Helgarpósturinn - 25.02.1983, Qupperneq 16
Hrafnkell Oskarsson,
13 ára nemi í Hlíðaskóla:
„Unglingavandamálið
er orðum aukið, ég held að þetta sé gert til að
„Þaö eru fáir sem ég þekki sem
hafa áhuga á pólitík.enda tekur
hvort sem er enginn mark á manni
ef maður er undir þritugu svo mað-
ur vitni nú í Búrið eftir Olgu Guð-
rúnu. Ég hef lesiö þá bók 4—5 sinn-
um og finnst stundum eins og það
sem þar er sagt sé talað út úr mínu
hjarta”.
Það er Hrafnkell Óskarsson ,13
ára nemandi í Hlíðaskóla sem
mættur er í Stuðaraviðtal dagsins.
„í Búrinu er fjallað um við-
kvæmt mál sem er skólakerfið. Mér
líður hvorki vel né illa í skólanum,
þetta er bara skylda, en ég þekki
ekki neinn sem ekki hefur einhvern
tímann leiðst þar. Skólinn er
smækkuð mynd af þjóðfélaginu, en
þar eru alltaf einhverjir sem eru
bældir eða kúgaðir”.
Slæmur fyrir hjartað
„Af tveimur slæmum kostum
mundi ég frekar vilja vera pönkari
en diskófrík það er nefnilega vís-
indalega sannað að diskótakturinn
er slæmur fyrir hjartað. Og vísinda-
maðurinn sem sannaði þetta er ekki
pönkari. Á timabili átti maður nátt-
úrlega leðurjakka með merkjum og
öllu þessu djönki én það er liðin tíð.
Annars er hæpið að tala um pönk á
íslandi þar sem þjóðfélagslegar að-
afsaka afskiptasemí fullorðna fólksins”
stæður pönksins eru ekki til staðar.
Ég held líka að pönkið sé að syngja
sitt síðasta víðast hvar, t.d. i Bret-
landi þar sem þetta allt byrjaði. Ég
hlusta mikið á nýbylgjutónlist og þá
aðallega íslenska. Mér finnst Þeyr
t.d. vera mjög góð hljómsveit. Það
er bara verst hvað unglingar hafa fá
tækifæri til að hlusta á hljómsveitir
spila opinberlega. Staðirnir eru svo
fáir og þegar hljómleikar eru haldn-
ir er svo dýrt inn”.
Samviskufanginn
— Hvað lestu helst?
„Ég les nú flestar bækur sem ég
kemst yfir og mögulega nenni að
lesa. Ég á enga uppáhaldshöfunda,
en finnst meira varið í bækur sem
hafa einhverja meiningu. Sumar
bækur verður maður að lesa til að
vera viðræðuhæfur, svoleiðis var
t.d. með Dýragarðsbörnin. En ég
var nú allur í Andrési Önd þegar
Sjáðu sæta naflann minn var sem
vinsælust. Svo les ég blöðin mikið
og fylgist mikið með mannréttinda-
málum, ætlaði meira að segja einu
sinni að skrifa til Haiti út af sam-
viskufanga sem Amnesty Inter-
Og þá er það þriðji og síðasti
hluti spurningakeppni Stuðar-
ans. Eitthvað virðist þið dösuð
eftir miðsvetrarprófin eða
spurningar okkar of léttar, þvi
okkur barst aðeins eitt svar við
fyrsta hluta. Auðvitað reyndist
það alveg hárrétt og Sædís Þór-
is, Kjartansgötu 3 Reykjavík.fær
plötusendingu frá okkur á
næstu dögum. Þið hin ættuð að
nota tækifærið og kreista heila-
sellurnar yfir eftirfarandi spurn-
ingar:
1. ) Orðtakið „Eyvindur með hor”
er slangur sem þýðir:
a. Kvefaður karlmaður
b. Kjöt í karrý
c. Yfirskegg
2. ) Kona nokkur hengdi 25 rauða
sokka og 25 bláa sokka upp til þerr-
is að kvöldi. Morguninn eftir þegar
hún ætlaði að ná í eitt par var ljósa-
peran í þvottahúsinu sprungin
þannig að hún varð að þreifa eftir
því í myrkri. Til þess að vera örugg
með eitt samlitt par þurfti hún að
taka niður af snúrunnni minnst:
a. 2 sokka
b. 3 sokka
c. 26 sokka
3. ) I myndinni „Með allt á hreinu”
ganga Grýlurnar undir nafninu:
a. Gærur
b. Glæður
c. Bandalag jafnaðarmanna
4. ) Ef ég gef þér eina krónu þá eig-
um við jafnmargar, en ef þú gefur
mér eina krónu þá á ég helmingi
fleiri en þú. Við eigum:
a. Ég 7 krónur, þú 5
b. Ég 4 krónur, þú 2
c. Ég 5 krónur, þú 3
national auglýsti að þar væri i
haldi, en því miður varð aldrei úr
því”.
