Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 22
GÖTULEIKSÝNING mun lífga upp á bæjarbraginn í göngu- götunni á Akureyri annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 22 — reyndar mun atið hefjast í kirkjutröppunum 114 við Akureyrarkirkju og í stillöns- um sem nú eru utan um bygginguna og berast síðan í göngugötuna. Nán- ar tiltekið erum við að tala um upp- gjörið á sérstöku leiklistarnám- skeiði sem þessa dagana stendur yf- ir fyrir norðan. 4 kennarar og 13 ungir leikarar eru í heimsókn frá leiklistarmiðstöðinni í Lingen, V-Þýskalandi, og æfa með leikhópn- um Sögu frá Akureyri og öðrum ungum leikurum frá ísafirði, Ólafs- firði og Keflavík. Að sögn Sigrúnar Valbergsdóttur leikstjóra mun götu- leiksýningin byggja á Grímmsævin- týrinu „Karlsson, Lítill, Trítill og fuglarnir“. Leikurunum var skipt upp í þrjá hópa, einn sér um grímur og búninga, annar um tónlistina og hinn þriðji um að semja hreyfing- arnar. Næsta sumar stendur síðan til að hinum íslensku þátttakendum verði boðið til Lingen í eitthvað svipað ævintýri. Sigrún segir að bú- ið sé að semja við Vedurguðina um blíðviðri á föstudagskvöldið og er þá bara að vona að þeir standi við sitt. TONUST eftir Sigurð Þór Guðjónsson Kristinn Sigmundsson Inga Rós Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson leika á selló og orgel í Hallgríms- kirkju. Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju THE Flying Pickets skemmtu hér á landi í tvígang eins og mönnum er vafalítið kunnugt, mánudaginn 8. og þriðjudaginn 9. júní. Fremur var fámennt á tónleikum sveitarinnar, 2—300 manns á hvorum tónleikum. Þeir sem ekki fóru geta hinsvegar, að sögn þeirra sem viðburðinn sóttu, nagað sig í handarbökin, því tónleikar þessa breska söngflokks voru frábærlega góðir svo ekki sé meira sagt. Ekki einasta eru þeir fé- lagar frábærir söngvarar heldur hafa þeir líka leikhæfileika í meira lagi, fjórir þeirra reyndar menntaðir leikarar, og fóru þeir á kostum jafnt í leik sem söng. * BRUÐUbíllinn verður rósóttur í sumar, svo að litirnir stinga í augun. Þetta merkilega menningarframtak Sigríðar Hannesdóttur og Helgu Steffensen hefur varað á annan ára- tug og er nú eins og borgarstjórinn sjálfur komið á nýja drossíu. Reynd- ar voru það borgaryfirvöld sem fengu listfirmanu nýjan bíl og teg- undin ku vera Benz. Hann ekur milli 30 leikvalla næstu tvo mánuði, ríflega rósóttur að beiðni Sjónuarps- ins, sem ætlar að myndataka hann og inntakið fyrir barnatíma sína á næsta vetri... KRISTJÁN Kristjánsson opnar á sunnudaginn, 13. júní, sýningu í Asmundarsal og eru á sýningunni málverk, unnin með acryl-litum, og collachrome (graf-klipp) myndir sem er nýlunda hér. Alls eru verkin 19 að tölu og eru unnin á árunum 1981t87. Flest verkin eiga það sam- eiginlegt að vera sótt í djúp meðvit- undar og drauma. Þetta er fimmta einkasýning Kristjáns, en hann nam bæði hér heima og við Listaháskól- ann í Stokkhólmi. Góður söngvari er ekki sá er syngur nóturnar tæknilega vel. Hann hefur auðvitað fullt vald á þeim hliðum listarinnar. En það kemur ekki list við fremur en afl- raunir eða fimleikar. Góður söngv- ari er hins vegar gæddur músík- alskri greind og góðum almenn- um gáfum er fela í sér skilning á hvers kyns aðstæðum í lífinu og innsæi í mannlegt sálarlíf. Hann er