Helgarpósturinn - 24.07.1986, Síða 8

Helgarpósturinn - 24.07.1986, Síða 8
þetta fé sem tap ríkissjóðs af bank- anum því hann hefur skilað ríkinu arði. En það hefur reynst afskaplega dýrt að reka bankann með svona takmörkuðu eigin fé því bankinn hefur þurft að slá lán til þess að borga lán sem hafa fallið á hann í tengslum við gjaldþrot Hafskips." — Voru hinar miklu lánveitingar til Hafskips veittar eftir eðlilegum bankalegum sjónarmiðum? „Menn eiga eftir að fá niðurstöður í því hvernig stóð á því að Hafskip skuldaði Utvegsbankanum svona mikla fjármuni. Menn verða að setja sig í þær stellingar að vilja skilja hvernig þessir hlutir hafa gerst á mörgum árum. Miðað við hvernig þetta þróaðist tel ég að bankaleg sjónarmið hafi verið látin ráða. Menn sjá það ef þeir skýra það lið fyrir lið hvernig stóð á því að Haf- skip skuldaði svona mikið og hvað bankinn reyndi að gera í baráttu sinni við að koma niður skuldum Hafskips. Að segja að lán til Haf- skips hafi verið veitt þegar pólitíkus- ar toguðu í spotta er gersamlega út í hött.“ — En áhrif pólitískra bankaráða í þá veru að neyða bankana til að lána til atvinnuveganna gegn tak- mörkuðum veðum og til óvenju- langs tima? „Þetta er náttúrlega miklu dýpri spurning en ég get svarað á einu augabragði. Þetta er bundið þjóðfé- laginu og það getur verið að það hafi verið meira og minna gallað í sambandi við viðskiptalífið í mörg ár. Auðvitað hafa þeir ríkisbankar sem eru með útibú út um allt land tengst inn í allskonar vandamál samfara rekstri stórfyrirtækja sem eru lífæðar heilla byggðarlaga. En við rekum ekki þjóðfélagið í marga daga með einkabönkum og þeim markmiðum sem þeir setja sér. Það er sjálfsagt hægt að sýna fram á það samkvæmt arðsemisjónarmiði að best sé að hola öllum landsmönnum hér niður á suðvesturhornið og senda fólk siðan í ver. En ef menn leggja þetta sjónarmið eitt fyrir sig þá eru þeir komnir út á hálan ís. — Nú hefur Útvegsbankinn verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki verið nógu vel með á nótunum um rekst- ur Hafskips? „Þeir sem hafa verið að tjá sig um þessi mál útfrá einhverjum ímynd- uðum banka-„prinsippum“ hafa gleymt að taka með þann raunveru- leika sem hefur verið i íslenskum bankaviðskiptum. Það er ekki þannig á íslandi að bankar hafi á sínum snærum sérfræðinga á öllum sviðum viðskipta. Islensk bankavið- skipti hafa hingað til verið byggð á trausti og bankarnir hafa treyst því að þær upplýsingar sem þeir fá hjá viðskiptaaðilum sínum séu réttar. Ef það kemur fram í rannsókn á Haf- skipsmálinu að Útvegsbapkinn hef- ur verið blekktur er sjálfsagt kom- inn tími til að endurskoða þessa af- stöðu og viðskiptalífið hefur tekið það miklum breytingum á undan- förnum tveimur árum að það er kannski þörf fyrir bankana að efla eftirlitsstarfsemi sína. En það er alltaf hægt að vera vitur eftir á og segja að Útvegsbankinn hefði átt að krefja Hafskip um hlut- lausa úttekt á Atlantshafssiglingun- um. En það var ekki gert vegna þess að bankinn treysti þeim upplýsing- um er fyrirtækið lét honum i té og einnig þeim reikningum er endur- skoðandi hafði skrifað undir.