Helgarpósturinn - 25.02.1983, Side 21
_Helgai---------,
nö^tl irinn Föstudagur 25. febrúar 1983
Richard Mulligan
Ted Wass
Diana Canova
Jimmy Baio
Katherine Helmond
l21.
Robert Mandan
legar breytingar og Jodie.Hann byrjaði sem
sætur hommi, ástfanginn af íþróttastjörn-
unni Dennis, og endaði sem háaldraður kven-
samur gyðingur. í millitíðinni eignaðist hann
barn, gerði sjálfsmorðstilraun, lenti í Karate-
skóla, bjó með lesbíu og fleira og fleira.
Cathryn Damon
kom inn i leiklistarheiminn sem dansari. Hún
fæddist í Seattle, fór í dansskóla sem barn og
seinna í ballettnám. Fljótlega fór hún að taka
þátt í söngleikjum sem dansari og þá lá leiðin
til New York — á Broadway. Smámsaman
fóru smáhlutverkin að koma og innan tíðar
þau stærri og nú á hún að baki fjölmörg hlut-
verk í aðskiljanlegum sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum, meðal annars stórt hlutverk á
móti Joanne Woodward i mynd Paul Newman
„The Effect of Gamma Rays on Man-in-the-
Moon Marigolds”. Hún er ógift og býr í
Studio City í Kaliforníu og áhugamálin eru
eldamennska, antikhúsgögn og dans.
Mary hennar átti ekki sjö dagana sæla í
Löðri, einkum vegna eiginmannsins sem var
svolítið sérstakur. Hún var undir lokin orðin
forfallin alkóhólisti eftir að hafa m.a. þurft að
horfa upp á syni sína hálftruflast og eigin-
manninn snarklikkast.
Jay Johnson
hefur frá barnæsku talað við dauða hluti. En
í stað þess að vera lokaður inni, þá er hann
orðinn stjarnaþökk sé trébrúðunniBob.Brúð-
an sú er reyndar aðeins ein af mörgum sem Jay
hefur notað við búktal sitt, en sú lang magn-
aðasta. Jay er frá Dallas í Texas og á að baki
mörg ár í skemmtiheiminum, bæði sjónvarpi
og á veitingastöðum. Hann þykir afar hægur
og rólyndur maður, enda hefur hann Ieyft tré-
brúðunni að stela senunni gjörsamlega frá sér
í Löðri. Hann fær þó launin. Jay og Sandra
kona hans búa á búgarði við Studio City, sem
er bæjarhluti á Los Angeles-svæðinu, rétt við
kvikmynda- og sjónvarpsupptökuver stóru
kvikmyndafélaganna.
Richard Mulligan
er sjálfsagt þekktastur leikaranna í Löðri,
enda er Burt líklega vinsælasta persóna þátt-
anna. Hann fæddist í Bronx í New York og
eftir litla skólagöngu ákvað hann að verðá
leikritaskáld. Það gekk þó ekki upp, því eitt
sinn þegar hann kom með fullklárað leikrit í
smáleikhús í Miami til að bera það undir leik-
hússtjórann var hann ráðinn sem leikari. Síð-
an hefur hann leikið — á sviði, í sjónvarpi og
í kvikmyndum, m.a. Little Big Man og S.O.B.
Mulligan er giftur leikkonunni Leonore Stev-
ens og býr í Hollywood.
í höndunum á Mulligan hefur Burt gengið
í gegnum ótrúlegustu transformasjónir, og
var þegar yfir lauk á leiðinni í Hvíta húsið, ef
ekki ennþá lengra.
Ted Wass
er ekki bara Ieikari, heldur einnig söngvari og
dansari. Hann er frá Ohio og í átta ár söng
hann og spilaði á bassa í rokkhljómsveit, áður
en hann sneri sér alfarið að leiklistinni. Hann
nam leiklist í þrjújir og lék síðan á sviði víða
og margskonar hlutverk, bæði alvarlegs eðlis
og gamanhlutverk, meðal annars var hann um
sex mánaða skeið í hlutverki Danny Zuko í
Grease. Fyrir tveimur árum giftist Ted leik-
konunni Janet Margolin. Þau búa í Holly-
wood.
Danny var í upphafi Löðurs meðlimur
Mafíunnar og til að losna úr henni aftur
þurfti hann að drepa morðingja föður síns
(sem reyndar var ekki faðir hans) Burt, og til
að losna við það þurfti hann að giftast herf-
unni dóttur mafíuforingjans sem síðan reynd-
ist vænsta stúlka, en þá dó hún. Undir lokin
varhann að stinga undan föður sínum í sund-
laugarskýlinu.
