Helgarpósturinn - 25.02.1983, Side 2
1 Nýkjörin framkvæmdastjórn
/'I Listahátíðar í Reykjavík kom
y saman til síns fyrsta fundar
fyrir skömmu. í henni eiga sæti
Þorkell Sigurbjörnsson, forseti
Bandalags íslenskra listamanna,
Þóra Kristjánsdóttir, listráðunaut-
ur Kjarvalsstaða, Ann Sandelin,
forstöðumaður Norræna hússins,
og fulltrúar ríkis og borgar, Hrafn
Gunnlaugsson fyrir Reykjavíkur-
borg og Sigmar B. Hauksson fyrir
ríkið. Það var ríkið sem „átti” for-
mennskuna að þessu sinni, en af
einhverjum ástæðum var leitað af-
brigða við skipun formanns stjórn-
arinnar og var Þorkell kosinn for-
maður, en ekki Sigmar...
Á þessum sama fundi varð
/ 1 framkvæmdastjórnin sam-
S* mála um að segja upp þeim
framkvæmdastjóra sem verið hefur
undanfarin ár, Örnólfi Árnasyni.
Þegar þessi samþykkt hafði verið
gerð og barst til eyrna fram-
kvæmdastjórans mun hann, eftir
því sem við heyrum, hafa dregið
upp úr pússi sínu uppsagnarbréf
sem hann var buinn að skrifa en
ekki afhent fyrr. Staða fram-
kvæmdastjóra Listahátíðar hefur
verið auglýst...
Ekki er full eining meðal
hinna svokölluðu „göngu-
manna” Framsóknarflokks-
Norðurlandskjórdæmi vestra
skipan framboðslista þeirra.
Margir og þá sérstaklega Vestur-
Húnvetningar hafa áhuga á því að
íns
um
Ingólfur Guðnason skipi efsta sæt-
ið og er sagt að hann sé til í slaginn
þótt það yrði ef til vill til þess að
Stefán Guðmundsson félli, en
Ingólfur og Stefán munu hafa átt
mikið og gott samstarf á þingi.
Austur-Húnvetningar vilja hins
vegar hafa sinn mann í efsta sæti og
hefur Magnús á Sveinsstöðum eink-
um verið nefndur sem kandidat.
Eins og málin horfa nú er líklegt að
göngulistinn verði eingöngu
skipaður Húnvetningum og fylgj-
endum Blönduvirkjunar, og þykir
líklegt að framboð hans myndi
höggva skörð ekki aðeins í kjörfylgi
Framsóknarflokksins í kjördæm-
inu heldur og annarra flokka. Mun
ótti við „gönguframboðið” fyrst og
fremst hafa ráðið því að Alþýðu-
bandalagsmenn ákváðu að skipa
Þórð Skúlason sveitarstjóra á
Hvammstanga i 2. sæti lista síns,
jafnvel þótt Alþýðubandalagið eigi
ekki sérlega miklu fylgi að fagna í
Vestur-Húnavatnssýslu og hafi
aldrei átt...
PfTl Fyrir áramót auglýsti lista-
/* j og skemmtideild sjónvarpsins
eftir handritum að sjónvarps-.
leikritum og mun settur forstöðu-
maður deildarinnar hafa gert það
uppá sitt eindæmi því útvarpsstjóri
kvaðst koma af fjöllum í blaðavið-
tali hvað þessa handritasámkeppni
varðaði. Mun mikill fjöldi höfunda
hafa sent inn handrit. Nú er komið
í ljós að ekkert mun verða úr gerð
leikrita eftir þessum handritum um
fyrirsjáanlega framtíð vegna fjár-
hagsstöðu stofnunarinnar, og teng-
ist málið einnig því að enn hefur
ekki verið auglýst til umsóknar
staða Ieiklistarráðunauts sjónvarps.
Verður hún úr þessu varla auglýst
fyrr ?n rpeð hausíinu...
Nú gefst þeim aftur tækifæri,
TJ sem urðu af því að láta
S danska dávaldinn Frisenette
flytja sig yfir í aðra heima í fyrra.
Frisenette kemur aftur til íslands
nú um helgina og mun troða upp í
Háskólabíói fimm sinnum í næstu
viku ásamt þeim Jörundi Guð-
mundssyni og Ladda, en Daninn
kemur hingað í þeirra boði. Fyrsta
skemmtunin verður á þriðjudags-
kvöldið og síðan verða skemmtanir
alla vikuna. Er ekki talið útilokað
að fleiri en Frisenette sýni hæfileika
sína í dáleiðslu á þessum skemmt-
unum, því flogið hefur fyrir að fast-
ir gestir á samkomunum verði þeir
Þórður húsvörður, Eiríkur Fjalar
og ef til vill fleiri...
