Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST sígarettunni fyrir þig, hjálpi þér ekki í kápuna, opni ekki hurðina fyrir þig eða leggi frakkann sinn yfir drullupollinn. Enn er þó eitthvað til af sönnum heiðurs- mönnum, sem eru boðnir og búnir að hjálpa þér úr fötunum. HVÍTASUNNUHELGIN er nýafstaðin og hneyksluðu unglingarnir hina fullorðnu að venju með fylleríi og lausung í siðferðismálum. Hinum fullorðnu þykir sem unglingar byrji á kynlífi yngri og yngri. Óssur Skarphédinsson ritstjóri og laxa- fræðingur hefur einnig velt fyrir sér sambandinu á milli aldurs og kynlifs, en þá reyndar með laxana í huga. í nýjasta hefti Sportueidi- bladsins tilkynnir hann meðal annars, að 90—100% hængseiða kynþroskist í ánni áður en haldið er til sjávar í fyrsta sinn. Að þau séu ekki aðeins virkir þátt- takendur heldur mjög mikilvæg fyrir viðhald tegundarinnar. Það er ekki að spyrja með unglingana... DAGSKRÁRGERÐARmenn annars staðar en á rás 1 reyna margir að vera persónulegir og komast í náið samband við hlust- endurna. Valdís Óskarsdóttir, stað- gengill Páls Þorsteinssonar á morgunvakt Bylgjunnar, var t.d. ekkert að liggja á því í byrjun vik- unnar að hún hefði fengið lítinn svefn og væri illa upplögð. Um nóttina hafði hún verið kynnir í beinni útsendingu frá fegurðar- samkeppni á Broadway og hefði greinilega þegið að fá að sofa út í stað þess að fara í vinnuna. Enda kom ein kynningin beint frá hjart- anu og hljóðaði svo: „Þetta er Val- dís Gunnarsdóttir, alveg hreint drulluþreytt!" ALMANNAVARNAæfingar þykja að öllu jöfnu þarfaþing og nauðsynlegt að búa fólkið vel undir mögulegar og ómögulegar hamfarir. Þeir á Suðurnesjum virðast hins vegar eitthvað orðnir pirraðir með hlutskipti sitt, ef marka má frétt í Víkurfréttum af slíkri æfingu þar um slóðir fyrir skemmstu: „Kom fljótt í ljós að ekki var unnið samkvæmt fyrir- fram ákveðnu skipulagi, heldur eftir einhverju óákveðnu. Vissi því enginn á vettvangi hvað gera skyldi og biðu menn því bara eftir skipunum frá Reykjavík ... Þær skipanir sem þaðan komu stönguðust stundum á, t.d. var lögreglan látin loka umferðar- götum við sjúkrahúsið svo þyrla gæti lent þar fyrir framan, en þegar þyrlan kom lenti hún á Keflavíkurflugvelli og þaðan var hinum slösuðu ekið til Keflavíkur. Er sorglegt til að vita, að ekki skuli vera hægt að standa að æfingum eins og um alvöru útkall væri að ræða. Þó menn taki ávallt þátt i þessum endalausa skrípaleik segja heimildarmenn blaðsins að senn hætti menn að taka þátt í útköllum Almannauarna, verði ekki breyting þarna á.“ Ja hérna, eins gott að flugvél hrapi ekki á næstunni, samkvæmt þessu að dæma... PÓLITÍKIN lýtur sömu lögmál- um hvar sem er á jarðarkringl- unni, eins og sést á meðfylgjandi teikningu úr nýlegu eintaki af breska blaðinu The Daily íBut when do we stop attacklng the AlXlance and start courting lt?^ Telegraph. Þar kankast á kempur úr stjórnmálalífinu og spyr annar hinn : „En hvenær hættum við að berja á Bandalagsmönnum og förum að biðla til þeirra?" .. GRÍNBÆKUR eru vinsælar, bæði í Bretlandi og Banda- ríkjunum, og eru slíkar bók- menntir t.d. mikið iesnar um borð í járnbrautarlestum. Ein slík bók, Mother Murphy’s Second Law, kom út í fyrra. í ritinu er m.a. eftirfarandi fróðleikur fyrir konur, en til þeirra er öllum boðskapnum einmitt beint: Gagnstœða kynið — Ef þú vilt komast að því hvers vegna þeir kallast gagnstæða kynið, skaltu láta í ljós skoðun þína á einhverju máli. Leit að fullkomnun — Ertu að leita að manni, sem er aðlaðandi, skemmtilegur, greindur, sjálfs- öruggur, blíður, kynæsandi, tilfinninganæmur og rómantískur? Farðu þá í bíó! Er hann hommi? Hann er myndarlegur. Hann er greindur. Hann er góðhjartaður. Hann er tilfinninganæmur. Hann kemur vel fyrir. Hann er menningarlegur. Hann er smekklega klæddur. Hann reynir ekki að fá þig upp í rúm á fyrsta stefnumóti. Símsuarasjálfheldan — „Hinum eina sanna" finnst óþægilegt að eiga viðskipti við sjálfsvara og bíður ekki einu sinni eftir tóninum. „Láki lumma" fer hins vegar nákvæmlega eftir fyrir- mælunum og skilur eftir boð um að þú eigir að hringja í hann. Heimur uersnandi fer — Láttu þér ekki bregða þó hjarta- knúsarinn kveiki ekki í SMARTSKOT HEL6ARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR Rífandi gangur Stjórnarmyndun er ekkert angur í umræðunum er rífandi gangur. En