Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 36

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 36
■ undahöld standa nú yfir vegna útistandandi skulda gamla Útvegs- bankans. Mun nýi hlutafélagsbank- inn lítt hrifinn af að yfirtaka sumar af skuldunum og verður töluverður fjöldi að öllum líkindum afskrifaður. Eitt ógreitt lán, sem stendur í mönn- um, var upphaflega 5—6 milljónir en er orðið að tæpum 9 milljónum. Skuldin er til komin vegna útflutn- ings á skreið, en þar sem hún var ekki lánshæf, var fiskurinn um- skírður á pappírum og kallaður saltfiskur... | slensk tónlist fer kannski víðar en margan grunar. A.m.k. varð Is- lendingi einum sem búsettur er í Bandaríkjunum hverft við þegar hann var einhverju sinni að hlýða á dagskrá á útvarpsstöð sem nefnist National Public Radio Network. Dagskrá þessi gengur undir nafninu Tónlist frá Evrópu og í henni var m.a. fluttur Sellókonsert eftir Jón Ásgeirsson og flytjendur voru Gunnar Kvaran og Sinfóníu- hljómsveit íslands undir stjórn Arthurs Weisberg ... l síðastatölublaðisögðum viðfrá því að konur á Höfn í Hornafirði hefðu gert klámblöð útlæg úr kaup- félaginu. Nú mun mikið gantast með'það fyrir austan, að uppátækið hafi komið til af því að konurnar á staðnum hafi fundið fyrir minnk- andi athygli karlpeningsins þegar þær lögðust brjóstaberar í sólbað í sundlauginni... Bk| B okkurrar óánægju hefur gætt meðal stúdenta við Háskóla Islands með hvernig hefur verið haldið á málum þeirra varðandi félagsaðstöðu á undanförnum ár- um. Við Hringbrautina stendur helj- armikið hús sem ber heitið Félags- stofnun stúdenta og hefur þar ver- ið eina aðstaða þeirra til þess að halda fundi og uppákomur hvers- konar í gegnum tíðina. Nú hefur hinsvegar brugðið svo við að ákveð- ið hefur verið að taka sal Félags- stofnunar undir Bóksölu stúd- enta sem hafði fyrir löngu sprengt utan af sér húsnæði sitt. Áður hafði Ferðaskrifstofa stúdenta gert slíkt hið sama og var hún þá færð í fundaherbergi sem stúdentar höfðu til afnota og höfðu þeir þá engan stað vísan til smærri funda. Matsala stúdenta var og lögð niður fyrir ein- hverjum misserum og Stúdenta- kjallarinn varð undir í samkeppni við aðra veitingastaði í borginni og er nú einungis opinn fyrir einka- samkvæmi. Til þess að tryggja þó stúdentaráði fundaaðstöðu hefur verið tekinn salur af íbúum á Gamla Garði og láta þeir sér nægja að sitja frammi á gangi á komandi misser- um við sjónvarpsgláp og annað samneyti. Listastarfsemi innan Há- skólans hefur einnig við þessa stækkun bóksölunnar misst spón úr aski sínum; Háskólakórinn hefur hrakist á braut með æfingar og tón- leika og Stúdentaleikhúsið lagði upp laupana eftir kraftmikla starf- semi fyrir nokkrum árum. Öll þessi vandræði Félagsstofnunar telja menn þó aðeins vera einn anga af stærra máli, nefnilega húsnæðis- vanda skólans alls sem er löngu orð- inn honum fjötur um fót. . . ■ ató-fundurinn margum- ræddi byrjar hér í Reykjavík í dag eins og allir vita. Það vita líka allir að vinstri menn og reyndar fleiri hafa ekki verið alltof ánægðir með veru Islands í þessu hernaðar- bandalagi. Nú bregður hinsvegar svo við að einhverjir sósíalistar virðast vera að linast í afstöðunni því forsvarsmenn Gallerís Borgar, Gísli B. Björnsson, Úlfar Þor- móðsson o.fl., sem eru rótgrónir sósíalistar, hafa sett upp málverka- sýningu á Hótel Sögu, þar sem hinir háu herrar hafa aðsetur. Ekki mun öllum myndlistarmönnum úr róttækari arminum líka þetta og hafa einhverjir þeirra látið verða af því að ganga á fund þeirra Gísla og taka öll sín verk úr umboðssölu gall- erísins.. . y ■ ú er verið að klæða tvö hús á vegum ríkisins, Víðishúsið og nýja útvarpshúsið, og er því um mikla fleti að ræða. Klæðningin er innflutt og kostar litlar 2.700 krón- ur fermetrinn. Mjög svipuð ál- klæðning, sem talin er gera ná- kvæmlega sama gagn, fæst hins vegar hjá innlendu fyrirtæki á 700 krónur.. . Þ eir þingmenn, sem misstu þingsæti sín í kosningunum í apríl, eru nú farnir að huga að öðrum áhuga- og atvinnumálum. Kristín S. Kvaran var blaðafulltrúi hjá Krabbameinsfélaginu vegna hins svokallaða reyklausa dags í vor og tók einnig virkan þátt í kosninga- baráttunni í Valhöll. I augnablikinu er hún heimavinnandi húsmóðir, en með ákveðin járn í eldinum. Fyrr- um flokkssystir hennar, Kolbrún Jónsdóttir, hefur hins vegar fest kaup á versluninni Skotinu við Laugaveginn. Fyrir viku sögðum við frá nýrri stöðu Stefáns Bene- diktssonar við menntamálaráðu- neytið og Guðmundur Einarsson veitir nú kratakontórnum forstöðu. Það hefur ekki farið jafnhátt, að Guðmundi stóð til boða frétta- mannsstaða sú á Stöð 2, sem losn- aði þegar Ólafur E. Friðriksson sagði upp störfum á dögunum... s ^^^stjórnmálaflokkarnir hafa í ríkisstjórnarviðræðunum skipað nokkra starfshópa til að vinna að ákveðnum málum. Einn slíkur ræddi landbúnaðarstefnu. Athygli vakti að Alþýðuflokkurinn sendi Birgi Dýrfjörð sem fulltrúa sinn í starfshóp þennan. Nokkrir þing- menn Alþýðuflokksins töldu sig réttborna í nefnd um landbúnaðar- mál og mótmæltu því skipan Birgis formlega og óformlega. Meðal þeirra óánægðu eru Árni Gunn- arsson og Eiður Guðnason, báðir sitjandi á þingi fyrir stór landbún- aðarhéruð. . . ÁHYGGJUNUM taktu Ferðatryggingu Almennra... Það er vissulega nauðsyn að undirbúa sig vel fyrir ferðalagið. En er ekki ráð að gera það á sem einfaldastan hátt? Þú færð þér Ferðatrygginguna frá Almennum - og léttir af þér áhyggjunum! Ferðatrygging Almennra er hagkvæm og víðtæk heildarlausn fyrir þig og þína. Hún er ferðaslysa-, sjúkra-, ferðarofs- og farangurs- trygging og veitir aðgang að SOS neyðarþjónustunni, sem eykur enn frekar á öryggið. og njóttu ferðaiinnar! /Kttmtft? TRYGGINGAR Síðumúla 39 / Sími 82800 < n i < 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.