Helgarpósturinn - 25.02.1983, Page 24
24
Föstudagur 25. febrúar 1983 jjfísturinn^
Páskaferð
PÁSKAFERÐ 30. MARZ:
Eins og áöur býöur FERÐAMIÐSTÖÐIN þessa
vinsælu ferö á suöurströnd Spánar til BENI-
DORM. Þaö vorar snemma á Hvítu ströndinni og
meóalhitinn á þessum árstíma er um 23,7 stig.
Vegna þægilegs loftslags og vorhlýinda nýtur
þessi staður mikilla vinsælda Evrópubúa sem
stytta veturinn meö dvöl um Páskana á BENI-
DORM ströndinni. Njótiö þess 114 daga ferö 30.
marz. Dvaliö í íbúóum eöa hótelum með fæði.
Verð frá: 11.900.
BENIDORM ELDRI BORGARA
Sérstaklega þægileg ferð fyrir eldriborgara I
fylgd hjúkrunarfræðings. Dvaliö I góöum Ibúö-
um eöa á hótelum með fæöi. Vorið er sannar-
lega komið á þessum tlma og loftslagið ákaf-
lega þægilegt. Brottför 13. apríl, heimkoma 11.
maí (28 dagar) Verö frá 12.900.
Fjögurra vikna ferö fyrir þriggja vikna verö.
SUMARÁÆTLUN
Alls veröa farnar tlu ferðir til BENIDORM I sum-
ar, flogiö er í beinu leiguflugi. Lengd feröa er 3
vikur. Gistimöguleikar eru allmargir, íbúðir eöa
hótel og mismunandi verðflokkar. Geriö sjálf-
stæöan samanburö á veröi og greiðslukjörum.
Sumaráætlun: 30. marz (páskaferð) 13. apríl, 11.
maí, 1. júní, 22. júní, 13. júlí, 3. og 24. ágúst,
14.sept. 5. okt.
PANTIÐ TÍMANLEGA
IFERÐAMIÐSTÖÐIIM
AÐALSTRÆTI9
SÍMI28133 11255
Um síðustu helgi var haldið í
samkomusal einum í Reykja
vík þritugsafmæli mikið.
Voru send boðskort til um 150
manns. í þeim hópi voru ýmsir af
helstu áhrifamönnum í þjóðfélag-
inu, allir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, bankaráðsmenn Seðla-
bankans, bankastjórar ýmissa
banka, ritstjórar nokkurra dag-
blaða, kjarninn úr röðum ungra
sjálfstæðismanna og fleira fyrir-
fólk. Afmælisbarnið var enginn
annar en Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson. Kom hann sérstaklega til
boðsins frá Englandi þar sem hann
stundar nám og fór svo utan aftur
að veislu lokinni. Veltu menn því
fyrir sér hvernig fátækur námsmað-
ur einsog Hannes Hólmsteinn gæti
fjármagnað kostnaðarsaman gleð-
skap af slíkri stærðargráðu og er
haft fyrir satt að þar hafi afmælis-
barnið átt haúk í horni, þar sem var
Ragnar S. Halldórsson, forstjóri
ÍSAL. Þótti ýmsum annars nóg um
veislu þessa og kom það m.a. fram
í dræmri þátttöku. Ekki síst veltu
menn því fyrir sér hvernig Hannes
Hólmsteinn hygðist halda uppá sjö-
tugsafmælið...
" 1 Iðnaðarráðuneytið er sagt
f' J hafa fengið talsvert sjokk um
S daginn. Og ástæðan? Jú,
Krafla,eina ferðina enn. í ráðu-
neytinu voru menn nefnilega í þann
veginn að taka gleði sína eftir
margra ára þjáningar út af þessu
vandræðabarni íslenskra orku-
mála. Krafla gekk semsagt vel i
fyrrasumar. Eða a.m.k. betur en
fyrr. Því var ákveðið að gera fimm
ára áætlun fram í tímann um rekst-
ur vjrkjunarinnar þar sem gengið
var útfrá sama holufjölda á ári og í
fyrra og hlutfallslega sama
kostnaði. Útkoma þessarar áætlun-
ar varð sú að eftir fimm ár stæði
virkjunin enn ekki undir rekstrar-
og fjármagnskostnaði. Ráðuneytið
mun hafa ákveðið að gefa þessa
niðurstöðu ekki út...
Nú í vikunni var birtur dómur
f'J í máli því sem Hrafn Jó-
S hannsson flugumferðar-
stjóri höfðaði vegna uppsagnar
hans af hálfu Péturs Einarssonar
aðstoðarflugmálastjóra. En þetta
er ekki í fyrsta skipti sem uppsagnir
Péturs þykja athugunarverðar.
Þann 19. nóvember s.l. féll dómur í
máli sem tveir arkítektar, Finnur
Björgvinsson og Hilmar Þór
^Sigurðsson, höfðuðu gegn sam-
gönguráðherra vegna uppsagnar
þeirra í sambandi við vinnu að
hönnun flugstöðvar á Húsavík.
