Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 11.06.1987, Blaðsíða 23
 SUNNLENDINGAR eru iðn- ir við myndlistarkolann. Nýlokið er sýningu Elfars Gudna í listasafni Ár- nessýslu á Selfossi, þar sem til sýnis voru á hans 15. einkasýningu 42 olíumálverk. Nú sýnir í Gallerí Sud- urási í Hveragerði Eggert E. Laxdal, 53 ný verk. Að auki eru á sýning- unni tvær myndir eftir Kjartan Jakobsson. Þá sýnir í Eden í Hvera- gerði í sitt ellefta sinn þar Steingrím- urSt. Th. Sigurðsson og er þetta 62. málverkasýning Steingríms heima og erlendis. í Eden sýnir hann 41 verk sem mestmegnis eru ný af nál- inni og verða menn að fara að drífa sig því sýningunni lýkur nú um helgina. BORGARINN heitir nýútkom- in hljómplata Ingva Þórs Kormáks- sonar, sem fyrir 4 árum eður svo gaf út plötuna Tíðindalaust. Á plötunni kennir svo sannarlega margra grasa og ekkert verið að fela þá staðreynd að um allsherjar „hrærigraut" sé að ræða: rokk, ballöður, samba, swing, reggae, bossa nova, nýbylgju og annað í þeim dúr, moll og sjöund. Margt valinkunnra sæmdarmanna og -kvenna aðstoða Ingva Þór, þeirra á meðal Eiríkur Hauksson, Diddú, Sverrir Guðjónsson, Stefán saxófónn Stefánsson og Abdou Dhour. ÁRABÁTAÖLDIN nefnist merkileg sýning sem var opnuð um síðustu helgi í Sjóminjasafninu í Hafnarfirði (Vesturgötu 8). Sýningin byggir á riti Lúðvíks Kristjánssonar „Islenskum sjávarháttum", verki í 5 bindum sem nú er komið út í heild sinni. Teikningar, ijósmyndir og textar eru úr ritröðinni, en munir úr sjóminjadeild Þjóðminjasafnsins og frá ýmsum velunnurum safnsins. . KONANí list Ásmundar Sveins- sonar heitir myndband sem að- standendur safns listamannsins hafa sett á markað. Myndin er heim- ildarmynd um það hvernig konan birtist í list Ásmundar og má af henni ráða hvernig ímynd konunn- ar breytist samfara þeim formbreyt- ingum sem áttu sér stað hjá lista- manninum. Þeir sem störfuðu að myndinni voru Guðni Bragason og Hope Millington sem sáu um hand- ritsgerð og stjórn upptöku, Gunnar Kvaran, listfræðingur samdi text- ann, Páll Reynisson kvikmyndaði, Jón Ingi Friðriksson sá um hljóðið og Friðgeir Axfjörð setti allt heila galleríið saman. Myndbandið er til sölu í Asmundarsafni og kostar 1900 kr. SKARTGRIPAsýningar eru ekki algengar hér á landi, reyndar afar fátíðar, en fyrir unnendur þess konar listar verður bætt úr því milli 20. og 30. þessa mánaðar, því þá heimsækja okkur 12 gull- og silfur- smiðir frá Gullsmíðaháskólanum í Valby í Danmörku og halda sýningu á verkum sínum hjá Pétri Tryggva, sem reyndar nam við sama skóla, og verður sýningin á Skólavörðustíg 6. Allir 12 sýnendurnir hafa vakið athygli fyrir verk sín og eru margir þeirra reyndar verðlaunaðir á því sviði. „SÆNSKT KEX“ heitir sýn- ing ungra sœnskra myndlistar- manna sem hér verður í Nýlista- safninu v/Vatnsstíg og í MÍR-saln- um frá föstudeginum 11. júní til sunnudagsins 28. júní. Þessi sýning er liður í svokölluðum skiptisýning- um sem ungir norrænir myndlistar- menn hafa staðið að og er ætlað að sýna það sem helst er