Helgarpósturinn - 27.02.1986, Qupperneq 29
u
I emendur í Kvennaskól-
anum í Reykjavík gerðu í vetur
könnun á tengslum persónuleika og
starfsvals og „notuðu" til þess nokkra
af alþingismönnum vorum. Heyrst
hefur að m.a. hafi Jón Baldvin
Hannibalsson og Albert Guð-
mundsson lent í þessu úrtaki nem-
endanna og þar með gengist undir
einhvers konar persónuleikapróf í
því skyni að fá úr því skorið hvort
þeir væru á réttri hillu í lífinu. Ekki
vitum við hvernig útkoman varð hjá
Albert, en Jón Baldvin mun hafa
verið talsvert sterkari á fagurkera-
og listasviðinu en í því sem að
stjórnmálum sneri í skapgerðinni.
Það þyrfti kannski að taka slík per-
sónuleikapróf upp hjá stjórnmála-
flokkunum í stað hinna úreltu próf-
kjöra? Að öðrum kosti gæti þjóðin
átt það á hættu að þingsalir fylltust
af einhverjum rómantískum húm-
anistum, sem ekkert vit hefðu á lög-
um og reglugerðum. „Det var nu
det“...
|U|
B W Wargt er skrýtið í kýrhaus
réttargæslunnar og dómsmálanna. í
aprílmánuði 1984 var lögreglu-
þjónn nr. 19 hjá lögreglufógetaemb-
ættinu í Árnessýslu staddur í bíl yfir-
lögregluþjóns sem ók bifreiðinni
X-50. Óku þeir vestur Suðurlands-
veg í Ölfusi og skammt vestan við
Kögurhól mættu þeir bifreiðinni
R-41507 sem ekið var með miklum
hraða. Sneru þeir við og veittu bif-
reiðinni eftirför og mældu hraða
hennar með jöfnu bili milli bifreið-
anna frá Þórustöðum og austur að
Árbæjarvegi. Var hraðinn mestur
120 km/klst. en að jafnaði 100
km/klst. Var haft talstöðvarsam-
band við lögreglustöðina og stöðv-
aði lögregluþjónn nr. 6 bifreiðina.
Reyndist ökumaður hafa verið
sviptur ökuleyfi. Gengur nú málið
sinn gang í kerfinu. En tveimur
mánuðum síðar kærir ökumaður-
inn ólöglegi yfirlögregluþjóninn sem
mældi hraða hans. Kæran byggðist
á því að yfirlögregluþjónninn var á
einkabifreið sinni, X-50, þegar hann
veitti ökumanninum eftirför og
mældi hraða hans með því að aka
jafnhratt og sá brotlegi. Yfirlög-
regluþjónninn á því að sæta sömu
viðurlögum og hinn brotlegi öku-
maður nema að því undanskildu að
hann hefur ekki verið sviptur öku-
leyfi. Þetta var sem sagt í júní 1984.
Líður nú og bíður til dagsins í dag.
Enn hefur þetta kærumál ekki verið
tekið upp af viðkomandi yfirvöldum
og mun málið fyrnast á næstu vik-
um. Ökumaðurinn réttindalausi
fékk hins vegar sinn dóm mjög fljót-
lega og var látinn greiða 16 þúsund
krónur í sekt fyrir athæfi sitt. En yf-
irlögregluþjónninn hefur enn ekki
verið dæmdur fyrir of hraðan akst-
ur. . .
^\^^ikil reiði ríkir nú meðal
þorra Akureyringa í garð hitaveit-
unnar. Undanfarin ár hefur hitaveit-
an nefnilega selt svikna vöru,
þ.e.a.s. heita vatnið hefur ekki verið
nógu heitt. I sumum hverfum Akur-
eyrar hefur heitt vatn farið niður í
50 stig á Celsíus og enn neðar á sum-
um. Er nú svo komið að margir Ak-
ureyringar vilja ekki greiða reikn-
inga sína fyrr en hitastig vatnsins
hefur hækkað. Um daginn gerði
ungur Akureyringur eitthvað í mál-
inu. Sá heitir Gunnar Guðbrands-
son og kærði hann hitaveituna á
Akureyri til rannsóknarlögregl-
unnar fyrir að selja svikna vöru. Að
baki Gunnari stóð hins vegar þorri
Akureyringa. Rannsóknarlögreglan
sendi málið sýslumannsfulltrúa
staðarins, Sigurdi Eiríkssyni og
hafði hann síðar samband við
Gunnar og sagði honum að málið
væri þess eðlis að viðkomandi yfir-
völd gætu ekki sinnt þessari kæru.
Mun almenningur á Ákureyri vera
mjög illur yfir þessum málalokum
og telur lýðræðislegan rétt fótum
troðinn ef opinbert fyrirtæki getur
komist upp með að selja gallaða
vöru og taka fullt gjald fyrir. Mikill
þrýstingur er nú á hitaveitustjóra
Akureyrar, Vilhelm Steindórsson,
að hitastig vatnsins hækki svo að
hitastig bæjarbúa lækki. ..
Rocky,
lRMÚLA 23,
• Ódýrastur í rekstri • Rómuð þjónusta.
• Öruggasta endursalan.
Þetta eru kostir verðlaunabíls og Charade er margfaldur verðlaunabíll
HELGARPÓSTURINN 29