Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 16

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 16
„Þaö er ekki alueg ákueðiö huaö margir skipa grúppuna," segja þeir félagar grínagtuglega, „en uið erum eitthuaö á bilinu sjö til tíu. Helsta uafaatriöiö huaö fjöldann snertir er Cuömundur Þorsteinsson prentari. Hann hefur aldrei samiö lag, suo uiö uitum, kann ekki á hljóöfœri eins og allir uita og er ónýtur á suiöi, en maöurinn er prentari og þaö er meira en nokkur hljómsueitarmeö- limur getur státaö af. Þess uegna er hann eiginlega meö...“ Þetta getur verið dæmigert upp- haf að viðtali við Skriðjökla, akur- eyrsku drengina sem fyrir fjórum árum langaði svo mikið að komast frítt inn á Atlavíkurhátíðina að þeir skráðu sig í hljómsveitakeppnina, unnu — og urðu svo aðalnúmer sömu samkundu í sumar. Svona ger- ast hlutirnir í poppbransanum; fljótt og fyrir tilviljun. Ég tala við þrjá jöklanna fáum náttum fyrir Atlavík '87 og einn þeirra, rauðhærður, bassinn í band- inu, heldur því fram að hinir tveir sem fá að fljóta með í viðtalið séu leiðinlegri en hann og því beri mér að snúa skemmtilegustu spurning- unum til sín. Þetta er Jón Haukur, en þeir óskemmtilegri Ragnar rót söngvari og Jakob Jónsson sólógít- aristi. Omættir eru þetta hádegi í hljóðveri Skriðjökla við ósa Glerár þeir Koibeinn Gíslason gítar, Rggert Benjamíns trommur, Jóhann Olafur hljómborð, Bjarni Bjarnason dans og þrjú þessi vafaatriði sem áðan gat; Guðmundur prentari Þorsteins- son, Björn bland og Logi Már sem fyrir utan að hafa dansað með band- inu um nokkurt skeið laumar að því stöku lagi og texta. EKKERT EINKALÍF LENGUR Jón Haukur segir að þetta hafi aldrei átt að fara svona, „hann meinar", bendir Ragnar á, „að við stefndum aldrei að þessum gasalegu vinsældum sem helltust fljótt yfir okkur..." „Upprunalega," segir Jón Haukur og spennir greipar landsföðurlega, „átti þetta bara að vera gott partí — og þetta var það reyndar lengi vel. Það neitar þvi enginn. En svo, eins og Ragnar segir, vildi fólkið meira, miklu meira..." „Já, maður átti ekkert einkalíf lengur," skýtur Ragnar að. „Æ, eig- um við að vera alveg svona drjúgir í þessu viðtali," skýtur Jakob á móti og jafnframt að þeir drengir séu svo- lítið að reyna að draga úr drýgind- Sérstaða Skriðjöklanna á sviði felst í sérstökum dansara, Bjarna Bjarnasyni, sem þarna stígur sporið við ónefnda stúlku. Ragnar „Sót" Gunnarsson, forsöngvari jöklanna, í baksýn. unum, montinu sem mörgum hafi þótt vera komið nóg af... „Mér finnst agalegt að heyra þetta í ykkur," segir Ragnar sem gefur sig ekki, „þetta er hrein afturför. Það er okkur fátt eins mikilvægt og sýna af okkur þessi ógeðslegu drýgindi sem við erum kunnir af.“ — Þú átt uiö aö mont sé nauösyn- legt í þessum bransa, Ragnar? „Það er aðalatriðið," og Jakob bætir við: „Númer eitt er kannski að vera drjúgir við aðrar hljómsveitir. Það er möst og má alls ekki klikka." — Huernig þá? „Ljúga nógu grimmilega tii um aðsókn og stemmningu að ekki sé minnst á hvað mikið er haft upp úr krafsinu. Það er nefnilega staðreynd að það er hægt að komast ákaflega langt í þessum bransa á lyginni einni saman," segir Jakob og Ragnar botnar: „Já, það er alveg lygilegt." — Heiöarleikinn er þá ekki inni í myndinni? „Tja... varla, og þó — ekki erum við óþokkar, ekki gegnheil ill- menni," svarar Jakob. Jón Haukur: „En láttu það samt koma fram að okkur er illa við aðrar hljómsveitir." ALDREI BILAÐ MÓRALL Eins og þeir þekkja sem farið hafa á dansiball með Skriðjöklum er gjarnan vafamál hvoru megin sviðs- ins stuðið er meira og oft með ólík- indum hvað hljóðfæraleikararnir 'leggja á sig til að koma gestum sín- um í gott skap. Ég spyr að þessu ein- kenni í starfsemi grúppunnar og hvort það sé meðvitað. Þeir horfa hver á annan um stund, næstum al- varlegir, en svo springur Ragnar: „Ja, ég er að þessu ánægjunnar vegna. Ég er farsæll í starfi," og þá springa hinir, en svo þetta frá Jóni Hauki: „Þetta samstarf okkar hefur í rauninni verið svo skemmtilegt og áfallalaust