Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 18
eftir Garðar Sverrisson mynd: Jim Smart NÝGERÐ BLAÐAMANNAFUNDA RYÐUR SÉR TIL RÚMS. YFIRHEYRT í BEINNI ÚTSENDINGU. FRAMKOMA í SJÓN- VARPI SÍFELLT MIKILVÆGARI. ÍMYND STJÓRNMÁLAMANNSINS í BRENNI- DEPLI. HVERT LIGGUR LEIÐIN? Við erum stödd í einu þingflokksherbergja Alþingis. Eftir örstutta stund ætlar formaður flokksins að tjá sig um það málefni sem heitast brennur á þjóðinni þessa stundina. Blaða- og fréttamenn, vopnaðir pennum og hljóðnemum, hafa komið sér fyrir og gert klárt. Það er spenna í loftinu. Allt í einu birtist formaðurinn valds- mannslegur í fasi. Fréttamenn kveikja á segulböndum og ljósmyndarar hefja skothríð. Sjónvarpsvélar eru settar í gang og sterkir ljóskastarar lýsa upp sviðið. Skyndilega erum við í beinni útsendingu. „Þetta er bara eins og hjá Gary Hart, svei mér þá,“ heyrist einhver viðstaddra, sennilega af Tímanum, muldra lágum hljóðum. Já, það fer víst ekki framhjá nein- um að það er stæll á þeim blaða- mannafundum sem forystumenn flokkanna hafa haldið á þessu vori. Að öllu yfirbragði svipar þeim mjög til þeirra funda sem stjórnmála- menn úti í hinum stóra heimi halda með fréttamönnum, funda sem oft verða mjög dramatískir. Þetta eru fundir hraða og spennu þar sem raddblær og svipbrigði segja oft meira en töluð orð, viljandi eða óviljandi, hvort sem svarendum lík- ar betur eða verr. Sá sem boðar til þessara funda ræður oft ákaflega litlu um þróun þeirra. Það sem í fljótu bragði virðist smáatriði getur orðið stórmál áður en yfir lýkur. ÞORSTEINN GAF TÓNINN Blaðamannafundir af þessu tagi hefja innreið sína hér mjög snögg- lega, svo snögglega að jafnvel má benda á einn tiltekinn fund sem einskonar upphafsfund í þessari þróun. Hér er átt við blaðamanna- fundinn sem Þorsteinn Pálsson fann sig knúinn til að halda eftir að Helg- arpósturinn birti upplýsingarnar um skattamál Alberts Guðmunds- sonar og þau vandræði sem þau voru farin að valda í innsta hring Sjálfstæðisflokksins. Upp frá þessu hafa landsmenn orðið vitni að hverjum fundinum á fætur öðrum, ýmist undirbúnum eða óundirbún- um undir húsvegg einhvers fundar- staðarins. Við heyrum og sjáum hóp fréttamanna beina hljóðnemum sín- um að forsvarsmönnum flokkanna og þýfga þá um þjóðmálin. En svo óvanir eru þeir þessum atgangi að stundum virðast þeir hálfvandræða- legir með alla þessa hljóðnema fyrir vitum sér — minna helst á harmón- ikkuieikara ofan úr sveit sem í fyrsta sinn fær að spila á stórt pípuorgel. En hvernig stendur á þessum breytingum einmitt nú? Til að svara þessari spurningu er rétt að skoða fyrst hvaða háttur var áður hafður á þessum formlegu samskiptum stjórnmálamanna og fjölmiðla. ÓHJÁKVÆMILEG BREYTING Þegar til blaðamannafundar var boðað var reglan sú að í honum tóku einungis þátt fulltrúar blað- anna og fundarboðandi. Fulltrúar ríkisútvarpsins og sjónvarpsins sátu fundinn aðeins sem áheyrendur. Að honum loknum fengu þeir síðan hvorir sitt einkaviðtalið við þann sem áður hafði setið fyrir svörum á hinum eiginlega blaðamannafundi. Þetta fyrirkomulag var auðvitað mjög í þágu þessara ljósvakamiðla sem alltaf fengu blaðamannafund- inn í forgjöf og gátu því spurt með hliðsjón af honum. Og vitaskuld náðust oft fram meiri upplýsingar á þessum „framhaldsfundum", að ekki sé nú talað um upplýstari og spekingslegri framgöngu spyrj- enda. Með tilkomu Bylgjunnar og Stöðvar tvö standa menn allt í einu frammi