Helgarpósturinn - 25.02.1983, Side 14
14,__________________________
Kanarífuglar
og rottueitur
Tíu páfagaukar og 50 kanarífugl-
ar í varadekki með loftgötum kost-
aði 35 ára gamlan borgarbúa 25.000
ísl. krónur.
Fuglunum átti að smygla til Oslo,
en þeir voru uppgötvaðir í skyndi-
könnun í tollinum í Gautaborg.
í heila viku fékk maður nokkur
rottueitur í morgunkaffið og
morgunmatinn. Burtséð frá lítils-
háttar magapínu tók hann ekki eftir
neinu.
Það var taugaveiklaða konan
hans sem gaf honum eitrið, og það
var hún sem eftir eina viku hafði
samband við lækni.
Hún útskýrði gerðir sínar á þann
veg að það væri hróp á hjálp vegna
slæmra tauga sinna.
Fyrir rétti í Odense neitaði hún
því að ætlun hennar hafi verið að
drepa mann sinn. Hún hefði aðeins
sett nokkur korn í mat hans á hverj-
um morgni. Konan er nú í fangelsi
sökuð um tilraun til manndráps.
Þessi 30 ára kona sagði í réttinum
að hún hefði oft reynt að fá læknis-
hjálp vegna slæmra tauga sinna, en
aldrei heppnast.
Þess vegna greip hún til þessa ör-
þrifaráðs.
Það er hollt og nærandi
marsipanjukkið.
Eitt marsípan
á dag
kemur kyn-
orkunni í lag
Er kynorkan farin að dofna?
Ef svo er, borðaðu þá marsípan og
reyndu aftur. Þessu halda menn
fram í Danmörku. En marsípanið
gerir meira gagn. Það er afskaplega
nærandi og holl fæða. í því er mik-
ið um ómettaðar sýrur, prótein,
málmsölt og vítamin. Þá á það
einnig að minnka likurnar á
krabbameini.
En það er ekki hvaða marsípan,
sem er, sem er svona stórkostlegt
heldur aðeins það danska. Svo
segja þeir í Danmörku alla vega.
Sem dæmi má nefna, að hið fræga
þýska marsípan frá Lúbeck hefur
innbyrðis helmingi meiri sykur en
það danska og er því alls ekki eins
ódýrt og kann að virðast við fyrstu
sýn. Gæðin eru ekki eins mikil.
Marsípan er jólasælgæti þeirra í
Danaveldi og fyrir síðustu jól
keypti hvert danskt heimili um hálft
kíló að meðaltali. Ef þeir halda á-
fram á þessari braut, megum við
eiga von á heilbrigðum frændum
um ókomna tíð.
Nýi Mazda 626:
Japanskur bíll með tölvumúsikk.
Eitt lag ef Ijósin gleymast á, annað
ef dyrnar eru ekki lokaðar og það
þriðja ef svissað er á bílinn en hann
er ekki i gangi.
Það er ekki beinlínis þetta sem
gerði að japanskir bílablaðamenn
og tækniprófessorar völdu nýja
framhjóladrifna Mazda 626 bíl áts
ins 1983. í augum þeirra réð það
úrslitum að hann býður upp á „Gott
rými, góða aksturseiginleika, þæg-
indi, stilhreint útlit og sparneytni”,
eins og segir í niðurstöðum þeirra.
Hitt spillir þó ekki fyrir, og lík-
lega má segja að þessi nýi Mazda
626 sé betur búinn allskonar aðvör-l
unarljósum og aukabúnaði sem
ætlað er að létta eigendunum lífið
Föstudagur 25. febrúar 1983
Jlelgai—-;-
.Dústunnn.
Hátískan í Bankastræti
Heilbrigt fangelsislíf!!
Það er ekki amalegt að vera fyrir-
myndarfangi í Suður-Kóreu.