“ Ragnar Hall skiptaráðandi: „ATLANTSHAFSSIGLINGARNAR FRÁ UPPHAFI DAUÐADÆMT FYRIRTÆKI „Ég tel alveg ljóst að það var þetta ævintýri þeirra i flutningunum á milli Evrópu og Bandarikjanna sem leiddi til gjaldþrots Hafskips," sagði Ragnar Hall, skiptaráðandi í Reykja- vík, er HP bar undir hann álit ann- arra viðmælenda blaðsins á ástæð- um fyrir þessu stærsta gjaldþroti seinni ára á Islandi. Það virðist vera almennt við- kvæði manna í viðskiptalífinu, og þar með eru taldir talsmenn Útvegs- bankans, að ástæðan fyrir gjaldþrot- inu hafi verið þríþætt; hækkun Bandaríkjadollars, verðfall á skipa- stól félagsins og gríðarlegt tap á rekstrinum á árinu 1984. Um verð- fallið á skipum félagsins segir Ragn- ar: „Það hefði mátt þvæla þessum skipum áfram í reksti í Islandssigl- ingum, þótt þau lækkuðu í verði á heimsmarkaði. En það er náttúr- lega Ijóst að eiginfjárstaðan var nei- kvæð um langan tíma og svo hygg ég að kaup á dótturfyrirtækjum er- lendis, eins og til dæmis Cosmos- ævintýrið, hafi reynst fyrirtækinu afskaplega dýrt.“ — Og jafnvel banabiti félagsins? „Ekki eitt sér, en sem krydd út í hina súpuna þá leiðir þetta allt að einni sprengingu.“ — Nú hefur þad komid fram hjá talsmönnum Útuegsbankans ad þeir töldu sig ekki hafa yfir að ráda þekkingu á þessum Atlantshafs- flutningum og því ekki getad fylgst med rekstri Hafskips eins og edlilegt hefdi mátt telja. En hvaöa þekkingu höfdu Hafsskipsmenn sjálfir á þess- um yidskiptum? „Ég hef ástæðu til að ætla að þeir hafi haft mjög haldgóðar upplýsing- ar um samkeppnishorfur áður en þeir réðust í þetta. En þeir virðast hafa metið stöðuna þannig að þeir gætu leikið einhverja sniðugri Ieiki heldur en aðrir á þessum vettvangi og eftir því sem þeir halda fram sjálf- 8 HELGARPÓSTURINN ir þá töldu þeir sér þetta opna leið. Mér virðist hinsvegar á þeim gögn- um sem ég hef séð um þetta aö frá upphafi hafi þetta verið dauðadæmt fyrirtæki. Eftir þeim gögnum sem ég hef skoðað bendir állt til þess að þeir hafi ekki haft ástæðu til að halda að þeir gætu grætt á þessu." — Stjórnendur Hafskips hafa því látid yfirdrifna bjartsýni hlaupa með sig í gönur? „Það virðist vera.“ — Nú hafa menn, sem tengjast þessari rannsókn, látið hafa eftirsér undir nafnleynd I fjölmiðlum að hún beindist einkum að smáatrið- um en stœrri hlutar málsins, sem frekar hefðu leitt til gjaldþrots, lœgju utan við hana. Einkum hefur verið minnst á dótturfyrirtœki Haf- skips. „Það eru ótrúlega margir menn úti í bæ sem telja sig vita allt um þessa rannsókn og sjálfsagt væri best fyrir þig að leita til þeirra. Sam- skipti Hafskips og dótturfyrirtækj- anna hafa verið rannsökuð en við höfum ekki lögsögu yfir dótturfyrir- tækjunum sjálfum eða starfsmönn- um þeirra. Það hefur verið kannað hvernig greiðslur á ferðapeningum, sem greiddir voru af dótturfyrir- tækjunum, voru bókfærðar hér heima og það sem snýr að aðalskrif- stofunni hefur verið skoðað. Það hafa náttúrlega verið s'áixiskipti milli móðurfélagsins og dótturfyrirtækj- anna en við höfum ekki lögsögu yfir þeim og höfum ekki einu sinni feng- ið aðgang að öllu því sem við höfum óskað eftir hjá þrotabúum erlendu dótturfélaganna." — Á hvaða hátt hefur Baldvin Berndsen, forstjóri Hafskip USA, tengst rannsókn skiptaréttar? „Hann hefur verið yfirheyrður, en þar sem hann er búsettur erlendis höfum við ekki lögsögu yfir hon- um.