Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 19
uppákomur til dæmis á þinginu. Hann flokkast
ekki undir það.“ Gudmundur fœrist undan þvt
að svara hvaða þingmenn flokkast undir þann
hóp, en hann segir að sér líki ekki þau vinnu-
brögd.
Steingrími tókst ekki að fá stól forsœtisráð-
herra í nýju ríkisstjórninni.
„Við framsóknarmenn gáfum út þá yfirlýsingu
að við vildum alls ekki fá Jón Baldvin sem for-
sætisráðherra. Ég viðurkenni fúslega að það var
ekki klókur pólitískur leikur því með þessari
yfirlýsingu útilokuðum við jafnframt Steingrím,
og þar við sat. Að sjálfsögðu töldum við Stein-
grim hæfastan til að gegna forsætisráðherra-
starfinu og svo var reyndar um miklu fleiri en
okkur framsóknarmenn."
í GÓÐU JAFNVÆGI
Guðmundur hefur ekki setið lengi í nýja
embœttinu sem heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra en hann segir að sér lítist vel á það
þó það muni sjálfsagt verða erfitt.
„Hér kem ég að mjög stóru ráðuneyti. Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið er eitt út-
gjaldamesta ráðuneytið og eftir að hafa verið
hér í skamman tíma kemst maður að raun um
að það er ekki mjög auðvelt að spara á þessum
vettvangi. Helst vildi ég vinna hér að forvarn-
arstarfi, bættri þjónustu fyrir aldraða og barátt-
unni gegn fíkniefnum. Auk þessa eru byggða-
stefna og valddreifing mér hugleikin og því vil
ég halda áfram þeirri uppbyggingu að færa heil-
brigðisþjónustuna eins mikið og hægt er út á
land."
Hann hefur greinilega gaman af starfinu og
erlinum sem því fylgir. Ég spyr hann hvort hann
sé alltaf rólegur.
„Ég er yfirleitt ekki „stressaður" og ég held að
ég sé í þokkalega góðu jafnvægi. Auðvitað get
ég skipt skapi, það kemur fyrir, en ekki oft. Ég
sef vel og man aldrei drauma jafnvel þó mig
kunni að hafa dreymt eitthvað."
Heldurðu að þú endist lengi í pólitíkinni?
„Ég hef mjög gaman af þessu en ég vona að
ég muni þekkja minn vitjunartíma, en telji mig
ekki ómissandi. Svipað gerist oft hjá íþrótta-
mönnum og stjórnmálamönnum að þeir vilja
ekki gefast upp eða játa ósigur sinn. En stað-
reyndin er þó engu síður sú að menn mega ekki
vera of lengi og tíminn og tíðarandinn krefjast
endurnýjunar og breytinga á þessu sviði sem
öðrum.“