Höfðu þeir verið fengnir til þess
verks af hálfu flugmálastjórnar, en
Pétur Einarsson sagði þeim á til-
teknu stigi verksins að pakka sam-
an og fara heim. Arkitektarnir
reyndu að semja um greiðslu fyrir
sína vinnu en Pétur hafnaði því með
öllu og því gripu þeir til málshöfð-
unar. Niðurstöður hennar urðu þær
að samgönguráðherra var dæmdur
til að greiða 12,147 kr. auk vaxta í
bætur til arkítektanna. Þar kostaði
stífni aðstoðarflugmálastjórans
ríkið alls kr. 25.000, en ef samið
hefði verið strax um greiðslu fyrir
vinnu arkítektanna hefði kostnað-
urinn trúlega numið fjórðungi
þeirrar upphæðar...
í flugmálaheiminum er nú
1J allt á hvolfi vegna skipunar
■S eftirmanns Agnars Kofoed-
Hansen í stöðu flugmálastjóra.
Þrátt fyrir einróma meðmæli flug-
ráðs með Leifi Magnússyni, svo og
stuðningsyfirlýsingar við hann frá
Félagi íslenskra atvinnuflugmanna,
flugvélstjóra félaginu og félagi flug-
umsjónarmanna mun Steingrímur
Hermannsson samgönguráðherra
tregðast við að skipa hann í stöð-
una. Undirskriftasöfnun hófst
strax síðasta föstudag, að því er
fullyrt er með vitund Steingríms, til
stuðnings Pétri Einarssyni, flokks-
bróður ráðherra og aðstoðarflug-
málastjóra. Munu helstu hvata-
menn þessarar undirskriftasöfnun-
ar hafa verið Einar Frederiksen,
gamall samstarfsmaður Kristins
Finnbogasonar úr Framsókn og
flugbransanum, og Arngrímur
Jóhannsson, flugstjóri hjá Arnar-
flugi. Menn skiptast nefnilega ekki
aðeins í pólitískar fylkingar í mál-
inu, heldur eru Flugleiðamenn
Leifsmegin, enda hann starfsmaður
þeirra, og Arnarflugsmenn Péturs-
megin. Um helgina hófst svo önnur
undirskriftasöfnun, að undirlagi
forstöðumanna nokkurra af litlu
flugfélögunum, sem beint er gegn
Péturssöfnuninni. Og sést af þessu
hvað þarna er talið mikið í húfi...
’jl Þeir eru óheppnir aðstand-
/ J endur saltverksmiðjunnar á
Reykjanesi, sem Helgarpóst-
urinn hefur áður um fjallað og bent
á með rökum að sé nýtt Kröflu-
ævintýri. Þeir höfðu byggt sér stóra
geymsluskémmu þar syðra fyrir af-
urðir verksmiðjunnar en ekki tekist
betur til en svo að innviðir hennar
voru fúavarðir með koparupp-
lausn. Það er ekki vel gott því kopar
og salt eru efni sem ekki mega mæt-
ast, og kemur af því samspili gula í
saltið. Þarf nú að standa í kostnað-
arsömum aðgerðum til að einangra
saltið frá innviðum skemmunnar...
V
Við heyrum að nú sé í undir-
búningi fyrsta útvarpsleikrit-
ið sem unnið verður í stereó.
Það er sagt eftir Steinunni Siguró-
ardóttur og leikstýrt af Viðari
Víkingssyni, sem starfað hefur sem
dagskrárgerðarmaður hjá sjón-
varpinu...
Krl Prófkjör Sjálfstæðisflokks-
f'J ins í Reykjaneskjördæmi
y verður núna um helgina og
hefur spennan aukist með hverjum
deginum sem líður. Sagt er að staða
þingmannanna Ólafs G. Einars-
sonar og Salome Þorkelsdóttur sé
síður en svo trygg.Ljóst þykir að
Gunnar G. Schram nýtur mikils
fylgis víða í kjördæminu. og er sagt
að boðskapur hans um lægri tekju-
skatta fái mikinn og góðan hljóm-
jgrunn og menn bindi vonirviðþað
að Gunnar fylgi málinu eftir veröi
hann kjörinn á þing. Þá mun Kópa-
vogsbúanum Braga Mikaelssvni
hafa aukist fylgi að undanförnu og
er sagt að Kópavogsbúar telji sig
geta sameinast bærilega um hann
en sjálfstæðismenn i Kópavogi hafa
verið mjög óhressir með sinn hlut á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins. Ljóst er að það skiptir verulegu
máli fyrir frambjóðendurna að ná
nú góðum sætum út úr prófkjör-
inu, þar sem litlar líkur eru á því að
prófkjör verði viðhaft fyrir sumar-
kosningarnar - verði þær á annað
borð, en líklegt verður að teljast að
Sjálfstæðisflokkurinn muni hafa
a.m.k. 5 þingmenn úr Reykjanes-
kjördæmi að þeim loknum...
71 Það fer víst ekki milli mála
f~ J hver er óskakandídat forsæt-
y isráðherra og stjórnarsinna
meðal Sjálfstæðismanna í próf-
kjörinu í Reykjaneskjördæmi um
helgina. Við heyrum að dr. Gunnar
Thoroddsen hringi sjálfur í hina ó-
líklegustu menn og hvetji þá til að
veita nafna sínum Schram brautar-
gengi...