur á leikinn sér hann að einn er bestur og spyr þvi kollegann við hlið- ina hver hann sé þessi númar 10 i hvita búningnum. — Hvað, veistu það ekki? Þetta er hann Geir Hallsteinsson! En þessi pistill átti ekki aö fjalla um minar privatraunir. Ég ætla að fjalla um nýafstaðna heimsmeistarakeppni i fótbolta — þykist þess engu siður umkominn en Svavar, Geir og Vilmundur. Ekki veit ég hvort þaö var vegna þess aö við Svavar vorum einu sinni i sama flokki, en hann var sá eini þeirra þriggja sammáia mér I að halda með Itölum en ekki Vestur-Þjóðverjum i úrslita- leiknum. Svavar átti erfitt með að rökstyðja afstöðu sina, hélt að hún stjórnaöisl af óskhyggju. Ég ætla hins vegar aö rökstyðja mitt mál. Eftir leiki Þjóðverjanna mun ég ekki setja mig i færi til aö horfa á vestur-þýskan fótbolta. Allavega ekki fyrr en ég frétti að hann sé orðinn skemmtilegri en sá sem þeir sýndu gegn Frökk- Slroti& eftir Þröst Haraldsson um og ítölum. Þettaer þunglamalegurog kerfisbundinn fótbolti, nærri þvi eins leiðiniegur og sá enski. Og þegar kerfið vildi ekki ganga upp —margir vildu kenna þvi um að Rummenigge lék að- eins á hálfum hraða — tóku þeir upp skriðdrekatæknina: að keyra niður andstæðingana i krafti Hkamsburða. Þá var nú eitthvaöannaö að sjá Italina ogFrakkana.að maður minnist ekki á Brassana. Það kom glöggt I ljós i þessari heims- meistarakeppni aö „latneski boltinn” er bæöi miklu skemmti- legri á aðhorfa og meira i anda sannrar fþróttamennsku en kerf- isboltinn norður-evrópski. Hjá þeim latnesku er það knattleikni, hraði og útsjónarsemi sem situr i fyrirrúmi, en ekki stift leik- kerfi sem stjórnaö er frá hliðarlinunni. I kjölfar þessarar keppni hefur blossað upp enn einu sinni um- ræöan um þá hörku sem setur æ meira mark á knattspyrnuna. Dómararnir á Spáni voru við þvi búnir að kljást viö hana eins og best sást i fyrsta leik keppninnar. Ognúer um þaö rætt i fótboltaheiminum hvort timi sé kominn til að gera róttækar breytingar á leikreglunum og framkvæmd dómgæslu. I þvi sambandi hefur verið stungið upp á að hafa tvo dómara og að visa mönnum af leikvelli tfmabundið, likt og gert er i handboltanum. Einnig hefur veriö rætt hvort dæma beri vitaspyrnu fyrir gróft brot, þótt það sé framiö utan vitateigs, og einhverjir stungu upp á að þyngja refsingar fyrir brottvisun af leikvelli, þannig að hægt sé að útiloka leikmenn frá frekari þátttöku I mótinu. Fréttamaður danska blaðsins Information á Spáni tekur þetta til umræðu og er fremur neikvæöur i garð breytinga á gildandi reglum. Hann segir sem svoaö helstikostur núgildandi reglna sé einfaldleikinn, að einkenni fótboltans hafi alltaf verið það aö hafa eins fáar reglur og mögulegt er. ÞesS" vegna sé ekki til góðs að auka við þær og gera þær flóknari, viö þaö tapi íþróttin gildi sinu sem skemmtun fyrir áhorfendur. Þaö sem þarf að gerast er að dómarinn notfæri sér til fulls þær refsingar sem hann hefur yfir að ráöa og sé sjálfum sér sam- kvæmur f dómum sinum. ,,Ef hann veifar rauða spjaldinu strax og einhver er felldur harkalega og sá brotlegi fer beint i eins leiks bann, rennur það fijótt upp fyrir þeim brotlega að giæpir borga sig ekki,” segir hann og bætir þvi við.aö til þess að dómarar