Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 3
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
ÞAÐ vakti talsverða furðu að Jón
Baldvin fjármálaráðherra skyldi
ákveða að ráða sérstakan upplýs-
ingafulltrúa að ráðuneytinu, Karl
Th. Birgisson, fyrrverandi bé-
joðara og núverandi krata. En nú
er komið á daginn að Karl hefur
ekki verið ráðinn að ófyrirsynju,
hann ætlar greinilega að gera
skurk í ráðuneytinu. í viðtali við
Alþýðublaðið lætur hann uppi
hverjar þær ráðstafanir verða. „Ég
ætla a.m.k. að benda honum á að
fá sér klippingu," segir Karl um
yfirboðara sinn, fjármálaráöherra.
Það er kannski óþarfi að taka
fram að Karl er sérdeilislega
snyrtilegur til hársins...
ÍSLENDINGAR gera orðið
víðreist um heiminn, það er víst
kunnara en frá þurfi að segja. Nei,
það fara ekki allir á sólarstrendur
eða í sumarhús í Hollandi. Við
höfum til dæmis haft spurnir af
því að forseti ASÍ, Ásmundur
Stefánsson, sé ásamt konu sinni,
Guðrúnu Gudmundsdóttur, fyrrum
framkvæmdastjóra á Þjóðvilja, í
mikilli ævintýrareisu. Jú,
Asmundur kvað vera austur í
Síberíu, þar sem frumkvöðlar
rússnesku byltunnar voru geymdir
á sokkabandsárunum og síðar þær
ótöldu milljónir Sovétmanna sem
þóttu of auðvaldssinnaðir.
í NÝLEGUM Víkurfréttum
greinir frá nýstárlegri tilraun
hæstaréttarlögmanns til að auka
innkomu heimilisins. Lögmaður
þessi sendi ýmsum fyrirtækjum í
Keflavík bréf þar sem hann
mæltist til þess að sér yrði veittur
styrkur svo hann mætti sækja
keppni í ræðumennsku og mál-
flutningi milli lagadeilda við há-
skólana á Norðurlöndum. Keppnin
fer fram í Stokkhólmi og taldi lög-
maðurinn nægjanlegt að hvert
fyrirtæki léti um 35 þúsund krón-
ur af hendi rakna. Meðal fyrir-
tækjanna sem fengu þetta tilboð
var Hitaveita Keflavíkur. Stjórn
hennar er kunn af ósætti, eins og
flestar stofnanir Keflavíkurbæjar.
En við afgreiðslu þessa máls lögðu
allir niður vopn og höfnuðu tilboði
lögmannsins samhljóða.
HÉRAÐS-sambandið Skarphéð-
inn reið ekki feitum hesii frá
verslunarmannahelginni, eins og
menn muna. Þar á bæ ætluðu
menn, í anda ungmennafélags-
hreyfingarinnar íslensku, íslandi
allt og svo framvegis — að setja
upp griðastað fyrir unglinga svo
þeir gætu óáreittir drukkið sitt vín
og eytt sparifé sínu viö skemmt-
anir svo héraðssambandið gæti
örugglega haldið áfram starfsemi
sinni á komandi árum. Af því til-
efni bjuggu þeir til fyrirbæri sem
gekk undir nafninu Gaukurinn og
átti að verða ógnarleg hátíð.
Löngu áður en helgin gekk í garð
var þessi gaukur byrjaður að gala
í útvarpinu og sagði þar öllum frá
hversu stórfengleg hátíð yrði í
Þjórsárdalnum. Meðal þeirra sem
auglýstu að þeir ætluðu á Gaukinn
voru nýbakaður forsætisráðherra,
Þorsteinn Pálsson, og Nóbels-
skáldið, Halldór Laxness. Hinir
vísu menn telja að þar sé komin
skýringin á dræmri aðsókn að
Gauknum, ekki nokkur unglingur
hafi treyst sér til að sitja undir því
að skáldið læsi úr verkum sínum á
þessum stað og stundu, hvað þá
heldur að skemmta sér með
forsætisráðherranum...
