Helgarpósturinn - 27.02.1986, Blaðsíða 34
Tónleikar í Kristskirkju:
Musica antiqua spilar
og syngur lög
frá endurreisnartímanum.
/ kvöld 27. febrúar verða lonleik-
ar í Kristskirkju. Þar veröur á ferð
Musica antiqua með spil og söng.
Að sögn Camillu Soderberg verö-
ur flutt renaissance-tónlist frá seinni
hluta 16. aldarog öndverðri 17. öld,
bœði veraldleg og kirkjuleg tónlist.
Meðal annars veröa spiluð og sung-
in verk eftir Palestrina, Victoria,
Viadana, Morley, Wilbye og Dow-
land.
I hópnum sem stendur að þessu
verkefni eru átta sem syngja og
þrjú sem spila. Söng annast Marta
Halldórsdóttir og Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, sópran, Svava Kristín
Ingólfsdóttir og Sverrir Guðjónsson,
alt, Kjartan Oskarsson og Helgi
Bragason, tenor og Jón Stefánsson
og Halldór Vilhelmsson, bassa. Sér-
stakt er að karlmaður syngi alt-rödd
en það tíðkaðist mikið á 16. öld.
Kamilla sagði að þegar karlmaður
syngi alt-rödd þá yrði hljómurinn
bjartari.
lnn á milli söngatriða er spilað á
hljóðfæri sem öll eru eftirlíkingar
frá renaissance-tímanum (alvöru
renaissance-hljóðfæri finnast nær
eingöngu á söfnum). Þetta gefur
hljóm sem á að vera eins og hann
var upprunalega á 16. öld. Camilla
spilar á mismunandi bokkflautur,
Olöf Sesselja Oskarsdóttir leikur á
violu da gamba, hljóðfæri sem líkist
sellói og Snorri Örn Snorrason leik-
ur á lútu.
Musica antiqua reynir á hverju ári
að leika eldri tónlist sem lítið heyrist
hér á landi, helst er að Bach sé eitt-
hvað spilaður. Renaissance-tónlist á
vel við litla hópa eins og Musica
Camilla tekur nokkra
takta á flautuna.
antiqua, en slíkir hópar eru fáir þar
sem tónlistarlíf íslendinga snýst
mikið um stóra kóra. Fólk þekkir því
lítið til renaissance-verka en hér er
kærkomið tækifæri til að kynna sér
hvað var að gerast í tónlistarheimin-
um fyrir þremur öldum.
Þetta er þriðja árið sem Musica
antiqua starfar og hefur alltaf starf-
að með hópnum öruggt tónlistar-
fólk, þó að t.d. þeir sem nú syngja séu
þekktari fyrir annað en söng. Nægir
að nefna Jón Stefánsson stjórnanda
Langholtskirkjukórsins. Með hópn-
um hafa einnig starfað dansarar því
í fyrra var bæði dansað og sungið.
Starfið hefur gengið vel að sögn
Camillu, t.d. pantaði Kristskirkja
hópinn til að syngja umrædda
renaissance-tónlist. Það eru allir
velkomnir í Kristskirkju. -gpm
VSSSSJ'SSJMV
•SJSJTJWSSJÍ fci
■JTJTJ'JTJ 'XJ
Sætið þitt í veislufagnaði á fyrsta farrými—^
1800 ódýrarferðir með risaþotu til Sólarlanda
MALLORKA
perla Miðjardarhafsins
Brottför alla laugardaga, 2, 3 eða 4 vikur.
Ótrúlegt verð frá kr. 19.800,- (2 vikur á
hóteli með þremur máltíðum á dag). Fjöl-
breyttar skemmti- og skoðunarferðir með
íslenskum fararstjórum. Margir eftirsóttir
gististaðir, Magaluf, Palma Nova og Arenal
m.a. nýjasta og glæsilegasta íbúðarhótelið á
Magaluf.
COSTA BRAVA
Vinsæl fjölskylduparadís
íbúðahótel alveg við breiða og mjúka sand-
ströndina. Fjörugt skemmtanalíf og margt
að sjá með íslenskum fararstjóra. Skroppið
yfir til Frakklands, fjallaríkisins Andorra,
Barcelona og ótal margt fleira. Ótrúlegt
verð, frá kr. 18.400,- (4 í íbúð í 2 vikur).
COSTA DEL SOL OG BENIDORM
Ódýrar ferðir til þessara sólskinsstranda í
allt sumar.
íslenskir fararstjórar
fullkomin þjónusta
TENERIFE
Fögur sólskinsparadís
Brottför alla þriðjudaga, 2, 3 eða
4 vikur. Við bjóðum nú upp á ný
og glæsileg íbúðahótel á Amer-
ísku ströndinni og í Puerto de
lacruz. Einnig víðfræg lúxushótel,
skemmtanalífið, sjórinn og sólski-
nið eins og fólk vill hafa það. ís-
lenskir fararstjórar. Verð frá kr.
29.800,- (2 í herbergi með morg-
unmat í 2 vikur).
GRAN KANARI
Sól, sjór og skemmtun
Boðið upp á fjölbreytta gisti-
möguleika á ensku ströndinni,
Sam Agustin, Porto Rico og Las
Palmas. fjölbreyttar skemmti- og
skoðunarferðir með íslenskum
fararstjóra, 2, 3 eða 4 vikur,
brottför alla miðvikudaga. Verð
frá kr. 29.800,- (2 í herbergi með
morgunmat í 2 vikur).
Ferðatilhögun
Þið njótið frábærrar þjónustu í
stuttu morgunflugi Flugleiða til
Glasgow eða London. Og síðan
með tveggja hæða risaþotu beint
í sólina, þar sem íslensku farar-
stjórarnir taka á móti ykkur. (Njó-
tið veislufagnaðar alia leiðina á
fyrsta farrými ef óskað er). Heim-
leiðis úr sólinni á einni stuttri
dagstund sömu leið, en eigið
þess kost að stoppa á heimleið
i London eða Glasgow, án nokk-
urs aukakostnaðar nema gisting-
ar. Njótið þarvíðfrægrarþjónustu
Ola Smith og Þorgills flugstöðv-
arstjóra Flugleiða í London og
Glasgow og starfsliðs þeirra.
Aðrar ferðir: Grikkland, Malta,
viku- og helgarferðir til Evrópu
og Ameríkulanda. Landið helga
og Egyptaland, Thailand o.fl.
Ódýrustu flugfargjöld, sem
finnanleg eru um víða veröld.
Risaþota og hagkvæmir samningar
lækka ferðakostnaðinn.
FLUGFEROIR
SOLRRFLUG
Vesturgötu 17, Rvk., símar
10661,22100 og 15331.
34 HELGARPÖSTURINN