geti tekið upp slika háttu verði þeir að njóta stuðnings skipuleggjenda stórmóta á borð við HM. Ennúer fótboltinn hættur að rúlla um Spánargrundir i bili og menn geta hætt að rifast út I s jónvarpið. N ær væri að ræða hvaða áhrif svona keppni hefur á almenning. Þá á ég ekki bara við þá sem handieggsbrutu sig i gosbrunninum italska eða gamla manninn i Júgóslaviu sem varð svo mikið um að sjá strákana sina skora mark að hann hné niöur örendur með brostiö hjarta. Erlendis — þar sem daglega voru beinar útsendingar frá keppninni i sjónvarpi — virðast vera mjög deildar meiningar um áhrif þessara útsendinga á fjöiskyldulifið. I Sviþjóð komst lög- reglan að þeirri niðurstöðu aö verulega hefði dregið úr heimilis- erjum þegar útsendingarnar hófust. Þar viröast karlarnir hafa fengiðnæga útrás við tækiö og þurftu ekkert að vera að blaka við konunni og börnunum. Frá Frakklandi berast hins vegar þær fregnir aö fótboltinn hafi heldur orðið til að auka á illindin i hjónaböndunum. Þar kom fram i skoðanakönnun að fjöldi franskra eiginkvenna fór aö heiman meöan útsendingar stóðu yfir og enn meiri fjöldi franskra kvenna var hundleiður á tilstandinu I kringum tuðruna. Karlarnir voru á . hinn bóginn bara ánægðir meö að konurnar færu að heiman, þá fengju þeir betri frið til að fylgjast með leiknum. Engum sögum fer af þvi að bæði kynin hafi i sátt og samlyndi sest niður og horft saman á kappana leika kúnstir sfnar með boltann. Það þarf þó alls ekki að hafa verið óalgengt. Samt sem áður grunar mig að harla fáar konur hafi fylgst með heims- meistarakeppninni, amk, get ég taliö þær konur á fingrum annarrar handar sem ég mættí meðan á keppninni stóð sem sýndp henni áhuga. Fótboltinn hefur lengst af verið karlaiþrótt, en á sfðustu árum hafa konur f vaxandi mæli farið að eltast viö hann. Samt er eins og þær fái iftinn hljómgrunn. Það verður aö biða betri tfma að ræða af hverju það stafar. lÆlttAimSllt Föstudagur 16. júlí 1982 ^zpSstúrihn. HELUmKW viiilinróir Hótel Valhöll: A sunnudag verður haldin heljar- mikil grillveisla, þar sem kynntir verða lambakjötsréttir úr bæk- lingnum Glóöarsteikt lamb er lostæti. Njótið friöarins og étiö lamb f fögru umhverfi. A sunnu- dag. Öskjuhlið: Skemmtileg nýjung. A laugardag kl. 15-18 fer fram svokallaður sirkusmarkaöur Samhygöar til fjáröflunar vikingaferðum fé- lagsins til Nýju Jórvikur. A markaðinum veröa seldar strfðs- tertur, sem hægt er að prútta um, gosdrykkir kaffi og annað is- lenskt meðlæti. Þá verður sungið, leikið leikrit, trúður kemur I heimsókn, og gess vott? Jóla- sveinn líka. A miöju sumri. Þeir kalla ekki allt ömmu sina þessir Samhygðarvikingar og valkyrj- ur. Það verður þvf mikiö fjör i öskjuhliðinni á laugardag. Lifið mætir lika. Vilt þú gera jörðina mennska? Mættu þá og taktu þátt i hátiöahöldunum. Eitthvaö fyrir alla, unga sem aldna. Norræna húsið: A mánudag kl. 20.30 verður hald- inn fyrirlestur á vegum kvenna- söguhóps og flytur hann banda- risk kona. Væntanlega um kvennasögu. Rauðir sokkar eru ekki skylda. En betri þó en svart- íitilíf Ferðafélag islands: Helgarferðir: Föstudagur kl. 20: a) Þver- brekknamúli-Hrútfell. Gist i húsi og tjaldi. b) Grasaferð á Hvera- velli, c) Landmannalaugar, d) Þórsmerkurferö. Dagsferðir: Sunnudagurkl. 