Helgarpósturinn - 25.02.1983, Blaðsíða 5
f, irinn Föstuda9ur 25. febrúar 1983
“1
var látinn vita, að þetta væri misskilningur og
að hann mætti sækja bílinn aftur!’
Ásgeir Thoroddsen hdl. sagði að taka bíls-
ins hafi veiið byggð á misskilningi. „Vörslu-
svipting hefur ekkert frekar verið fógetaverk í
gegnum tíðinal’ sagði hann og benti á að þess
vegna væri ekkert einsdæmi að stofa hans fæli
Símoni Wiium slík verkefni. „Þetta mál stafar
af mistökum, sem strax voru leiðrétt. Og þótt
ég úttali mig yfirleitt ekki um viðskipti mín
við skuldara þá tel ég rétt að útskýra þetta mál
núna. Þessi krafa á Ágúst ísfjörð er hér i inn-
heimtu og er tryggð með veði í bílnum. í
skuldabréfinu eru ákvæði um að selja megi
bílinn á uppboði falli öll skuldin í gjalddaga.
Mistökin voru fólgin í því, að bréfið var sent
í vörslusviptingu vegna ákvæðanna i því um
uppboðið en þess ekki gætt, að samkvæmt
lögunum tekur uppboð án undangenginna
sátta eða dóms aðeins til fasteigna. Þegar
þessi misskilningur kom í ljós var Haraldur
þegar látinn vita að hann mætti sækja bílinn
enda var krafan ekki á hann.”
Ruddist inn á
stofugólf
Þriðja kæran, sem barst RLR í síðustu
viku, var afturkölluð því skuldarinn, móðir í
Breiðholti, taldi sig ekki eiga annarra kosta
völ til að geta gengið frá sínum málum. Hún
sagði blaðamanni HP frá samskiptum sínum
við Símon Wiium, sem í því tilfelli var við inn-
heimtustörf fyrir Ævar Guðmundsson hdl.:
„Þrjú af fjórum börnum mínum eru ör-
yrkjar og þurfa að stunda æfingar daglega.
Ég verð því að hafa bíl til að komast á milli.
í júní í fyrra keypti ég því bíl af umboði í,
Reykjavík. Ég hef síðan ekki getað staðið í
skilum og þar kom, að gert var fjárnám í bíln-
um og skuldin þá orðin hátt í fjörutíu þúsund
krónur. Maðurinn minn er úti á sjó og á
mánudagskvöldið í síðustu viku, þegar ég var
að tala við hann i síma, vissi ég ekki fyrr en að
allt í einu er kominn maður inn á stofugólf hjá
mér. Það var Símon Wiium. Hann sagði mér
að skella á, það væri mjög áríðandi að hann
tæki bilinn. Það kom mér mjög á óvart, því
enginn hafði minnst á það við mig áður að
bíllinn yrði tekinn af mér. Eg sagðist ekkert
skella á, ég væri að tala við útlönd, og auk
þess fengi hann ekki bílinn. Hann hélt það nú
samt — eða þá að ég yrði að reiða fram pen-
inga fyrir skuldinni.
Hann hótaði þá að ná í kranabíl og taka bíl-
inn þannig með valdi ef ég léti sig ekki fá lykl-
ana. Ég bauð honum ávísanir fram í tímann,
eins og stundum hefur verið gert, en það vildi
hann ekki. Hann ætlaði bara að fá lyklana og
ef ég vildi ekki láta þá qf hendi þá væri hann
með vitni í bílnum!’
Konan sagði að i þessu stappi hefði staðið
í nærri klukkutíma og hefði hún boðið fram
hvaðeina, sem hún ætti, allt annað en bílinn,
sem hún mætti ekki missa vegna barnanna.
Að fá frest til morguns, til að geta rætt málið
við lögmanninn, hefði ekki verið til umræðu.
„Á endanum gafst ég upp, henti lyklunum að
bílnum og rak hann út!’ sagði konan í samtal-
inu við HP. „Á miðvikudeginum kærði ég að-
farirnar til rannsóknarlögreglunnar. Lög-
fræðingarnir urðu mjög reiðir yfir kærunni
og ég varð þvi að draga hana til baka til að
geta bjargað mínum málum. Það var svo lög-
reglumaður hjá Rannsóknarlögreglunni, sem
kom því til leiðar að ég held bílnum að
minnsta kosti þangað til maðurinn minn kem-
. ur í land og við getum gengið frá málinu!’
Hún bætti því við að sér hefði þótt þetta
mjög óskemmtileg heimsókn, ekki aðeins
hefði innheimtumaðurinn ruðst óboðinn inn
á heimili sitt, heldur hefði hann einnig sýnt
mjög leiðinlega framkomu og allt að þvi kúg-
að sig til að afhenda lyklana. Hún hefði ekki
vitað fyrr en síðar, að ekki væri hægt að
vörslusvipta nema með tilstuðlan fógeta og að
úrskurð fógetaréttar þyrfti til að taka muni
með valdi, eins og Símon hefði hótað.
„Verslunarstríö”
Ævar Guðmundsson hdl., sem Símon var
að vinna fyrir í þessu tilviki, sagði hann hafa
verið í fullum rétti, vörslusvipting væri ekki
fógetagerð, hún Væri heimiluð með fjárnáms-
gerðinni. „Eigandi skuldar getur tekið hlut í
sínar hendur” sagði Ævar, „þótt það sé afar
sjaldan gert til að firra óþægindum. Það má
kannski segja að þetta séu harkalegar aðfarir
en lögin um aðför eru mjög harkaleg”
Ævar færðist að öðru leyti undan því að
ræða þetta tiltekna mál, sem búið værí að fá
botn í, en hvatti til að grafist +
yrði fyrir um „upphaf þessa í23 .
