Helgarpósturinn - 24.07.1986, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn: Egill Helgason,
Friðrik Þór Guðmundsson,
Jóhanna Sveinsdóttir,
Jónína Leósdóttir og G. Rétur
Matthíasson.
Útlit: Jón Oskar Hafsteinsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útgefandi: Goðgá h/f.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Steinþór Ólafsson.
Auglýsingar:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Sigurður Baldursson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471).
Berglind Björk Jónasdóttir.
Afgreiðsla:
Ólöf K. Sigurðardóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
68-1511. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Hlutafélagsbanki
óraunhæf lausn
í blaðinu í dag eru höfð at-
hyglisverð ummæli eftir Hall-
dóri Guðbjarnasyni, einum af
bankastjórum Útvegsbankans.
Hann segir þar að þeir menn, er
hafa haldið á lofti hugmyndum
um stofnun hlutafélagsbanka,
sem rekinn yrði eftir arðsemis-
sjónarmiðum á rústum Útvegs-
bankans, geri sig seka um mik-
ið ábyrgðarleysi. Halldór telur
að ef slíkt yrði gert þyrfti þessi
nýi banki að vísa megninu af
viðskiptum Útvegsbankans frá
sér, þar sem þau samrýmist
ekki ströngustu arðsemissjón-
armiðum. Bankinn myndi síðan
verða þundinn við útlán til hús-
bygginga, verslunar og annarra
áhættulítilla viðskipta. Halldór
segir að með slíkum bankavið-
skiptum yrði þess ekki langt að
bíða að atvinnulíf landsins liði
undir lok.
Halldór Guðbjarnason er
með þessum ummælum sín-
um að svara háværum röddum
einkum meðal frjálshyggju-
manna, sem telja að minnkandi
ríkisafskipti séu í sjálfu sér
lausn á flestum vanda. Með því
að minnka afskipti ríkisins af
bönkunum yrði komið í veg
fyrir að stjórnmálamenn gætu
sveigt bankana að pólitískum
þörfum og í stað þess yrðu
bankarnir reknir eftir eðlilegum
viðskiptasjónarmiðum. I þessu
samþandi hefur verið bent á
mörg stór viðskiptaleg afglöp
sem hafa fylgt í kjölfar byggða-
stefnunnar og annarra afskipta
stjórnmálamanna af viðskipta-
lífinu.
En af ummælum Halldórs
að dæma virðist íslenskt við-
skiptalíf ekki þola að strangar
grundvallarreglur yrðu teknar
upp í þankaviðskiptum og kröf-
ur um slíkt óraunhæfar. Hér hef-
ur fyrirtækjum verið komið upp
og þau rekin fyrir lán til langs
tíma og gegn litlum trygging-
um og þau myndu koðna niður
ef hert yrði á útlánsreglum
bankanna. Jafnframt hafa
bankarnir alið forsvarsmenn
fyrirtækjanna upp við slælegar
kröfur um rekstur þeirra og
kennt þeim að vísasta leiðin að
fjármagni liggi í gegnum stjórn-
málamennina. Vegna þess hve
allt viðskiptalífið er gegnsýrt af
þessu, þolir það ekki þær kröf-
ur sem gerðar eru til viðskipta í
öðrum löndum.
Ef vilji væri fyrir því meðal
stjórnmálamanna að draga sig
frá viðskiptalífinu, tæki það þá
sjálfsagt langan tíma að venja
fyrirtækin við nýjan raunveru-
leik í íslenskum viðskiptum.
Þar til að því kemur verða ríkis-
þankarnir áfram neyddir til út-
lána sem stríða gegn eðlilegum
bankalegum sjónarmiðum.
s
tarfsmannafélag Seðla-
bankans á eina fimm sumarbústaði
víðs vegar um landið. Félagið hefur
bæði fengið þessa bústaði að gjöf og
eins hefur það keypt sér bústaði. Við
þau kaup er sá háttur yfirleitt hafð-
ur á að Seðlabankinn yfirtekur lán
sem starfsmannafélagið tekur sam-
fara kaupunum. Þar sem þetta eru
hagkvæm kaup hyggst starfs-
mannafélagið nú kaupa sér sjötta
bústaðinn. Hann er í Borgarfirði
og í eigu Selmu Jónsdóttur, for-
stöðukonu Listasafns ísiands og
manns hennar Sigurjóns Péturs-
sonar gerlafræðings.
Þegar kaupin verða um garð
gengin mun starfsmannafélagið
eiga bústaði í Holtsdal við Kirkju-
bæjarklaustur, við Varmahlíð, í
Skriðdal og Borgarfirði, og svo
LAUSNIR Á
SKÁK-
ÞRAUTUM
15 EASTER
1. Kg2! Bcl+ 2. Bc2 mát
Bc3 2. Bd2 mát
Bxd4+ 2. Bf2 mát
1. Ke2 dugar ekki vegna Bxd4+ 2.
Bd2+ Bgl.
16 d’ORVILLE
1. Dal+ Kxal 2. Kc2 flD 3. Rb3
mát.
einn glæsilegasta bústaðinn við
Þingvallavatn. Seðlabankinn á svo
sjálfur íbúð við Ægisíðu sem er
fullbúin húsgögnum og notuð þegar
erlendir bankamenn staldra hér
við. . .
sér hvernig Helgi Þór Jónsson
hafi farið að því að reisa eitt glæsi-
legasta hótel landsins á örfáum
mánuðum. Húsbyggjendur landsins
hafa í það minnsta á því mikinn
áhuga, ef ske kynni að Helgi lumaði
þarna á einhverri aðferð sem eng-
inn annar hefur hingað til komið
auga á.