VI Videokerfamennætlaekkiað
f~ J gera það endasleppt með sýn-
S ingar á myndurn, sem þeir
hafa ekki sýningarrétt á. Fyrir
skömmu sáu áskrifendur Videoson
allt í einu hvar byrjað var að sýna
myndina Að baki dauðans dyrum,
sem sýnd hefur verið fyrir fullu húsi
í Bíóbæ um nokkurt skeið. Sýning
myndarinnar hafði ekki verið aug-
lýst og var hún að sjálfsögðu ekki
með vitund og vilja rétthafa mynd-
arinnar hér á landi. Sem betur fer
tókst að stöðva þessa ólöglegu sýn-
ingu eftir rúmar fimm mínútur, og
hvort sem það var því að þakka eða
ekki, var uppselt i Bíóbæ kvöldið
eftir...
V
Sú kynslóð sem nú fer að
passa barnabörnin á meðan
börnin eru úti að rokka ætti
að geta gert hið sama af fullum
krafti um næstu helgi. Þá stiga
fyrstu íslensku rokkstjörnurnar,
sem nú eru flestar um og yfir
fertugt, á sviðið á nýjan leik og
skemmta jafnöldrum sínum (og
öðrum rokkurum ) á rokkhátíð
Björgvins Halldórssonar og hljóm-
sveitar hans í Broadway. Björgvin
hefur grafið upp fjórtán söngvara,
sem voru upp á sitt besta í kringum
1960, og fengið þá til að troða upp
á rokkhátíðinni. Þarna verða
kraftasöngvarar á borð við Sigurð
Johnnie, Guðberg Auðunsson,
Harald G. Haralds, Þorstein
Eggertsson, Garðar Guðmunds-
son, Mjöll Hólm, Estrid Jensen,
Önnu Vilhjálms, Stefán Jónsson,
Einar Júlíusson og fleiri sem fæstir
hafa látið til sín heyra árum saman
- en glöddu margt meyjar- og
sveinshjartað á árum áður...
Talsvert upplausnarástand
mun nú ríkja á skrifstofum
' Arnarflugs. Rekstur Amster-
damflugsins gengur afar erfiðlega
og hvort sem samband er þar á milli
eða ekki, eru ýmsir háttsettir starfs-
menn fyrirtækisins að segja skilið
við það. Þannig kom upp skoðana-
ágreiningur milli Gunnars Þor-
valdssonar fráfarandi forstjóra og
Sigurjóns Jóhannssonar sem unnið
hefur að markaðsmálum Arnar-
flugs með þeim afleiðingum að
Gunnar, sem enn hefur uppsagnar-
vald þrátt fyrir að nýr forstjóri,
Agnar Friðriksson sé tekinn til
starfa, sagði Sigurjóni upp. Stjórn
starfsmannafélagsins vítti Gunnar
fyrir uppsögnina. Skömmu síðar
sagði Bergur Þorleifsson starfs-
mannastjóri upp og svo Hilmar Sig-
urðsson fjármálastjóri. Sagt er að
fleiri fylgi í kjölfarið...
Lárus Ýmir Óskarsson kvik-
/J myndastjóri ætlar að gera
S : það gott í Svíþjóð. Kvikmynd
hans Andra dansen fékk mjög góða
dóma í blöðum þar og nú hefur
verið ámálgað við hann að gera
tvær aðrar kvikmyndir í Svíþjóð,
þó enn hafi ekki verið gengið frá
Föstudagur 25. febrúar 1983
jjfísturinn
s«YNDmÉrruR
Pylsur
<5KYNDtfi£TTUR •
Hamborgart
77laj,*w pottWTzzz-
" í hádeginu,
á kvöldin - heima.
í vinnunni,
á ferðalögum,
og hvar sem er.
l8 PfUnsin
*
i~r
\9*&<
OtfwQ*#
,atið dósina standa í 5 mm.i heitu vatni
í potti eða vaski, áður en hún er opnuð,
og rétturinn er tilbúinn.
Lykkjulok - enginn dósahnífur.
Fæst í næstu verslun!
