Helgarpósturinn - 25.09.1986, Side 40

Helgarpósturinn - 25.09.1986, Side 40
bæjarstjóri á Selfossi. Fyrrverandi bæjarstjóri Stefán Ómar Jónsson setti bæjarfulltrúa í hálfgerða fjár- hagsgíslingu með ákvæði í ráðning- arsamningi sínum um hús sitt í bæn- um. Á miðvikudag í liðinni viku kynnti nýr bæjarstjóri á Selfossi, Karl Björnsson, ráðningarsamn- ing sinn með því að lesa hann í belg og biðu án þess að bæjarfulltrúar fengju eintak af samningnum. 1 fljótu bragði sýnast mánaðarlaunin nema rúmum 80 þúsund krónum, en við nánari athugun á plagginu sést, að í heild eru laun bæjarstjór- ans 204 þúsund krónur á mánuði, um 2,5 milljónir á ári, um 10 milljón- ir fyrir kjörtímabilið og með samn- ingsbundnum biðlaunum mun Karl bæjarstjóri fá a.m.k. 10,6 milljónir króna á 4 árum. Já, þetta sýnast vera sæmilegustu laun, eða svona um það bil tíföld laun skrifstofu- stúlku... E Bhiu] einu sinni hefur Agnar Friðriksson forstjóri Arnarflugs verið fenginn til þess að halda áfram að stýra fyrirtækinu til bráðabirgða og hafa menn velt mjög fyrir sér hvert Agnar hafi hugsað sér að fara. Nú hefur HP fregnað, að Agnar verði næsti bæjarstjóri Garðabæjar, málið sé frágengið og hann taki við um mánaðamótin mars/apríl. Þann- ig verður Agnar pólitískur bæjar- stjóri, eins og Davíð Oddsson í Reykjavík og Guðmundur Árni Stefánsson í Hafnarfirði, en Agnar var einmitt efstur á lista sjálfstæðis- manna í sveitarstjórnakosningun- um í vor. Bæjarstjóri í Garðabæ nú er Jón Gauti Jónsson, dyggur sjálfstæðismaður. Ekki vitum við fyrir víst hvert Jón Gauti snýr sér, en höfum heyrt, að hann hafi verið orðaður við starf hjá heilbrigðis- ráðuneytinu. . . FRABÆRAR VEITINGAR I FALLEGU UMHVERFI « kótef SELFOSS VIÐ ÖLFUSÁRBRÚ, S. 99 2500 M ■ ú er aðeins að færast líf i prófkjörið hjá Sjálfstæðisflokknum. Albert Guðmundsson er að opna kosningaskrifstofu í Nóatúni og stefnir ótrauður á fyrsta sæti listans. Ásgeir Hannes Eiríksson um- svifamaður, húmoristi með meiru býður sig fram í prófkjöri í fyrsta skipti og hafa undirtektir við fram- boð hans verið góðar að sögn stuðn- ingsmanna. HP hefur hlerað að meðal stuðningsmanna hans séu Baldvin Jónsson auglýsingastjóri á Morgunblaðinu, Garðar Þor- steinsson sem verið hefur hægri hönd Péturs Sigurðssonar við sömu aðstæður og Garðar Jóhann Guðmundsson, sem verið hefur aðalstjórnandi kosningamaskínu Hilmars Guðlaugssonar múrara og borgarfulltrúa. Asgeir Hannes er búinn að opna kosningaskrifstofu við Kirkjutorg, við hlið Alþingis- hússins. Ásgeir Hannes er sagður gantast með það að vera með víð- tækustu rætur allra í framboði gegn lögfræðingum og hagfræðingum. Faðir hans sé eðalkrati af heilsufars- ástæðum en í móðurættina sé hann af heimastjórnarfólki. Stuðnings- menn Ásgeirs Hannesar reiða sig á góðan árangur útá það eitt að þar fari öðruvísi frambjóðandi... lÍ^rs lorstjóri Fasteignamats ríkisins hefur sagt upp starfi sínu frá áramót- um. Nafn hans er Guttormur Sig- urbjörnsson. Fjármálaráðherra Þorsteinn Pálsson skipar í stöð- una, en eins og menn muna var töluvert umdeilt þegar Halldór E. Sigurðsson skipaði Guttorm for- stjóra á sínum tíma. Mörg nöfn hafa verið nefnd vegna forstjóraskipt- anna, en búist er við því að Stefán Ingólfsson, deildarverkfræðingur á Fasteignamatinu, komi sterklega til greina í þessa stöðu... Þ að hefur lengi verið áhuga- mál ráðamanna hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, að koma fulltrúa sínum á þing í gegnum Framsóknar- flokkinn. Nú vinna nokkrir menn í forystusveit kaupfélaganna að því að finna frambjóðanda SÍS í Reykja- vík. Heyrst hefur að sá maður, sem flestir eru sammála um að best myndi duga, sé Axel Gíslason — Konráðssonar frá Akureyri. Er áhugi fyrir því, að hann gefi kost á sér í annað sæti á lista framsóknar- manna í Reykjavik. Er talið vonlaust að Axel fáist til að fara í fyrsta sæti, enda er breið samstaða um að Haraldur Ólafsson verði þar áfram... FORRÉTTUR Ananasundur m/rœkjum og hvítvínssósu AÐALRÉTTIR T-Bone steik m/piparsósu og hvítlaukssósu eöa/Flamberadur lundi m/brúnuöum kartöflum og grœnmeti. Kaffi Salatbar ásamt a la Carte Opið frá kl. 11:00 árdegis til miönœttis. LEIKHÚS- OG ÓPERUGESTIR FRÁBÆR HELGARMATSEÐILL! VEITINGAHÚSIÐ Borðapantanir í síma 24630 Oreifinn afMonteChristo LAUGAVEGI 11 40 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.