Helgarpósturinn - 25.02.1983, Qupperneq 3
jfe/r/nnFösluda9ur
25. febrúar 1983
3
Skoðanir og kannanir
Skoðanakönnun um fylgi framboða í
öllum kjördæmum við alþingiskosn-
ingari
SVEIFLA FRA MIÐJI
■ Vcrukg svcUla cr 4 kjörf) Igi frí Framsikoarflokknum og AlþjSuflukknum yflr III Banda-
lags JafnaSannanna, AlþjSubandalagsins og SjálMacSisflokkslns miSaS viS siSuslu alþingb-
kosningar. Þclta cr mcgin niSurslaSan i annarri skoSanakönnun llclgarpóstsins um fjlgi
stjórnmálaflokkanna, scm unnin var af fjrlrtnkinu SkoSanakannanir á islandi (SKÁÍS), og
kosluB af Mazda-umboSinu.
■ Samkvarmt kónnuninni, scm var unnln um siSuslu hclgi, kváSusl 11.75% þcirra scm lóko
afstöSu mundu kjósa AlþjSuflokkinn cf koaiS yrSI nú, 15.30% sógSuil mundu kjósa Fram-
vóknarflokkinn, 37.70% ncfndu SjálfsticBbflokkinn, 16.75% AlþjSubandalagiS. 9.25%
Bandalag jafnaSarmanna og 9.25% önnur framboS.
■ SkoSanakónnunin náSi lll allra kjördæma landsins og hcildarúrtakiS var rélt innan »18 1400
manns cSa 1.03% af kjóscodum. Af þcssum hópi voru rúmlcga 600 i Rcykjavik og rúmlcga 3001
Rcykjancskjónbcmi.
■ Enn scm fyrr var þnO labvcrt stór hópur scm ckkl vildi svara (19.30%) og lók ckki afstóBu
(34.5%): A8 þcsso slnni var fólki ctnnig gcflnn koslur á aO scgjast ckki artla a8 kjósa, og kusu
10.40% þá afslðSu.
lalsvcrBu fylgl á þéllbjlissvaOunum, sír.
flokksins cr lika UUvcrt slem, cn baSi 11
kjördemakosna mcnn.
■ SjálfsUcOisnokkurinn kcmur slcrkur úl1
má þar sérsuklcga bcnda á SuSurtand, Nc;
scgja um AtþjOubandaUgiS, þaS kcmur
brcylingu frá fyrri könnunhmi.
mann og f Rcykjavik þar scm þaS fer 14.
nokkuS f samremi viS fyrri könnun. Þ.
samkvural þcssari könnun, cn crfHl cr
ágrciningur kom upp um þaS hvort af kvc*
vcii aS margk þú lllakcndur f þcssari r ‘
hvaS var átl.
—~7Tr^ífé\agsv‘sin0 - ‘
'**'*"*• ao„ I L\r Wtot 4“"ídSt'Ö
hlelgai----—
posturinn
Blaö um þjóömál, listir og menn-
ingarmál.
Ritstjórar:
Árni Þórarinsson og Björn Vignir
Sigurpálsson.
Ritstjórnarfulltrúi:
Guðjón Arngrímsson.
Blaðamenn:
Guðlaugur Bergmundsson, Óm-
ar Valdimarsson, Þorgrímur
Gestsson
Útlit:
Kristinn G. Marðarson.
Ljósmyndir:
Jim Smart.
Dálkahöfundar:
Hringborð:
Auður Haralds, Birgir Sigurðs-
son, Heimir Pálsson, Hrafn
Gunnlaugsson, Jón Baldvin
Hannibalsson, Jónas Jónasson,
Magnea J. Matthíasdóttir, Pétur
Gunnarsson, Sigríður Halldórs-
dóttir, Sigurður A. Magnússon.
Helgarpósturinn hefur verið
gagnrýndur nokkuð undanfarna
daga vegna þeirrar skoðana-
könnunar um fylgi flokkanna, sem
birtist í síðasta blaði. Rétt er að taka
f ram að könnunin var ekki unnin af
starfsfólki Helgarpóstsins, heldur
af óháðu fyrirtæki, Skoðana-
kannanir á íslandi.
