Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 12
Gleðilegt SUMAR ° Amarhóll býður sérstaka sumarþjónustu í hádeginu Frá 1. júní til 1. september verður tekin upp sú nýbreytni á Arnarhóli að veitingastaðurinn verður aðeins opinn þeim sem eiga pantað borð í hádeginu. Eitt símtal og öllum dyrum er lokið upp á gátt. Engin bið eftir borðum eða þjónustu og maturinn mælir með sér sjálfur. Á kvöldin verður opið eins og venjulega. ÞFr.AR FITTHVAF) STFMDIIR TII nr. AI I tac f uÁncr.iMii Ragnar Arnalds: Hlutfall ríkistekna og ríkisútgjalda hélst í jafnvægi og reynd- ar hrósaði Albert honum þegar stjóm- arskiptin urðu. Þorsteinn Pálsson: Hann og Albert ætluðu aldeilis að rífa niður báknið með lækkun skatta og samdrætti ríkis- útgjalda... Ríkisfjármálin og ríkisstjórnirnar 1980—1987 ÓBREYTT ÁSTAND Eftir yfirlýsingum stjórnmála- manna til hœgri jafntsem vinstri ad dœma mœtti þaö heita edlilegt ad œtla aö í edli sínu hefdi ordid mikil breyting á ríkisfjármálunum frá ríkisstjórnarárum útlægra sjálf- stœðismanna, Framsóknarflokks og Alþýðubandalags 1980—1983 til þess er hefur verið að gerast hjá ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstœðisflokks 1983—1986. Sér- staklega þegar þess er gœtt að fjár- málaráðuneytinu var í fyrra tilvik- inu stjórnað af „kommúnistan- um" Ragnari Arnalds, en í síðara til- fellinu af frjálshyggjumönnunum Albert Guðmundssyni og Þorsteini Pálssyni. Enda hafa ófáaryfirlýsing- ar borist úr herbúðum hinna síðar- nefndu um lœkkun skatta og lœkk- un ríkisútgjalda um leið. En óum- deildar og opinberar tölur Ríkis- bókhalds sýna að hlutfallslegar tekjur og útgjöld ríkisins hafa hœkk- að hjá Albert og Þorsteini en ekki lœkkað og þegar litið er á innbyrðis vœgi einstakra liða í tekjuöflun rík- isins og útgjöldum sést, að engin meiriháttar eðlisbreyting hefur átt sér stað hjá,,hœgri“ stjórninni, sem nú er að kveðja, miðað við reynsl- una frá „vinstri" stjórninni sem hún leysti af hólmi. í maí-hefti Hagtala mánaðarins sem Seðlabankinn gefur út má sjá yfirlit yfir fjármál ríkisins sem hlut- fall af þjóðarframleiðslu (ÞFL) 1980—1986 ásamt endurskoðuðum fjárlögum fyrir 1987. í samanburði HP er gengið út frá þriggja ára „hreinu" tímabili fyrri stjórn- arinnar 1980—1982, og sömuleiðis þriggja ára ,,hreinu“ tímabili síðari stjórnarinnar, 1984—1986. Hjá Ragnari Arnalds námu tekjur ríkisins að meðaltali 25,7% af ÞFL, en hjá Albert og Þorsteini hækkaði tekjuhlutfallið í 26,5%. Hækkunin nemur 0,8% af ÞFL. Helsta breytingin í innbyrðis vægi tekjuliða felst í því að á móti lækkun á vægi beinna skatta úr 4,1% 1980-1982 í 3,6% 1984-1986 og lækkun vöru- og aðflutningsgjalda úr 6,8% í 5,6% hefur söluskatturinn hækkað úr 9% í 10,1% og vaxtatekj- ur ríkissjóðs hafa hækkað úr 0,3% í um 1%. I raun er nánast eina umtals- verða breytingin sú að ríkissjóður hefur fengið auknar vaxtatekjur upp í lækkun tekju- og eignaskatts. Hjá Ragnari Arnalds námu út- gjöld ríkisins 25,9% af ÞFL 1980—1982 en hjá Albert og Þorsteini hækkaði útgjaldahlutfallið upp í 27,4% af ÞFL eða um 7,5 prósentustig og í endurskoðuðum fjárlögum fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir því að hlutfall þetta fari upp í 28%. Aðeins einu sinni tókst ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar að lækka hlutfall ríkisútgjaldanna af ÞFL, á sínu fyrsta heila ári, 1984. Helsta breytingin í innbyrðis vægi útgjaldaliða er sú, að vægi ýmissa félagsmála hefur aukist og stór- hækkun vaxtagjalda sá dagsins ljós, en á móti kemur minnkun á vægi niðurgreiðslna, sem dugar engan veginn til við að draga úr aukningu ríkisútgjaldanna. Á fyrra tímabilinu námu útgjöld til húsnæðis- og fé- lagsmála að meðaltali 0,9% af ÞFL en á síðara tímabilinu fór hlutfallið í 1,4%. Liðurinn „mennta-, menning- ar- og kirkjumál" hækkaði úr 4,1% í 4,5%. Niðurgreiðsluhlutfallið lækk- aði úr 1,9% í um 1%, en meðaltal flestra liða stóð í stað eða hreyfðist lítið. Þannig má nefna sem dæmi stærsta einstaka liðinn: „Trygginga- mál“. Hlutfallið stóð í stað tímabil- anna á milli, 7,3% af ÞFL. En stærsta breytingin fólst í stighækkandi vaxtagjöldum, hverra hlutfall fór úr 0,6% í 1,8% af ÞFL. Litlarsem engar breytingar áttu sér stað í hlutfalls- legu vægi liða eins og „Almenn stjórn og löggæsla" „Utanríkismál", „Landbúnaðarmál", „Iðnaðar- og orkumál" og „Samgöngumál". Við minntumst á aukið vægi út- gjalda til húsnæðis- og félagsmála. En þá er þess að gæta að eftir að framlag ríkisins til Byggingarsjóðs ríkisins fór úr 0,32% árið 1984 í 0,92% af ÞFL árið 1985 hefur hlut- fall þetta lækkað snarlega aftur og er áætlað í ár 0,58%. Einnig má nefna að framlagið til Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna hækkaði úr 0,55% af ÞFL árið 1984 í 0,85% árið 1985, en í ár er hlutfallið áætlað 0,53%. Þegar endanleg útkoma ríkissjóðs þessi tímabil er skoðuð kemur í ljós að á pappírnum að minnsta kosti sýndi „komminn" Ragnar mun meiri ráðdeild í rekstri ríkisheimilis- ins. Meðaltalshallinn hjá honum nam 0,4% af ÞFL 1980-1982, en fór í 1,3% hjá Albert og Þorsteini 1984—1986 og er áætlaður 2% í ár. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs hefur hækkað frá 0,5% af ÞFL hjá Ragnari í 2% og stefnir nú í 2,8%. Og afborg- anir utan Seðlabanka fóru úr 0,6% í 2,1% og munu haldast svipaðar í ár. Niðurstaðan er sú að ekki hafi orðið nein eðlisbreyting þessara ríkisstjórna á milli, sem eiga að hafa verið svo ólíkar, heldur einungis vart umtalsverð áherslubreyting á vægi tekna og útgjalda ríkisins. Sjálfstæðismenn ætluðu að draga úr útgjöldum og tekjum ríkisins, en við blasir hækkun tekna en þó sérstak- lega hækkun útgjalda með tilheyr- andi stóraukningu tekjuhallans. í raun má þó heita að sú breyting sem mest áberandi er hljóti að teljast hækkun vaxtatekna og vaxtagjalda. Hvert brot úr prósentu táknar millj- ónir, en niðurstaðan er: Status Quo. -FÞG BILEIGENDUR BODDÍHLUTIR! ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI 0.FL. Á FLEST- AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á STAÐNUM. BÍLPLAST Vkgnhöfða 19, timi 688233. PóstMndum. - Ödýrír nurtubotnar. Tökum að okkur trefjaplastvinnu. VWjið istanakt. 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.