“ UNGUR, SÆNSKUR GUÐFRÆÐINGUR HEFUR Á ÞREMUR ÁRUM BYGGT UPP GÍFURLEGT VELDI í KRINGUM TRÚAR- SÖFNUÐINN LIVETS ORD. NÚERHANN VÆNTANLEGUR TIL ÍSLANDS. I ágústbyrjun er vœntanlegur hingað til lands sœnskur maður að nafni Ulf Ekman, sem mikill styr hefur staðið um í Svíþjóð að undan- förnu. Ekman er ungur guðfrœðing- ur, búsettur í Uppsölum, og rekur hann mjög umdeildan trúsöfnuð, sem kallast Livets Ord. Á þeim þremur árum sem söfnuðurinn hef- ur verið starfrœktur hefur hann dregið til sín fleiri þúsundir Svía og einnig eitthvað affólki aföðru þjóð- erni. Nokkrir íslendingar hafa meðal annars gengið í þetta trúfélag í Uppsölum og síðastliðinn vetur voru a.m.k. þrír þeirra nemendur í biblíuskóla safnaðarins. Pað eru hins vegar ekki allir jafn- hrifnir af boðskap þeim, sem Ulf Ekman hefur að flytja. Hann hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir að lofa mönnum efnahagslegum ágóða og góðri heilsu efþeir taka trú og mess- ur hjá Livets Ord þykja bera mikinn keim afýktum bandarískum sértrú- arsamkundum, því þar tala menn tungum og annað í þeim dúr — auk þess sem safnað er peningum í bauka meðan á samkomunum stendur. Hin gífurlegu umsvif Ek- mans og hraður vöxtur trúarsamfé- lagsins hefur einnig orðið til þess að fjölmiðlar og almenningur í Svíþjóð hafa mikið velt fyrir sér fjármögnun þessa „fyrirtœkis". GÍFURLEGT VELDI Ulf Ekman er guðfræðingur að mennt, með framhaldsmenntun frá Bandaríkjunum. Hann er á fertugs- aldri og áður en hann stofnaði Livets Ord, var hann skólaprestur á vegum sænsku kirkjunnar. Þar kom þó að Ekman hætti störfum hjá þjóðkirkjunni og setti á stofn fyrr- nefnt trúfélag ásamt nánustu ætt- ingjum sínum og vinum. Þetta gerð- ist fyrir þremur árum, árið 1983, og segja má að sívaxandi starfsemi Livets Ord upp frá því sé kraftaverki líkust: Livets Ord er í fyrsta lagi stofnun (stiftelse), sem hefur það markmið að breiða út guðsorð. í öðru lagi er rekin Biblíumiðstöð í nafni Livets Ord og er þar boðið upp á eins árs nám fyrir fólk, sem orðið er 18 ára — bæði á sænsku og fyrir enskumælndi nemendur. Þarna er þar að auki boðið upp á bænaskóla einn eftirmiðdag i viku. í þriðja lagi er Livets Ord söfnuð- ur með það markmið að breiða út boðskap Jesú, meðal annars með samkomuhaldi og fyrirbænum, æskulýðsstarfi, svæðisútvarpi og kapalsjónvárpi. I fjórða lagi rekur Livets Ord kristindómsskóla, sem er barna- skóli þar sem lögð er megináhersla á fræðslu í kristnum fræðum. í fimmta lagi gefur Livets Ord út mánaðarrit, sem dreift er ókeypis og er prentað bæði á sænsku og ensku. í sjötta lagi á Livets Ord síðan út- gáfufyrirtœki, sem skiptist í þrjár mismunandi deildir: bókaútgáfu, kassettuútgáfu og videóútgáfu. í sjöunda lagi má telja Radio Livets Ord, en það er útvarpsstöð stofnunarinnar, sem sendir út