SMARTSKOT
FRÉTTAHALLÆRIÐ á
sumrin, svokölluð gúrkutíð, getur
tekið á sig hinar unaðslegustu
myndir og sjálfsagt förum við hér
á Helgarpóstinum ekki varhluta af
því. Það var til að mynda for-
kostulegt að horfa upp á frétta-
mann Stöövar tvö elta uppi draug
á Suðurlandsundirlendinu um
síðustu helgi. Þó má telja að eng-
inn standi sig betur þessa
góðviðrisdaga en útvarp Stjarnan.
Það var til dæmis ekki amalegt
þegar fréttamaður Stjörnunnar,
kaldur karl, rápaði milli sund-
lauganna í Reykjavík um daginn á
höttunum eftir brjóstaberu kven-
fólki. Sem hafði misfögur brjóst,
eins og kom glögglega fram í
téðum pistli. Þó náðu Stjörnu-
menn mestum hæðum þegar þeir
ákváðu að mál væri að hefja
kosningabaráttu fyrir næstu
forsetakosningar, sem þó verða
ekki fyrr en næsta sumar. Stjörnu-
menn hringdu í Kornelíus
Sigurdsson forsetaritara, sem tjáði
þeim að Vigdís forseti hefði enga
ákvörðun tekið um það hvort hún
færi frá eða ekki, slíks væri heldur
ekki að vænta í bráð. En Stjarnan
gafst ekki upp. Útsendari hennar
fór niður í miðbæ, gekk á blása-
klausa vegfarendur og krafði þá
svara um það hver væri óskafor-
setinn. Því næst tóku Stjörnumenn
að hringja í þá sem þar voru
nefndir á nafn. Urðu þeir flestir
harla undrandi, svo ekki sé meira
sagt. Pétur Thorsteinsson, sendi-
herra og fyrrum forsetaframbjóð-
andi, kom af fjöllum og sagðist
ekki ætla að verða forseti. I sama
streng tók Gudlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari. Og þá kom
rúsínan í pylsuendanum — Davíd
Scheving Thorsteinsson. Davíð
skellihló þegar fréttamaður
Stjörnunnar spurði hann hvort
hugur hans stefndi til Bessastaða.
Það færi þó aldrei svo að sól-
kóngurinn ynni sig upp í forseta-
embættið fyrir þann menningar-
auka að hafa fært landsmönnum
dósagos.
BILASALI nokkur var einstak-
lega hreinskilinn í auglýsingu í
Dagblaðinu á þriðjudaginn. Hann
var þar að auglýsa innflutta
notaða bíla. Eftir að hafa nefnt til
sögunnar nokkrar lúxuskerrur
stóð í auglýsingunni:
NÝJUNG:
FOB-verð, mælar óhreyfðir,
heiðarleg viðskipti.
Þetta er ef til vill meira lýsandi
fyrir þennan einkennilega markað
en innræti þessa ákveðna bílasala.
fyrstog'fremst
Seld veiði en ekki veidd
Undarlegt ástand á fiskum
erlendis á diskum:
etnir þeir eru, en þó
aldrei dregnir úr sjó.
Niðri
„Þetta var meindýr á óœskilegum stad og
þar ad auki er talid ad þetta hafi verid
hringanóri."
— ÞÓRHALLUR ÓSKARSSON, EINN ÞEIRRA SEM
TÓKU ÞÁTT i AÐ VEGA SEL SEM HOLLENSKIR
DÝRAVERNDUNARMENN FLUTTU HINGAÐ TIL
LANDS MEÐ MIKILLI VIÐHÖFN
Ertu ekki alltof ung?
Lilja Hrönn Hauksdóttir
„Nei, alls ekki. Meðan maður er ungur er maður fullur af
krafti og lítur björtum augum til framtíðarinnar.
— Hverterupphafiðað þessum verslunarrekstri hjá þér?