mannþekkjari. Jafnframt er hann vel upplýstur yfirleitt og þó eink- um í menningarsögu. Það syngur t.d. enginn meistaraverk ljóðatón- listarinnar af nokkru viti nema hann hafi næma tilfinningu fyrir þeim menningarhætti og aldarfari sem þau eru upp úr sprottin. Óhjá- kvæmilega hefur góður söngvari þannig fínan skilning á bókmennt- um og sér í lagi ljóðlist. Þetta eru nokkur aimenn atriði sem mikill söngvari hefur á hreinu. En fyrst og fremst er hann skáld í skynjun sinni og upplifun á heiminum og getur miðlað þeim skáldskap í söngnum. Fyrirbrigðið góður söngvari er því býsna flókið og samsett. Þess vegna er ekki að undra þó þeir séu fáir, ekki síst ljóðasöngvararnir, er höfða til næmustu eiginleika og fíngerð- ustu kennda sálarinnar. En nokkr- ir söngvarar eru svo fjölhæfir að þeir eru jafnvígir á allan söng. Og við íslendingar eigum einn slíkan afbragðs listamann. Það er Krist- inn Sigmundsson. Hann syngur allt álíka vel; óperur, Ijóð, óratórí- ur og hvaðeina. Sunnudaginn 24. hver óperustjáninn hefði verið að þenja sig. Það er ekki áhugi á list- inni sem veldur. Það er ekki áhugi á hinu djúpa og mikla í listinni sem veldur. Það er dýrkun á yfirborðs- mennsku, flautum og glamúr. Það er ekki breitt bilið á milli óperu- stjána og jónpáls. Þeir eru sömu ættar. Munurinn er þó sá að jón- páll er sá alklárasti í heiminum í sinni grein en stjáni greyið getur ekkert nema grobbað sig. Hann er nú almennt talinn einn af þremur mestu gleiðgosum sem syngja í veröldinni. Hinir tveir eru monsjör Montinrass, tenore í selóperunni í Liechtenstein í Alpa- fjöllum, og svo sá ótrúlegi herra Beljaki, súbkontrabassi í klaka- óperunni heimsfrægu í Vorkúta. Því miður er sú borg þannig stað- sett á hnettinum að nú í 17 ár hafa engir siðaðir menn komist þangað fyrir hafís og fannkyngi til að berja hinn magnþrungna Beljaka aug- um, en hann segist vera 200 ára og hafa sungið bæði fyrir Wagner og Verdi. Hér er ekki rúm né tími til að efast um það, en vonandi gefst bráðlega tækifæri til að ræða þetta áhugaverða mál af einhverju almennilegu viti. Kristinn Sigmundsson er nú á förum til útlanda til að keppa fyrir íslands hönd í alþjóðlegri söng- keppni. Eg veit að hann verður sjálfum sér, listinni og þjóðinni til sóma. Ekki með gaspri og gambri, heldur með tónlist sem þarf engin orð til að birta sannleikann. Sigurður Þór Guðjónssort Húsið spilar með segir Hörður Áskelsson stjórnandi og organleikari kirkjunnar og er hinn ánægdasti með hátíðina hingað tií — utan hvað fella þurfti niður leikritið um Kaj Munk Þessa dagana stendur yfir í Hall- grímskirkju vegleg kirkjulistahátíð. Setningin fór fram sl. laugardag með flutningi Jesú-passíu eftir Osk- ar Gottlieb Blarr og komu þar fram ýmsir góðir erlendir og innlendir gestir, kór Neanderkirkjunnar í Dusseldorf, Skólakór Kársness og Sinfóníuhljómsveit íslands, en stjórnandi var höfundurinn sjálfur. Síðan hafa tónleikarnir tekið við hverjir af öðrum og að auki aðrir listviðburðir, svo sem sérstök sýning á vatnslitamyndum Snorra Sveins Friðrikssonar við Passíusálma Hall- gríms Péturssonar í forkirkjunni. I kirkjunni eryfirleitt eitthvað að ger- ast þessa dagana og framundan meðal annars sérstakir Bach-tón- leikar lokadaginn, laugardag, kl. 17. Að sögn Harðar Áskelssonar, stjórnanda og orgelleikara