Kannast ekki við að beita
hótunum eða blekkingum
Símon Wiium, sá sem kærður
hefur verið til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, hefur starfað við
innheimtu í tæp sextán ár.
Helgarpósturinn lagði fyrir
hann skriflegar spurningar um
málið, sem hér er til umfjöllun-
ar og fékk skrifleg svör til baka.
- Hvernig hafa samskipti þín
við borgarfógetaembættið verið
í gegnum árin og á síðustu mán-
uðum og árum?
„Öll samskipti mín við borgar-
fógetaembættið og starfsmenn
þess hafa verið mjög góð og
snurðulaus i gegnum tíðina, en
ég hefi unnið við innheimtu-
störf og töku fjárnumdra og
lögtekinna muna fyrir lögmenn
og stofnanir í tæp sextán ár.
Það var fyrir um það bil
tveimur árum, að einn fulltrúi
hjá borgarfógetaembættinu fór
að annast vörslusviptingar í
aukastarfi á kvöldin og um
helgar á eigin reikning. Þessi
fulltrúi hefur upp á síðkastið
reynt að flæma mig úr starfi til
að geta setið einn að þessum
störfum.
segir Símon S. Wiium
- í viðtölum við okkur er fuil-
yrt, að þú beitir hótunum og
blekkingum. Einnig er fullyrt,
að þú ryðjist óboðinn inn á
heimili og í geymslur og segist
vera á vegum fógeta. Hve mikið
af þessu er rétt?
„Starf mitt er í því fólgið, að
fara til fólks og fyrirtækja, sem
gert hefur verið fjárnám hjá og/
eða lögtak og biðja um
greiðslur og/eða að reyna að
semja um greiðslur skuldanna.
Ef skuldarar geta ekki greitt
kröfurnar og samningar eru
vonlausir þá bið ég viðkomandi
að afhenda þá hluti, er upp hafa
verið skrifaðir, sem og allflestir
gera af fúsum og frjálsum vilja.
Ef aðilar hins vegar neita alfarið
að afhenda hlutina þá þarf at-
beina fógeta til að 'taka hina
fjárnumdu hluti með valdi og
geri ég fólki það fullkomlega
ljóst og hverjar afleiðingar það
hefur í för með sér. Ef til vill má
skoða þetta sem hótun en þetta
eru staðreyndir um gang mála.
Að öðru leyti kannast ég
ekki við að beita hótunum né
blekkingum. Það er firra að ég
ryðjist óboðinn inn í hús, íbúðir
eða geymslur og það eru helber
ósannindi að ég segist vera á
vegum fógeta. Ég geri fólki
Símon Wiium var ófáanlegur til að
láta Ijosmvnda sig - en hér er bfll
hans, sá hinn sami og notaður er til
að flytja muni úr vörslu skuldara.
ávallt grein fyrir því að ég starfi
og sé kominn á staðinn í um-
boði og fyrir viðkomandi lög-
menn eða stofnanir.”
- Er ekki vörslusvipting al-
farið fógetaathöfn?
„Varðandi það hvort vörslu-
svipting sé fógetaaðgerð þá má
vtsa til þess sem að ofan er rak-
ið. Þurfi valdbeitingu til tök-
unnar þá er það alfarið fógeta-
mál en fari afhending fram með
samkomulagi, sem flestir vilja,
þá þarffógeti þar hvergi nærri
að koma, enda væri slíkt fárán-
legt. Enda veit ég það að fæstar
vörslusviptingar sem áðumefnd
ur fulltrúi sér um eru bókaðar
sem réttargerðir enda um
einkastarfsemi hans að tefla.
Þeir lögmenn og stofnanir sem
ég starfa fyrir eru á sama máli
og ég um eðli vörslusviptinga að
þessu leyti enda starfa ég í um-
boði þeirra og eftir þeirra fyrir-
mælum.“
- Hvaða fyrirntæli færð þú
frá lögmönnum, sem þú inn-
heimtir og vörslusviptir fyrir?
„Þau fyrirmæli, sem ég fæ frá
lögmönnum og stofnunum sem
ég vinn fyrir, eru ávallt þau
sömu: númer eitt er að allir
skilji sáttir, bæði skuldarar og
skuldareigendur, og að allir fái
sitt greitt að lokum. Oft þarf að
setja bíla og hluti í geymslur,
svo veðin hvorki rýrni né
skaðist í höndum skuldara."
- Hvernig er háttað samning-
um þínum við lögmannsstofur?
Við þessari spurningu barst
ekki skriflegt svgr.
Vegg- og gólfdúkur
DLW vegg- og gólfdúkarnir. Heimsfræg gæðavara.
Urval allra nauðsynlegra verkfæra og áhalda til
dúklagninga.
Thomson hreinsilögur - hreinsar upp gamla dúka.
Sofix bón gerir gamla dúkinn sem nýjan - nýja dúkinn
enn betri.
Úrval af málningu og málningarvörum.
50 ára þjónusta í sölu vegg-og gólfefna.
Valin gæðavara
vönduð vinnubrögð
+ leiðbeiningar og góð ráð
= ánægjulegur árangur
Lítið við, verið velkomin.
nJÉÉGfÓDRARIKH^
W Hverfisgötu 34 - Reykjavík
____Sími 14484 - 13150