Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjóri: Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúar: Helgi Már Arthursson Sigmundur Ernir Rúnarsson. Blaðamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Gunnar Smári Egilsson, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánssori Áslaug Ásgeirsdóttir, Sigríður H. Gunnarsdóttir, Garðar Sverrisson, Ljósmyndir: Jim Smart. Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson Prófarkir: Sigríður H. Gunnarsdóttir. Ljósmyndir: Jim Smart Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson. Auglýsingar: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471), Guðrún Geirsdóttir. Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir. Sendingar: Ástríður Helga. Ritstjóm og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavfk sími 681511. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36, sími 681511. Útgefandi: Goðgá h/f Setning og umbrot: Leturval s/f. Prentun: Blaðaprent h/f. LEIÐARI Gerir margt smátt eitt stórt? Sú skoðun hefur verið sett fram á þessum vettvangi, að efnahagsmál hafi komið óorði á íslenska pólitík. Stjórnmálamenn leggi í starfi sinu ofurkapp á efnahagsmál og missi oft sjónar á því hlutverki sínu, að festa í lög þaer almennu samskiptareglur, sem þjóðin er sammála um að gilda skuli. Ýmis teikn eru á lofti um að þeir flokkar sem nú ræða um ríkis- stjórn hafi meiri áhuga á efnahagsmálum en pólitík. Síðustu vikur hafa menn farið yfir stöðuna í efnahagsmálum. Fyrst í Rúgbrauðsgerð- inni. Nú í höfuðstöðvum Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar, eða í sjávarútvegsráðuneyt- inu. Fyrst undirforystu Sjálfstæðisflokks. Nú undir forystu Alþýðuflokks. En þrátt fyrir langar fundarsetur og „rífandi gang" virðist lítt miða í viðræðunum. Stjórnmálamenn eru enn að fara yfir tæknilegar upplýsingar um ástand efnahagsmála, sem áttu að liggja fyrir í upphafi kosningabaráttu. Og þrátt fyrir tíða fréttamannafundi, og mikla vinnu, virðast menn ekki hafa neitt það í höndunum, sem flytur þá af tæknistiginu og yfir í pólitíkina. Menn tala um að nauðsynlegt sé að rétta ríkissjóð af. Hallinn sé of mikill. Það þýðir að ríkissjóður þarf meiri tekjur. Það þarf að hækka skatta, eða lækka útgjöld ríkisins. Sömu menn vita hve halli ríkissjóðs er mikill og hvar hugsanlega mætti skera niður út- gjöld. Kannski lágu upplýsingarnar fyrir í apríl. Það sem skortir er ákvörðun. Ákvörðun um það hvort flokkarnir þrír ætla að mynda þessa ríkisstjórn, eða ekki. Eða halda menn, að lausnirnar sem verið er að ræða nú, fyrir- fram, yrðu aðrar eftir að ríkisstjórn verður til. Þrátt fyrirfréttamannafundi hefur það ekki verið rætt ákaft opinberlega, að flokkarnir horfa fremur til aukinnar tekjuöflunar ríkis- sjóðs en útgjaldalækkunar. I stað þess að lækka söluskatt, eða taka upp nýtt fyrir- komulag neysluskattlagningar, eru menn að tala um að víkka söluskattskerfið. Menn ræða stóreignaskatt og aukið framlag rikisins til byggingarsjóðanna. Menn eru ekki, t.d., að tala um grundvallarbreytingar á húsnæðis- kerfinu með því að leggja Húsnæðisstofnun niður í núverandi mynd og setja almennu lánin inn í bankakerfið, eða tryggja með öðr- um hætti að lánakerfið standist eftirspurn. Menn eru að tala um smáskatta hér og þar. Skattleggja krítarkortaviðskipti, afborgunar- viðskipti og jafnvel happdrætti á borð við Lottó 5/32. Fyrir svo utan það, að menn vilja koma trillukörlum landsins undir kvótakerfið í sjávarútvegi. Ýmislegt bendir til þess, að þeir sem sjóað- astir eru í hagfræði aðhyllist kenninguna um, að margt smátt geri eitt stórt í skattamálum, og að einmitt sú kenning ráði ferðinni í stjórn- armyndunarviðræðunum. Og hvort svo sem flokkarnir þrír mynda ríkisstjórn, eða ekki, virðast þeir allir sammála um að kenningin um hið smáa og stóra sé góð kenning. Öðru- vísi verða stjórnarmyndunarviðræður nú ekki túlkaðar. Sjálfstæðisflokkur hét kjósendum því, fyrir kosningar, að flokkurinn myndi tryggja áframhaldandi stöðugleika í efnahagslífinu eftir kosningar. Framsóknarflokkur hét áframhaldandi traustri forystu Steingríms Hermannssonar. Og Alþýðuflokkur spurði, m.a., hverjir ættu ísland, ætlaði að gefa fram- sókn frí og gera miklar breytingar. Nú standa mál þannig, að óstöðugleika gætir í efna- hagslífinu og verðbólga fer