Diana Canova
er dóttir gamanleikkonunnar Judy Canova og
Filberto heitins Rivero, og fæddist því inní
skemmtanaheiminn. Hún ólst upp í Holly-
wood og lék sem barn í mörgum skólaleikrit-
um og barnahlutverkum í sjónvarpi, einkum
þó í auglýsingum. Hún er einnig mikil tónlist-
arkona.kemur oft fram sem Country-söng-
kona, og er gift Geoffrey Levin, þekktum pró-
dúsent úr Country-heiminum.
Corenne hvarf smám saman úr Löðri, eftir
að hafa verið fyrirferðarmikil í upphafi,
vegna flækju hennar í kringum tenniskennar-
ann Peter og prestinn Tim. Hvernig á því stóð
er ekki vitað.
Jimmy Baio
sem lék Billy Tate er námsmaður, eins og hann
var í Löðri. Hann er 21 árs gamall sálfræði-
nemi, sem fæddist og ólst upp í Brooklyn í
New York ásamt fjórum systkinum. Níu ára
gamall kynntist hann leiklistinni þegar sá
frægi George C. Scott fékk hann í leikrit sem
hann stjórnaði á Broadway. Hann hefur síðan
komið fram í ótal hlutverkum í bandarískum
sjónvarpsþáttum. Jimmy Baio er íþróttamað-
ur mikill, þykir góður í golfi og tennis og býr
í Studio City í Kaliforníu.
í upphafi var Billy litli sá eini í allri löður-
súpunni með fulla fimm, en undir lokin var
hann farinn að líkjast foreldrum sínum og
systkinum verulega. Ógæfa hans hófst þegar
hann féll fyrir kennara sínum, því eftir það
mátti hann búa við stöðugar morðhótanir,
auk þess sem hann lenti á tímabili í klónum á
„guðs”börnum.
Katherine Helmond
ólst upp í Galveston í Texas og hefur leikið frá
barnsaldri, þótt aldrei hafi hún farið í leiklist-
artíma. Lengst af hélt hún sig við sviðið og á
tímabili rak hún meira að segja eigið leikhús
í New York. Hún var orðin vel kunnur sjón-
varpsleikari í Bandaríkjunum áður en Löður
hóf göngu sína og hafði einnig leikið í nokkr-
um kvikmyndum, m.a. í Family Plot eftir
meistara Hitchcock.
Katherine Helmond býr í New York með
myndhöggvaranum David Cristian, sem er
um áratug yngri en hún, en þau eiga einnig
hús í Hollywood og Long Island. Hún er
grænmetisæta, æfir Yoga, stundar Zen búdd-
isma og þá sérstakiega líkams- og sálarlist Tai
Chi Ch’uan, ef einhver lesenda s.kyldi kannast
við hana.
í meðförum Helmond varð Jessica að ævin-
týralegri persónu. Hún viðhélt bjartsýni sinni
og einfeldni þrátt fyrir óendanlega hrakninga,
ekki bara eigin áföll, heldur allra ættingja. í
fyrstu þáttunum féll hún fyrir tenniskennara
sínum, muniði (sem var reyndar sonur Burts)
var síðan dæmd fyrir morð á honum, féll þá
fyrir lögfræðingi sínum, og síðar fyrir leyni-
lögreglumanninum Donahue, og enn síðar
sálfræðingi sínum, gott ef ekki lækni líka, —
þar til hún veiktist mjög alvarlega og kynntist
eftir það skæruliðanum E1 Puerco. Og fleira
gekk á.
Robert Mandan
Sjónvarpsleikarar gerast ekki öllu reyndari
en Robert Mandan. Þættirnir hans 90, sem
Chester Tate, eru ekki nema brot af því sem
hann hefur afrekað i gegnum tíðina. Hann
hefur komið fram í öllum helstu sjónvarps-
seríum Bandaríkjanna og á að baki yfir eitt
þúsund þætti, auk þess sem hann hefur leikið
talsvert á sviði. Robert Mandan býr ásamt
Sherry, konu sinni, í Toluca Lake, rétt utan við
Los Angeles og tekur gjarnan rispu á seglbáti
sínum í frístundum.
Chester þurfti að ganga í gegnum ansi
margt, eins og aðrar persónur Löðurs. Öðru
fremur varð þó kvensemin honum að ógæfu,
og leiddi hann m.a. í fangelsi, þar sem hann
hitti verðandi tengdason sinn Dutch, og á end-
anum í sundlaugarskýlið úti í garði.
Hleðslugler
utanhúss sem innan
Jupiter
24x24x8 cm.
Oríon
24x24x8 cm.
Malta
19 x 19x8 cm.
Wolke
19 x 19x8 cm.
og 24x24x8 cm.
Sýningarbás hjá Byggingaþjónustunni
Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
GLERVERKSMIÐJAN
Samvei*k hf.
Sími 99-5888 — 850 HellU