getur það verið að gangan stranga gangi eins og forðum hjá svanga Manga? „Það má segja að námsefnisyfirferð og upplestri sé lokið og að ná taki uið munnleg próf." JÓN BALDVIN HANNIBALSSON i VIÐTALI UM ÁFRAMHALD Á STJÓR NARMYNDUNAR- VIÐRÆÐUNUM. Niðri. Hvaðan kemur hugmyndin? Eymundur Matthíasson Hugmyndin kemur frá Sri Chinmoy, sem er aðalhug- myndasmiðurinn á bak við hlaupið. Hann er mjög þekktur og virtur mannúðarsinni, tónlistarmaður og rithöfundur og undanfarin ár hefur hann unnið mjög ötullega fyrir friði með fyrirlestrum, tónleikahaldi og slíku. Hugmyndin á bak við hlaupið er sú að friðurinn byrji með einstaklingnum og það er einmitt það sem þetta hlaup leggur áherslu á. Einnig er verið aö leggja áherslu á að jörðin er eitt heimili mann- kyns þarsem 55 þjóðirtaka þátt í hlaupinu. Öllum er heimil þátttaka og hver og einn er að leggja sitt af mörkum í þágu friðar." — Hvenær var þetta ákveðið? „Þetta var ákveðið á síðasta ári og þá strax tekin ákvörð- un um að ísland yrði með." — En þessi dagsetning, 12. júní. Er einhver sérstök ástæða fyrir að þessi dagur var vaiinn hér á landi? „Við ætluðum að hefja hlaupið hér aðeins seinna en þá kom í Ijós að það var fremur óhentugur tími. Þá var ákveðið að færa daginn framar og það er einnig mjög gott að fyrstu dagana beri upp á helgi. Hlaupið hófst 27. apríl við Frelsis- styttuna í New York. Astralíubúar hafa lokið sínu hlaupi og einnig er því lokið í Japan og Vestur-Afríku." — Hvað eru þetta margir kíiómetrar í allt? „Þetta eru 43.000 kílómetrar og lengsta boðhlaup sem hlaupið hefur verið fram að þessu." — Hvernig skiptist þessi kilómetrafjöldi milli landa? „Ég hef nú ekki tölur um það hvernig þetta skiptist en ég veit að í Bandaríkjunum hlaupa þeir um 17—18.000 kíló- metra og í Ástralíu hlupu þeir 3.500 kílómetra." — En við? „Meiningin er að við hlaupum 3.000 kílómetra. Það er mun meira en hringvegurinn sem er ekki nema um 1.400 kílómetrar." — Og hvar er þá hlaupið hér? „Það er byrjað í Reykjavík, hlaupið út á Suðurnes, inn á Hafnirog suðurtil Grindavíkur. Síðan austurtil Hveragerð- is, Selfoss, Víkur í Mýrdal og Kirkjubæjarklausturs, Sand- ana og austur að Höfn í Hornafirði. Síðan er hlaupið með Austurlandinu, alla firðina og upp til Egilsstaða, Jökulsár- hlíðardalinn, Hellisheiði eystri og þaðan til Vopnafjarðar. Því næst er farið til Þórshafnar og á Melrakkasléttuna, Kelduhverfið, Tjörnes og Húsavík. Síðan eins og leið liggur um Víkurskarðið til Akureyrar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar og fram hjá afleggjaranum til Siglufjarðar. Síðan er hlaupið niður til Sauðárkróks, Blönduóss, niður Húnafjörðinn og svo upp til Hólmavíkur, yfir Steingrímsfjarðarheiði og sem leið liggur til ísafjarðar. Hlaupið niður Vestfirðina, hringleið- ina á Vestfjörðum, Skarðsströndina, Snæfellsnesið og nið- ur í Borgarfjörð, fram hjá Akranesafleggjara og til Reykja- víkur." — Hvernig skiptið þið hópunum? „íþróttafélögin á hverjum stað sjá um að huga að hlaup- inu. Fólk sem er statt úti á landi getur haft samband við okkurogfengiðuppgefna þá tíma sem hlaupið ferfram hjá þeirra stað og það geta allir tekið þátt fram á síðasta dag. Fólk þarf aðeins að gera sér hugmynd um hvað það getur hlaupið mikið." — Hvaöan verður lagt af stað frá Reykjavik? „Það verður lagt upp frá Höfða. Athöfnin hefst klukkan tíu en síðan verður hlaupið fylktu liði úr bænum með kynd- ilinn". — Hvað áttu von á að margir taki þátt í hlaupinu hér á landi? „Ætli það verði ekki milli eitt og tvö þúsund manns, mað- ur slær á það í blindni." — Ætlarðu að hlaupa sjálfur? „Já, já — ég ætla að reyna að hlaupa sem mest." — Hefurðu trú á að svona hlaup beri árangur? „Ég hef trú á því að allt sem er skemmtilegt og ánægju- legt og fær fólk til að vinna saman beri árangur." — Markmiðið? „Að hver og einn leggi fram sinn skerf í þágu friðar og all- ir finni að mannkynið er ein fjölskylda." Á morgun, föstudaginn 12. júni kl. 10.00 hefst hátíöleg athöfn við Höfða. Þá hefst Friðarboðhlaupið á íslandi þegar hópur manna leggur af stað með friðarkyndilinn í 3.000 kílómetra boðhlaup. Eymundur Matthíasson er einn forsvarsmanna hlaupsins hér á landi og við ræddum við hann um tilganginn afl. Við vekjum at- hygli á símanúmerum þeirra sem að hlaupinu standa 689725 og 689726. HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.