Fyrirmyndarfangar fá leyfi til að
taka á móti gestum í heilan dag
þrisvar til fjórum sinnum á ári og
mega fjölskyldur þeirra þá kokka
ofan í þá í heimsóknartímanum.
Eða svo tilkynnti dómsmálaráðu-
neyti Suður-Kóreu nýlega.
Ráðuneytið tilkynnti einnig, að
yfirmenn fangelsa myndu láta ætt-
ingjana vita, ef fangarnir sýktust
innan fangelsisveggjanna.
Ráðstafanir þessar eru gerðar til
að hressa upp á móralinn hjá fyrir-
myndarföngunum og einnig til þess
að fræða aðra fanga um heilbrigt
fangelsislíf (sic).
Heimsóknartíminn nú er tak-
markaður við fimm mínútur og
verða fangarnir að tala við gesti
sína í gegnum gler. Fyrirmyndar-
fangar munu hins vegar í framtíð-
inni fá að ræða við gestina utan
klefanna í frjálsu andrúmslofti
(sic).
Ætli það sé nokkuð dýrt að
fljúga til Seoul?
Sýningarstúlkur klæddust fötum
Gamla bíói á laugardaginn var.
frá Etienne Aigner í
Kiðröðin var af þeim stærðar-
flokki, sem ötulir danshúsagcstir
kannast mætavel við. Um margt
var hún þó frábrugðin. Fólkið var
eldra og prúðbúnara en venja er
um og eftir miðnættið við öldur-
húsin og auk þess var hábjartur
dagur. Innan dyra fengu svo þeir
er það vildu kampavin eða appel-
sínusafa. Á eftir var boðið upp á
glæsilega tískusýningu.
Þetta gerðist í Gamla bíói síð-
degis á laugardag. Tilefnið var
opnun nýrrar tiskuverslunar á
horni Bankastrætis og Ingólfs-
strætis.
„Þetta verður verslun með fatn-
að í hæsta gæðaflokki”, sagði
Sævar Karl Ólason klæðskeri,
þegar hann var spurður hvers kon-
ar verslun hann væri að opna.
Verslunin heitir Etienne Aigner
eftir vörumerkinu, sem aðaliega
verður þar á boðstólum.Sá hluti
verslunarinnar verður á götuhæð-
inni, en í kjallara verða seld föt frá
öðrum framieiðendum, en i svip-
uðum stíl.
Etienne Aigner er alþjóðlegt
tískufyrirtæki og er með rúmiega
50 verslanir i 50 þjóðlöndum,' og
hefur Sævar Karl gert 10 ára
samning við það.
Fatnaðurinn frá Etienne
Aigner er hátískufatnaður og í
versluninni í Bankastræti verður
aðaláherslan lögð á kvenfatnað-
inn. Eitthvað lítillega verður þó
selt af karlmannafatnaði. Sævar
Karl hefur selt fatnað frá þessu
fyrirtæki í tvö ár og hefur það
gengið mjög vel, og sagði hann að
sér hefði fundist vanta sérverslun
með þessi föt.
Það var vor- og sumartískan
1983, sem sýnd var í Gamla bíói á
laugardaginn og Sævar Karl
sagði, að þar væru mjúk náttúru-
efni áberandi, silki, bómull og hör
og litirnir væru pastel.
Innréttingar verslunarinnar eru
teiknaðar af arkítekti frá Mún-
chen og hefur hann teiknað allar
hinar verslanirnar.
„Ég keypti húsnæðið fyrir ári
síðan, en ég hef verið að stefna að
því undanfarin tvö til þrjú ár að
opna glæsilega verslun, sem bæri
af öðrum”, sagði Sævar Karl Óia-
son klæðskeri.
GLUGGA
PÓSTUR
Hvað ætlarðu að kjósa? Starfsfólk Skoðanakannana á íslandi
að störfum.
Skoðanakannanir á íslandi:
■ r
og sjon-
varpið næstu
viðfangsefni
„Við lítum á okkur sem verk-
taka við gerð og framkvæmd á
skoðanakönnunum”, sagði Hörð-
ur Sigurðarson, talsmaður fyrir-
tækisins Skoðanakannanir á ís-
landi, þegar Helgarpósturinn for-
vitnaðist um það.
