Helgarpósturinn - 25.09.1986, Qupperneq 14
eftir Óskar Guðmundsson myndir Jim Smart
ERU
MÉR FJÖTUR UM FÓT
NIÐURSTAÐA SAKSÓKNARA AÐ STARFSEMI OKKAR ER LÖGLEG, SEGIR
ÁRMANN REYNISSON FORSTJÓRI ÁVÖXTUNAR FENGUM ENGAR ÓSKIR FRÁ
BANKAEFTIRLITINU, BARA HÓTANIR VILDI EKKI VERA í SPORUM ÞÓRÐAR i
DAG EFTIR ÞESSA NIÐURSTÖÐU VALDNlÐSLA EMBÆTTISMANNS ÁVÖXTUN
AÐ BYGGJAST UPP SEM HLUTAFYRIRTÆKI [ HRING FYRIRTÆKJA, BÆÐI í KJÖTI
OG KRISTAL ISLENDINGAR ÓELEGANT i SAMSKIPTUM...
„Það hefur markvisst veriö unniö
aö því aö gera mig og mitt fyrirtœki
tortryggilegt og fjölmiölunum beitt í
því skyni,“ segir Armann Reynisson
forstjóri Ávöxtunar í vidtali viö HR
„En með niðurstöðu saksóknara,
þarsem fallið er frá ákœru á okkar
hendur ernú komið á hreint að okk-
ar starfsemi er lögleg og viðskiptin
eru tekin að blómstra á ný sem
aldrei fyrr."
Eftir könnun bankaeftirlitsins á
starfsemi Ávöxtunar í fyrra ákvað
Seðlabankinn að vísa málinu til Sak-
sóknara ríkisins, þarsem starfsemin
bryti í bága við nýju bankalögin og
fór málið til rannsóknar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. í niðurstöð-
um segir að forráðamenn fyrirtæk-
isins hafi ákveðið að laga starfsemi
félagsins að því er varðar viðtöku á
peningum til ávöxtunar „að þeim
óskum og ábendingum sem banka-
eftirlitið hefur látið frá sér fara". Enn
fremur hafi annar forsvarsmanna
Ávöxtunar sótt um leyfi til við-
skiptaráðuneytis um að mega reka
verðbréfamiðlun. Af þessum ástæð-
um sjái ákæruvaldið ekki ástæðu til
frekari aðgerða í þessu máli, segir í
niðurstöðum saksóknara.
— Armann Reynisson, hafið þið
gjörbreytt starfsemi ykkar til sam-
rœmis við óskir bankaeftirlitsins?
— Við höfum í rauninni aldrei
fengið neinar óskir frá eftirlitinu um
breytingar, heldur einungis hótanir.
Á hinn bóginn hafa lengi staðið til
breytingar hjá okkur. Við skrifuðum
yfirlýsingu til að fræða aðilja um
hvernig við ætluðum að breyta
starfseminni. Þetta eru að minu
mati ekki grundvallarbreytingar. í
staðinn fyrir að gera skrifiegan
samning milli okkar og viðskipta-
vinar sem lætur okkur fá fé til ávöxt-
unar verða gefin úr skuldabréf. í
stuttu máli má segja að við höfum
verið með lokaðan verðbréfasjóð
en gerum hann nú algerlega opinn.
ÞÓRÐUR DJARFUR
VIÐ OKKUR
— Samkeppnisfyrirtœki þín, Fjár-
festingarfélagið og Kaupþing hafa
ekki átt í málaferlum eins og Ávöxt-
un. Kanntu einhverja skýringu?
— Við höfum ekki á bakvið okkur
Iðnaðarbanka, Sambandið, lífeyris-
sjóði eða pólitíkusa. Fjárfestingarfé-
lagið var stofnað samkvæmt lögum
frá Alþingi. Þetta er almennt hluta-
félag án þess að ríkið eigi hlut og frá-
leitt að löggjafarsamkoman geti
gert svona. Eg tel þetta misnotkun á
Alþingi. Það eru landskunnir stjórn-
málamenn sem standa að baki þess-
um fyrirtækjum. Til dæmis á Eyjólf-
urKonráð í Fjárfestingarfélaginu og
meðal 8 eigenda Kaupþings eru
menn einsog Baldur Guðlaugsson í
Sjálfstæðisflokknum og Ragnar
Arnason hugmyndafræðingur í Al-
þýðubandalaginu. Þeir þora ekki að
14 HELGARPÓSTURINN