Helgarpósturinn - 06.03.1986, Qupperneq 31
HVERS VEGNA
TRAUSTUR
BANK3?
H
■ Halldór Reynisson forseta-
ritari er lærður guðfræðingur. Nú
berast okkur þær fréttir að Halldór
sé í aðra röndina að hugsa um að
breyta til og taka vígslu með það í
huga að gerast starfandi prestur.
Halldór mun hafa verið mjög hvatt-
ur til þessa af blaðafulltrúa kirkj-
unnar, séra Bernhardi Guð-
mundssyni. Brauð það sem er í
sigti er nefnilega ákjósanlegt, sjálfur
Hruni í Hrunamannahreppi, Árnes-
sýslu. Þar situr fyrir séra Svein-
björn Sveinbjörnsson en hann
lætur af störfum fyrir aldurs sakir
um næstu áramót. Sagan segir enn-
fremúr að séra Bernharður hvetji
ekki aðeins Halldór til að snúa sér
að prestkosningum, heldur enn-
fremur séra Solveigu Láru Guð-
mundsdóttur sem nú er starfandi
aðstoðarprestur séra Ólafs Skúla-
sonar í Bústaðasókn. Brauðið sem
talað er um er nýtt; á Seltjarnarnesi.
Nú segja okkur menn sem þykjast
sjá ákveðið mynstur í þessu öllu
saman, að fyrir Bernharði vaki að
sækja sjálfur um forsetaritarastarfið
þegar og ef Halldór lætur af störf-
um. Þá sakar náttúrulega ekki að
Solveig hreppi starfið á Seltjarnar-
nesi því faðir hennar er Guðmund-
ur Benedikfsson, ráðuneytisstjóri
í forsætisráðuneytinu, sem er afger-
andi maður varðandi val á forseta-
ritara. Hins vegar segja menn sem
kunnugir eru prestastéttinni, að þrír
mætir prestar hafi þegar sótt um
brauðið nýja á Seltjarnarnesi, þeir
Ólafur Jóhannsson skólaprestur,
Guðmundur Örn Ragnarsson
farprestur og Vigfús Þór Arnason,
sem verið hefur prestur á Siglufirði
í áratug. Þykir Vigfús Þór mjög sig-
urstranglegur í þessari baráttu því-
liann er maður vinsæll og dugandi,
án þess að á hina frambjóðendurna
sé hallað. En spurningin er hins veg-
ar sú, ef Solveig Lára fer í prestskosn-
ingaslaginn, hvað safnaðarmenn á
Seltjarnarnesi gera þá? Munu þeir
vera hallir undir að kvenmaður
hreppi brauðið? Það geríst margt í
prestskosningum...
ARÐBÆRAN REKSTUR
TRAUSTA EIGINFJÁRSTÖÐU
STERKA LAUSAFJÁRSTÖÐU
MIKINN VÖXT INNLÁNA
JAFNA DREIFINGU ÚTLÁNA
BANKINN BÝÐUR 7 TEGUNDIR SPARIREIKNINGA,
PARÁMEÐAL
INNLÁNSVIÐSKIPTI VIÐ BÚNAÐARBANKANN
- LEIÐ TIL LÁNSVIÐSKIPTA VIÐ TRAUSTAN BANKA.
rjr BÚNAÐARBANKl
Vry ÍSLANDS
aóeins einn banki býður
fíff-VAXTA
REIKNING
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.
HELGARPÓSTURINN 31