fyrir því að þetta fyrirkomu- lag er orðið of þungt í vöfum og tímafrekt, þ.e. að halda fyrst fund með blöðunum og fara síðan í einkaviðtöl við sjónvarpið, útvarpið, Bylgjuna og Stöð tvö. Hinn stóri opni blaðamannafundur var ein- faldlega óhjákvæmilegur. Gamla háttalagið var gengið sér til húðar. Aðstæðurnar kröfðust breytinga. Gagnvart fjölmiðlum er ljóst að hinn nýi blaðamannafundur hefur stuðlað að auknu jafnrétti. En hvað meira? Hefur hann einhver önnur áhrif? Sennilega er of skammt um liðið til að svara þessu af nokkru viti. í þessu sambandi er þó vert að skoða nokkur atriði. AÐ „GERA SIG#' I SJÓNVARPI Þegar farið er að sjónvarpa og jafnvel senda út beint blaðamanna- fundi með helstu valdamönnum þjóðarinnar er líklegt að slíkir fund- ir nái til og veki áhuga fleira fólks en áður, þó ekki væri nema fyrir það kappleiksyfirbragð sem oft ein- kennir þessa fundi. Og verði þetta mjög vinsælt dagskrárefni er líklegt að með tíð og tíma verði það til þess að auka áhuga okkar á stjórnmálun- um sjálfum, á viðfangsefninu ekki síður en umgjörðinni. Gagnvart stjórnmálamönnum er hinn nýi blaðamannafundur fyrst og fremst framhald á þeirri gagnrýnu umfjöllun sem þeir hafa mátt búa við á undangengnum árum. Með þessum breytingum skiptir fram- koma í sjónvarpi sífellt meira máli. Sú staðreynd að sjónvarpið á misvel við menn verður augljósari með hinum nýja blaðamannafundi. Það er ekki öllurn gefið að sitja fyrir í slíkum sjónvarpsyfirheyrslum. Sú nálægð sem þar skapast kemur ein- um vel og öðrum illa, burtséð frá greind og góðum vilja. Spyrja má hvort maður eins og Ronald Reagan hefði nokkurntíma orðið forseti Bandaríkjanna ef sjón- varpsins hefði ekki notið við. Hvað þekkingu og dugnað snertir þolir hann engan samanburð við forvera sína í embætti, en í sjónvarpi er hann á heimavelli. A það pípuorgel hefur enginn forseti leikið af meiri snilld þar vestra, jafnvel ekki Kennedy — fyrsti sjónvarpsforset- inn. BINDISLEYSI OG BERIR FÆTUR Á síðari árum hefur það farið vax- andi að menn velti vöngum yfir því hvernig hinn og þessi „kemur út“ í sjónvarpi. Óhjákvæmilegur fylgi- fiskur þessarar umræðu eru svo vangaveltur um klæðaburð og hár- tísku. Er það sterkt hjá Jóni Baldvin að vera bindislaus? Á Þorsteinn að safna hártoppi eins og Steingrímur? Er Svavar of úfinn? Gæti Albert lát- ið sjá sig berfættan eins og Kristín Halldórsdóttir? Þegar spurningar sem þessar ■ verða alvöru viðfangsefni er hætt við því að stjórnmálamennirnir sjálfir fari í auknum mæli að hugsa um „ímynd" sína. Og satt best að segja sjáum við þess þegar merki að útlit, fas og framkoma eru á góðri leið með að verða að sérstökum málaflokki í hugum landsfeðranna. Enn sem komið er eru þetta ekki mál sem menn setja í fjölmennar undirnefndir en þess heldur koma þau til kasta vina og vandamanna. í þessum efnum er eitt það versta sem fyrir getur komið þegar stjórnmálamaður „finnur ekki“ sjálfan sig og fer að hringla með þá ímynd sem hann vill gefa af sér. í útlöndum er þetta kallað sjálfsmyndarkreppa. Hún lýsir sér til dæmis í því að einn daginn eru menn ungir og ákveðnir ofurhugar, en næsta dag rísa þeir svo úr rekkju sem rosknir og ráðsettir landsfeður. GETUR PÁLL HUGSAÐ SÉR JÓN? I því umróti sem nú á sér stað stendur fjölmiðlafólk frammi fyrir INNRÖMMUN ALHLIÐA INNRÖMMUN, SMELLURAMMAR, TILB. ÁLRAMMAR NÆG LAUGARDAGA TIL KL. 16.00 BÍLASTÆÐI 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.