Niðursuðuverksmiðjan ORA
neinum samningum. í fyrsta lagi er
það „sálfræðilegur þriller”, sem-
Mona nokkur Forsén er að skrifa
handritið að. Vinnuheiti myndar-
innar er á sænsku Utsatt eða Ofsótt
á íslensku. Framleiðslufyrirtækið
Nordisk Tonefilm stendur á bak við
þessa mynd. í öðru Iagi er það svo
Eitt augnablik í einu, sem er
portrett af miðaldra konu. Lárus
hefur sjálfur skrifað gróft handrit
að þeirri mynd og er það unnið upp
úr samnefndri sænskri skáldsögu.
Sú sem stendur á bak við þá mynd
heitir Katinka Farago, en hún hefur
m.a. verið framkvæmdastjóri fyrir
myndum hjá Ingmar Bergman. Ef
af þessu verður, eru upptökur fyrir-
hugaðar í haust eða næsta vor...
Við heyrum að hin nýja vík-
TJ ingamynd Hrafns Gunn-
S laugssonar Einu sinni var,
sefn taka á í sumar, verði að 30%
fjármögnuð með sænsku fé. Það
kemur frá Viking-film í Stokk-
hólmi sem áður hefur lagt fé í
myndir Hrafns. Heildarkostnaður
við gert þessarar myndar mun nema
um sex milljónum króna sam-
kvæmt áætlun...
Veruleg kreppa er nú sögð í
verklegum framkvæmdum
og telja margir verktakar að
ástandið sé nú jafnvel enn verra en
það var á slæmu árunum 1967 -
1968. Hefur ástandið speglast í til-
boðagerð í þau fáu verk sem boðin
hafa verið út að undanförnu, en
um meirifrávikí tilboðsupphæðum
frá kostnaðaráætlunum er nú að
ræða en oftast áður. Eru þess jafn-
vel dæmi að menn bjóði allt að
50-60% lægra en kostnaðaráætlan-
irnar eru og taka jafnvel fyrirtæki
sem þekkt eru fyrir að standa ekki
í undirboðum þátt í leiknum að
þessu sinni. Mun það ráða mestu að
fyrirtækin telja það hreint neyðar-
brauð að þurfa að segja upp vönum
mönnum, og álíta að það sé betra
að hafa eitthvað að gera og tapa á
því en að missa bestu mennina frá
sér...
<71 Einn af dugmestu frétta-
f J j mönnum Tímans, Agnes
S ,Bragadóttirhefurnúsagtupp.
Agnes er forkur duglegur við frétta-
öflun og sést þá stundum ekki fyrir.
Þykir ýmsum broddum í þjóðfélag-
inu, þ.á m. Framsóknarforkólfum,
það hið versta mál að lenda í klón-
um á Agnesi, og er sagt að sumir af
kærustu sonum maddömunnar
andi nú léttar þegar þessi óþæga
stelpa er á útleið af málgagninu...
Bandalag jafnaðarmanna er
f J að koma saman framboðs-
y listum í hinum ýmsu kjör-
dæmum, eins og við höfum áður
greint frá. Nú heyrum við að líkur
bendi til að tvö efstu sætin í Norð-
urlandskjördæmi eystra verði skip-
uð konum. Að minnsta kosti er
stefnt að því að annað þessara sæta
leggi Húsvíkingar til og er kandí-
datinn Kolbrún M. Jónsdóttir, sem
ekki hefur áður komið nálægt póli-
tík svo vitað sé...
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
ÁRMÓL! 4 REYKJAVlK SIMI 84499
Útboð
Sveitasjóður Bessastaðahrepps óskar hér með eftir til-
boðum í eftirtaldar gatnagerðarframkvæmdir.
1. Álftanesvegur við Landakot, lengd 232 m, skilatími 1.
júní ’83. (Vegagerð ríkisins).
2. Sjávargata, lengd 321 m, skilatími 20. júlí ’83.
3. Blikastígur, lengd 200 m, skilatími 15. júní ’83.
4. Smáratún, lengd 144 m, skilatími 15. júlí ’83.
Innifalið í hverju einstöku verki er jarðvegsskipti, holræsa-
og vatnslagnir. Engar lagnir eru í Álftanesvegi. Útboðsgögn
eru afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen h.f. Ár-
múla 4, Fteykjavík frá og með n.k. þriðjudegi 1. mars.
Skilatrygging er kr. 1000 fyrir hvert einstakt verk.
Tilboðum skal skila á Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen
h.f. Ármúla 4, Reykjavík eigi síðar en föstudaginn 18. mars
kl. 11 f.h. en þá verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra
bjóðenda sem viðstaddir kunna að verða.