Eins og nafnið gefur til kynna,
er tilgangur fyrirtækisins náttúr-
lega fyrst og fremst sá að fram-
kvæma skoðanakannanir fyrir
þá, sem telja sig þurfa að vita
skoðanir almennings á tilteknu
máli. Og eins og lesendum Helg-
arpóstsins er kunnugt, hefur fyr-
irtækið framkvæmt tvær skoð-
anakannanir um fylgi stjórnmála-
flokkanna fyrir blaðið.
Hörður Sigurðarson sagði, að
það færi eftir eðli hverrar skoð-
anakönnunar fyrir Sig hversu stórt
úrtakið væri. í Reykjavík væri
það valið eftir íbúaskránni og þess
gætt, að hlutfallslega væru teknir
Bíll með músikk
undir stýri en flestir aðrir japanskir
bílar - og þá er nú mikið sagt.
Bæði útlitshönnunin, sparneytin
vél sem endurnýtir bensín sem fer til
spillis og aðvörunarljós sem gefa til
kynna óhagkvæman akstursmáta
leggjast á eitt um að bensíneyðslan
á ekki að þurfa að vera meiri en
milli sex og níulítrará hundraðið.
Þessu til viðbótar er svo hægt að
fá stillanlega, rafeindastýrða demp-
ara sem ætti að koma sér vel á mis-
góðum íslenskum vegum.
Og verðið: Sá ódýrasti kostar
núfta um 230 þúsund, en „með
öllu”, þ.e. sjálfskiptingu, aflstýri,
rafdrifinni sóllúgu og 102 hestafla
tveggja lítra vél kostar hann um 295
þúsund krónur.
jafn margir úr hverju hverfi. Hins
vegar væri farið í símaskrána fyrir
byggðarlög úti á landi og valinn
ákveðinn fjöldi númera miðað við
fjölda kjósenda á hverjum stað.
Könnunin væri síðan framkvæmd
með símhringingum og unnið úr
henni á tölfræðilegan hátt.
Aðspurður sagði Hörður, að
fyrirmyndirnar að skoðanakönn-
unum þeirra væru erlendar, m.a.
frá Gallup.
Menn velta því oft fyrir sér
hversu mikið mark sé hægt að
taka á svona skoðanakönnun.
„Hún gefur fyrst og fremst vís-
bendingu um ástandið hverju
sinni, og því stærra sem úrtakið
er, þeim mun sterkari vísbendingu
gefur hún”, sagði Hörður.
Skoðanakönnun Helgarpósts-
ins hefur sætt nokkurri gagnrýni
vegna þess, að sveitahrepparvoru
ekki með í úrtakinu, heldur voru
einungis teknir þéttbýlisstaðir í
dreifbýliskjördæmunum. Það er
hins Vegar skýrt tekið fram í
könnuninni, og ástæðan fyrir því,
að það var ekki gert, er fyrst og
fremst aðferðafræðileg. Úrtakið í
dreifbýliskjördæmunum var að
öðru leyti unnið á sama hátt og í
Reykjavík og á Reykjanesi, þ.e. að
miðað var við 1.03% af kjósend-
um miðað við 31. desember s.I. í
kaupstöðum og kauptúnahrepp-
um. Skoðanakannanir á íslandi
eru hins vegar að vinna að því að
afla nánari tölfræðilegra upplýs-
inga um dreifbýlissvæðin og er
vonast til, að þau geti verið tekin
inn í næstu skoðanakönnun, sem
væntanlega verður framkvæmd
nokkru fyrir kosningar.
En eru aðrar skoðanakannanir
í bígerð?
„ Já, við erum með aðra könnun
undir, um bjórinn og vinsælasta
sjónvarpsefnið”, sagði Hörður
Sigurðarson.