Helgarpósturinn - 25.02.1983, Page 15
jlfe/r/hnFösl udagur
Leiðrétting
I annarri málsgrein inngangs
að skoðanakönnun Helgar-
póstsins um fylgi flokkanna
brengluðust nokkrar tölur, eins
og kemur fram þegar borið er
saman við töflur nr. 1.
Réttar eru tölurnar yfir hlut-
fallslega skiptingu yfir allt land-
ið svona: Alþýðuflokkurinn
9,60% .Framsóknarflokkurinn
11,60%, Sjálfstæðisflokkurinn,
40,70%, Alþýðubandalagið
15,90%, Bandalag jafnaðar-
manna 11,40%, Kvennafram-,
boð 3,10% og önnur framboð
7,70%.
Þá er prentvilla nokkru neðar
í innganginum þar sem segir að
19,30% hafi ekki viljað svara,
en það á að vera 19,20%. Loks
varð sú prentvilla í töflunni yfir
niðurstöður í Reykjaneskjör-
dæmi, að Alþýðuflokkur er
sagður hafa fengið 8,86% en á
að vera 4,86%.
25. febrúar 1983
Athugasemd
Vegna ummæla um íhalds-
blöðin í síðustu Hringborðs-
grein hefur mér verið bent á að
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV
hafi á liðnu ári birt fjóra leiðara
um afglöp Reagans, þrjá þeirra
um þjóðarmorðin í E1 Salvador
og Guatemala og ástandið í
Rómönsku-Ameríku yfirleitt,
en einn um þá kumpána Begin
og Sharon og stuðning Reagans
við þá. Leiðararnir birtust 1..
febrúar, 24. júní, 18. ágúst og
21. desember. Er mér bæði ljúft
og skylt að biðja ritstjórann af-
sökunar á að hafa ekki getið
þessara gleðilegu undantekn-
inga frá skrifum íhalds-
blaðanna, en annað mál er,
hvort þessir fjórir ágætu leiðar-
ar vega upp á móti daglegum
fasistaskrifum Svarthöfða sem
birt eru nafnlaus og því á á-
byrgð ritstjóranna.
Sigurður A. Magnússon.
ApGfÓDRðRIIflt’
^ Hverfisgötu 34 - Reykjavík
Sími 14484 - 13150
Thompson
hreinsilögurinn
leysir auöveldlega
upp gamalt bón og
önnur óhreinindi.
TVEIR
FRÁBÆRIR
Frá THOMPSON
SOFIX bónið
gefur varanlegan
gljáa, gerir gamla
dúkinn sem nýjan —
nýjadúkinnennbetri.
15
KVENNALISTI TIL ALÞINGIS
Almennur kynningarfundur á Hótel Borg laugardag kl. 14:00.
Ræðumenn: Guðrún Agnarsdóttir
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
Þórhildur Þorleifsdóttir
Fundarstjóri: Elín Ólafsdóttir
Edda Björgvinsdóttir og Helga Thorberg verða ,,Á tali”.
Áhugahópur um framboð
kvenna til Alþingis
HEIDRUÐU
ÓPERUQESTIR
Okkur er það einstök
ánægja að geta boðið
ykkur að lencya feið ykkar
í íslenskuóperuna.
T.d. með því að njóta kvöldverðar fyrir
óperusýningu, í notalegum húsakynnum
okkar hér við hliðina, eða efþið eruð tíma-
bundin, að njóta hluta hans fyrir sýningu
og ábœtis eða þeirrar hressingar sem þið
óskið að sýningu lokinni.
&eim sem ekki hafa pantað borð
með fyrirvara, bjóðum við að velja úr
úrvali ýmissa smárétta, eftir sýningu,
á meðan húsrúm leyfir.
J\ðeins frumsýningarkvöldin fram-
reiðum viðfullan kvöldverð eftir sýningu.
Við opnum klukkan 18 öll kvöld,
fyrir þá sem hafa pantað borð. (Annars
kl. 19).
M eð ósk um að þið eigið ánœgju-
lega kvöldstund.
ARNARHÓLL
Á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrœtis.
Boróapantanir í síma 18833.