efni snemma morguns á virkum dögum og um helgar. í áttunda og síðasta lagi má síðan nefna Livets Ord TVog Video. Þar er framleitt sjónvarps- og vídeóefni og fyrsta sunnudag hvers mánaðar er sent út efni um gervihnött, New World Channel, til sautján staða í SvíJjjóð og víða um Evrópu. A upptalningu þessari má glöggt sjá að umsvif Ekmans, sem er for- stjóri stofnunarinnar, eru gífurleg og það er hreint ótrúlegt hve miklu hann hefur fengið áorkað á ekki lengri tíma. Sjálfur stendur hann í eldlínunni, ef svo má að orði kom- ast, og er sá öxull, sem allt snýst um — eins konar persónugervingur þessa nýja safnaðar. Og áhrifamikill er þessi ungi maður svo sannarlega. Hann hefur laðað til sín fleiri þús- und manns, sem koma reglulega á samkomur og taka þátt í ýmsu starfi hjá Livets Ord. Um það er hins veg- ar deilt hvort þessi árangur er að þakka handleiðslu Guðs, sterkum persónuleika Ekmans eða hreinlega kenningum markaðssetningar, sem hann á að hafa numið í Ameríku. FJÁRHAGUR MÆLIKVARÐI ÁTRÚ Fjármál eru ekkert feimnismál hjá Ulf Ekman og hann veigrar sér síður en svo við að tengja þau trúmálum. I viðtali í kynningarriti um Livets Ord er Ekman t.d. spurður að því hvort fjárráð og frami manna geti virki- lega talist mælikvarði á trú þeirra á Guð, en hann hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir þessa kenningu sína. Svarið er á þá leið, að mönnum hafi fram að þessu hætt til þess að setja neikvæða merkingu í orð eins og „auð“ og „frama". Boðskapur Livets HALLA JÓNSDÓTTIR, NÁMSMAÐUR VIÐ UPPSALAHÁSKÓLA: „EKMAN HEFUR GREINILEGA FARIÐ Á PERSÓNUTÖFRANÁMSKEIÐ" Helgarpósturinn náði tali af Höllu Jónsdóttur,,s$m um þessar mundir vinnur áð doktorsritgerð við Upp- salaháskóla. Hún hefur farið á sam- komu hjá Livets Ord, en er ekki meðlimur í söfnuðinum. Henni fór- ust svo orð um þessa reynslu: „Ég fór á fyrri samkomu af tveim- ur, sem haldnar eru á sunnudögum hjá Livets Ord. Þarna voru saman komin mörghundruð manns og þeg- ar samkomunni lauk, beið álíka fjöldi utan dyra eftir næstu sam- komu. Það kom mér á óvart hve ungt fjölskyldufólk var þarna í yfir- gnæfandi meirihluta — allt vel klætt og auðsjáanlega ekkert lágstéttar- fólk. Ég sat fyrir aftan trommuleikara, en þarna er lítil hljómsveit, og þess vegna varð þetta ansi hávaðasamt — sérstaklega þegar fólk fór að tala tungum. Þá varð heldur betur há- vaði, en tungutalið er tákn um að viðkomandi sé frelsaður. A þessari samkomu var Ulf Ek- man með biblíulestur um vakning- ar, en hann kom einnig upp og sagð- ist hafa fengið köllun á staðnum til þess að biðja sérstaklega fyrir hjónabandinu. Þar að auki komu þarna hjón með lítið barn, sem Ekman blessaði og bað fyrir. Þá féll móðirin reyndar afturábak, sem mér skilst að sé algengt á þessum samkomum. Mér fannst margt til í boðskapn- um, sem þarna var fluttur, en um- búðirnar kunni ég hins vegar illa við. Ekman hefur svo augijóslega farið á einhver persónutöfranám- skeið og notar mjög greinilega ákveðna, lærða ræðutækni, sem minnti mig helst á Gertrud Stein.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.