Skoðanaskipti þau um þessa
skoðanakönnun, sem farið hafa
framað undanförnu, eru reifuð i
Inniendri yfirsýn í Helgarpóstinum
í dag. Þar er það meðal annars haft
eftir félagsvísindamanni, að þrátt
fyrir þá galla sem hann sér á henni
verði það að teljast heiðarlega að
staðið, að hlutlaus aðili var fenginn
til framkvæmdarinnar. Það sé sá
háttur sem hafður sé á við slíkar
skoðanakannanir allsstaðar ann-
arsstaðar.
Það er fyrst og fremst gagnrýnt í
skoðanakönnun SKÁÍS, að hún
náði ekki til kjósenda í sveitahrepp-
um, sem skekki talsvert fylgi flokk-
anna, einkum Framsóknarflokks-
ins. Þá hefur það verið gagnrýnt, að
niðurstöðurnar voru bútaðar niður
í því skyni að fá skiptingu kjörinna
þingmanna milli flokka i einstök-
um kjördæmum.
„Ég viðurkenni fúslega, að það er
galli á könnuninni að dreifbýlið er
ekki tekið með”, segir dr. Bragi
Jósepsson einn af aðstandendum
SKÁÍS við Helgarpóstinn. Og hann
bætir því við, að nú sé unnið að þvi
að undirbúa nýja könnun þar sem
tekið verði samsvarandi úrtak úr
sveitahreppum og tekið var af land-
inu annars i síðustu könnun.
Enda þótt deilurnar um skoðana-
könnun þá sem birtist í Helgarpóst-
inum um síðustu helgi hafi fyrst og
fremst snúist um aðferðir, eru þær
ekki kjarni málsins. Hann er sá, að
settar verði ákveðnar reglur um
framkvæmd slíkra kannana, sem
gert hefur verið í öllum þeim lönd-
um þar sem þær eru við hafðar.
Niðurstöður skoðanakannana má
liklega alltaf vcfengja eða gagn-
rýna. En sú tortryggni sem hefur
ríkt í þeirra garð á Islandi allt frá
því Vísir sálugi reið á vaðið á sínum
tíma byggist fyrst og fremst á því að
menn telja sig ekki hafa vissu fyrir
því að vísindalega sé að þeim stað-
ið.
Auk þess skortir hér á landi þann
grundvöll sem er nauðsynlegt að
byggja allar skoðanakannanir á. Sá
grundvöllur er fyrst og fremst víð-
tæk og vönduð könnun sem sýnir
dreifingu á afstöðu fólks eftir aldri,
kynferði, búsetu, fjölskyldustærð,
stétt og tekjum svo eitthvað sé
nefnt. Á slikri könnun má síðan
byggja það úrtak sem á að gefa
smækkaða mynd af þjóðfélaginu,
en það er forsenda trúverðugrar
niðurstöðu.
Þessu til viðbótar verður að
benda á, að niðurstöðu skoðana-
könnunar er ekki ætlað að gefa
hugmynd um úrslit kosninga.
Henni er fyrst og fremst ætlað að
gefa upplýsingar um það hvaða
pólitískir straumar leika um þjóð-
ina á þeim tíma sem könnunin er
gerð.
TVisvar hefur verið vakið máls á
því á Alþingi, að þörf sé á því að
setja reglur um framkvæmd skoð-
anakannana, fyrst 1979, síðan
1980. En ekkert hefur gerst, og nú
hefur Árni Gunnarsson alþingis-
maður í hyggju að leggja fram fyrir-
spurn til forsætisráðherra um þessi
mál í þvi skyni að hreyfa við þeim
einu sinni enn. Helgarpósturinn er
ekki að mæla með því að steinn
verði lagður í götu þeirra sem vilja
framkvæma skoðanakannanir. En
það er nauðsynlegt að setja um
framkvæmd þeirra ákveðnar reglur
til að hægt verði að framkvæma
þær án þess að niðurstöðurnar
verði tortryggðar eða véfengdar.