kirkj- unnar, hefur allt gengið að óskum hingað til. „Þetta hefur verið mikil hátíð. Flutningurinn á Jesú-passí- unni var hreint stórkostlegur, allir eru sammála um að þessir tónleikar hafi verið einstaklega áhrifamiklir. T.d. gerði Viðar Gunnarsson hlut- verki Krists makalaust góð skil." Hörður segir að rennt hafi verið nokkuð blint í sjóinn með þessa hátíð, enda hafði hátíð af þessari stærðargráðu ekki verið áður hald- in í Reykjavík svo hann vissi. Eini dökki bletturinn væri að fella hefði þurft niður sýninguna á leikritinu um Kaj Munk sem vera átti á morg- un, föstudag, vegna þess að leik- munir og annað þess háttar þurftu að fara í skip í flutning utan fyrr en menn áttuðu sig á. Hörður sagði aðspurður um tón- Iistarflutning í þessu mikla húsi að það væri „eitt rosalega stórt hljóð- færi. Það tekur sinn tíma að læra að spila á þetta hljóðfæri sem húsið er og það þarf að sýna vissa aðgát hvað varðar uppstillingu á flytjend- um og þar fram eftir götunum. Á mánudaginn annan í hvítasunnu voru haldnir hér vortónleikar Mót- ettukórsins og það barst einmitt til tals hversu kórinn væri búinn að ná góðum tökum á húsinu. Ef maður kann á húsið spilar það með. En vitaskuld er árangurinn misgóður eftir músíkinni, fjölda hljóðfæra og svo framvegis. I því sambandi verð- ur spennandi að vita hvernig Bach- tónleikarnir koma út á laugardag- inn, því þá ætlum við einmitt að prufa nýja uppstillingu, þannig að flytjendur verða í tveimur hópum í kirkjunni miðri, en áheyrendur í kring". Bach-tónleikarnir hefjast sem fyrr segir kl. 17 á laugardag og koma fram Margrét Bóasdóttir sópran- söngkona, Mótettukórinn og kammersveit. Fluttar verða tvær mótettur eftir Bach og kantatan „Falsche Welt" undir stjórn Harðar. Þeim sem ekki geta beðið laugar- dags er aftur á móti bent á flautu- tónleika Manuelu Wiesler í kvöld kl. 20.30 (fimmtudag), þar sem hún flytur m.a. verk eftir Marin Marais og Vagn Holmboe. Á morgun verða síðan hádegistónleikar kl. 12.30 með Hljómskálakvintettinum, sem leikur tónlist fyrir málmblásara. fþg maí hélt hann tónleika ásamt Jón- asi Ingimundarsyni píanóleikara í íslensku óperunni. Það kvöld sannaði að Kristinn er gæddur flestum þeim kostum er prýða góðan söngvara. Efnisskráin var fjölbreytt af ljóðum og aríum. Og Kristinn söng eins og engill. Kannski var hann þó bestur í Verdi en minnst góður í Carmen eftir Bizet. Og alveg var hann frábær í Hugo Wolf sem fáir syngja veru- lega vel af því að fáir eru svo sálar- stórir að geta skilið hann. En allir geta lesið nóturnar. Kristinn var einnig Ijómandi í Strauss og nokkrum amerískum lögum og ýmsu öðru smávegis. Jónas minn Ingimundarson lék snilldarlega. Ég fullyrði þetta: Tónleikar þeirra félaga hefðu fullnægt ströngustu kröfum vandlátra áhreyenda hvar sem er í heiminum. Og geri menn betur hér við ysta haf. Þó var ofur- lítill skuggi yfir þessum konsert. Það voru kynningar söngvarans milli laga. Þær voru vægast sagt klaufalegar. Og er synd að slík vit- leysa setji blett á fyrsta flokks tón- leika. Það ætti Kristinn að muna í framtíðinni. Hann á að syngja en ekki tala. Áheyrendur voru sárafáir og er það ekki Reykvíkingum til veg- semdar. Þeir hefðu áreiðanlega fyllt húsið og meira en það ef ein- 22 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.