vaxandi. Nær úti- lokað verður að telja, að Steingrímur Her- mannsson verði áfram forsætisráðherra og þrátt fyrir yfirlýsingar Alþýðuflokks er ekki útlit fyrir eigendaskipti á íslandinu, að fram- sókn verði gefið frí, eða að gerðar verði mikl- ar breytingar í þjóðfélaginu. Kannski vegna þess að menn hafa gert pólitíkina að efna- hagsmálum. Eða vegna þess að menn hugsa um of í ríkisfjármálum. Kannski kenningin um að margt smátt geri eitt stórt eigi ekki við í pólitík. Ríkisstjórn sem mynduð verður á grundvelli aukinnar skattheimtu og miðstýr- ingar er ekki óskastjórn. FAGME NNIRNIR VERSLA HJÁOKKUR Því reynslan sannar að hjá okkur er yfirleitt til mesta úrval af vörum til hita- og vatnslagna. BURSTAFELL byggingarvöruverslun Bíldshöfða 14 Sími 38840 yrir skömmu greindum við frá því á þessum vettvangi að illa gengi hjá Svörtu og hvítu að safna í Gulu bókina, arftaka Borgarskrárinnar. Þetta reyndist vera á misskilningi byggt, því á þeim tíma voru aðstand- endur bókarinnar einfaldlega ekki byrjaðir að safna! Söfnun fyrirtækja og auglýsinga í bókina, sem kemur út í haust, hófst hins vegar fyrir um viku og gengur mjög vel. Gula bók- in verður öllu veglegri en Borgar- skráin, í hana eiga öll fyrirtæki að fara og verður hún gefin út í um 110 þúsund eintökum, sem síðan verður dreift af Pósti og síma á öll heimili landsins. Auk þess á að gefa út 10 þúsund eintök af bókinni á ensku enda stefnt að því að hún geti orðið alþjóðleg viðskiptabók fyrir ísland. Þess má geta að grunngjald fyrir- tækja er 5.500 krónur en síðan geta þau keypt ýmiss konar aukaskrán- ingar. Eitthvað er um að fyrirtæki neiti að vera með, en þeirra verður þó getið svo allir viti að þau eru til á annað borð. Má geta þess að slökkviliðið í Reykjavík hefur pant- að 15 stykki í bílana sína, því það er álit manna þar að ekki sé völ á betra korti yfir höfuðborgarsvæðið. .. Ö rlítið meira um Ástralann sem er að hjóla í kringum heiminn og við sögðum frá í síðasta blaði. Honum hafði tekist að hjóla í gegn- um einhver fátækustu lönd í heimi og Evrópu, án þess að vera nokkru sinni rændur eða einhverju frá hon- um stolið. Svo kom hann til íslands þar sem hann bjó hjá frænda sínum hér í Reykjavík. Hann geymdi hjólið sitt í hjólageymslu hússins og á það var fest svefndýna. En hún fékk ekki að vera þar í friði því einhver fingralangur stal henni eina nótt- ina... A| ■ ýjasta auglýsingin frá ACT- skóm hefur vakið mikla og verð- skuldaða athygli. Auglýsingin er tekin á nýju flugstöðinni og sýnir komu flugvélar og nýju skónna. Meðal þeirra sem unnu að gerð aug- lýsingarinnar var Vilhjálmur Ragnarsson hjá Hrif en hann er einnig einn þeirra sem gerðu sjón- varpsþættina um Island fyrir þýska sjónvarpið. Vilhjálmur er um þessar mundir í Þýskaíandi þar sem hann vinnur að þáttagerð fyrir þýska sjónvarpsstöð. Svo er sagt að ís- lenskir kvikmyndagerðarmenn standi kollegum sínum erlendis að baki... Athugasemd Kæru Helgarpóstsmenn! Þið skrifið óvenju rætna smá- klausu í blað ykkar í dag, 4. júní 1987, um það, er ég er að reyna að verja rétt minn gegn kerfinu í sam- bandi við stöðuveitingar í Háskóla Islands. Það kemur áreiðanlega ekki mér einum á óvart, að þið skul- ið með þessu taka afstöðu með kerf- inu. En því skrifa ég ykkur, að þið farið þar rangt með. Þið segið, að ég hafi lokið doktorsprófi frá Oxford- háskóla í pólitískri heimspeki frá heimspekideild skólans. Hið rétta er, að doktorspróf mitt var í stjórn- málafræði (e. Politics) frá félagsvís- indadeild (e. Faculty of Social Studi- es) Oxford-háskóla. Hannes Hólmsteinn Gissurarson LAUSNIR Á SKÁKÞRAUTUM 57 Tuxen 1 Be2 hótar Dd3 mát. 1 - Hd4 2 Rxg2 mát 1 - Be4 2 Da7 mát 1 - Rf4 2 Bc5 mát 1 - He4 2 Rf5 mát 58 Tuxen 1 a7 Kxb5 2 a$R Kc6 3 Dd5 mát 1 - Bxb5 2 a8D+ Kz7 3 Ddd8 mát 1 - Kb7 2 a8D+ Kxa8 3 Da7 mát Harry Viggo Tuxen (1898—1968) var einn af fremstu skákdæmahöf- undum Dana á þessari öld og vann margsinnis til verðlauna, m.a. er fyrra dæmið hér verðlaunadæmi. Hann var efnaverkfræðingur að mennt og vann um skeið á Jövu. Hann vann mikið að félagsmálum danskra skákmanna, var lengi for- maður skákdæmaklúbbsins danska og forseti danska skák- sambandsins var hann einnig um það leyti sem Bent Larsen vann sér stórmeistaranafnbót. 10 HELGARPOSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.