Listapóstur:
Heimir Pálsson, Gunnlaugur
Ástgeirsson, Siguröur
Svavarsson (bókmenntir &
leiklist), Siguröur Pálsson
(leiklist), Árni Björnsson (tón-
list,) Sólrún B. Jensdóttir
(bókmenntir & sagnfræði),
Guðbergur Bergsson (mynd-
list), Gunnlaugur Sigfússon
(popptónlist), Vernharður
Linnet (jazz), Árni Þórarins-
son, Björn Vignir Sigur-
pálsson, Guðjón Arngríms-
son, Guðlaugur Berg-
mundsson, Jón Axel Egilsson
(kvikmyndir).
Utanlandspóstar:
Erla Siguröardóttir, Danmörku,
Adolf H. Emilsson, Svíþjóð, Inga
Dóra Björnsdóttir, Bandaríkjun-
um, Helgi Skúli Kjartansson,
Bretlandi, Ólafur Engilbertsson,
Spáni.
Erlend málefni:
Magnús Torfi Ólafsson.
Skák:
Guömundur Arnlaugsson.
Spil:
Friörik Dungal.
Matargeröarlist:
Jóhanna Sveinsdóttir.
Stuðarinn:
Helga Haraldsdóttir
og Páll Pálsson.
Útgefandi: Vitaðsgjafi hf.
Framkvæmdastjóri: Bjarni P.
Magnússon.
Auglýsingar: Inga Birna Gunn-
arsdóttir.
Innheimta: Guðmundur Jó-
hannesson.
Dreifing: Siguröur Steinarsson.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
Lausasöluverö kr. 20
Ritstjórn og auglýsingar eru að
Ármúla 38, Reykjavík.
Sími: 81866.
Afgreiðsla og skrifstofa eru að
Ármúla 38. Símar 81866
og 81741.
Prentun: Blaðaprent hf.
horni), vaða í pollum á
daginn og detta kannski
oni, en það tilheyrir víst.
Dagarnir eru bjartir, nota-
lega auð jörð og loftið
hlýtt, óvanalegur febrúar.
Jafnvel veðurguðirnir virð-
ast hafa látið blekkjast.
En þeir láta ekki að sér
.hæða, spámennirnir á veð-
urstofunni. Á hverju
kvöldi horfi ég skelfd á
veðurkortin þeirra á skján-
um, aðvífandi lægðir, örv-
ar sem eru ekki nógu lang-
ar fyrir vindstigin, kulda-
skil og allt skreytt með þrí-
hyrningum, stjörnum og
menningi tækifæri til að
styrkja og stæla líkamann í
vetrarveðrinu með löngum
gönguferðum (af því að
það er svo dýrt í strætó).
Borgarstjórn gengur bara
ekki nægilega langt. Hún á
að fækka ferðum vagna
stórlega svo fólk fái nú
hreint loft í lungun við að
bíða, leggja niður tímaá-
ætlanir og leiðakerfið og
finna til vagnstjóra sem
aka eftir duttlungum sín-
um en ekki ákveðnu kerfi.
Þannig væri tryggt að þorri
strætisvagnafarþega biði
tímunum saman eftir fari
einhversstaðar þar sem
og upp aftur hinumegin og
verðlauna vegfarendur sem
komast tiltekna leið án
þess að detta á hálkunni.
Auk þess má gera fötluð-
um margt til yndisauka
eins og oft áður - skipta í
riðla og keppa um hverjir
komast hæst og lengst í op-,
inberum byggingum með
óralangar tröppur, engar
hjólastólabrautir (eða
snarbrattar) og engar lyft-
ur. Fannst lesendum
Hringborðsins ekki gaman
að sjá á myndum börnin í
Hlíðaskóla skríða upp stig-
ana? Það gæti orðið dagleg
vetrarskemmtun ef fjöl-
miðlar taka við sér og
fylgjast þokkalega með ó-
færðarafrekum almenn-
ings.