á seyði í hverju þessara þriggja landa sem að þessum sýningum standa. Löndin þrjú eru Island, Svíþjóð og Noregur og hefur norska sýningin þegar gist Reykjavík. Á þessari sænsku sýn- ingu eru sýnd málverk, skúlptúrar, myndbönd, grafík, hljóðverk, gern- ingar, bækur og fleira og alls eru þarna verk 13 listamanna. Að auki hefur verið gefin út vegleg sýning- arskrá og lítil hljómplata. Gallerí Borg Gamlir meistar- ar og nýir Gallerí Borg er sem kunnugt er í tveimur einingum núorðið og er með sýningar bœði í Pósthússtrœti 9 og Austurstrœti 10. Þessi tvískipting er einstaklega djúpstœð þessa dag- ana: í Pósthússtrœtinu stendur yfir sýning á nokkrum perlum „gömlu meistaranna" en í Austurstrœtinu gefur að líta perlur „nýju meistar- anna“. Við báðum Gísla B. Björns- son framkvœmdastjóra að lýsa þessum sýningum fyrir okkur. „í Pósthússtrætinu hanga 25 myndir eftir ýmsa af okkar bestu listamönnum. Þetta er okkar fín- asta, dýrasta og besta upphengi, myndir sem við drögum upp af og tií og sýnum og höfum í umboðssölu. Nefna má Húsafellsmynd eftir Ás- grím Jónsson, Bátsmynd eftir Gunn- laug Blöndal, blómamyndir eftir Kristínu Jónsdóttur og Gunnlaug Scheving, Hvíta og Búrfell eftir Júlí- önu Sveinsdóttur og þarna eru auð- vitað myndir eftir Kjarval. Þessi sýning stendur yfir til 19. júní. I Austurstræti er hins vegar að finna samhengi nýju meistaranna. Meðal annars má nefna nýlegar myndir eftir Hring Jóhannesson, splunkunýjar myndir beint af trön- unum eftir Magnús Kjartansson, þrjár eldri abstraktmyndir eftir Eirík Smith, sem hann flíkar sjaldan og selur dýrt ef hann þá selur þær, og þarna eru 3—4 myndir Tryggva Ólafssonar og margir aðrir lista- menn koma við sögu, þeir eru alls um 20. Þessi sýning er ótímabund- in, en þess má geta að þegar gömlu meisturunum sleppir tekur grafíkin við í Pósthússtræti frá 23. júní, þá sýnum við sem sagt grafíkverk eftir flesta íslensku grafíklistamennina má segja,“ sagði Gísli. Gísli B. Björnsson innan um verk gömlu meistaranna. Þær stöllur og forsvarsmenn gallerísins, Anna Einarsdóttir og Elsa Stefáns- dóttir. HAFNAR GALLERÍ Ungir myndlistarmenn fá aðsetur í nýju galleríi við Hafnarstræti. I síðastliðinni viku var opnað nýtt gallerí við Hafnarstrœti í Reykjavík, nánar tiltekið á efri hœð í Bóka- verslun Snœbjarnar. Það eru þær stöllur Anna Einars- dóttir og Elsa Stefánsdóttir sem sjá um rekstur þessa nýja gallerís sem hlotið hefur nafnið Hafnar Gallerí. Meiningin er að þarna eigi ungir myndlistarmenn aðsetur og fyrsta sýningin er byggð á verkum þeirra sem útskrifuðust úr MHI nú í vor. Ætlunin er að skipta fremur ört um myndir, u.þ.b. einu sinni í viku, og munu listamennirnir sjálfir sjá um þá hlið mála. Galleríið er opið á venjulegum verslunartíma og að auki á laugardagsmorgnum frá 9-12. Þorvaldur Þorsteinsson ásamt kollegum sinum úr stétt myndlistarmanna, þeim Ingólfi Erni Arnarsyni og Húbert Nóa Jóhannessyni. Myndhöggvararnir Borghildur Óskarsdóttir og Rúrí. HELGARPÓSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.