Helgarpósturinn - 27.02.1986, Blaðsíða 8
„Guðmundur
hefur haft það
að markmiði
að klekkja a
þeim bræðrum
og nú er allt
tínt til"
„Ig lánaði
honum veð í
ibúð minni en
nú á ég á
hættu að
missa hana.
Þess vegna
kærði ég
hann."
„Hún var að
búa til pen-
inga til að
lána honum
og átti að fá
vænar
greiðslur."
„Allir vissu að
Sumarliði
Öskar var í
rauninni ekki
kröfuhafinn.#/
„I raun má
segja að
þessir menn
hafi sitt eigið
hagkerfi og
gjaldmiðil."
,,Hinir verstu skúrkar"
Bræðurnir Sumarliði Óskar og
Arnór Vikar ráku um skeið fast-
eignasölu, verðbréfasölu og ieigu-
miðlun að Hverfisgötu 82. I sama
húsi er lögmannastofa Friöriks Sig-
urbjörnssonar, sem gerðist ábyrgð-
armaður fasteignasölunnar og tók
reyndar við því hlutverki af syni sín-
um Fridrik Friðrikssyni, en hinn síð-
arnefndi er meðal hinna fjölmörgu
sem kallaðir hafa verið inn til yfir-
heyrslu. Bræðurnir hafa nýverið
hætt þessum viðskiptum og snúið
sér að myndbandarekstri, þeir eiga
saman Borgarvídeó sem er á tveim-
ur stöðum í borginni. En það er fyrst
og fremst vegna fyrri viðskipta sem
bræðurnir sitja í gæsluvarðhaldi,
grunaðir um margra milljón króna
misferli.
Þeir bræður hafa reyndar áður
komið við sögu lögreglunnar. Þann-
ig var t.d. lögð fram ákæra á hendur
Sumarliða Oskari síðastliðið haust
fyrir skilasvik og fleira upp á 1.2
milljónir króna. Sumarliði gat dreg-
ið fram kvittanir og útskýrt mál sitt
að flestu leyti, en þó kom fram ávís-
anamisferli upp á þrjúhundruð þús-
und króna „ólögmæta eignaupp-
töku“.
Að þessu sinni munu liggja fyrir
kærur frá nokkrum aðilum. Kær-
urnar munu vera misjafnlega sterk-
ar fyrir og greinir einn heimildar-
manna blaðsins frá þvi að fæst af því
sem komið hefur fram muni reynast
sakamál. Sami maður fullyrti reynd-
ar að bræðurnir væru ofsóttir í þess-
um efnum. Sagði hann að á síðast-
liðnu ári hafi RLR haft samband við
þá bræður vegna stolins mynd-
bandstækis, sem þeir höfðu keypt.
Bróðir þeirra Sumarliða og Arnórs
mun hafa farið með tækið til RLR
þar sem á móti honum tók Guð-
mundur H. Jónsson rannsóknarlög-
reglumaður. Vildi hann yfirheyra
þennan bróður betur en sá neitaði
og kom þá til stimpinga. Mun bróð-
irinn hafa kært Guðmund fyrir lík-
amsmeiðingar. Segir þessi heimild-
armaður að síðan hafi Guðmundur
haft það að markmiði að klekkja á
þeim bræðrum og nú sé allt tínt til,
hversu smávægilegt sem það kann
að vera.
Flestir viðmælenda Helgarpósts-
ins eru hins vegar sannfærðir um að
þeir bræður séu hinir óprúttnustu í
viðskiptum. „Hinir verstu skúrkar"
orðaði einn viðmælanda blaðsins
þetta. Þannig hafi þeir gefist upp á
fasteigna- og verðbréfaviðskiptun-
um vegna þess að þeim hafi ekki
verið treyst lengur. Þeim var til að
mynda úthýst hjá Kaupþingi.
„Lánaði honum veð í
íbúð minni'7
Helgarpóstinum hefur tekist að
ná tali af konu einni sem er í hópi
þeirra sem kært hafa bræðurna.
Þetta er kona á sjötugsaldri sem á
íbúð við Bræðraborgarstíg, er ör-
yrki og býr ein. Frásögn hennar er á
þá leið, að Sumarliði Óskar hafi
nálgast hana og falast eftir því við
hana að fá að láni hjá henni veð í
íbúð hennar. Segist hún hafa látið
tilleiðast vegna gamals kunnings-
skapar við Sumarliða. Gefin voru út
2 veðskuldabréf þar sem hún var
skuldari en Sumarliði kröfuhafi.
Samtals var um að ræða um 640
þúsund krónur. Skuldabréf þessi
seldi Sumarliði síðan í gegnum
Kaupþing.
„Samkomulag okkar var á þá ieið
að hann greiddi þetta, en ég fengi
prósentur fyrir. Ég hélt að þetta
væri vinur minn og kunningi. En
þegar ég sá að hann var kominn í
fangelsi og mér var sagt að hann
væri vafasamur þá lét ég lögfræðing
minn í málið. Það kom í ljós að hann
á engar eignir og ég tel víst að hann
borgi mér ekki. Ég lánaði honum
veð í ibúð minni en á nú hættu á að
missa hana. Þess vegna kærði ég
hann.“
Reyndar eru áhöld um stöðu
hennar. Þannig er fyrsta afborgun af
skuldabréfinu enn ekki fallin í gjald-
daga og skuldabréfið sjálft í fínu
lagi. Fyrsta afborgun á að koma til
27. mars og ef Sumarliði stendur
ekki við hið munnlega samkomulag
lendir það á henni að greiða afborg-
unina — um 250 þúsund krónur.
Hún hefur hins vegar ekkert nema
17 þúsund króna elli- og örorkubæt-
ur og stendur því illa — nema Sum-
arliði borgi.
Einn heimildarmaður blaðsins
sem þekkir þá bræður sagðist kann-
ast við þetta mál. Hann varð forviða
er saga þessarar konu var borin
undir hann og sagði málið þvert á
móti vafasamt af hennar hálfu.
„Ég vil halda því fram að hún hafi
í raun sjálf verið að lána Sumarliða
Óskari peninga þarna. Ég trúi ekki
öðru en að hún hafi einhverja hald-
góða tryggingu á móti þessum
skuldabréfum, annars má hún telj-
ast algjör fáviti. Málið er að hún var
að búa til peninga til að lána honum
og átti að fá vænar greiðslur. í raun
er þetta okurlán af hennar hendi."
Það þarf vart að taka fram að
þessu neitar konan staðfastlega.
„Ég hef ekki heyrt annað eins. Hvar
í ósköpunum ætti ég að hafa pen-
inga til slíks. Ég hef bara mínar elli-
og örorkubætur.”
Þeir bræður Sumarliði Öskar og Arnór Vikar eru nú komnir ( myndbandabransann og eiga Borgarvídeó á tveimur stöðum
í borginni, meðal annars á Kárastfg, þar sem myndin er tekin. „Vldeóbransinn er furðulegur frumskógur," segir einn
viðmaslenda HR
8 HELGARPÓSTURINN