Er útlitiö svart?
hrinqborbiö
í dag skrifar Magnea J. Matthíasdóttir
Plönturnar mínar halda
því blygðunarlaust fram að
vorið sé komið. Grænir
sprotar æða uppúr mold-
inni og hraðlestin sendir
óralangar greinar í allar
áttir eins og vitlaus væri,
þrátt fyrir að ekki sé enn
komið að árlegri umpottun
og allsherjarsnyrtingu.
Meira að segja kaktusræf-
illinn sem köttunum þykir
allra jurta ljúffengastur
hefur tekið við sér, þrátt
fyrir vetrarlanga beit. Það
stafar ef til vill af því að kis
urnar virðast hafa öðru að
sinna, sitja lon og don í
gluggakistunni og mæna
andvarpandi út á vafasam-
an litinn á grasflötinni og.
lauflausa ribsrunnana.
Þeim finnst hart að hanga
svona inni þegar augljós-
lega er miklu skemmtilegra
að leika ábyrgan veiðikött
þarna úti, daðra ef til vill
við svarta sjarmörinn eða
lenda í slagsmálum við kis-
una uppi (sem raunar er
amma fósturdóttur stóru
kisunnar). Börnin eru í
brennó frameftir kvöldum,
svona þegar ekki rignir (en
það er auðvitað sannkallað
sumarveður á þessu lands-
skástrikum, kommum og
öðrum táknum sem ég
kann ekki að telja. lítlitið
er svart og ég trúi öllu í
blindni, pakka barninu inn
í margföld peysulög, þrátt
fyrir mótmæli (hún er nú
sem betur fer hætt að
klæða sig úr því mesta
hérna frammi á gangi og
skilja eftir þegar hún fer
út), þrefalda vítamín-
skammtinn og býst við hi-
nu versta. Þrátt fyrir allt er
veturinn víst ekki liðinn,
hvorki á almanakinu eða í
verunni.
Veturinn - sérdeilis eftir
jól - er ákaflega dapurlegur
tími, held ég að sé almenn
skoðun landans. Þó reyna
margir að gera sér mat úr
honum með ýmsum íþrótt-
um, skíðum og skautum og
fleira slíku. Persónulega
hef ég aldrei séð neitt
spennandi við að sitja á
rassinum á svelli eða í ska-
fli, en það er barnsreynsla
mín af vetraríþróttum þó
aðrir hafi ólíka sögu að
segja. Aftur á móti líst mér
vel á aðgerðir ágætrar borg
arstjórnar okkar og Da-
víðs I að veita öllum al-
enginn vagn fer um, andaði
að sér hreinu lofti og færi á
endanum í langa hressing-
argöngu, hvort heldur væri
heim til sín eða í vinnu.
(Auk annarra kosta gæfi
þessi stefna mér tækifæri
til að koma á markað vænt
anlegri metsölubók minni
„Á strætisvagnaveiðum í
myrkviðum Reykjavík-
ur”). Stefnan hefur lengi
verið í þessa átt, því ekki að
stíga skrefið til fulls - það
vita hvorteðer allir (amk.
Velvakandaskríbentar) að
strætisvagnafarþegar bor-
ga ekkert útsvar og taka
þar af leiðandi ekki þátt i
að greiða tapið á strætó-
rekstri jafnt og bíleigend-
ur. Á þetta má sömuleiðis
benda þegar fólk er að
nöldra yfir hækkuðum
sundgjöldum.
En Það er fleira sem má
gera þegar aftur byrjar að
snjóa og snjómoksturs-
stefnan góða gefur tilefni
til.Þaðmá til dæmis skipu
leggja barnavagna-
kapphlaup („rallí”) eftir
gangstéttum höfuðborgar-
innar, keppni hjá öldruð-
um við að klöngrast yfir
snjófjöllin við gangstéttar-
brúnir, hlaupa yfir götuna