Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 30
INNLEND YFIRSYN eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur Enn á ný hafa hræringar orðið á íslenskum tímaritamarkaði. Tímaritakóngurinn Magn- ús Hreggvidsson, sem fyrir fimm árum var óþekkt nafn innan blaðaheimsins, virðist vera að yfirtaka samkeppnisaðila sína með kaupum á útgáfu blaða þeirra. Maður sem sagði í útvarpsviðtali að hann gæti varla skrifað meira en nafnið sitt er skyndilega að nálgast einræðisherrahlutverkið í tímarita- heiminum. Baráttan um tímaritin hefur farið harðn- andi á síðustu árum. Meðan Island var á æskuskeiði sínu í tímaritaútgáfu var gaman að lesa tímarit. Dagar Fálkans og Vikunnar eru góðir lestrardagar í endurminningunni. Þá var baráttan um auglýsingarnar ekki orð- in eins hörð og hún er nú og þar af leiðandi buðu þessu blöð upp á frjórra og betra efni en tímarit nútímans, sem oft á tíðum ein- kennast um of af auglýsingatengdu efni. Auglýsendur sjá sér leik á borði og neita að auglýsa í viðkomandi tímaritum nema fá sér- staka umfjöllun um það fyrirtæki sem verið er að auglýsa hverju sinni. Þetta geta auglýs- endur leyft sér á auðveldan hátt. Hver aug- lýsing sem dettur út úr litgreindu tímariti á glanspappír felur í sér svo mikla fjármuni að útgefendur telja sig ekki geta misst af henni. Auðvitað er það engin blaðamennska sem býður upp á lestur um efni sem hver maður á að geta lesið um á umbúðum viðkomandi vöru. Það samræmist heldur ekki siðaregl- um blaðamanna að skrifa um efni sam- kvæmt beiðni auglýsingadeildar. Það er sölumennska en ekki blaðamennska. Þegar Magnús Hreggviðsson keypti út- gáfufélagið Fjölni í apríl síðastliðnum fékk hann í sínar hendur eitt helsta samkeppnisrit tískublaðsins Nýs lífs, tímaritið Mannlíf, sem fram að þeim tíma hafði verið auglýst sem metsölutímaritið Mannlíf. Skömmu eftir kaupin spurðist hins vegar út að Mannlíf hefði að engu leyti verið meira metsölutíma- rit en Nýtt líf, þetta hefði verið enn eitt aug- lýsingabragðið. Spurningin er hvort þetta er auglýsingatrikk hjá Magnúsi! En hver á að staðfesta upplag þessara blaða? Frjálst fram- tak hefur neitað að taka þátt í upplagseftirliti Verslunarráðs Islands og í fyrrnefndu út- Tímaritið Gestgjafinn keypt af Frjálsu framtaki h.f. Fyrir fjórum mánudum keypti FF einnig útgáfufyrirtœkiö Fjölni, einn skœöasta keppinaut sinn. Að sögn Magnúsar Hreggviðs- sonar stjórnarformanns Frjáls framtaks er samkeppni nauð- synleg. En nú virðist stefna í einokun. Samkeppnin fyrir bí? varpsviðtali bar Magnús Hreggviðsson því við að tímarit sem hann gæfi út væru sérrit og því á engan hátt hægt að bera saman upp- lag Fiskifrétta, sem margir sem tengjast sjáv- arútvegi á einhvern hátt kaupa, eða upplag Morgunblaðsins, sem væri níu sinnum út- breiddara og ætla mætti að flestir lands- menn læsu. I fljótu bragði virðist þessi út- skýring eiga fullan rétt á sér. En er það svo? Hvernig eiga auglýsendur að geta treyst því að svo og svo margir lesi blaðið sem þeir auglýsa í? Sumum útgefend- um finnst engan varða um hversu mörg tölu- blöð seljast af blöðum þeirra. Þeim finnst heldur engum koma við í hversu mörgum eintökum blöðin eru prentuð. Þar liggja mis- tökin. Hver heilvita maður getur séð að tímarit, sem prentuð eru á fokdýran glans- pappír, meira og minna litgreind, eru prent- uð í því upplagi sem næst kemst sölu tíma- ritsins. Það ímyndar sér enginn að tímarita- útgefendur prenti 20—40% meira upplag en þeir vita að geti selst. Til þess liggur alltof mikið fjármagn í útgáfu hvers blaðs. í fyrra- dag gerðust svo