Helgarpósturinn - 13.08.1987, Blaðsíða 7
íslenskt skip siglir undir íslenskum fána í Karabíska
hafinu. Það hefur ekki haffærniskírteini. Enginn maður
hefur verið lögskráður á það í tvö ár. Veðtryggðar skuldir
þess nema um fjórföldu söluverði þess. Áhöfnin fær ekki
greidd laun sín. En samt blómstrar útgerðin.
Hvernig má það vera?
Flóabáturinn Drangur, sem ætlað
var að flytja fólk og vörur um Eyja-
fjördinn og til Grímseyjar, siglir nú
um Karabíska hafið undir íslenskum
fána. Það er fyrirtækið,,Víkurskip in
USA“ sem rekur skipið. Þetta fyrir-
tæki er í eigu Finnboga Kjeld, stór-
virks kaupsýslumanns. Finnbogi
leigir skipið af Drangi hf. Það fyrir-
tæki er líka í eigu Finnboga. Hann
er skráður fyrir tæplega 70% hluta-
fjár. Auk þess hefur hann keypt
16,5% hlut sveitarfélaga á Eyjafjarð-
arsvæðinu. Enginn kaupsamningur
hefur verið gerður fyrir þessum
kaupum, né hefur Finnbogi greitt
kaupverðið. En menn fyrir norðan
standa hins vegar í þeirri trú að þeir
hafi selt Finnboga. Ríkissjóöur á síð-
an 16,5% hlut í fyrirtækinu á móti
Finnboga.
Allt virðist nú stefna í gjaldþrot
Drangs hf. Eina eign fyrirtækisins,
Drangur, er veðsett upp í topp og
rúmlega það. Þó skipið sé ekki eldra
en sex ára er ekki raunhæft að
reikna með að fyrir það fáist verð í
samræmi við upphaflegt kaupverð.
Frá því það sigldi út fyrir um fimm
árum hefur lítið sem ekkert verið
gert fyrir það. Drangur er nú sem
næst í niðurníðslu. Flokkunarfélag
skipsins, Det Norske Veritas, hefur
gefið útgerðinni stuttan frest til að
kippa þessum málum í lag. Ef það
verður ekki gert verður skipinu „ýtt
út úr klassa", eins og sagt er. Þá mun
því jafnframt verða neitað um trygg-
ingar.
EKKERT HAFFÆRNI-
SKÍRTEINI
Þeir aðilar sem Helgarpósturinn
ræddi við um núverandi ástand
skipsins og höfðu séð það nýlega
töldu það varla meira virði en eitt til
tvö hundruð þúsund Bandaríkja-
dala. Það jafngildir fjórum til átta
milljónum íslenskra króna. Sú upp-
hæð er fjarri því að nægja fyrir hin-
um veðsettu skuldum, samkvæmt
veðbókarvottorði.
Á sama tíma og Drangur hf. stefn-
ir í gjaldþrot er útgerð skipsins kol-
ólögleg. Haffærniskírteini Drangs
rann út í nóvember á síðasta ári. Hjá
Siglingamálastofnun fengust þær
upplýsingar að hvorki eigendur né
þeir sem nú reka skipið (í báðum til-
fellum Finnbogi Kjeld) hafi látið sjá
sig síðan skírteinið rann út. Það er
því ólöglegt að sigla skipinu. Þrátt
fyrir það hefur skipið verið í nær
stöðugum siglingum síðan þá.
Þeir sjómenn á Drangi sem Helg-
arpósturinn ræddi við sögðu að
Drangur væri yfirleitt hlaðinn langt
upp fyrir djúpristumerki, oft einn
eða einn og hálfan metra. Einhverj-
ar breytingar hafa verið gerðar á
skipinu svo það beri meira. Ekki
hefur verið sótt um aukna djúpristu
síðan þessar breytingar voru gerðar.
Ekki frekar en önnur gögn sem
nauðsynleg eru til að skipið fái haf-
færniskírteini.