10: a) ökuferð um Mýrarnar, b) Leggjarbrjótur, gömul þjóðleiö. Sunnudagur kl. 13: Gengiö að Glym i Botnsdal. Sumarleyfisferöir: Föstudagur kl. 11: Lónsöræfi, átta dagar. Laugardagur kl. 08: Sprengi- sandur-Kjölur. Sex daga ferð fyr- ir alla fjölskylduna, gist I húsi. Laugardagur kl. 09: Gönguferð frá Snæfelli til Lónsöræfa með farangurinn á bakinu (veslings fólkið). Sjö dagar fyrir hraust- Otivist: Helgarferðir: Föstudagur kl. 20: a) Tungufells- dalur-Linuvegur-Þjórsárdalur. Tjaldað i fallegum skógi, b) Lax- árgljúfur-Hraunkrókur. Fögur árgljúfur. Laugardagur kl. 08.30: Skógar-- Fimmvörðuháls-Básar. Gist 1 fjallaskála. Dagsferðir: Sunnudagur kl. 08: Þórsmörk-- Nauthúsagil. Sunnudagur kl. 13: Græna- dyngja-Sog. Litrfkt svæði. Sumarleyfisferðir: a) Þórsmörk. Vikudvöl f friði og ró. b) Eldgjá-Strútslaug-Þórs- mörk. Atta daga bakpokaferö. Gist i tjöldum og húsum. 26. júli-2. ágúst. c) Hornstrandir IV. Horn- vik-Reykjafjörður. 23. júli-2. ágúst. d) Borgarfjörður eystri- Loömundarfjöröur. 4.-12. ágúst. e) Hálendishringur. Ellefu dagar i ágúst. Upplýsingar i sima 14606 eða á Lækjargötu 6a. msTMzrMADOcm Stuðmeðferð (Shock Treatment). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981. Handrit: Richard O’Brien. Leikendur: Jessica Harper, Cliff DeYoung, Richard O’Brien, Pat- ricia Quinn, Charles Gray. Leik- stjóri: Jim Sharman. Rocky Horror liðið er komið aftur á stjá i afar flóknum söguþræði um sjónvarp og áhrif þess á lif stórborgarhverfis vestan hafs. Eins og fyrri daginn er mikið um tónlist og furðulega hluti og allt i Dolby stereó. Hryllingsóperan (Rocky Horror Picture Show) verður svo sýnd kl. 23. BIOBSB Hrakfaiiabáikurinn (Hardly Working). Bandarisk kvikmynd, árgerð 1980. Leikendur: Jerry Lewis og fleiri góðir. Nýjasta myndin með Jerry Lewis og kominn timi til að íslendingar fái að endurnýja kynni sln af þessum frábæra listamanni. Gleði næturinnar (Ein sú djarf- asta). „Kvikmynd” (?). Klám í þriöju viddinni. Hvar er sú fjórða? Kl. 11.15. 1^'ijTlMlJÍ) 2? 2-21-40 Löggan gefur á ’ann. (Tutti flicchi e extraterritoriale). ttölsk kvikmynd, árgerð 1980. Leikend- ur: Bud Spencer o.fl. Leikstjóri: Michael Ludo Trinityhelmingurinn leikur hér löggu, sem kemst í kast við litinn strák utan úr geimnum. Fjöl- skyldumynd með grini og glensi. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Alla helgina. Auga fyrir auga II (Death Wish II). Bandarisk árgerð 1981. Hand- rit: David Englebach. Leikend- ur: Charles Bronson, Jill Ircland, Vincent Gardenia, J.D. Cannon, Anthony Franciosa. Leikstjóri: Michael Winner O Kalli Brons tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið i mynd númer eitt, hann drepur og drepur. Þessi mynd gengur þó algjörlega fram af öllum sómakærum biógestum, svo ógeðslegur er hugsunarhátt- urinn á bak við hana. Svo er þetta . lika allt svo illa gert. Handrit ömurlegt, leikur lélegur og leik- stjórn ekki betri. Sem sagt: mynd, sem enginn ætti að sjá, mynd, sem setur svartan blett á kvikmyndahúsið, Sýndkl. 