þau tíðindi að Frjálst fram- tak keypti tímaritið Gestgjafann, annað tímaritið af tveimur sem hafa tekið þátt í eft- irlitinu. Hér má bæta við að HP var með i upplags- eftirliti um tíma, en tvennt var sem einkum olli því að blaðið dró sig úr eftirlitinu eftir tæplega árs tilraun. í fyrsta lagi varð ljóst að sú viðskiptavild gagnvart blaðinu af hálfu auglýsingastofa, sem lofað hafði verið, varð í raun engin og í öðru lagi vildi HP ekki sætta sig við að valdastofnun í þjóðfélaginu eins og Verslunarráð íslands er gerði þá kröfu að hafa aðgang að öllum bókhaldsgögnum fyr- irtækisins. Ofan á þetta bættist að Verslunar- ráð var lengi að vinna úr gögnum og þær töl- ur um upplag sem þeir birtu því orðnar úrelt- ar þegar upplýsingar um þær birtust al- menningi. í nýjasta hefti Gestgjafans gefa ritstjórarnir og þáverandi útgefendur, Elín Káradóttir og Hilmar B. Jónsson, skýringu á því að dróst að koma blaðinu út. Þau nefna að til þess að gefa út tímarit þurfi ákveðið magn auglýs- inga, og hefðu þau talið að róðurinn ætti að vera orðinn léttur eftir tæp sjö ár á markað- inum. Sú varð ekki raunin. Ritstjórarnir velta fyrir sér hvers vegna Samband íslenskra aug- lýsingastofa, SÍA, beinir ekki viðskiptum sín- um meira til þeirra tímarita sem þora að taka þátt í upplagseftirlitinu, fremur en að treysta á tímaritaupplag sem enginn hefur getað fengið staðfest. Þetta er auðvitað réttilega athugað hjá ritstjórum Gestgjafans, en í rauninni hafa þau sett nýja kaupandann í vanda með þessari yfirlýsingu. Hvað gerir Magnús Hreggviðsson nú? Hann hefur yfir- tekið útgáfu tímarits sem þorði að taka þátt í upplagseftirliti, því útgefendur þess töldu sig ekkert þurfa að fela. Á nú að taka Gest- gjafann út úr upplagseftirlitinu, eða sam- þykkir Frjálst framtak að öll sín tímarit, fari í upplagseftirlitið? Onnur merk tíðindi urðu í tímaritaheimin- um í vikunni, þegar Þórarinn Jón Magnús- son hjá SAM-útgáfunni keypti Vikuna, blað sem lifað hefur lengst allra tímarita. Eins og menn rekur eflaust minni til réðst SAM-út- gáfan í útgáfu á glæsilegu tímariti, Lúxus, sem átti ekki langa lífdaga. Auglýsingamark- aðurinn var þá þegar byrjaður að bresta. Augljóslega er auðveldara fyrir gamalgróin útgáfufyrirtæki að bæta við tímaritum en fyrir unga djarfhuga að byrja á nýjum. Gömlu fyrirtækin hafa starfskraft og hús- næði og þurfa minna að hafa fyrir því að bæta við blöðum. Auglýsingamarkaðurinn virðist hins vegar lifa enn fyrir fjölskyldu- blaðið Vikuna, og SAM-útgáfan tekur því litla áhættu, að því er virðist. Það á þó eftir að koma í Ijós. Munurinn á þeim Þórarni Jóni Magnússyni og Frjálsu framtaki er þó sá í þeim málum sem nú eru að gerast, að Magnús Hreggviðsson mun vera í lykilað- stöðu í prentsmiðjunni Odda, þar sem tíma- rit hans eru prentuð. Magnús hefur þar vild- arviðskipti, enda auðvelt að benda prent- smiðjueigendum á íslandi á hversu lítið mál það er fyrir tímaritaútgefendur að láta prenta erlendis, fái þeir ekki í heimalandi sínu þá þjónustu sem þeir krefjast. Hvernig þróunin verður á auglýsingamarkaðinum í framtíðinni er eitt stórt spurningarmerki. Hins vegar hljóta margir auglýsendur að velta því fyrir sér þessa dagana hvort rétt sé að beina öllu auglýsingamagninu inn til sama mannsins, jafnvel þótt tímaritin þjóni mismunandi lesendahópum. ERLEND YFIRSYN í fyrradag kallaði Daniel Ortega Saavedra, forseti Nicaragua, á sinn fund forustumenn stjórnarandstöðuflokka og málsvara kaþólsku kirkjunnar. Erindið var að ræða við þessa aðila skjóta framkvæmd á því ákvæði samkomulags um friðargerð í