M.a. er talið að Helgi hafi fengið
afar góð kjör hjá B.M. Vallá, sem
seldi honum steypuna. Einnig er
það haft eftir Helga að hann hafi
m.a. selt húsið sitt til þess að fjár-
magna hótelbygginguna. Enn önn-
ur hlið á þessu máli er sú, að Helgi
hafi komist að einstaklega góðu
samkomulagi við Húsasmiðjuna
hf. Heimildir okkar segja, að áður
en ráðist var í hótelbygginguna hafi
Helgi haft úttektarheimild upp á 3
milljónir króna hjá Húsasmiðjunni
og að ekki sé ótrúlegt að það ,,þak"
hafi verið hækkað töluvert eftir að
Hótel Ork kom til sögunnar...
■ ú eru brátt liðin 5 ár frá því
Úlfar Þormóðsson gaf út sínar ein-
stæðu bækur um huldufélagsskap-
inn Frímúrararegluna. Þar svar-
aði hann brennandi spurningum um
hverjir þar væru innandyra og hvað
þar færi fram bak við luktar dyr. Síð-
an hafa vitaskuld fleiri bæst í raðir
frímúrara og virðist reyndar nokk-
uð föst regla að reglubræðrum fjölgi
um 65—66 á ári. Alls teljast reglu-
bræður um þessar mundir vera
orðnir tæplega 2300 og hafa þá
bæst við eitthvað um 400 félagar frá
því að Úlfar stóð fyrir afhjúpun
sinni. Forvitnileg nöfn læðast inn á‘
meðal nýliða síðustu ára. Við nefn-
um hér nokkur: Magnús G. Frið-
geirsson, deildarstjóri búvöru-
deildar SÍS, Björn R. Einarsson
hljóðfæraleikari, Rafn Hafnfjörð
ljósmyndari, Sveinn G. Sveinsson
verkfræðingur, Sverrir Scheving
Thorsteinsson jarðfræðingur,
Wilhelm G. Wessman fram-
kvæmdastjóri, Þorbergur Aðal-
steinsson handboltamaður og Sig-
urþór Ch. Guðmundsson, fyrr-
verandi umsjónarmaður bókhalds
hjá Hafskip og einn gæsluvarð-
haldsfanganna, en hann gekk í fyrra
í stúkuna Mími, þar sem fyrir voru
félagarnir Ragnar Kjartansson og
Björgólfur Guðmundsson. í sömu
stúku voru einnig fyrir nokkrir val-
inkunnir sæmdarmenn, svo sem ný-
skipaður ríkissaksóknari, Hall-
varður Einvarðsson, Agnar
Friðriksson, forstjóri Arnarflugs,
og Gunnar J. Möller hæstaréttar-
lögmaður, sem er stórmeistari Frí-
múrarareglunnar. . .
Á|
■ ú þykir sýnt að markaðs-
setning íslenska fjallalambsins, sem
svo heitir samkvæmt nýjum móð,
hafi mistekist ef eitthvað er. 20%
lækkun á dilkakjöti, sem taka á gildi
einhvern næstu daga, bendir tví-
mælalaust til þess að salan hafi ekki
aukist eins og vonast var til. En næst
verður sjálfsagt reynt með enn
meiri áherslu og þá ekki ólíklegt að
menn heyri minnst á t.d. háíslenskt
öræfalamb, eða jafnvel Pólarlamb-
ið. . .
II
ndirbuningi kapalvæðingar
Seltjarnarness hefur miðað
þokkalega áfram, þótt fítið hafi
reyndar verið um framkvæmdir að
undanförnu. Búið er að leggja rör
víða um bæjarfélagið og hagstætt
tilboð hefur borist i það efni sem til
þarf. Allt lítur því út fyrir að hægt
verði að þræða kapal í rörin í lok
september. Þá verður svokölluð
stofnlögn tilbúin, en Sjónvarpsfé-
lagsmenn hafa skipt svæðinu niður
í rúmlega 20 hverfi, sem síðan geta
tengst þessari stofnlögn. Sjónvarps-
áhugamenn á Nesinu telja þýðingar-
skyldu Sverris Hermannssonar
þó enn geta sett babb í bátinn. Þetta
ákvæði gerir áform Seltirninga í
raun óframkvæmanleg, nema að
notendum verði skipt niður í svo
litla hópa að ekki verði fleiri en 36
í hverjum þeirra. Þar með væri
hægt að komast hjá þýðingarskyld-
unni á erlendu efni, en þessi kostur
mun vera töluvert dýrari en annars
þyrfti að vera. Ahugamönnum
finnst þetta sérlega bagalegt, eink-
um vegna þess að bráðlega verða
sendir á loft svokallaðir „frjálsir"
gervihnettir, sem senda út efni sem
öllum er leyfilegt að móttaka án
nokkurrar skriffinnsku. . .
L
ELTIIM
Bilbeltin skal aO
sjálfsögðu spenna
I upphafi ferOar.
Þau geta bjargaO lífi I
alvarlegu slysi og
hindraö áverka I minni
háttar árekstrum. Hnakka-
púöana þarf einnig að stilla
I rétta hæð.
Okkar glæsilega sumarútsala hefst á morgun í báðum búðunum.
Jakkar, kápur, buxur, blússur, pils, dragtir, sumardress, slopp-
ar, undirfatnaður.
Alvöru útsalat
lym |_jT
Laugavegi 26, s: 13300 — Glæsibæ s: 31300.
I0 HELGARPÓSTURINN