Helgarpósturinn - 16.07.1982, Page 32

Helgarpósturinn - 16.07.1982, Page 32
/ ÍÞað er mikill gassagangur i ^/nýja borgarstjórnarmeiri- hlutanum þessar vikurnar og sést hann ekki alltaf fyrir i vinnugleð- inni. Ekki batnar ástandið þegar embættismenn taka lika frum- kvæði, sem kannski samræmist ekki alltaf ákvörðunum nefnda og ráða. Eitt dæmi um slikt gerðist nú á dögunum og snerist það um byggingarframkvæmdir á lóð við Óðinsgötu. Þar var gamalt hús rifið i fyrra og sótti eigandi lóðar- innar um að fá að byggja þar 3ja hæða hús, samtals 1180 rúm- metra. Var beiðni hans samþykkt i byggingarnefnd á fyrsta fundi hennar eftir kosningar. Ibúar nærliggjandihúsa voru ekkimjög hressir yfir þessari ákvörðun vegna þess að nýja húsið kemur til með að byrgja gömlu húsin inni. Fengu ibúarnir stuðning frá Borgarskipulagi sem lagði til á næsta fundi byggingarnefndar að nýja húsið yrði minnkað i 900 rúmmetra. Fundurinn tók ekki afstöðu til þessarar tillögu en samþykkti að láta fresta fram- kvæmdum við bygginguna þar til borgarstjórn hefði fjallað um hana. Byggingarfulltrúa var falið að skýra verktakanum frá þessu og gerði hann það. Siðar sama kvöld og fundurinn var haldinn verða ibúarnir varir við að byrjað er að hella steypu i mót og gera viðvart til formanns byggingar- nefndar, Hilmars Guðlaugssonar. Hann hringir i byggingarfulltrúa sem segist hafa leyft fram- kvæmdirnar. Hann hafði þvi með 2—3ja klukkustunda millibili gef- ið tvær gagnstæðar fyrirskipanir til verktakans. Málið átti að taka fyrir á borgarstjórnarfundii gær- kvöldi... Gerum viö Kalkhoff — SCO — Winter — Peugeot — Everton og öll önnur hjól. Fullkomin tækja- og vara- hlutaþjónusta. Sérhæfing i fjölgirahjólum. Seljum uppgerö hjól. Opið alla daga frá kl. 8—18, laugardaga kl. 9—1. Hjólatækni Vitastíg 5. Simi 16900 /'Jólafur Þórðarson, Rló-mað- ^urinn fyrrverandi fékk hug- ljómun á dögunum og ákvað að skella sér i Hljóðrita til að taka upp plötu með lögum eftir sig og aðra. Til liðs við sig hefur hann ekki fengið ómerkari hljómlistar- menn en Björgvin Gislason, Karl Sighvatsson, Björn Thoroddsen jassgitarista og tvo Svia, skóla- bræður Bjössa frá Ameriku sem hér hafa verið að undanförnu að spila með honum og öörum. Mús- ikin verður svona léttrokkuð a la Óli Þórðar og mest lagt upp úr þvi að útsendingar eða útfærsla lag- anna verði nánast til af sjálfu sér i hljóðverinu, sem er algeng að- ferö meðal vanra stúdiómanna erlendis og hefur oft skilað skemmtilegum plötum. Hljóðriti mun verða útgefandi plötunn- ar.... Kári Halldór leikstjóri er nú að safna liði til að stofna nýjan leikhóp eða jafnvel leikhús og hefur flogið fyrir að nafn hóps- ins eigi að verða Gránufélagið. Kári er þegar kominn með nokk- urn hóp i kringum sig þar sem er kona hans, Jenný Guömundsdótt- ir, leikmyndateiknari, og nokkrir leikarar sem þau unnu með á Ak- ureyri i vetur leið, Andrés Sigur- vinsson, Guðjón Petersen ofl. Velta menn þvi nú fyrir sér hversu mikið pláss sé á reykvisk- um leiklistarmarkaði, ekki sist i ljósi örðugleika Alþýðuleikhúss- ins.... ^JTalandi um Alþýðuleikhúsið .✓<þá standa nú yfir tilraunir til að koma þvi á fastari rekstrar- grundvöll en það hefur búið við undanfarin ár. í þvi skyni hefur verið sett á laggirnar nefnd sem i eiga sæti fulltrúar menntamála- og fjármálaráðuneytis auk Al- þýöuleikhússins. Nýtt leikhúsráö hefur verið kosið og skipa það Ólafur Haukur Simonarson, Böðvar Guðmundsson, Sigrún Valbergsdóttir og Jórunn Sigurð- ardóttir. Þegar er ljóst að Pæld- iði-hópurinn mun starfa áfram enda situr hann svo til einn að sin- um markaðisem eru börn og ung- lingar. Um aðra starfsemi er ekki ljóst ennþá og húsnæðismálin eru óleyst. Jón Ragnarsson hefur nú hafið kvikmyndasýningar i Hafn- arbiói og veit enginn hver framtið gamla hermannabraggans við Skúlagötu verður.... /■ JFyrsta verkefni Leikfélags ^Akureyrar á næsta starfsári verður að sýna Atómstöð Halldórs Laxness i leikgerð Brietar Héðinsdóttur. Briet gerði sem kunnugt er mikla lukku með leikgerð sinni á Jómfrú Ragn- heiði Kambans á siðasta leikári. Flogið hefur fyrir að Guðbjörg Thoroddsen leiki Uglu i Atóm- stöðinni. Það ætti að vera góð æf- ing fyrir Guðbjörgu þvi Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerðarmaður ætlar að kvikmynda Atómstöðina og ku hafa fengið Guðbjörgu i hlutverk Uglu.... í jMeira af „Oliufélaginu” sem ^/nefnt var i siðasta HP. Einn af stofnendum þessa nýstofnaða fé- lags, Einar Ilákonarson situr jafnframt i stjórn Kjarvalsstaða og gegnir þar formannsstöðu.jrK Vegna tafa á afgreiöslu frá Finnlandi á pappir þeim sem notaður hefur verið á útsiður og opnu Helgarpóstsins, verð- ur þetta tölublað og e.t.v. fáein næstu með gamla sniðinu. Auóvitað fær Stínadiikka fntttilKöben en kiakkamir txwaa 995.-krónur! í helgarferðunum okkar til Kaupmannahafnar í sumar hugsum við sérstaklega um börnin. Tívolí, dýragarðurinn og Bakkinn eru draumastaðir allra krakka og fullorðinna raunar líka. Við bjóðum þægilegt flug á föstudegi, gistingu á úrvals hótel- um í herbergi með baði, ásamt morgunverði og heimflug á mánudegi. Verðið er frá 3.980.00 kr. fyrir fullorðna en frá 995.00 kr. fyrir börn 11 ára og yngri í herbergi með foreldrum sínum og það kostar ekkert að láta Stínu dúkku fljóta með. Smellið þið nú krökkunum í strigaskóna og sjálf- um ykkur í stellingar og drífið í að kaupa miða strax því sætafjöldi er takmarkaður og ferðirnar fyllast óðum. Leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum Flug- leiða, umboðsmönnum eða ferðaskrifstofun- um. Farpantanir eru einnig teknar í síma 25100. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi Hóð samþykki vtðkomandi stjómvakja.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.