Helgarpósturinn - 11.06.1987, Qupperneq 11
Dagbókin hennar Dúllu
Kaera dagbók.
Lífið í þessari fjölskyldu minni
gengur sko aldrei fyrir sig eins og
hjá eðlilegu fólki. Það eru alltaf ein-
hver ægileg mál að koma upp. Núna
er það amma á Einimelnum. Hún er
búin að setja húsið sitt í sölu og ætl-
ar að flytja úr hverfinu. A.m.k. af
„melunum". Hún segir að það sé bú-
ið að saurga Vesturbæinn. Hvorki
meira né minna!
Það er þetta með hommana.
Amma er svo gasalega hrædd við
þá, ekki síst eftir að eyðni kom til
landsins. Ég þori nú ekki að segja
það við hana, en hún er alveg ör-
ugglega í minnstri hættu af öllum
sem ég þekki — orðin eldgömul og
hrukkótt. Það eru örugglega trilljón
ár frá því hún svaf hjá karlmanni,
þvi afi er jú löngu dáinn. En amma
er ekkert alveg klár á þessu með
smitleiðirnar, held ég, og ekki ætla
ÉG að ræða kynlíf við hana. Það er
sko pottþétt.
Nýjasta nýtt í máiinu er svo það,
að amma uppgötvaði að sæti, ríki,
barngóði, hugulsami engillinn í
bankastjóralíki, sem býr í næsta
húsi við hana, er hommi. Og hún
sem hefur alltaf dýrkað hann. Mað-
ur hefur ekki þurft að hlusta á svo
fáar sögur um það hvað hann er
góður við konuna sína, duglegur í
garðinum, mikill templari og guð
veit hvað. Núna er engu líkara en
það hafi vaxið á manngreyið horn
og hali á einni nóttu. Svona getur nú
þetta fullorðna fólk verið vitlaust!
Alveg glætulaust í botn... Ég sé ekki
að maðurinn sé neitt verri, þó hann
verði hrifinn af strákum frekar en
stelpum. Þar að auki kemur ömmu
þetta nú ósköp lítið við, finnst mér.
Eftir að amma heyrði þessa
kjaftasögu um bankastjórann (aldrei
þessu vant reyndist kjaftasaga rétt)
hefur hún verið í ekkert venjulegu
uppnámi. Við mamma skruppum til
hennar og reyndum að sýna henni
fram á að þetta væri ekkert mál. Við
romsuðum upp úr okkur nöfnum á
alls konar hommum, bæði háskóla-
kennurum, leikurum, skáldum,
læknum og skólastjórum og ég veit
ekki hvað og hvað. En þetta var lík-
lega ekkert sniðugt, því amma fékk
það þá á tijfinninguna að Reykjavík
væri að fyllast af hommum og
„konuhommum", eins og hún
kailar það. (Hún er svo ógeðslega
tepruleg!) Og henni fannst alveg
jafnhryllilegt að þurfa að búa áfram
við hliðina á bankastjóranum, sem
hún var að deyja úr snobbi út af fyrir
nokkrum dögum. Hún segist ekki
þora að taka blóm úr garðinum inn
í vasa, ef það skyldi eitthvað hafa
borist á þau úr bankastjóragarðin-
um, og hún ætlar aldrei aftur í fisk-
búðina sem hún er búin að versla
við í heila öld. Fisksalinn er nefni-
lega „einn af þeim“. Glætan, maður.
Hún arama er nú bara reglulega vit-
laus. Ég myndi sko pósta til hennar
eyðnibæklinginn, sem ég fékk í
skólanum, ef ég vissi ekki að hún
myndi taka hann (með hönskum) og
henda honum beint í ruslið.
Aldrei þessu vant eru pabbi og
mamma bæði sammála um ömmu.
Ég held að pabbi skammist sín
meira að segja svolítið fyrir hana
núna. Þau voru áðan að telja upp
nöfn á alls konar köllum, sem
ömmu finnst rosalega merkilégir.
Margir af þeim eru sko ekkert góðir
og hafa gert margt ljótt, en samt
þykja þeir eitthvað fínir og aliir
smjaðra fyrir þeim. Nokkrir, sem
mamma nefndi, hafa alveg kolhald-
ið framhjá kellingunum sínum, eða
lamið þær og allt... En svo verður
amma brjáluð út í mann, sem hún
hefur dýrkað upp úr skónum í fjöru-
tiu ár, bara af því að hann er skotinn
í strák. Ég meina það!
Bless, bless, Dúlla.
RowGnfa
kaffivélar
Rowenfa fkos
10 bolla kaffikanna
kr. 1.990.-
ÍS)
yWfrlirTn-ii
D
Bleiki pardusinn
huasar vel um
m m nuasar vei
SMAFOUa
Barnaboxin
eru frábær fyrir smáfólkið
Allt í einu boxí,
heil máltíð og margskonar
leikir og gátur.
Einnig einhver óvæntur
glaðningur í hverju boxi.
SKYNDIBITASTAÐURINN
GNOÐARVOGI 44, sími 32005
HRINGBRAUT119, sími 19280
X x
ALLA FJÖLSKYLDUNA
Rowenra fkso
10 bolla kaffikanna
kr. 4.226.-
(Si
Rowenfa fksi
10 bolla kaffikanna
með gullsíu kr. 5.341.-
Rowenra fkao
10 bolla kaffikanna
með hitakönnu kr. 4.847.-
Rowenra fk 30
8 bolla kaffikanna
kr. 2.652.-
Fást í öllum betri
raftækjaverslunum
HELGARPÓSTURINN 11