Helgarpósturinn - 25.09.1986, Side 3

Helgarpósturinn - 25.09.1986, Side 3
FYRST OG FREMST Á RIMINI-SLÓÐUM fer þessa dagana fram Evrópukeppni kvikmynda og eigum við Islend- ingar tvær kvikmyndir ytra, aðra í hinni eiginlegu keppni, og hina sem eins konar aukanúmer frá Is- landi. í fyrradag var „aukanúmer- ið“ ,,Eins og skepnan deyr" eftir Hilmar Oddsson sýnd í tvígang og hlaut hún mjög góðar viðtökur. Sérstaklega kom fram hjá kvik- myndarýnum, að myndin væri óvenju persónuleg tjáning, hún bæri vott um hugmyndaríka notk- un landslags og tónlistin væri mjög góð. Sjálf keppnismyndin héðan er íslensk-þýska myndin ,,Svart og sykurlaust — kvikmynd“ eftir Lutz Konnermann og Þorgeir Gunnarsson. Hún verður sýnd í dag, fimmtudag. Fulltrúar íslensku dómnefndarinnar á Ítalíu eru þeir Arni Þórarinsson ritstjóri Mannlífs og Sigmundur Ernir Rúnarsson Helgarpóstur. . . I SIÐASTA Eystra-Horni, mál- gagni Hornfirðinga er alvöru- þrunginn leiðari um tímans þunga nið: „Þegar dagleg rútína er kom- in á það stig að samfarir og pulsu- át eru framkvæmd eftir klukk- unni, þá erum við ekki lengur að hlýða kalli náttúrunnar. En því miður snýst allt frá degi til dags um að vera á réttum tíma á rétt- um stað. Þeir, sem ekki vilja una þessu, eiga fárra kosta völ. Meiri- hlutinn ræður og klukkan segir honum fyrir verkum. Hinir, sem láta eftir eðli sínu, mega éta það sem úti frýs“. Hart er í heimi, Hornfirðingur! ELDHESTAR eða Vulcano horses heitir nýstofnað fyrirtæki í Hveragerði. Tilgangur félagsins er að gefa innlendum og erlendum ferðamönnum kost á „hestaferð- um, bæði styttri og lengri um helstu jarðhitasvæði og sögustaði á Ölfus- og Þingvallasvæði", segir í tilkynningu um stofnun fyrirtækis- ins. Eigendur firmans eru Hródmar Bjarnason í Hveragerði, Sigurjón Bjarnason í Reykjavík og Þorsteinn Bjarnason í Hveragerði. ÞAÐ ER mikið í tísku um þess- ar mundir að leyfa borgarbörnum á leikskólaaldri að fara í réttir og sjá me-me. Síðastliðinn mánudag voru t.d. 7—8 stórar rútur með höfuðborgarbörnum við réttir í Kollafirdi. Óvíst er hvort meira var af rollum eða rollingum, en fjórfætlingunum mun að minnsta kosti hafa verið um og ó vegna allrar þessarar athygli. . . EINS OG alkunna er deildi Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hart á flokksbróður sinn Pál Pétursson fyrir ferðalög í tíma og ótíma. Páli og reyndar fleiri landsmönnum fannst for- sætisráðherra tæpast hafa efni á að kasta steinum úr gierhúsi. En stund hefndarinnar var ekki runnin upp fyrr en á dögunum. Óljósar fregnir hafa borist síðustu daga af ferðalögum Steingríms um allar álfur og enginn veit hvaða land hann heimsækir hverju sinni. Af því tilefni rann upp stund hefndarinnar — og hafi Páll Pétursson ekki ort þessa vísu þá er hún ort í orðastað hans og af velvild til hans: Steingrímur er kominn til Ktna med kerlingarálftina stna. Nei, heyrdu hvaö er ég ad segja? — Hann fór til Grœnhöföaeyja. SMARTSKOT FRAKKAR hafa gott orð á sér hérlendis fyrir að halda uppi til- tölulega öflugri menningarskipta- starfsemi milli Frakklands og íslands. Hins vegar hafa þeir verið svolítið seinheppnir í sendiráðinu og lent upp á kant við litla stráka í fótbolta, svo dæmi sé tekið. Um daginn gerðist sendiráðið allkræft. Þannig var að franskt herskip var mætt til landsins í tilefni af minningunni um Pourqois Pas? slysið. Skipið var fullt af ung- um frönskum dátum og var ákveðið að lífga upp á móralinn hjá liðinu með því að bjóða í síð- degisdrykkju um borð. Og hverjum skyldi sendiráðið hafa viljað bjóða? Jú, ungum, helst fallegum, stúlkum, sem kynnu a.m.k. eitthvað pínu pons í frönsku. Sendiráðsmenn gripu til þess ráðs að hringja í Menntaskól- ann í Reykjavík og bjóða ungum menntaskólapíum, sem hefðu lært einhverja frönsku. Það var frönskukennari við MR, sem fékk boðið og var hann nú ekki lengi að afþakka þetta fyrsta „tilboð" saklausra menntaskólayngismeyja. TIMINN hefur ekki verið sér- lega snarpur í fréttum undanfarið. Hins vegar slógu þeir öllum blöð- unum við á þriðjudaginn, þegar aðalfrétt blaðsins á forsíðu fjallaði um almyrkva, sem yrði hérlendis 3. október, en síðast mun slíkur myrkvi hafa sést