„Það er langur aðdragandi að honum. Móðir mín rak
verslun í fjölda ára og ég byrjaði að pakka inn fyrir hana níu
ára gömul og er því orðin alvön að vera á bak við búðar-
borðið. Mér bauðst það tækifæri í fyrra að taka við rekstrin-
um á Lilju á Laugavegi 19 og hef rekið þá verslun núna í eitt
ár. Síðastliðið haust fór ég að hugsa um það fyrir alvöru að
taka þátt í rekstri í Kringlunni og fannst ég ekki geta sleppt
því tækifæri, ákvað að slá til og hingað er ég komin."
— Er verslunarreksturinn eins og þú áttir von á?
„Eg átti von á að þetta yrði enginn dans á rósum og það
varð raunin. Það halda margir að það sé mjög indælt að
eiga verslun og fullan kassa af peningum og því fylgi marg-
ar skemmtiferðir en tilfellið er að verslunarferðir eru af-
skaplega þreytandi og það felst gífurleg vinna í þeim. Ég
nýt þess sem ég er að gera en í hreinskilni sagt þá tel ég
ekki að maður geti verið í þessu starfi af lífi og sál nema
kannski næstu tíu, fimmtán árin. Það þarf að gefa mikið af
sjálfum sér og það þarf mikinn áhuga og kraft til að hlutirnir
gangi upp. Auðvitað getur maður svo slakað á seinna og
fengið gott fólk til liðs við sig en það getur veriö erfitt að
fá gott fólk til starfa. Þessa stundina er ég mjög heppin
með starfsfólk — en svo er það versta að manni finnst
maður sjálfur alltaf svo óskaplega ómissandi!"
— Hvaða kosti og galla sérðu við að vera svona ung í
þessum bransa?
„Gallarnir eru aðallega þeir að í innkaupaferðum erlendis
hef ég rekið mig á að fólk treystir því ekki alveg nógu vel
í upphafi að svona ung manneskja hafi virkilega peninga til
að greiða fyrir það sem hún er að kaupa. En maður er fljótur
að vinna það traust upp. Kostirnir eru þeir að maður hefur
mikinn kraft þegar maður er ungur ásamt áhuga og orku."
— Finnst þér þú ekki vera að missa af neinu í lífinu að
helga þig viðskiptunum alveg svona ung?
„Nei, alls ekki."
— Hvernig hefur „gamla fólkið" í Kringlunni tekið þér?
„Mjög vel. Við eigum vonandi gott samstarf fyrir hönd-
um."
— En bankastjórar? Bregður þeim ekkert þegar þeir sjá
fæðingardag og ár?
„Það þarf auðvitað að vinna sér traust og þaö fannst mér
takast vel. Núna eru bankastjórar almennt afar ánægðir
með mig og mín viðskipti og hættir að hugsa um aldurinn!"
— Hefurðu aldrei áhyggjur þegar víxlarnir fara aðfalla?
„Það hefur aldrei fallið á mig víxill. Reksturinn hefur
gengið það vel að ég hef alltaf séð fyrir endann á öllu."
— Hvað er skemmtilegast við starfið?
„Fjölbreytnin. Það á líka vel við mig að sitja við stjórnvöl-
inn sjálf."
— Endar þetta ekki með því að þú verður komin með
þína eigin Kringlu innan fárra ára?
„Hver veit!"
— Ert þú hin dæmigerða unga kona á uppleið?
„Ja — það veit ég ekki. Vonandi fer ég alla vega ekki að
fara niður á við úr því sem komið er!"
Eftir því sem viö komumst næst er Lilja Hrönn Hauksdóttir yngsti
verslunareigandinn í Kringlunni, en Lilja opnar þar ídag nýja versl-
un sína, Cosmo. Hún rekur einnig verslunina Lilju á Laugavegi og
þykir mörgum nokkuð djarft teflt af stúlku sem er rétt orðin 22 ára.
HELGARPÓSTURINN 3