Helgarpósturinn - 11.06.1987, Qupperneq 31
reka skrifstofur erlendis, hafa þá
stefnu að skipa eingöngu íslendinga
í stöður yfirmanna þar og þannig
þjálfa menn í stjórnunar- og mark-
aðsstörfum erlendis. Þetta virðist
ekki vera stefna Flugleiða því yfir-
menn skrifstofa þeirra í Bandaríkj-
unum eru allir af erlendu bergi
brotnir. Knut Berg er yfirmaður
New York-skrifstofunnar, í Boston er
Dan Miller yfir, Richard Galuzza
er í Baltimore, Eduardo Andreo í
Chicago og Tom Lougherty er yfir-
maður skrifstofunnar í Orlando. Til
samanburðar má geta þess að yfir-
maður skrifstofu iðnaðardeildar SIS
í Bandaríkjunum er Ólafur Ólafs-
son, forstjóri Coldwater er Magnús
Gústafsson og forstjóri Iceland
Seafood er Eysteinn Helgason svo
dæmi séu tekin.. .
HPrr
I yrrum þingmaður, Árni John-
sen, skrifaði gagnmerka grein í
Morgunblaðið í síðustu viku undir
fyrirsögninni „Við dyrnar að helli
fjársjóðanna". Opinberar hann þar
svo ekki verður um villst skoðanir
sínar á hlutverki þingmanna og ráð-
herra í tilverunni, þar sem hann
svarar grein eftir ungan lyfjafræð-
ing. Telur Árni manninn vera að
spilla fyrir möguleikum sínum á að
fá lyfsöluleyfi síðar meir með því að
hæða þingheim og helstu embættis-
menn. Samkvæmt heilræðum
Árna, sem ætti að þekkja vel til
vinnubragða pólitíkusa í stjórnar-
flokkum, er það sem sagt lykilatriði
að koma sér vel við áhrifamenn ef
maður ætiar sér að komast eitthvað
áfram. Það var ágætt að fá þetta á
hreint. . .
^Tímaritið Búið betur, sem
margir höfðu spáð að kæmi ekki út
oftar, mun nú á leiðinni í prentun.
Utgefendur blaðsins eru Birna
Sigurðardóttir fyrrum auglýsinga-
stjóri tímaritanna Húsa og híbýla og
Lúxuss og Guðmundur Karlsson
framkvæmdastjóri hjá Byggung.
Búið betur hefur verið ritstjóralaust
undanfarna mánuði og ekki
komið út síðan í lok nóvembermán-
aðar, en nú hefur Birna Sigurðar-
dóttir tekið að sér ritstjórastarfið.
Munu ekki mörg dæmi þess að
sama konan sé útgefandi, auglýs-
ingastjóri og ritstjóri á einu
blaði. . .
ARSABYRGÐ
A ALLRI VIIXINU OG EFNI
Traust, örugg og góð þjónusta
mEim%
Ármúla 23, Sími 687870
LOFTNETA- OG
A/IYNDLYKLAÞJÓNUSTA
SJÓNVARPSKERFi -
TILBOÐ SAMDÆGURS
í BÚÐARKOT %
SIMI 22340
PAULINA
æ*
hé.
- w
Járnrúmin vinsælu komin aftur,
5 nýjar gerðir.
JL.
J Opið aila daga ki. 9.00-21.00.
« Búðarkot,
^ Hringbraut 119 (við JL-húsið) -
ÁRSRIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS,
„19. JÚNh ER KOMIÐ ÚT
Fœst í bókaverslunum, á blaösölustööum og hjá kvenfélögum um land
allt.
KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS
Hurðir sem
OPNA
ýmsa möguleika
Kostir lyítihurðanna frá Héðni eru margir og nægir þar að nefna að þær taka
lítið rými, eru auðveldar í uppsetningu og léttar og meðfærilegar.
Lyftihurðirnar hafa verið valdar á staði, þar sem hraði og öryggi skipta máli,
s.s. á slökkvistöðvum, en þær henta einnig einstaklingum og fyrirtækjum.
Ljftihurðirnar eru mjög vel einangraðar, fást í tíu litum og hægt er að velja
um mismunandi glugga- og brautaútfærslur.
Lyftihurðirnar frá Héðni
eru fyrir þá sem vilja halda öllum möguleikum opnum.
Hafið samband við sölumenn okkar og leitið tilboða í hurðir og uppsetningu.
Seljavegi 2 Sími 24260
HELGARPÓSTURINN 31