Helgarpósturinn - 25.09.1986, Page 39
FRETTAPOSTUR
Minni þorskafli
Hafrannsóknastofnun hefur lagt til aö þorskkvótinn
fyrir næsta ár verði 300 þúsund lestir. Gert er ráð fyrir að
þorskafli verði um 350 þúsund tonn í ár. í skýrslu Haf-
rannsóknastofnunar um nytjastofna sjávar og umhverfis-
þætti 1986 kemur fram að árgangarnir 1983 og 1984 séu
mjög stórir og að óvenjulegt sé að tveir svo stórir árgangar
fari saman. Sjór umhverfis landið hefur kólnað á fyrrihluta
þessa árs.
Rainbowmálið lagt fyrir Alþingi
Nú hefur verið ákveðið að Rainbowmálið verði tekið fyrir
á Alþingi. Pyrstu fréttir og ummæli Matthíasar Mathiesen
utanrikisráðherra bentu til að þetta mál væri alfarið í hönd-
um öldungadeildar Bandaríkjaþings og kæmi Alþingi ekki
við! Kom það mörgum á óvart þar sem hér er um milliríkja-
samkomulag — samkomulag tveggja þjóða — að ræða. Nú
hafa ráðamenn ákveðið að Alþingi skuli staðfesta samkomu-
lagið — til að forða skandal.
Bylgjan best bjá DV
Samkvæmt skoðanakönnun DV frá þvi um síðustu helgi
þykir útvarpshlustendum nýja útvarpsstöðin Bylgjan
einna best fyrirliggjandi rása. 39% sögðu Bylgjuna besta,
34,3% nefndu rás 1 og tæplega 10% nefndu rás 3, en 16,6%
gáfu ekki upp ákveðna afstöðu. Af hinum ákveðnu hlaut
Bylgjan um 47%, rás 1 um 41% og rás 2 um 12%. Nýleg
könnun á vegum Hagvangs um útvarpshlustun, þar sem
hlutur Bylgjunnar reyndist verulega mikill, hefur hins veg-
ar verið mjög dregin i efa hvað marktækni varðar, auk þess
sem hlustun á nýja rás er auðvitað mest í byrjun þegar fólk
er að kynna sér nýjungina.
Hafskip í hendur ríkissaksóknara
Rannsóknarlögreglan hefur nú lokið athugun sinni í Haf-
skipsmáli. Voru niðurstöður rannsóknarinnar sendar til
ríkissaksóknara í gær. Engar upplýsingar hafa verið gefnar
um niðurstööu rannsóknar. Þetta er ein umfangsmesta
rannsókn sem RLR hefur gert á seinni árum.
Graskögglaverksmiðjur á hausnum
Graskögglaiðnaðurinn á í erfiðleikum. Skuldir Vallhólms
hf. í Skagafirði eru taldar nema rúmlega 60 milljónum
króna, en í næsta mánuði lýkur fimm mánaða greiðslu-
stöðvun fyrirtækisins. Tap graskögglaverksmiðja þeirra
sem ríkið er með fingurna í var á síðasta ári um 40 milljónir,
að viðbættu tapi Vallhólma hf. Stefnt er að því að ríkið losi
sig við verksmiðjurnar, sem nú eru fimm í eigu ríkisins.
Kjötfjallið hækkar — í verði
Nýtt kjötverð tók gildi á mánudaginn var. Fjallalambið
hækkaði um 4,83%, nautakjöt um 3,43%. Verðlagsgrund-
völlur landbúnaðarafurða hækkaði um 2,86%. Vinnslu-
kostnaður sauðfjárafurða hækkaði um 7% og 6% fyrir
naut. Niðurgreiðslur hafa aukist um H3% á einu ári.
Munch í Norræna húsinu
Kærkomin sending er komin til landsins. Það eru 40 verk
hins heimsþekkta listamanns, Edvards Munch. Fjöldi
þekktra verka er i pakkanum frá Noregi og fengur fyrir al-
menning að eiga þess nú kost að sjá verk meistarans í
Norræna húsinu.
„Staða bókarinnar" á Hótel Loftleiðum góð
Bókasamband íslands hélt bókaþing á Hótel Loftleiðum i
vikunni. Lauk þinginu í fyrradag. Á bókaþingi kom fram
mikil bjartsýni í röðum bókaáhugamanna og telja menn
ekki ástæðu til að örvænta. Stjórn Bókasambandsins lagði
fram á þinginu drög að stefnuskrá, eða stefnuyfirlýsingu,
vegna stöðu bókarinnar. Var henni vísað aftur til stjórnar
eftir nokkrar umræður.
Saksóknarar skipaðir
Forseti íslands hefur skipað tvo saksóknara frá 1. október
að telja. Þeir eru Björn Helgaspn og Jón Erlendsson. Björn
lauk námi í lögum frá Háskóla íslands árið 1952. Hann starf-
aði hjá Samvinnutryggingum, var lögfræðingur varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli, starfaði sjálfstætt og hefur gegnt
stöðu hæstaréttarritara frá 1972. Jón Erlendsson lauk laga-
námi frá Háskóla íslands 1968. Hann var fulltrúi ríkis-
saksóknara, var fulltrúi sýslumanns í N.-Múlasýslu og
sakadómari frá 1982. Sjö aðrir sóttu um saksóknarastöð-
urnar tvær. Þeir voru Arngrímur ísberg, Egill Stephensen,
Gunnar Stefánsson, Hjörtur 0. Aðalsteinsson, og Karl F. Jó-
hannsson.
