Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 28
eftir Sigríði H. Gunnarsdóttur SVEITA6AUAM0RAU. 06 FYUERI Þaö eru ekki nema svo sem fimm ár síöan Bara-flokkurinn frá Akureyri var ein vinsœlasta hljómsveit á fslandi. Og ekki aöeins ein sá vinsœlasta heldur voru drengirnir þrœlgóöir. Þess vegna var þaö meira en lítiö einkennilegt þegar sveitin lagði upp laupana og hœtti á hátindi frægöarinnar. Ásgeir Jónsson, sem var söngvari Bara-flokksins en stýrir ná tækjum í hljóöveri, var spuröur um afdrif sveitarinnar. „Það var ekkert undarlegt við það, okkur fannst við bara vera bún- ir að gera nóg. Við vorum orðnir hundleiðir hver á öðrum og fannst við þröngsýnir, það var líka orðin kvöð að mæta á æfingar. Það verður að athuga það að við vorum búnir að spila saman i mörg ár svo það var kannski komið að því að við hætt- um. Sjálfur var ég farinn að stefna inn í stúdíóin. Maður kynntist þessu svona í gegnum plötuupptökur og lærði talsvert af því. Bæði var að þetta heillaði mig í sjálfu sér, öll tæknin og möguleikarnir, og svo líka það að alltaf voru einhverjir aðrir að hræra í tökkunum — maður var ekki alveg sáttur við það. Ég var búinn að fá nóg af því að vera í sam- starfi við fólk sem mér fannst flest- allt stoppa mig af: maður fékk kannski góða hugmynd, en ein- hverjum öðrum leist ekkert á hana og þar með búið mál. — Og í sam- bandi við tónleikahald og þess hátt- ar þá var þetta alltaf sama tuðið. Það komu oftast fáir, svona hundrað manns kannski, og maður rétt gat borgað bílinn sem flutti græjurnar á milli. Það var lítill glans yfir þessu.“ Bara-flokkurinn var stofnaður 1975. „Við vorum þjóðlagaband, vorum níu í allt — og enginn okkar átti rafmagnsgítar. Okkur fannst óþolandi að ekkert var að gerast í músík, engin nýsköpun, bará „kóp- eringarbönd", eins og Pétur Krist- jánsson og kompaní o.fl.“ Hvernig var stemmningin hjá ak- ureyrskum á pönkárunum? „Æðisleg — og þó kannski einna síst hér á Akureyri. Það er nefnilega þannig með staði eins og Akureyri, að það er svo smáborgaralegur hugsanagangur ríkjandi að enginn má gera neitt öðruvísi eða skemmti- legt. Það er rakkað niður. En þetta er náttúrulega gamalt fyrirbæri úr mannkyrtssögunni." Hverjir halda uppi merkinu núna? „Við í Bara-flokknum vorum mikl- ir uppreisnarseggir. Mér finnst þetta að mestu leyti komið í sama farið aftur — sveitaballamórall og fyllerí — kannski þó með öðrum formerkj- um en var. Menn eru allavega að semja sjálfir, sem er vissulega gott. Við strákarnir gátum náttúrulega ekkert þegar við byrjuðum, en það kom; við unnum sleitulaust og lögð- um mikinn metnað í þetta. Ég held jafnvel að aldrei hafi hljómsveit á ís- landi æft jafnmikið og við gerðum.“ Þad var talað um það á sínum tíma að þið væruð ekki nœrri eins vinsœlir á Akureyri og fyrir sunnan. Er þar enn að sannast gamla sagan um að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi? „Já, það gæti verið. Hins vegar fannst mér við ná til fólksins hér á Akureyri þegar það loksins fór að taka okkur alvarlega. Það var eins og við hefðum „peppandi" áhrif; við sköpuðum grundvöll fyrir ungt fólk að draga sig úr skugganum og gera eitthvað. Mér fannst það a.m.k. sjálf- um. — Hljómsveitir eins og Skrið- jöklar, eða Hálfsjö eins og hún hét til að byrja með, og auðvitað margar fleiri spruttu upp um allt. Já, það var gaman að þessu. Mér fannst við besta band á íslandi, ætli það hafi ekki verið það sem rak mig áfram." Núna siturðu hinum megin við hljóðnemann. Er ekkert erfitt að vera þar og leyfa öðrum að njóta sín? „Nei, það er yndislegt. Áhuginn á að koma fram er búinn í bili. Ég er alltaf að leika mér, skapa eitthvað, og það á kaupi! Annars hef ég nýtt tímann og stúderað heilmikið. Ég hef alitaf haft áhuga á tilrauna- mennsku í músík, ekki bara setjast niður með gítar og spila lag í G, — gera eitthvað öðruvísi. Þróunin sem hefur orðið í þessum málum undan- farin ár er ótrúleg; nýjar leiðir hafa skapast. Áður voru það bara bassi, trommur og gítar, en nú er þetta heill heimur sem fólk stendur agn- dofa frammi fyrir.“ — Hefurðu starfað annars staðar en í stúdíói, við kvikmyndir t.d.? „Já, ég vann töluvert við Stuð- mannamyndina Hvíta máva og svo vann ég við Líf til einhvers, sjón- varpsleikritið, sem hneykslaði alla á nýárskvöld, þó ekki kæmist ég á kreditlistann. En hvað um það.“ Svo ég spyrji að lokum, eins og ts- lenskumaðurinn í útvarpinu, en þú sjálfur? „Ég er annað slagið að taka upp efni eftir sjálfan mig. Það er aldrei að vita nema plata komi út með haustinu; ég bóki svona einn og hálfan mánuð í stúdíóinu og geri eitthvað. Það yrði þá breiður flötur — ekki neinn heildarsvipur heldur blanda, djass, klassík, nútímatónlist — sem sagt á breiðum grundvelli. Við Tómas Tómasson erum í þessu stússi saman og fáum til liðs við okkur menn eins og gítarleikar- ana Þorstein Magnússon og Kristján EdeJstein og trommarana Ásgeir Óskarsson og Sigfús Óttarsson úr Bara-flokknum sáluga. Alveg ein- vala lið. Það eru bara svo margir sem mig langar að spila með...“ 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.