11 —GB .28*16-444 Brúður, tröll og trúður. Þar eru á ferðinni 13 konur, sem búa til alls kyns brúður og ævintýrapersón- ur. Sýningin er þvi sannkallað ævintýraland. Nýlistasafnið: Svissneski myndiistarmaðurinn Otto Grimm opnar sýningu i kvöld, föstudag og sýnir hann málverk og teikningar. Sýningin er opin kl. 16-22 daglega og stend- ur fram til 30. júli. Glerárgata 34, Akureyri: Guðmundur Björgvinsson opnar myndverkasýningu á laugardag og stendur hún til 25. júlí. Mynd- irnar eru unnar með blandaöri tækni, þar sem mörgu er sullað saman. títkoman er abstrakt með aðra löppina i raunsæinu. Sýning- in er opin mánudaga til miðviku- daga kl. 20-22 og hina dagana kl. 14-22. Skruggubúð: Jóhann Hjálmarsson sendir enn og aftur hjartað sitt á skemmti- göngu með bráðskemmtilegum teikningum frá árunum 1961-62, en þá var hann ungur og frjáls á Spáni. Og súr realisti i þokkabót. Opið daglega kl. 17-21 en kl. 15-21 um helgar. Listasafn Einars Jónsson- ar: Stórfenglegar höggmyndir Ein- ars eru til sýnis alla daga nema mánudaga kl.13.30-16. A efstu hæð hússins er ibúð Einars og konu hans og er hún til sýnis gestum. Árbæjarsafn: Safnið er opið daglega kl. 13.30 - 18, nema mánudaga. Aðkoma að safninu er um gamla rafstöðvar- veginn og með leið 10 frá Hlemmi. Höggmyndasafn Ásmund- ar Sveinssonar: Safnið er opiö þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl.14-16. Ásgrímssafn: Sumarsýning . Aö þessusinni eru flestar myndanna vatnslita- myndir og hafa margar þeirra sjaldan veriö sýndar. Sýndar eru landslagsmyndir, blómamyndir og flokkar mynda úr þjóðsögum. Safnið er opið sunnudag, þriðju- dag og fimmtudag kl. 13.30—16 I maf, en daglega, nema laugar- daga.frá og með 1. júnf, á sama tima. Aðgangur ókeypis. Nýja Galleríið: Magnús Þórarinsson sýnir nýjar oliu- og vatnslitamyndir. Opið kl. 14-18. Listasafn ASI: Lokað i sumar. tólllisf Kristján Jóhannsson óperusöngv- ari: Söngfuglinn frá Italiu heldur á- fram feröalagi sfnu um frerfoldu isilagða og hleypir sumrinu inn I hjörtun okkar. A föstudag nerður hann á Siglufirði og syngur i kirkjunni kl. 21, og á sunnudaginn verður hann kl. 21 í félagsheimil- inu á Hvammstanga. Undirleik- ari Kristjáns er hin góökunna Guðrún Kristinsdóttir. Já, menn- ingin kemur lika I afskekktar byggöir landsins. Landsbyggðar- menn notfæriö ykkur þetta ein- staka tækifæri og eflið andann. Hallgrímskirkja: A sunnudagskvöld verða tónleik- ar þar sem Manuela Wiesler leik- ur einleik á flautu. Verkin eru eft- ir Jolivet, Marais og Rosenberg. Að tónleikunum loknum verða kvöldbænir. Aðgangur er ókeypis, en tekið veröur á móti framlögum i orgelsjóö kirkjunnar. Norræna húsið: A laugardag kl. 16 syngur kór öldutúnsskóla undir stjórn Egils Friöleifssonar, en kórinn er senn á förum til Hong<og Kina i tón- leikaför. Ilíóill ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg 0 léleg Sveröið og seiöskrattinn. —sjá umsögn I Listapósti. O Kassandra brúin (The Cassandra crossing). Bresk kvikmynd. Leik- endur: Sophia Loren, Richard Harris, Ava Gardner, Burt Lan- caster O.J. Simpson. Leikstjóri: George Pan Cosmatos. Hraölestin brunar milli Genfar og Stokkhólms. Um borð eru þúsund farþegar og hættulegur farmur. Þá kemur hún að brúnni... Spennumynd með tugthúslim- inum Sofffu sætu TÓNABÍÓ Sími 31182

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.