Sovétmenn sprengja á íslandi
Sovéskir vísindamenn hafa undanfarið stundað spreng-
ingar í Byjafirði — í vísindaskyni. Eru sprengingarnar gerð-
ar í samvinnu við Orkustofnun.
Tökum hun^s\u *
g<
dvalaT'
HUN DAGÆSLUHEIMILI
Hunclavmafélags íslands ög
Hundaræktarfélags íslands
ARNARSTÖÐUM, Hraungerðishreppi
801 Selfoss - Símar: 99-1031 og 99-1030
AMSTRAD PCW tölva meö íslensku RITVIIMIMSLUKERFI, ísl. 3ja tíma leiðbeiningum á snældum,
SAMSKIPTAFORRITI fyrir telex, gagnabanka o.fl. og PRENTARAI - fyrir aðeins 39.900,- kr. Stóri
bróðir, AMSTRAD 8512, er með 2 drifum og stærra minni og kostar aðeins 49.900,- kr. Hann er
auk þess hægt að fá með fullkomnu fjárhagsbókhaldi eða með viðskiptamanna-, sölu- og
lagerkerfi fyrir 59.900,- kr., og með hvoru tveggja fyrir aðeins 64.900,— kr. - allt í einum pakka
- geri aðrir beturl
AMSTRAD PCW 8256
ritvinnslutölvan: 256 K RAM (innbyggður RAM diskurf I drif;
skjár: 90 stafir x 32 línur. Prentari: Punktaprentari, 90 stafir á sek.
AMSTRAD PCW 8512
ritvinnslu-og bókhaldstölvan: 512 K RAM |innb. RAM diskurf
2 drif IB-drif er I megabyte), skjár: 90 st. x 32 línur. Prentari:
punktaprentari, 90 stafir á sek.
Báðum gerðum fylgir íslenskt ritvinnslukerfi (LOGO-
SCRIPT). Dr. Logo og CP/M+. (sl. lyklaborð, fsl.
leiðbeiningar, 3ja tíma kennsluefni á 2 snældum (isl.).
prentari meö mörgum fallegum leturgerðum og
-stærðum. Með AMSTRAD 8512 er einnig bægt að fá
fullkomin bókhaldskerfi sem henta mjög vel litlum og
meðalstórum fyrirtækjum.
FORRIT FYRIR AMSTRAD:
Samskiptaforrlt: BSTAM, BSTMS, Chit-Chat, Crosstalk, Honeyterm
8256, Move-it. Áætlana- og relknlforrlt: Pertmaster, Milestone,
Brainstorm, Statflow, Cracker, Master Planner, Multiplan, PlannerCalc,
SuperCalc. Gagnagrunnsforrlt: Cambase, Cardbox, dBase II, dGraph,
dUtil, Delta, Flexifile. Telknlforrlt: Dataplot plus, Datplot III, DR Draw,
DR Graph, Polyplot, Polyprint. Forrltunarmál: DR C Basic, Mallard,
Basic, Microsoft Basic, Nevada Basic, Cis-Cobol, Nevada Cobol, RM
Cobol, HiSoft C, Nevada Fortran. Pro FortrarvDR PL/I, DR Pascal MT+,
Nevada Pascal, Pro Pascal, Turbo Pascal. Annaö: Skákforrit, Bridgeforrit.
íslensk forrlt: Ritvínnsla ffylg ir), Fjárhagsbókhald, Viðskiptamannafor-
rit, Sölukerfi, Lagerbókhald, Nótuútprentun, Límmiðaútprentun.
Auk þúsunda annarra CP/M forrita.
Bókabúð
Braga
TÖLVUDEILD O
v/Hlemm Símar 29311 & 621122
ÞETIA ER TOLVAN!
FYRIR EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKI
Námskelð:
Tölvufræðslan sf. Ármúla 36. s. 687590 & 686790.
Fjárhagsbókhald 6 tfmar aöeins 2.500 kr.
ViOskiptamanna-. sölu- og lagerkerfi 6 tímar aðeins 2.500 kr.
Ritvinnslmámskeíð 6 tímar aðeins 2.500 kr.
Umboösmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman. Akureyrl: Bókabúðin Edda. Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga. DJúpavogl: Verslunin Djúpið.
Grlndavik: Bókabúö Grindavíkur. Hafnarfjörðúr: Kaupfélag Hafnfirðinga, Húsavlk: Búkaverslun Þórarins Stef. Isafjörður: Hjómborg.
Keflavfk: Bókabúð Keflavíkur. Vestmannaeyjar: Vfdeóleiga GS. Seltjarnarnes: Verslunin Hugföng.
Öll verö miöuö viö gengi l sept. 1986 og staögreiöslu TÖLVULAND HF., SÍMI 17850
TÆKMD0LD Hallarmúla2 Slmi832Il
HELGARPÓSTURINN 39