Helgarpósturinn - 06.03.1986, Side 3
FYRST OG FREMST
ALBERT Guðmundsson, fyrrum
fjármálaráðherra og núverandi iðn-
aðarráðherra, hefur sinn eigin stíl.
Þannig hefur það vakið athygli að
Albert býður ekki upp á hefðbund-
inn kokkteil eins og hinir ráðherr-
arnir (og ekki upp á kaffi og mjólk
eins og Jón Helgason) heldur veitir
Albert ávallt kampavín og kransa-
kökur í sínum veislum og móttök-
um. Þetta þykir mjög franskt og ele-
gant, enda Albert maður franskur í
háttum og þar að auki elegant. Um
daginn, nánar tiltekið þ. 14. febrúar,
var ný viðbygging Iðntæknistofnun-
ar á Keldnaholti af hent og opnuð og
að sjálfsögðu var ráðherrann mætt-
ur til leiks með ræðustúf og nokkra
kassa af kampavíni og kransakök-
um. Þarna voru margir gestir og
mikið kampavín kneyfað og kransa-
kökum sporðrennt og allir stífpunt-
aðir og elegant. Gestur einn, sem er
glöggur maður, tók hins vegar eftir
því að Albert bauð ekki upp á neitt
slor. Kampavínið sem Albert veitti
var frá Moét & Chandon, nánar til-
tekið Brut Imperial sem kostar 790
krónur flaskan í ríkinu. Við hér á HP
erum mjög impóneraðir yfir þess-
um fréttum. Því hver haldið þið að
flytji inn Moét & Chandon? Já, alveg
rétt, heildverslun Alberts Guð-
mundssonar. Taktískur maður
Albert.
ÞJÓÐVILJINN hefurmjögverið
í fréttunum að undanförnu. Það er
ekki nema von, því þegar Guð-
mundurJ. Guðmundsson blæs í her-
lúðra þá heyrast þeir. Starfsmenn
blaðsins eru hins vegar ekki mjög
hissa á viðbrögðum Jakans enda
Sigurdór: Eini maðurinn sem Jakinn tal-
aði við.
blaðamenn sem lengi hafa starfað á
Þjóðviljanum vanir dyntum Jakans
og reiðiköstum þegar ritstjórnin
skrifar ekki orðrétt eftir fyrirmæl-
um Dagsbrúnarhöfðingjans. Guð-
mundur J. hefur alltaf með jöfnu
millibili farið í mislöng fýluköst og
þá ekki yrt á neinn sem á Þjóðviljan-
um vinnur. Einu sinni þurfti meira
að segja sá stolti maður, Kjartan
Ólafsson fyrrum ritstjóri að skrifa
Guðmundi J. langt afsökunarbréf
þar sem hann baðst afsökunar á
skrifum blaðsins. Þá loks fór Guð-
mundur J. að gefa Þjóðviljanum
áheyrn á nýjan leik.
AF starfsmönnum og blaðamönn-
um Þjóðviljans er þó einn maður
sem Guðmundur J. hefur alltaf haft
samband við. Það er Sigurdór Sigur-
dórsson, söngvari, fararstjóri, hag-
yrðingur og blaðamaður. Sigurdór
hefur verið blaðamaður á Þjóðvilj-
anum í 15 ár og eini maðurinn sem
liefur mátt yrða á hans hágöfgi,
Guðmund J. þegar hann hefur lokað
á Þjóðviljann. Nú brá hins vegar svo
við að árásir og gagnrýni Jakans á
Guðmundur J.: Hans hágöfgi hefur klippt
á síðustu Ifnuna inn á Þjóðvilja.
skrif blaðsins um Dagsbrún hittu
Sigurdór. Guðmundur sakaði m.a.
blaðið um að hafa ekki sagt frá fyrir-
hugaðri fundaherferð ASI um land-
ið. Þ. 18. febrúar tók hins vegar Sig-
urdór forsíðuviðtal við Asmund
Stefánsson forseta ASÍ um málið.
Guðmundur sagði í viðtali við Morg-
unblaðið að Þjóðviljinn hefði ekki
skrifað stakt orð um verkfallsheim-
ildina umtöluðu. Þ. 8. feb. hafði sami
Sigurdór viðtal við sama Ásmund
um það mál. Jakinn sagði að enginn
blaðamaður frá Þjóðviljanum hefði
nokkurn tímann talað við ábyrgan
aðila hjá ASÍ um samningaviðræð-
urnar. Steindór talaði sjálfur við
Guðmund J. þegar hann kom af
stjórnarfundi hjá Dagsbrún en hann
vildi ekki láta hafa neitt eftir sér, en
setti Sigurdór inn í gang mála. Auk
þess hefur Þjóðviljinn á 20 dögum
haft ellefu sinnum samband við Ás-
mund Stefánsson. Svo það er ekki
nema von að ritstjóri blaðsins Össur
Skarphéðinsson og blaðamenn
blaðsins séu sárir út í Guðmund J.