hér árið 1954. Annars vantaði aðalatriðið í frétt- ina, en það var að benda á þá staðreynd, að sama dag og al- myrkvi verður, þ.e. 3. október, verður flokksþing krata. Tilviljun. ..? HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR Stöð tvö ,,Gudi sé lof fyrir Gutenberg." Dagskráin býður að Jóns Óttars hætti, afruglaða og trefjaríka þætti. Þá verður kynning á öli og alkóhóli, umsjónarmaður Halldór frá Kirkjubóli. LEIÐARAHÖFUNDUR MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGINN 24. SEPTEMBER 1986 UM ÞÆR BREYTINGAR SEM ERU AD VERÐA Á MARKAÐI UÓSVAKAMIÐLANNA. Niðri. J Katrín Fjeldsted er borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokk I Reykjavík. Hún hefur setið (umferðarnefnd og „hefur getið sér gott orð fyrir ábyrga af- stöðu i umferðarmálum" eins og skrifað hefur verið um hana. Það vakti því sérstaka athygli, þegar hún bar fram tillögu I borgarráði þess efnis, að gerð yrði innkeyrsla frá Reykjanesbraut inn að veitingastaðnum Sprengisandi. Umferðarnefnd, sú sem Katrín sat áður í, felldi tillöguna, þegar hún kom til umsagnar í nefndinni. Katrín Fjeldsted var á leið til Helsinki — frá London — þegar HP náði tali af henni. Finnst þér góðir hamborgarar? Katrín Fjeldsted „Ekkert sérstaklega. Mér finnst þeir þó skárri sem gerðir eru úr góði kjöti. Og eru í heilhveitibrauði." — Skiptirðu mikið við Tomma-hamborgara? „Nei, ekki mikið. Ég kem þar þó stöku sinnum." — Af hverju viltu opna leið af stofnbraut inná ham- borgarastað? „Það hefur verið látið að því liggja að ég ætti einhverra sér- staka hagsmuna að gæta. Ég vil koma því að, að svo er ekki. Það er ekki til þess að mér gangi persónulega betur að komast á Sprengisand — á bfl. Röksemdir mínar eru þær, að hér sé um að ræða sjálfsagða þjónustu við þá sem eru akandi. Þeir eiga að geta komist til þeirra staða sem veita akandi mönnum þjónustu — í þessu til- viki er um hamborgarastað að ræða. Staðurinn gerir ráð fyrir að menn séu þjónustaðir í bfl. Og þessi þjónusta er ekki ósvip- uð þeirri þjónustu, sem veitt er á bensínstöðvum. Til að taka bensín verða menn að geta ekið að bensínstöð. Og enginn am- ast við því þótt menn fari af stofnbraut inná bensínstöð. Af hverju skyldu menn þá ekki geta komist að matsölustað til að næra sig? Aðalröksemd fyrir því að umferðarsérfræðingar veita undan- þágu þegar um bensínstöðvar er að ræða, er sú, að það sé nauðsynlegt að komast af stofnbraut inná bensínstöð. Annars eigi menn ekki að fara af stofnbraut. Þessi undantekning frá reglunni finnst mér nægileg til þess að ég viðurkenni hana ekki sem algilda. Væri hún algild myndi ég sætta mig við hana." — Hefurðu farið um þetta svæði í hádeginu og orðið vitni að því hve þung umferðin er? „Já, það hef ég gert. Ef hámarkshraði er virtur á þessari braut þá held ég að þetta sé ekki nein slysagildra. Að mínu áliti er það okkar hlutverk að gæta þess, að hámarkshraði sé virtur. öfugt við það sem össur Skarphéðinsson sagði í borgarstjórn, en hann sagði: „Vitið það það að bílar fara þarna framhjá á 80—100 km hraða?" Mér finnst ekki að við eigum að nálgast þetta vandamál þeim megin frá." — Studdi Tómas Tómasson þig í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins? „Ég veit ekki til þess, að Tómas Tómasson hafi tekið þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna." — Studdi hann þig fjárhagslega? „Nei." — Má búast við því að þú leggir til í borgarstjórn, að innkeyrslan að Miklagarði verði opnuð aftur? „Ég var ekki mikið inní þeirri umræðu á sínum tíma. Ég var þá í umferðarnefnd og ekki komin í borgarstjórn. Umferðar- nefnd samþykkti þetta á sínum tíma til bráðabirgða. Og það er rétt að minna á það núna, að þetta var niðurstaða umferðar- nefndar." — Muntu beita þér fyrir að þessi vegarspotti verði opnaður útá Kleppsveginn? „Ég hef ekki tekið það til neinnar athugunar. Og ef ég gerði það þá verður það ekki nein geðþóttaákvörðun, frekar en ákvörðunin sem ég tók um Sprengisand. Sú ákvörðun vartekin að vel yfirveguðu máli og ég stend föst á henni. Ég vil hins veg- ar minna á það, að sú ákvörðun er aðeins tekin til eins árs." HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.