löndum Mið- Ameríku, að í hverju landi af fimm skuli sett á laggir nefnd til að fylgjast með hversu stað- ið er við að fylgja fram tímasettri áætlun um aðgerðir til að koma á friði og efla lýðræðis- lega stjórnarhætti. Mál manna er, að á fundi forseta ríkjanna fimm í Guatemalaborg í síðustu viku hafi stjórn sandínista í Nicaragua teygt sig lengst til samkomulags. Hún á líka mest undir, að friðaráætlunin beri árangur. Frá því Ronald Reagan komst til valda í Washington hafa þeir ráðið ferðinni í Bandaríkjastjórn, sem fyrir hvern mun vilja afstýra því að sandín- istastjórnin nái að festa sig í sessi. Bakhjarl stjórnarinnar í Managua í baráttu við mála- liðasveitir leyniþjónustunnar CIA og banda- rískt viðskiptabann er samstaða annarra þjóða Rómönsku Ameríku, sem margar hafa bitra reynslu af bandarískri íhlutun og yfir- drottnunarstefnu. Samkomulag forseta Costa Rica, E1 Salva- dor, Guatemala, Hondúras og Nicaragua er tilraun til að stilla til friðar með einu átaki á öllu svæðinu. Vinstrisinnaðir skæruliðar hafa um langan aldur barist í E1 Salvador og Guatemala en Contra-sveitir herjað á Nicara- gua frá Hondúras. Forsetarnir ákváðu að koma innan hálfs mánaðar á stofn sameigin- legri nefnd ríkja sinna til að vinna að nokkr- um meginmarkmiðum. Innan þriggja mánaða er ætlunin að koma á samtímis vopnahléi í þeim löndum á svæð- inu sem við innanlandsófrið búa. Ganga á frá samningi um að ekkert rikjanna veiti liðsinni uppreisnarhópum gegn ríkisstjórn annars. Girða skal jafnframt fyrir að land nokkurs ríkis verði bækistöð fyrir undirróður eða byltingu gegn ríkisstjórn annars í hópnum. Eftirliti skal komið á með að þessir skilmálar séu haldnir. Stjórn Nicaragua heitir fyrir sitt leyti að beita sér fyrir innanlandssátt og koma á sakaruppgjöf, aflétta neyðarástandi og skerðingu á borgararéttindum sem því fylgir. Um tíma höfðu sumar sveitir Contra bæki- stöð í Costa Rica við suðurlandamæri Nicara- gua, en eftir valdatöku Oscars Arias Sánchez forseta var tekið fyrir hernað af þeirra hálfu. Jim Wright hyggst nota vesöld forsetans til að koma böndum á aðfarir hans í Mið-Ameríku. Þingleiðtogar vilja láta Reagan þrífa eftir sig flórinn Forsetinn gerði flugvöll, sem CIA hafði kom- ið upp til að birgja Contra, og frumskóginn í kring að þjóðgarði. Síðan tók Arias að beita sér fyrir fundum utanrikisráðherra og forseta Mið-Ameríku- ríkjanna fimm. Prjónaði hann þar við friðar- umleitanir Contadora-hópsins Mexíkó, Vene- súela, Kólumbíu og Panama. Árangur varð samkomulagið í Guatemalaborg í síðustu viku. Viðleitni Contadora-hópsins strandaði ítrekað á því, að Bandaríkjastjórn beitti áhrifum sínum á stjórnir E1 Salvador og Hondúras til að ónýta á lokastigi tillögur hans um friðargerð, jafnskjótt og stjórn Nicaragua hafði fallist á þær. Þetta gerðist bæði í september 1984 og í maí í fyrra. En nú sá Arias við slíkum brögðum og hafði með í ráðum áhrifamenn á Bandaríkjaþingi. Utgerð leyniþjónustunnar CIA á her Contra hefur hvað eftir annað leitt til harðra árekstra miili þings og forseta í Washington. Um tíma tók Bandaríkjaþing með lögum fyr- ir hernaðaraðstoð við Contra. Viðleitni manna Reagans til að fara í kringum það bann er Contrahlutinn af hneykslismálinu sem kennt er við þá og íran. í lok september í haust rennur út 100 millj- ón dollara fjárveiting sem Reagan hefur til að reka og vígvæða Contra-herinn. Látið hefur verið í veðri vaka, að forsetinn hyggist biðja þingið um allt að 150 milljónum í sama skyni á næsta fjárhagsári. Áhrifamönnum í báðum flokkum á Banda- ríkjaþingi er ljóst, að