Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 32
eftir Onnu Kristine Magnúsdóttur mynd Jim Smart Elfa Sigualdadóttir bjó í uellystingum og ríkidœmi á Indlandi um margra ára skeid. Hún sneri til íslands meö dóttur sína en skildi dýrgripina eftir á Indlandi. Hún segir hamingjuna ekki felast í audœfum og er hamingjusamari en nokkru sinni fyrr. Bílstjóri, garðyrkjumaður, þjónustufólk. Einhver sem tekur þvottinn þinn og straujar. Einhver sem þvær fyrir þig gólfin meðan þú ferðast um og nýtur lífsins. Þetta er nokkuð sem örugglega margar húsmæðurnar dreymir um, að minnsta kosti endrum og eins. Þetta var nokkuð sem Elfu Sigualdadóttur dreymdi aldrei um, hlotnaðist samt og yfirgaf eftir sex ár í vellystingum. Elfa er einkadóttir Bjarneyjar Alexandersdóttur og Sig- valda heitins Hjálmarssonar, sem lengi var forseti Guð- spekifélagsins og mikill Indlandsvinur. Það var á ferð með foreldrum sínum um Indland sem Elfa kynntist fyrr- verandi eiginmanni sínum, sem varð til þess að hún lifði skyndilega lífi sem hún hafði aðeins séð í kvikmyndum. ,,Að loknu prófi frá Kvennaskól- anum 1961 starfaði ég um tveggja ára skeið hjá Skipaútgerð ríkisins," segir Elfa. „Veturinn 1963 fór ég með foreldrum mínum til Indlands þar sem við dvöldum um níu mán- aða skeið. Þá var ég nítján ára og þetta var fyrsta ferð foreldra minna á þessar slóðir, en þau áttu síðar eft- ir að dvelja mikið á Indlandi. Þenn- an vetur á Indlandi naut ég bara lífs- ins, ferðaðist um og leið afskaplega vel í hitunum. Við bjuggum í góðu húsi rétt við strandbreiðu, sem varla sást maður á utan nokkrir fiski- menn. Mér er sérstaklega minnis- stætt ferðalag sem við fórum í til Delhi með járnbrautarlest. Þetta var þriggja daga ferð og við vorum á þriðja farrými og flutningurinn minnti helst á gripaflutninga. Þarna voru þrjár þriggja hæða kojur í hverjum klefa og við vorum vöruð við að mjög líklega væru ræningjar um borð í lestinni og því eins gott að gæta vel að eigum okkar. Við sváf- um því með peningaveskin og úrin undir koddunum. Engin afgreiðsla á mat var í lestinni og fólk var með nesti með sér eða keypti á viðkomu- stöðum. Um áramótin vorum við í borginni Benares þangað sem fólk kemur í pílagrímaferðir og baðar sig í Ganges, fljóti þar sem fólk á að geta þvegið af sér syndir sínar. A nýárs- morgun vaknaði ég snemma og var komin niður að fljótinu fyrir sólar- upprás og það var ógleymanleg stund að sjá sólina rísa og fólkið koma frá því að þvo sér. Það er svo skrýtið," bætir hún við, ,,að síðar átti ég eftir að búa á Indlandi í mörg ár en upplifði þá aldrei þær tilfinning- ar sem ég upplifði á þessu ferðalagi með foreldrum mínum.“ Eftir dvölina á Indlandi ferðaðist fjölskyldan um Evrópu og Elfa hélt heim á undan foreldrum sínum til ís- lands, þar sem hún starfaði áfram um skeið. Indverski maðurinn sem þau höfðu öll kynnst í ferðinni og var níu árum eldri en Elfa lét þó ekki heimshöf hindra sig í að sjá Elfu aft- ur: ÍSLAND KVATT „Eg var orðin vel þekkt í blóma- verslunum íslands!" segir Elfa hlæj- andi. „Blómvendir og símtöl voru nokkuð sem kom oft í viku til mín og hjá Landssímanum voru þær sjaldnast í vandræðum með að finna stúlkuna sem fékk símtölin frá indlandi, því á þeim tíma var ekki algengt að fólk hringdi svona oft milli landa. Hann kom einnig nokkrum sinnum til íslands og á endanum féllst ég á að giftast hon- um og flytja með honum til heima- lands hans.“ Hvort hún hafi aldrei verið uggandi svarar hún að bragði: „Jú, jú, oft á tíðum hugsaði ég með mér að þetta væri of stórt stökk og einu sinni ákvað ég reyndar að sleppa þessu. Það má þó segja að það sem gerði það að verkum að ég flutti út var að foreldrar mínir þekktu líka manninn og við vissum 32 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.