Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 17
Kæra dagbók.
Þú myndir aldrei í lífinu trúa þvi
hvað er búið að koma fyrir. Maður
er sko bara í rúst. Það eru nú heldur
ekki oft tvö dauðsföll (af hverju ætli
þetta sé annars kallað ,,fall“??) í fjöl-
skyldunni á tveimur dögum! Þetta
er nefnilega algjör aluöru tragedía,
eins og í Dynasty. Váá, maður. Ann-
ars er annað af þessu ekki beint
venjulegt dauðsfall. Eða þannig...
Fyrsta fórnarlambið var nýi kall-
inn hennar ömmu á Einimelnum og
þó manni finnist það kannski svolít-
ið fyndið innst inni, þá þorir auðvit-
að enginn að hlæja upphátt. Ég veit
að það er ljótt að grínast með þetta,
því amma greyið er alveg eins og
eftir heimsstyrjöld. Henni hefur ör-
ugglega ekkert verið sama um
hann, fyrst hún fór að giftast honum
að gamni sínu svona á grafarbakk-
anum. (Guð, nú sannaðist það svo
DAGBÓKIN
HENNAR
DÚLLU
sannarlega, þetta með grafarbakk-
ann!)
Það er ljóst, að guðirnir hafa ekki
elskað hann Guðjón hennar ömmu
mjög mikið, því þeir leyfðu honum
að verða alveg eldgömlum án þess
að taka hann til sín. Það var líka lítið
varið í hann, ef ég á að segja eins og
er, nema hvað bíllinn hans er svaka
flottur. (Kannski á að segja að bíllinn
hans hafi verid flottur, af því kallinn
er dáinn? En bíllinn er ennþá niðri á
Einimel, alveg jafnflottur og áður en
Guðjón dó! Ég veit svei mér ekki...
Maður er svo óvanur þessu ástandi.)
Það fyndna við þetta alvarlega
mál er hins vegar, að þau voru í
bles aðri brúðkaupsferðinni á íbiza.
Meira að segja nýkomin þangað, al-
sæl og happí. Pabbi og mamma
voru að tala um að svonalagað væri
bara of mikið álag fyrir fólk á þess-
um aldri, hasarinn í kringum brúð-
kaupið, undirbúningurinn undir
ferðina og hitabylgjan þarna suður-
frá og svoleiðis. Þau voru nú næst-
um því farin að hlæja, þegar pabbi
bætti brjóstaberu stelpunum á íbiza
við upptalninguna, en hættu við
það þegar þau sáu mig.
Amma ræfillinn hringdi alveg
miður sín í okkur morguninn sem
Guðjón vaknaði ekki í rúminu við
hliðina á henni, en pabbi gat lítið
gert fyrir hana svona langt í burtu.
Hún kemur heim á morgun (hann
líka, eða þannig sko...) og er farin að
róast svolítið, því það var íslenskur
læknir í ferðinni. Hann gaf henni
eitthvert „ekkjudóp", eins og Stebba
systir kallaði það. Én auðvitað er
hún rosa leið. Þetta var nú einu sinni
kallinn hennar, þó hann hafi ekki
verið það lengi.
Hinn dauðinn í fjölskyldunni er
eiginlega meira morð en dauðsfall.
Svo er þetta heldur ekki alveg búið
að ske. Guð, er þetta svolítið rugl-
ingslegt hjá mér? Sko, mamma fékk
upphringingu frá „kjallara-lækn-
inum sínum út af þessari prufu, sem
hún fór í um daginn. Það var eitt-
hvað að legvatninu í henni af því að
hún er orðin svo gömul og þess
vegna þarf að taka barnið, segir
læknirinn. Hann hringdi rétt eftir að
amma hringdi út af Guðjóni, svo
þetta fór allt í hringavitleysu og
mamma sagðist bara ætla að eiga
barnið, hvað sem hver segði. Hún á
pantaðan tíma í föstureyðingu eftir
helgi, pabbi vill að hún fari, en ég
veit ekki hvað verður... Það er svo
mikið uppnám á öllum. Ég er heldur
ekki viss um hvað mér finnst sjálfri
um þetta.
Bless í bili. Dúlla.
NAFN
lhinSs
.aivdvo
(or
Hver, í guðs nafni. kemst
SEAN ...---S-
CONNERy .
upp með morð?
f.murrav
>;>, abraham
Islenskúr lextí
thSCH
BÆJARINS BESTA LIRVAL AF BARNAEFNI
VIDEOHOLLIN
___LÁGMÚLA 7 S. 685333 OPID ALLA DAGA 10-23.30_
SJÁUMST HRESS EKKERT STRESS BLESS
HELGARPÓSTUR1NN 17