að við höfum oft velt því fyrir okkur hvort ekki sé eitthvað að. Við höfum haldið hópinn í þrjú ár og hist næstum alla daga — og tekið tarnir sem jafnvel skipta sólar- hringum. Það breytir því ekki að þegar einn okkar langar í bíó förum við svo gott sem allir með." „Samheldnin er einstök," segir Ragnar. „Það hefur bara ekki bilað mórall. Til dæmis í sumar, en það hefur verið það erfiðasta hingað til með þrotlausri vinnu frá morgni til kvölds, hefur ekki svo mikið sem styggðaryrði farið milli manna." Bandið hefur verið að koma sér fyrir í eigin stúdíói á síðustu mán- uðum, sem hefur meðal annars kostað þá miklu vinnu sem að ofan getur. Þetta er fyrirmyndar hljóðver í eigu Skriðjökla hf. (sem er firma sem stöðugt færir út kvíarnar; ég tók m.a.s. eftir auglýsingaskilti frá því á fótboltavelli bæjarins innan um Kea og K. Jónsson). í þessu veðri tóku þeir upp nýjustu plötu sína, Er Indriöi mikiö erlendis, sem inni- heldur næstum tug frumsaminna laga eftir meðlimi, en þeir geta líka státað af því að hafa leigt sjálfum Stuðmönnum vistarverurnar til vinnslu á nokkrum hluta af þeirra plötu, Á gœsaueiöum. Væntaniegar vikur fara svo í upptökur á næstu breiðskífu Skriðjökla sem þeir áætla að senda frá sér fyrir jól, en efnið á hana er nú að brjótast um í kollinum á þeim. Það verður fimmta hljóm- skífa jöklanna ef allt er talið. ALVEG SKRUGGUGÓÐIR „Þetta stúdíó okkar er, getum við sagt, einn liðurinn í að gera Skrið- jökla að langstærsta poppnúmerinu á íslandi," segir Jón Haukur á svip- inn eins og hann meini þetta. „Þetta er ekkert glens í drengnum," áréttar Ragnar. „Það verður til dæmis ekki hrakið að við erum komnir með langfullkomnustu græjurnar sem nokkur starfandi hljómsveit á land- inu getur státað af...“ — Og þetta er ekki glens? „Glens! Ég skal standa við þessi orð mín hvar sem er og hvenær sem er“, segir Ragnar dimmri röddu og setur á loft fingur í átt að blaða- manni, máli sínu til stuðnings. En hæfileikarnir, hrýtur af mínum vör- um? „Við erum að verða alveg skruggugóðir," eru þeir nokkuð sammála um, og ég spyr þá næst hvernig þeim finnist grúppan hafa þróast — og ég gerist faglegur — svona tónlistarlega séð. „í fyrstu var þetta hreinn og beinn fíflagangur í okkur og svo gott sem innantóm gauralæti, en þetta hefur alltaf verið að koma núna á allra síð- ustu misserum hvað tónlistina varð- ar. Þar er stúdíóinu sérstaklega fyrir að þakka. Það er engin spurning að langbesta æfing sem nokkur hljóm- sveit getur fengið er að vinna í hljóðveri. Þetta er allt að smella saman hjá okkur núna," segir Jón Haukur. Hann bætir því við nokkru seinna þegar talinu er fram haldið um músíkþróun að óneitanlega séu þeir búnir að skapa sér ákveðinn stíl þrátt fyrir þá fjölbreytni sem ein- leftir Sigmund Erni Rúnarsson kennir lagaval þeirra á plötum, tón- leikum og dansleikjum. Og ég spyr um þennan stíl, hver hann sé — og spurningin eins og lyftir þremenn- ingunum í sætinu. Þeir vilja allir svara þessu, en eiga í erfiðleikum. Loks kveður Jón Haukur upp úr með það að mjög erfitt sé að lýsa þessum stíl með orðum, honum sé miklu betur... „Blessaður vertu, þetta er bara rokk," hreytir Ragnar út úr gullbarkanum, „en ég held", segir söngvarinn áfram, „að það sé frekar erfitt að bera okkur saman við aðrar hljómsveitir. Það hefur enda lítið verið gert af því. Jú, að- eins við Stuðmenn til að byrja með — og svo var smávegis fariö út fyrir landsteinana og við bornir saman við Madness..." „Þú meinar Madness bornir sam- an við okkur," segir Jón Haukur og finnst ekkert koma til svona saman- burðarfræða. GEÐVEIKISLEG STEMMNING Ég vík talinu að áheyrendum, til dæmis fólkinu á böllunum. Þeir eru sammála um að það sé misjafnt eftir landshlutum hvernig stemmning næst upp á dansleikjunum þeirra. Og enn eru þeir sammála þegar sá hluti lands er tekinn út úr sem þeir telja bestan í þessu tilliti. Það eru Austfirðir. Ragnar segir: „Það er al- veg merkilegt að koma út á svæðið fyrir utan dansstaðina á Austfjörð- um samanborið við aðra staði. Þar heldur stuðið einfaldlega áfram og menn eru þetta að melta með sér hver eigi að halda partí og hvar séu mestar líkur á fjöri framundir morg- un. Fólk skemmtir sér svo fallega þarna. í öðrum landshlutum liggur vanalega allt í slagsmálum um þetta leyti nætur og fleiri en einn löggu- bíll mættur á svæðið. Nei, Austfirð- ingar skemmta sér bara, nenna ekki að slást, enda elskir að hver öðrum, bokkuna í botn.