ENGINN LOGSKRAÐUR
UM BORÐ
Þar sem Drangur siglir undir ís-
lensku flaggi ber að lögskrá áhöfn-
ina hérlendis. En enginn hefur verið
skráður á skipið undanfarin tvö ár,
þrátt fyrir að það hafi verið í nokkuð
stöðugum siglingum. Áhöfnin hefur
verið íslensk. Hún hefur unnið fyrir
„svörtum" launum, það er; laun
hennar eru hvorki gefin upp á ís-
landi né í Bandaríkjunum.
Þar sem enginn hefur verið skráð-
ur á skipið er ekkert eftirlit með því
hvort það er fullmannað. Um tíma
voru á því þrír menn; skipstjóri, vél-
stjóri og matsveinn. Samkvæmt ís-
lenskum lögum nær sá fjöldi varla
helmingi löglegrar áhafnar.
Þó áhöfnin komist hjá því að
greiða skatta af launum sínum hefur
hún ekki einungis hag af þessu fyrir-
komulagi. Sjómaður sem ekki er
lögskráður á skip er réttindalaus
gagnvart öllum tryggingum. Auk
öryggisleysis af þessum sökum hef-
ur áhöfnin átt í erfiðleikum með að
fá laun sín greidd. Síðastliðið vor var
greint frá því í fréttum að Friðrik
Alexandersson, afleysingaskipstjóri
á Drangi, hefði ekki fengið laun sín
greidd. Slíkt er síður en svo óal-
gengt. Olafur Þorsteinsson, rétt-
indalaus maður sem verið hefur
stýrimaður á skipinu, hefur nú leit-
að til lögfræðings til þess að knýja á
um að fá laun sín greidd. Ástandið í
þessum málum er ekki betra á öðru
skipi „Víkurskip in USA“, Grinda-
víkinni. í síðasta mánuði leituðu þrír
skipverjar þar til lögfræðings til þess
að fá Iaun sín greidd. Alls var krafa
þeirra upp á um 700 þúsund íslensk-
ar krónur.
ÚTGERÐIN BLÓMSTRAR
Finnbogi Kjeld lét hafa það eftir
sér hér i Helgarpóstinum í vor að
hann stefndi að því að sigla skipinu
undir fána Panama eða Turks- og
Caicoseyja, sem skipið siglir til. Slíkt
er þó ekki framkvæmanlegt nema
hreinsa af skipinu skuldir hér
heima. Einnig þyrfti Finnbogi að
kaupa hlut Ríkissjóðs í Drangi hf.
En þegar veðbókarvottorð skipsins
er skoðað er erfitt að sjá að nokkur
maður hafi hag af því að kaupa
þetta fyrirtæki. Skuldir þess eru
mun hærri en eignirnar.
En hvað er Finnbogi Kjeld að gera
í skiparekstri í Karabíska hafinu?
Frá því að Finnbogi tók yfir rekst-
ur skipsins í Karabíska hafinu hefur
vegur hans þar aukist. „Víkurskip in
USA“ hefur keypt Grindavík, flutn-
ingaskip sem tekið hefur yfir hefð-
bundnar flutningaleiðir Drangs.
Drangur er nú að mestu í því að
dreifa farmi, sem Grindavíkin siglir
með frá Bandaríkjunum, milli ein-
stakra hafna á eyjunum. Finnbogi er
auk þess með annað flutningaskip á
leigu. Finnbogi á einnig fyrirtækið
Seacorp og hlut í Allan Dean í
Tampa, Flórída. Hann rekur stóra
vöruskemmu, þar sem um fimmtán
manns vinna, auk skiparekstrarins.
Það hefur því verið uppgangur í
rekstri Finnboga í Karabíska hafinu,
um leið og Drangur hefur grotnað
niður og hlaðið á sig skuldum. Öfugt
við Grindavíkina, sem er vel við
haldið.