— Lesa krakkar á þínum aldri
mikið?
„Það er einstaklingsbundið.
Núna eru tölvuspilin vinsælli en
bækur þó' ég haldi ekki að þau komi
í staðinn á neinn hátt. Sjálfur horfi
ég mikið á sjónvarp, en er yfirlýstur
and-vídeósinni. Mér finnst vídeóið
misnotað, fólk horfir á allan fjand-
ann í þessu, höfundarétturinn er
sniðgenginn o.s.frv.. Það er vel
Tiægt að nota vídeó til gagnlegra
hluta en myndirnar sem hægt er að
fá á leigu hér eru yfirleitt lélegar”.
Allir hinir
„Trúarbrögðin eru nú svona og
svona. Þegar ég var að læra kristin
fræði botnaði ég ekkert í þeim.
Þetta er allt svo flókið og þyrfti að
útskýra betur. Trúarbrögð mega
aldrei ganga út í öfgar en ég for-
dæmi ekki fólk sem er trúað. Senni-
lega ætla ég að láta ferma mig. Ég
trúi auðvitað að vissu leyti, en ætli
ég noti ekki bara þessi sígildu rök
„af því að allir hinir gera það’T
— Hugsarðu eitthvað um kjarn-
orkusprengjuna?
„Já, ég geri það og er mikill fylg-
ismaður friðarhreyfingarinnar.
Reagan stofnaði annars friðar-
hreyfir.guna óbeint, með því að
auka vígbúnað Bandaríkjanna sem
varð til þess að fólk í Þýskalandi fór
að hópast saman til að mótmæla.
Ég held að friðarhreyfingin hafi
haft mikið að segja og eigi eftir að
gera mikið gagn í framtíðinni, við
sjáum að útifundir hennar og mót-
mælagöngur hafa verið fjölsóttar
og það hlýtur að hafa einhver áhrif
á pólitíkusana”.
Gengið í rútum
— Þú ert þá á móti því að það
skuli vera her á íslandi?
„Já, ég hef reyndar farið einu
sinni í pílagrimsför út á Kebbló til
að mótmæla. Það var svona ferð
sem fólk gengur í rútum”.
— Hvað ætlar þú að verða þegar
þú ert orðinn stór?
„Ætli maður verði bara ekki at-
vinnulaus, það bendir flest til þess.
Annars er ég ekkert farinn að pæla
í því. Ég býst við að klára skylduna
og sjá svo til”.
...yfirleitt
þorpið mætt
á staðinn
Ekki er nú mikið um það að
skrifa. Gagnfræðaskólinn hefur
haldið öðru hverju opin hús sem
hafa tekist með ágætum. Þar er
diskótek, borðtennis og fleira sem
krakkarnir hafa gaman af. Aðal
samkomustaðurinn er Eden en þar
eru spilakassar sem njóta mikilla
vinsælda. íþróttir eru nú ekki mik-
ið á dagskrá hjá krökkunum.
Þó höfum við þetta fína íþrótta-
hús sem fer sífellt stækkandi. Svo
eru nú haldin sveitaböll öðru hverju
annað hvort í hótelinu eða í félags-
heimilinu og þá er aðalsportið að
reyna að komast inn éf maður er
ekki orðinn nógu gamall. Svolítið
ber á partýum i heimahúsum og er
þá yfirleitt hálft þorpið mætt á
staðinn og ekki líður nema smá
stund þangað til allt þorpið veit um
það. Svo er nú það. Okkur langaði
til að fá álit annarra krakka á mál-
inu og höfðum því samband við
þrjá krakka úr Hveragerði:
— Hvernig finnst þér að búa
Hveragerði?
— Sæmilegt.
— Hvemig likar þér félagslífið?
— Hrikalegt, mætti gera meira
fyrir krakkana.
— Hvað gerir þú í frístundum?
— Fer á bíó í bæinn (þ.e. Reykja-
vík).
— Eitthvað að lokum?
— Ekkert.
1. sp: sv. Ágætt.
2. sp: sv. Slæmt, þyrfti nauðsyn-
lega að gera meira fyrir krakkana.
3. sp: sv. Fer út í Eden og hitti
krakkana. '
4. sp: sv. Ekkert.
1. sp: sv. Ágætt svona.
2. sp: sv. Hvaða félagslíf?
3. sp: sv. Yfjrleitt ekkert.
4. sp: sv. Nei takk.
— Anna Sigríður og Jakobína
«0T||ðalÍilf
Umsjón:
Helga Haraldsdóttir
og Páll Pálsson