“ — Huaöa takmark setjiöi ykkur á sueitaböllunum? „Að koma öllum í stuð og meira til; skapa geðveikislega stemmn- ingu, það er málið. Við höfum aldrei klikkað á stuði. Það hefur bara einu sinni verið mjög fátt hjá okkur, en það gilti einu, stemmningin var and- lega vanheil — æðisleg." — Huernig kunniöi uiö þetta fólk sem mœtir á böllin ykkar? „Þetta er yfirleitt gott fólk,“ segir Ragnar yfirvegað, „vandað og vel stillt inn á gleðina." — Leggiöi mikiö upp úr nálœgö uiö fólkiö? „Já, það er algjört möst," slettir Jakob. „í okkar huga er ekkert at- hugavert við það þó fólkið komi upp á sviðið til okkar og taki með okkur lagið, það er engum bannað. Við lít- um svo á að við séum að skemmta okkur meö fólkinu en ekki fyrir það. Þar er nokkur munur á.“ Það er þag- að nokkra stund að þessum orðum sögðum — og þeir drengir dást að svari sínu. OFT FYLLRI EN GESTIRNIR Þeir jöklar eru því næst spurðir hvernig þeim líki sú tilætlunarsemi fólks, sem óneitanlega er farið að gæta, að þeir eigi að vera fyndnir og haga sér fíflalega? „Við höfum í sjálfu sér ekkert við þetta að athuga. Okkur líkar ágæt: lega við okkur eins og við erum. I sjálfu sér erum við ekkert að reyna að vera fyndnir, óvart og ómeðvitað er þetta bara svona, eða kemur svona út. Ég meina,“ segir Jakob, „það er í sjálfu sér fyndið að sjá nokkra menn uppi á sviði dilla sér í takt — eða úr takti — við spil og söng. Þetta er fíflalegt framferði hvernig sem á það er litið, það er að segja, í sjálfu sér.“ — Finnst ykkur þiö aldrei hafa gengiö of langt? „Ef eitthvað er, þá í drykkjunni. Gestunum okkar fannst á tímabili sem við værum orðnir helsti frekir til vínsins — og við höfum reynt að bæta það mál nokkuð síðar," bendir Ragnar á, en segir áfram: „Upphaf- lega þegar þetta var að fara allt af stað var það alltaf markmiðið með böllunum hjá okkur að komast á fyllerí. Við settum okkur oft það tak- mark að verða fyllstu menn í hús- inu," játar Ragnar og Jakob skriftar betur: „Stundum náðist það tak- mark líka.“ Þeir segja svo að síðan þegar þeir hafi verið farnir að sjá troðfulla sali trekk í trekk hafi þeir svolítið farið að hugsa málin og séð að þeir þyrftu að geta eitthvað líka ef almennileg framtíð ætti að vera í þessu hjá þeim. Þeir heyrðu jafnvel raddir þess efnis að bandið væri slappt og spilaði léleg lög illa... — Fór þá kannski suo aö þiö spiluö- uö ball edrú? „Ja, næstum því og til dæmis í dag, þá erum við mjög samstiga fólkinu úti á gólfinu í drykkju og ef eitthvað er, töluvert á eftir." ÚR TREHOLT I WALDHEIM — Er mikiö atriöi aö djúsa meö? „Það er ekki hægt að skemmta drukknu fólki og vera edrú sjálfur. Þetta er einfaldlega staðreynd," svarar Jakob skorinort. Ragnar næst: „Ég verð að segja fyrir mig að ég hef prófað tvisvar sinnum að vera edrú á balli — og þá meina ég gjörsamlega vínlaus — það var hryllingur.” Jón Haukur kemst að: „Eg get að vísu alveg spilað edrú, en það er bara skapið; skemmtilegustu menn í augum ölvaðs manns fara alveg geðveikislega í taugarnar á manni edrú.“ En þeir segjast hafa snarminnkað drykkjuna, byrja ekki ball lengur drukknir og láta ekki sjást vín á sviðinu, betri menn með betri músík, bara svolítið mjúkir. Heim- ferðin að balli loknu, um borð í Benz-bifreiðinni Kurt Waldheim, er ekki eins erfið til höfuðsins og hún var áður um borð í Arne Treholt, rússajeppanum sem flutti jöklana á fyrstu árunum milli staða. Þeir klikka ekki á stuðinu fyrir bragðið. cr-o Jakob Jónsson, sérlegur sólógítarleikari, og Jón Haukur Brynjólfsson, bassaleikari og helsti textagerðarmaður sveit- arinnar. 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.