SPILLTASTI BLETTUR
JARÐARINNAR
Eyjarnar sem þessi skip sigla til,
Hinar bresku Vestur-lndíur, eru sjálf-
sagt spilltasti blettur jarðarinnar. Á
eyjunum er bankakerfið nánast
sniðið að ólöglegri atvinnustarf-
semi. Engar upplýsingar eru gefnar
um viðskiptavini bankanna og þeir
því kjörnir til þess að gera „svarta”
peninga „hvíta”. Og á sama hátt og
bankarnir eru sniðnir t.d. að eitur-
lyfjasmyglinu bera flestir aðrir at-
vinnuvegir þess merki hver helsta
tekjuleið eyjanna er.
í samtali við Helgarpóstinn stað-
festu íslenskir sjómenn á Drangi þá
fullyrðingu Friðriks Alexanders-
sonar, afleysingaskipstjóra, að farm-
skrá skipsins væri illa færð. Þeir
sögðust vanalega hafa verið að
flytja gáma sem hvergi komu fram á
farmskjölum. Auk gáma voru not-
aðir bílar fluttir út í eyjarnar, ef ekki
tókst að fylla skipið með öðrum
hætti. Þessir bílar væru á vegum
bróður konu frá Panama, sem er
framkvæmdastjóri „Víkurskip in
USA“. Öll númer, bæði á rúðum, vél
og boddíi, voru skafin burt.
Frásagnir sjómannanna voru oft á
tíðum ævintýri líkastar. Þegar
ástandið á Haiti tók að versna sátu
skipverjar oft uppi með laumufar-
þega er voru að flýja eyjuna. Að
sögn Ólafs Þorsteinssonar komust
skipverjar eitt sinn að því að um
borð í skipinu voru átta laumufar-
þegar, en i þeim túr voru ekki nema
þrír í áhöfninni. Ekki var hægt að ná
í strandgæsluna þar sem talstöðin
var biluð. Skipverjar gripu þá til þess
ráðs að læsa sig inni í brú af ótta við
að laumufarþegarnir tækju yfir
skipið. í þessari ferð rákust skipverj-
ar á strandgæsluna, sem kom um
borð. Hörð viðurlög eru við því að
tilkynna ekki um laumufarþega í
Bandaríkjunum vegna straums inn-
flytjenda frá Mið- og Suður-
Ameríku. Skipverjar sluppu þó í
þetta sinn með því að benda á hina
biluðu talstöð og með örlitlum lyg-
um að auki. Eftir að ástandið á Haiti
versnaði til allra muna hætti „Víkur-
skip in USA“ öllum siglingum
þangað.
RÍKISSJÓÐUR FLÆKTUR
í MÁLIÐ
Skiparekstur Finnboga Kjeld í
Karabíska hafinu virðist því nokkuð
ævintýralegur. Það er einnig ævin-
týralegt að hann skuli komast upp
með það að sigla skipi án haffærni-
skírteinis og með áhöfn sem ekki er
lögskráð á skipið. Ef verður af hót-
unum Det Norske Veritas mun skip-
ið innan tíðar missa tryggingar-
skírteini
Á sama tíma og hann eykur um-
svif sín úti drabbast Drangur niður
og er nú nánast í niðurníðslu. En á
sama tíma og það gerist lengist veð-
bókarvottorð bátsins. Samkvæmt
nafnvirði skuldanna hvíla á bátnum
hátt í 40 milljónir króna. Megnið af
skuldunum eru lán frá Útvegsbanka
Islands, um 6,5 milljónir norkra
króna (um 30 milljónir íslenskra
króna).
Ríkissjóður íslands virðist því
flæktur í útgerð á skipi sem ekki er
einungis ólögleg, heldur siglir einn-
ig hraðbyri í gjaldþrot. En þó Drang-
ur hf. verði gjaldþrota mun Finn-
bogi Kjeld sjálfsagt halda áfram
skiparekstri í Karabíska hafinu. Eins
og sést á umsvifum hans þar virðast
það vera álitleg viðskipti. Þó Drang-
ur hf. fari á hausinn snertir það ekki
önnur fyrirtæki Finnboga þar. Sam-
kvæmt heimildum Helgarpóstsins
blómstra þau á sama tíma og Drang-
ur ryðgar niður.
eftir Gunnar Smára Egilsson
HELGARPÓSTURINN 7