Og nú er Jakinn væntanlega búinn
að klippa á síðustu línuna inn á blað-
ið, því Sigurdór Sigurdórsson mun
vera æfur út í Guðmund J. fyrir um-
mæli hans. Sigurdór er hins vegar
hagyrðingur eins og fyrr segir og
eftirfarandi vísu samdi hann um Jak-
ann eftir að kalda stríðið var skollið
á og gengur stakan milli blaða-
manna Þjóðviljans þessa dagana:
Verkalýðsins styrka stoð
stœrsta uagninn dregur.
Glöggur maður Gvendur Joð
og gegnumheiðarlegur.
HELGARPÚSTURINN
Nordisk Roð
Auðskildar voru aldrei mér
enska, þýska og franska.
En torskildust þó af tungum er
töluð framsóknardanska.
Niðri
SMARTSKOT
Finnst þér
þetta klám?
Þorvarður Elíasson
„Persónulegt viðhorf mitt til þess hvort þetta sé klám, skiptir
ekki máli. Ég er ekki í neinum persónulegum aðgerðum."
— Hefurðu séð sýningu hjá hópnum?
„Nei."
— Finnst þér ekki ósanngjarnt að dæma um það sem
fram fer að óséðu?
„Ég er ekki að'dæma neitt."
— En nú hefur Bryndísi verið sagt upp vegna þátt-
töku hennar í sýningunum, er það ekki?
„Mér er falið að tryggja það að skólinn njóti virðingar hér eft-
ir sem hingað til og ég á að sjá til þess að það þyki eftirsóknar-
vert að vera hér við nám. Sérstaklega verð ég að gæta þess að
þeir nemendur, sem nú eru að Ijúka námi og munu síðar Ijúka
námi í grunnskólum landsins, hafi áhuga á að koma hingað. Ég
verð líka að tryggja að foreldrar þessara barna hafi áhuga á að
senda þau hingað. Það er í Ijósi þessa, sem mér finnst það ekki
geta farið saman að fólk vinni hér við skólann á daginn og í ann-
arri vinnu á kvöldin, sem ég veit að margt fólk lítur á sem ósið-
lega vinnu. Þar á ég bæði við álit nemenda og foreldra þeirra.
Mitt persónulega viðhorf kemur málinu ekkert við. Ég verð ein-
faldlega að gæta hagsmuna skólans hvað þetta varðar."
— Óttaðistu að stúlkan myndi spilla nemendum skól-
ans?
„Nei. Ég óttast og tel fullvíst að þetta myndi hafa mjög nei-
kvæð áhrif á aðsókn að skólanum. Sennilega yrði áframhald-
andi vera stúlkunnar hér til þess að einhverjir nemendur kæmu
ekki hingað og sennilega einhverjir þeirra sem ég mjög gjarnan
myndi vilja fá."
— Nú verða láglaunakonur að bjarga sér sem best
þær geta á þessum síðustu og verstu tímum. Þú skilur
freistinguna að taka jafn vel borgaðri vinnu og þeirri
sem hér um ræðir, er það ekki?
„Ég skil vel að fólk vilji afla sér tekna og er þess mjög hvetj-
andi. Ég vil hins vegar einnig hvetja fólk til þess að viðurkenna
ekki það sjónarmið að tekna beri að afla með hvaða ráðum sem
er. Fólk hlýtur að þurfa að vega það og meta, hvað megi selja
fyrir peninga og hvað ekki."
— Þér finnst sem sagt aukavinna starfsfólksins vera
mál skólayfirvalda?
„Það hef ég ekki sagt."
— Hefðir þú sagt Bryndísi upp, ef hún hefði verið að
sýna tískufatnað á vegum einhverra módeisamtaka?
„Ég hlýt að meta það, hvenær sé verið að vinna gegn hags-
munum skólans og hvenær ekki. Það er mitt starf að sjá til þess
að hér sé ekki fólk, sem vinnur gegn hagsmunum skólans —
alveg burtséð frá því hvað það er að gera og hvort það sem það
aðhefst er löglegt eða ólöglegt, siðlegt eða ósiðlegt. Verslunar-
skólinn getur ekki haft fólk í launaðri vinnu, sem er að rífa nið-
ur á kvöldin það sem hér er byggt upp á daginn."
— í dagblaðsviðtali fullyrðir þú að verið sé að sýna
klámvörur. Hver er þinn rökstuðningur?
„Þetta er bara íslensk málnotkun. Ég er ekki að skilgreina
þessa vöru í anda klámlaga. Þetta er varningur, sem við sjáum
seldan í vissum verslunum erlendis. Þær verslanir ganga á ís-
lensku undir heitinu klámbúllur. Sá varningur, sem seldur er í
klámbúllum, hlýtur að vera klámvara."
Síðastliðna viku hafa birst í dagblöðum myndir af nýstofnuðum sýn-
ingarhópi, Pan-hópnum svokallaða, sem fram kemur á skemmtistöðum
og í einkasamkvæmum á höfuðborgarsvæðinu. Sýnir þetta fólk vörur
frá innflutningsfyrirtæki, sem verslar með „hjálpartæki ástarlífsins". i
kjölfar þessara myndbirtinga var Bryndlsi Malmö, skrifstofustúlku hjá
Verslunarskóla Islands, sagt upp störfum við skólann. Þorvarður Eltas-
son, skólastjóri Verslunarskólans, var af því tilefni tekinn tali.
UÓSMYND JIM SMART
HELGARPÓSTURINN 3