Contrar vinna trauðla sigur í Nicaragua, og alls ekki á því tímabili, sem eftir er af stjórnarferli Reagans. Ekkert nema bandarísk innrás hrekkur til að steypa stjórn sandínista. Lítt er fýsilegt fyrir nýjan forseta, úr hvorum flokki sem er, að taka við stríðsástandi sem ekki sér fyrir enda á í Mið- Ameríku. Um sama leyti og stjórnir ríkja Mið- Ameríku voru að undirbúa forsetafund í Guatemalaborg hófust þingleiðtogar handa í Washington. Var þar fremstur í flokki Jim Wright, demókrati frá Texas og forseti Full- trúadeildarinnar. Virðist hann einkum hafa fengið til liðs við sig Robert Dole, leiðtoga repúblíkana í Öldungadeildinni og einn af þeim sem sækjast eftir tilnefningu í forseta- framboð fyrir þann flokk. Þeir félagar komu svo ár sinni fyrir borð, að Reagan forseti féllst á að gefa út yfirlýs- ingu um skilmála af sinni hálfu fyrir pólitískri lausn á fjandskapnum við Nicaragua þrem dögum fyrir fund forsetanna fimm. Þar er gert ráð fyrir vopnahléi í Contrastríðinu und- ir eftirliti Samtaka Ameríkuríkja, stöðvun hernaðaraðstoðar Bandaríkjanna við Contra og vopnasendinga frá kommúnistaríkjum til Nicaragua, afnámi neyðarástands í landinu og kosningum undir utanaðkomandi eftirliti. Skyldi stefnt að samkomulagi um þessi atriði og nokkur önnur fyrir 30. september. Ella kvaðst Reagan myndi biðja þingið að halda áfram að standa straum af hernaði Contra. Þeir flokksbræður Jims Wrights, sem and- vígastir eru að kynda ófriðarbál í framandi landi með bandarísku frumkvæði og fé, tóku óstinnt upp aðild hans að slíku samkomulagi við forsetann. Töldu þeir, sem og frétta- menn, að fyrir Reagan vekti eins og endra- nær að setja sandínistum skilyrði sem þeir gætu fyrirsjáanlega ekki gengið að, og nota afsvar þeirra svo til að kreista út úr þinginu eina fjárveitinguna enn í stríðið. Stjórn Nicaragua vísaði líka skilmálum Bandaríkjaforseta á bug, en bauðst til að taka upp beinar viðræður við stjórn hans. Talsmenn sumra stjórna í Mið-Ameríku sendu Bandaríkjaforseta líka kaldar kveðjur fyrir að reyna á síðustu stundu að trufla frið- arfundinn í Guatemalaborg. En Jim Wright reyndist ekki allur þar sem hann er séður. í ljós kom að hann hafði látið sendiherra Costa Rica og Guatemala í Washington fylgj- ast með því sem fram fór milli þeirra þing- leiðtoganna og forsetans. Þegar svo forset- arnir fimm birtu samkomuiag sitt, þar sem framlagi Reagans er engu skeytt, var það lát- ið berast Wright fyrstum manna í Washing- ton. Fagnaði hann niðurstöðunni eindregið, og næsta dag varð Reagan að fylgja í kjölfar- ið, með semingi þó. Niðurstaðan er því sú, að Bandaríkjastjórn hefur í fyrsta skipti fallist á friðaráætlun komna frá ríkjum Rómönsku Ameríku. Eftir það sem á undan er gengið, sér í lagi upp- ljóstranir um athæfi manna forsetans um nokkurt skeið, hafa þeir menn á Bandaríkja- þingi undirtökin, sem vilja koma í veg fyrir að Reagan skilji eftir sig óframræsta blóð- vilpu í Mið-Ameríku fyrir eftirmann sinn að fást við. Nicaraguastjórn er á hinn bóginn komin langtum fastar en áður í félagsskap nærliggj- andi ríkja, og hlýtur að vilja nokkuð til vinna að halda þeirri pólitísku stöðu sem þar með er fengin gagnvart Bandaríkjunum. En erfið- lega getur gengið að framfylgja áformum um vopnahlé. Dreifðir skæruliðaflokkar í Guatemala-taka þeim möguleika líklega, en mun öflugri skæruher í E1 Salvador segist ekki láta aðra semja fyrir sig. Sama segja Contrar, en þeir eru uppvakningur Banda- ríkjastjórnar og eiga allt undir framvindu mála í Washington. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.